Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.09.2003, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 27.09.2003, Qupperneq 28
28 27. september 2003 LAUGARDAGUR FÓTBOLTI „Ég held að FH vinni með tveimur eða þremur mörkum á móti einu,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, um bik- arúrslitaleik FH og ÍA í dag. Lúðvík er mikill Haukamaður en segist að sjálfsögðu ætla að mæta á leikinn. „Ég hef fylgst með FH-liðinu í sumar og séð fjöl- marga leiki með þeim. Þeir hafa verið að spila fantagóða knatt- spyrnu og síðustu leikir þeirra eru eftirminnilegir. Ég sé það á öllu að liðið er í toppgír á réttum tíma og held að menn ætli sér að klára þetta með stæl,“ segir Lúðvík. Bæjarstjórinn segir mikla stemningu vera fyrir leiknum og býst við að Hafnfirðingar fjöl- menni í Laugardalinn. „Þetta er stærsti titill í knattspyrnu sem er í sjónmáli fyrir bæinn. Hafnfirð- ingar hafa ekki enn komið með stærstu bikarana heim svo það er kominn tími til.“ ■ Hefðin hjá ÍA en hugur í FH FÓTBOLTI „Liðin hafa verið áþekk að getu síðan FH kom aftur upp í efstu deild en þó er blæbrigða- munur á leikstíl þeirra,“ sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari um liðin sem leika til úrslita í VISA-bikarkeppni karla í dag. Logi segir Skagamenn vera með baráttuglaða leikmenn sem byrji yfirleitt leikinn af miklum krafti og vilji vera fljótir fram. FH-ingar vilja aftur á móti halda boltanum meira innan liðsins. „Ég held að FH-ingum finnist röðin komin að þeim en það er ljóst að hefðin er hjá Skagamönn- um. Þetta telur kannski örlítið meira með Skagamönnum en FH en ég veit að það er mikill hugur í Hafnfirðingum,“ segir Logi. „Ef FH stenst pressuna frá Skaga- mönnum í upphafi leiks verður vonandi skemmtilegur leikur. Það gæti orðið jafnt á með liðunum og þá eigum við inni framlengingu og vítaspyrnukeppni og ég væri ekki hissa þó leikurinn endaði á því.“ Logi á ekki von á að Skaga- menn geri sérstakar ráðstafanir vegna lykilmanna FH á borð við Heimi Guðjónsson og Allan Borgvardt. Hann telur að fróðlegt verði að fylgjast með baráttu Stefáns Þórðarsonar og Tommy Nielsen. „Stefán er kannski ekki algjörlega búinn að jafna sig af veikindum en það vita það allir að líkamlegur styrkur hans er gífur- legur. Tommy hefur komið vel út úr Íslandsmótinu og hefur stýrt varnarleik FH mjög vel. Að auki gefur hann góðar sendingar fram völlinn. En það getur orðið gaman að fylgjast með baráttu þeirra,“ segir Logi. Logi segir Skagamenn vera farna að spila leikkerfið 4-4-2, með Garðar Gunnlaugsson og Stefán Þórðarson frammi. Þeir hafa einnig kallað Hjört Hjartar- son heim frá Bandaríkjunum. Logi telur að með þessu leikkerfi gæti Skagamönnum gengið betur að stoppa kantspil FH-inga og nýta sér eyður innan við bakverði FH. „Þetta getur verið möguleiki sem Ólafur Þórðarson er að hugsa um. Á móti kemur að þá eru tveir leikmenn ÍA á miðjunni á móti þremur hjá FH. Þá þurfa kant- menn Skagamanna að hjálpa til inni á miðjunni,“ segir Logi Ólafs- son. ■ 43 ÚRSLITALEIKIR Leikur ÍA og FH verður 44. úrslitaleikur bikar- keppninnar. Leikið var á Mela- velli frá 1960 til 1972 og á Laug- ardalsvelli frá 1973. VISA VEITIR VERÐLAUN Bikar- meistararnir fá eina og hálfa milljón frá VISA, styrktaraðila bikarkeppninnar, en liðið sem tapar fær milljón. Sigurvegarinn fær einnig farandbikar til varð- veislu í eitt ár og eignarbikar og gefur VISA báða gripina. Leik- menn beggja liða fá verðlauna- pening og veifu til minningar um leikinn. STUÐNINGSMENN Skagamenn hittast í Ölveri í Glæsibæ fyrir leik en FH-ingar í Kaplakrika og á Snóker Sportbar í Flatahrauni. Stuðningsmenn ÍA verða í suður- hluta gömlu stúkunnar og norður- hluta nýju stúkunnar og stuðn- ingsmenn FH í norðurhluta gömlu stúkunnar og suðurhluta nýju stúkannar. 