Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.09.2003, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 27.09.2003, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 27. september 2003 23 ■ Sagt og skrifað HALLGRÍMUR SKRIFAR UM HVALVEIÐAR Hallgrímur Helgason rithöfundur skrifar grein í New York Newsday um hvalveiðar Íslendinga og við- brögð umheimsins, og þá sérstak- lega Bandaríkjamanna og Breta, við þeim. Fyrirsögn greinarinnar er Free the Icelanders. Í greininni segir hann áhyggjur Blairs og Bush vegna hvalveiða Íslendinga hljóma einkenni- lega og mætti helst líkja við það að Saddam Huss- ein skammaði barnabörn sín fyrir að drepa hvolp. Hallgrímur segir meðal annars í greininni að því fjarlægara sem fólk sé náttúrunni því tilfinningasamara verði það gagnvart henni. Það sem hafi byrj- að sem gott og skynsamt baráttu- mál – að bjarga hvölum frá útrým- ingu – hafi orðið að eins konar trú- arbrögðum sem hafi gert þessi miklu dýr að heilögum skepnum. Hallgrímur kemur víða við í um- fjöllun sinni og vinur okkar Keiko fær þar sitt pláss. Greinina má lesa í heild sinni á heimasíðu Eddu, edda.is. og heimasíðu New York Newsday. Þessa dagana er Hallgrímur að leggja lokahönd á nýja skáldsögu, sem er alls ólík hans fyrri bókun- um. Hún heitir Herra alheimur og er vísindaskáldsaga þar sem Guð er í aðalhlutverki. Gildir á meðan birgðir endast. verð áður 3.499- 2.999kr Buxur st: 10-16 verð áður 2.999- 2.499kr Peysa st: S-XL 2.999kr Pils st: S-XL 3.999kr Stretch flauelsbuxur st: 8-14 3.999kr Peysa st: S-L 4.999kr Úlpa st: 10-16 3.999kr Úlpa st: 10-16 3.999kr stretch gallabuxur st: 8-14 Nýjar vetrarvörur Christopher Ricks, gagnrýnandiog bókmenntaprófessor við há- skólann í Boston, hefur skrifað rómaðar bækur um ljóðagerð og varpaði á sínum tíma nýju ljósi á skáldskap Miltons og Keats. Hann er einlægur aðdáandi Bobs Dylans, sem hann segir vera snilling. Það kom því ekki á óvart þegar hann tók sér fyrir hendur að skrifa bók þar sem hann rýnir í textagerð poppgoðsins til að sanna að þar sé á ferð máttugt ljóðskáld. Bókin er komin út og heitir Dylan’s Visions of Sin. Bókmenntapáfi Sunday Times, John Carey, fer heldur óblíðum höndum um bókina í nýlegum rit- dómi. Hann fettir fingur út í titil hennar og segir að hvorki Ricks né Dylan hafi nokkuð áhugavert að segja um syndina. Carey segir það galla á bókinni hversu hrifinn Ricks sé af Dylan og að þar sé fátt neikvætt um goðið að finna. Í bók sinni dregur Ricks fram setningar sem minna á orð annara höfunda, til dæmis Shakespeares, en viðurkennir reyndar að í flest- um tilvikum virðist vera um um til- viljanir að ræða. Carey segir að Ricks noti þessar samlíkingar til að sýna fram á að fyrst að Dylan noti orð sem viðurkennd skáld hafi not- að hljóti Dylan að vera að skrifa bókmenntatexta. Carey segir að þegar Ricks birti texta Dylans við hlið skálda á borð við Tennyson sé mismunurinn slá- andi. Ljóðskáldin séu vel máli far- inn og hafi tilfinningu fyrir hljóm- falli en texti Dylans sé líflaus, klaufalegur og sérkennilega laus við hljómfall. „Hin augljósa skýr- ing á þessu er að hann er ekki skáld heldur lagasmiður,“ segir Carey um Dylan. Þess má að lokum geta að Ricks og Dylan hittust í fyrsta sinn á dög- unum, skömmu eftir útkomu bókarinnar. Fundurinn er sagður hafa verið nokkuð vandræðalegur því hvorugur vissi hvað hann ætti að segja. Dylan var þó fyrri til að mæla og sagði: „Við hittumst þá loksins, prófessor“. Ricks, sem alla jafna er flugmælskur, er sagður hafa svarað: „Hefurðu lesið ein- hverja góða bók nýlega?“ ■ ÚTGÁFUSTJÓRI Í KLANDRI? Miklar deilur eru risnar upp í Noregi vegna bókarinnar Bóksal- inn í Kabúl eftir Åsne Seierstad. Seierstad dvaldi í Afganistan í hálft ár og skrifaði bókina um þá reynslu sína. Ein aðalpersóna bókarinnar er bóksali og fjöl- skylda hans. Bók- salinn, Shah Mo- hammad Rais, sem er 58 ára gamall, segir Seierstad gefa í bókinni alranga mynd af sér og fjölskyldu sinni. Hann er nú kom- inn til Noregs og hótar ekki bara höfundi skaða- bótamáli heldur einnig útgefend- um um allan heim en bókin er væntanleg til útgáfu í 17 löndum, þar á meðal Íslandi, nú fyrir jólin. Gárungarnir segja að íslenski út- gefandinn Páll Valsson, hjá Máli og menningu, geti svo sem ekki búist við öðru en vandræðum úr hinum íslamska heimi, verandi einnig útgefandi Salmans Rushdies og Söngva Satans. Hann hafi þó reynt að friðþægja þetta fólk með því að gefa út Kóraninn, en ekki gáð að því að dauðarefs- ing liggur við að þýða Kóraninn vitlaust og deildar meiningar séu um hversu bókstafleg þýðing Helga Hálfdanarsonar sé. Páll þurfi því líka að axla þá ábyrgð og allt bendi til að hann þurfi að verja einhverjum hluta næsta árs bak við lás og slá. BOB DYLAN Gagnrýnandi Sunday Times gefur lítið fyrir skáldgáfu hans. Ný bók um skáldgáfu Bobs Dylans fær slæma einkunn Lagasmiður en ekki skáld HALLGRÍMUR HELGASON Skrifar um hvalveiðar. PÁLL VALSSON Kominn upp á kant við íslam? BRAGI MÆTIR AÐ ÁRI Íslenskir bókaunnendur hafa margir beðið nýrrar skáldsögu frá Braga Ólafssyni en hann er með snjallari rithöfundum okkar. Tilkynnt hafði verið að ný bók frá honum væri væntanleg en Bragi hefur nú ákveðið að vera ekkert að flýta sér og bíða í eitt ár með útgáfu og vinna meir í bókinni. ■ Bókatíðindi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.