Fréttablaðið - 27.09.2003, Page 21
LAUGARDAGUR 27. september 2003
■ Næsta stopp
■ Tækniundrið
21
Ótrúlegt verð
á barnaúlpum og kuldagöllum
1.999kr
verð áður 2.999- 2.499kr
verð áður 3.999-2.499kr
verð áður 3.499-
Kuldastígvél fóðruð st. 22-36
3.999kr
Kuldaskór svartir st. 23/24-35/36
3.999kr
Kuldaskór fóðraðir st. 24-38
2.499kr
4.999kr
verð áður 4.999-
Ég gæti kannski hugsað mér aðfara til Sikileyjar því að þar fór
Halldór Snorrason, væringi, með
Haraldi Sigurðssyni, konungi, sem
er mesti hernaðarsnillingur sem
uppi hefur verið og sigraði borgir á
Sikiley hverja á eftir annari,“ segir
Pétur Pétursson, þulur, aðspurður
um hvert hann vildi helst leggja
land undir fót. „Eina borgina sigr-
aði Haraldur með því að grafa sig
inn í hana miðja, flytja moldina
burt að næturlagi og hvolfa henni
út í fljót. Þannig var hann kominn
inn í mitt virkið, upp um gólfið. Í
öðru tilviki beitir hann fyrir sig al-
veg stórkostlegri hernaðarsnilld
sem einnig er mikil mannvonska.
Hann situr um borg sem er víggirt
en fuglarnir sem gera sér hreiður
uppi á múrnum fljúga út fyrir borg-
ina til þess að tína korn. Þá lætur
hann veiða fuglana og bindur hálm
við stél þeirra og kveikir í og svo
stendur borgin í ljósum loga. Þetta
er útsmogið en mikil snilld og
mannvonska.
Svo í þriðju borginni bregður
hann á það ráð að leggjast veikur.
Hann lætur það spyrjast út, því
þeir voru alltaf á varðbergi þessir
sem voru fyrir innan borgarmúr-
ana. Síðan versnar honum og heils-
unni hrakar og svo lætur hann það
spyrjast að hann sé dauður. Og svo
koma menn hans og segja „heyriði,
seinasta ósk Haralds konungs var
það að hann fengi legstað í borg-
inni. Því hann bar svo mikla virð-
ingu fyrir ykkur.“
Þeir segja að það sé alveg sjálf-
sagt „komiði bara með hann í
kistu“. Svo skríður hann í kistuna
sprelllifandi og hefur með sér
menn sem eru með vopn innaklæða.
Þegar komið er inn fyrir borgar-
hliðið sprettur hann upp úr kistunni
og sigrar borgina.
Dóttir mín er að fara með skóla-
systrum sínum til Sikileyjar og ætl-
ar að vera þar í viku svo ég gaf
henni þýðingu á Snorra þar sem
hann segir frá þessum ævintýrum.
Þetta er svoleiðis stórkostleg snilld
og mér finnst að þegar Íslendingar
fara svona á aðrar slóðir þá eigi
þeir að reyna að víkka sjóndeildar-
hring sinn og tengja það sögu lands-
ins sjálfs.“ ■
Ný rannsókn:
Áfengi gerir
karla ljótari
Niðurstöður nýrrar rannsóknarbenda til að körlum finnist
konur vera meira aðlaðandi eftir að
þeir hafa fengið sér aðeins neðan í
því, en að hið gagnstæða gildi fyrir
konur. Eftir að konur hafa fengið
sér í glas finnst
þeim karlar ekki
jafn aðlaðandi
og áður.
Rannsóknin
var gerð við há-
skólann í Vín og
s a m k v æ m t
henni ættu karl-
menn að hugsa
sig tvisvar um
áður en þeir
freista þess að
koma sér í
mjúkinn hjá konum með því að
bjóða þeim í glas. Það kann að hafa
þveröfug áhrif.
Sálfræðingurinn Andreas Mitt-
ermair fór fyrir rannsókninni.
Hann hefur bent á að það hafi lengi
verið vitað að konur séu ekki jafn
uppteknar af útliti gagnstæða
kynsins og karlar, heldur horfi þær
meira á persónuleikann. En niður-
stöðurnar séu engu að síðar áhuga-
verðar. „Þær leiða í ljós að það
virðist ekki vera byggt á neinum
staðreyndum að það sé sérstaklega
árangursríkt, til þess að koma báð-
um kynjum í rómantískt skap, að fá
sér í glas.“ ■
SIKILEY
Sikiley er stærsta eyja Miðjarðarhafsins.
Íbúafjöldinn þar er um 4,8 milljónir. Helsta
kennileiti eyjarinnar er eldfjallið Etna sem
er stærsta virka eldfjallið í Evrópu og gaus
síðast árið 2001. Eyjan er þekkt fyrir ólífu-
rækt, auk þess að vera vagga mafíunnar.
Pétur Pétursson vill á slóðir norrænna væringja:
Herkænska á Sikiley
PÉTUR PÉTURSSON ÞULUR
Hann hefði ekkert á móti því að bregða sér til Sikileyjar á slóðir Haraldar Sigurðssonar
konungs, sem vann mörg hernaðarafrekin á mafíueyjunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
KEVIN WARWICK
Hann rétti upp vélhönd sína á fyrirlestri í
Singapore í vikunni.
Maður og vél
Breski vísindamaðurinn KevinWarwick hefur hannað hönd
sem hægt er að tengja beint við
taugakerfi líkamans. Warwick hef-
ur sett í sjálfan sig örflögur sem
hann heldur fram að geri honum
kleift að tengja sjálfan sig tækjum,
eins og þeirri vélhönd sem hann
hefur nú hannað. Með þessu fram-
taki er því haldið fram að Warwick
sé fyrsta dæmið um að samband
manns og vélar heppnist á þennan
hátt, með beinni tengingu. Þess ber
að geta að Warwick er umdeildur
og þær raddir heyrast meðal ann-
arra vísindamanna að hann sé fyrst
og fremst að leita eftir athygli fjöl-
miðla. Síðast komst hann í fréttir
þegar hann hannaði eftirtektar-
verðan vélhund. ■
ÁFENGI
Karlar ættu að hugsa
sig tvisvar um áður
en þeir bjóða konu í
glas.