142 MÖRK Theodór Óskarsson skoraði 142. bikarúrslitamarkið þegar hann setti síðasta markið í leik Fylkis og Fram í fyrra. KR hefur skorað 32 mörk í úrslita- leikjum, ÍA 27, Fram 25 og Valur 23. Guðmundur Steinsson (Fram) og Gunnar Felixson (KR) skoruðu sex mörk í úrslitaleikjum og Marteinn Geirsson (Fram), Pétur Ormslev (Fram) og Pétur Péturs- son (ÍA og KR) fjögur hver. FIMM JAFNTEFLI Í SEX LEIKJUM Skagamenn og FH-ingar hafa gert fimm jafntefli í sex síðustu deild- arleikjum félaganna. Félögin gerðu markalaust jafntefli á Skag- anum í sumar en leiknum í Kaplakrika lauk 1-1. Jónas Grani Garðarsson skoraði mark FH en Gunnlaugur Jónsson jafnaði fyrir ÍA. ÁTTA MÖRK Valur vann ÍA 5-3 í úrslitaleik bikarkeppninnar árið 1965 og hafa ekki verið skoruð fleiri mörk í úrslitaleik. Berg- sveinn Alfonsson (2), Ingvar Elís- son, Bergsteinn Magnússon og Hermann Gunnarsson skoruðu fyrir Val en Guðjón Guðmunds- son, Skúli Hákonarson og Björn Lárusson fyrir ÍA. ÞRJÁR VÍTAKEPPNIR Þrisvar hef- ur úrslitaleikjum lokið með víta- spyrnukeppni. Valur vann KR 5-4 eftir tvo jafnteflisleiki árið 1990 og Keflavík vann ÍBV árið 1997, einnig 5-4 eftir tvo jafnteflisleiki. Árið 2001 vann Fylkir KA 5-4 eft- ir 2-2 jafntefli í framlengdum leik. TÍU FRAMLENGINGAR Tíu sinnum hafa úrslitaleikir farið í fram- lengingu. Árið 1969 skildu ÍBA og ÍA jöfn í úrslitaleik en ekki var hægt að framlengja leikinn vegna veðurs. Félögin léku að nýju og unnu Akureyringar 3-2 í fyrsta framlengda úrslitaleik sögunnar. OFTAST 2-1 Þrettán úrslitaleikjum hefur lokið 2-1, sjö sinnum hafa lokatölur orðið 1-0 og fjórum sinn- um 1-1, 2-0 og 3-1. Átta sinnum hefur úrslitaleikur unnist með þremur mörkum eða fleiri, síðast 1992 þegar Valur vann KA 5-2. KR OFTAST BIKARMEISTARI Níu lið hafa hampað bikarmeistaratitlinum. KR hefur oftast orðið bikarmeistari, tíu sinnum, en ÍA og Valur næstoftast, átta sinnum hvort lið. BIKARMEISTARAR: KR 10 ÍA 8 Valur 8 Fram 7 ÍBV 4 Fylkir 2 Keflavík 2 ÍBA (Þór/KA) 1 Víkingur 1 VISA-bikarkeppni karla: Garðar dæmir FÓTBOLTI Garðar Örn Hinriksson dæmir úrslitaleik ÍA og FH í VISA-bikarkeppni karla. Aðstoð- armenn hans verða Einar Guð- mundsson og Gunnar Gylfason, Gylfi Þór Orrason verður vara- dómari og Þóroddur Hjaltalín eft- irlitsmaður KSÍ. Garðar dæmir úrslitaleik í bik- arkeppni karla í fyrsta sinn en hann dæmdi úrslitaleik Breiða- bliks og KR í bikarkeppni kvenna árið 2000. Einar hefur þrisvar áður verið aðstoðardómari á úr- slitaleik bikarkeppninnar en Gunnar tekur nú þátt í fyrsta sinn. Gylfi hefur tvisvar dæmt úrslita- leiki bikarsins. ■ hvað?hvar?hvenær? 24 25 26 27 28 29 30 SEPTEMBER Laugardagur  13.25 Football Week UK (Vikan í enska boltanum) á Stöð 2.  13.50 VISA-bikarkeppnin í fótbolta á RÚV. Bein útsending frá úrslitaleik ÍA og FH.  15.00 Trans World Sport (Íþróttir um allan heim) á Sýn.  15.55 Enski boltinn á Sýn. Útsend- ing frá leik Leicester City og Manchest- er United.  16.00 ÍBV og FH keppa í Eyjum í RE/MAX-deild kvenna í handbolta.  16.00 KR mætir Reykjavíkurmeist- urum ÍS í DHL-höllinni á Reykjavíkur- móti kvenna í körfubolta.  16.00 Þýski fótboltinn á RÚV. Sýnd- ur verður leikur Wolfsburg og Bayer Leverkusen.  17.00 Enski boltinn á Sýn. Sýnt frá leik Arsenal og Newcastle United.  17.50 Formúla 1 á RÚV. Bein út- sending frá tímatöku fyrir kappaksturinn í Indianapolis í Bandaríkjunum.  19.00 US PGA Tour 2003 á Sýn. Þáttur um bandarísku mótaröðina í golfi.  19.25 Bein útsending frá leik Val- encia og Real Madrid á Sýn.  23.15 Hnefaleikar á Sýn. Útsending frá keppni í Berlín. Á meðal þeirra sem mætast eru Hector Velasco og Bert Schenk. ÍA og FH hafa verið áþekk að getu, segir Logi Ólafsson landsliðsþjálf- ari. Honum kæmi ekki á óvart að bikarúrslitaleikurinn í dag færi í framlengingu og endaði í vítakeppni. FH - ÍA Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH, Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA, og Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA. Fótbolti Lúðvík Geirsson um bikarleikinn: Kominn tími á titil LÚÐVÍK GEIRSSON Spáir Hafnfirðingum sigri í dag. FÓTBOLTI „Sá leikur var sögulegur fyrir margar sakir. Þetta var í fyrsta sinn sem FH náði svona langt og liðið afar ungt að árum,“ sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálf- ari um úrslitaleik ÍBV og FH árið 1972. „Veðrið setti mikið strik í reikninginn. Það endaði með því að Eyjamenn komu með varðskipi til lands og úrslitaleikurinn fór fram um miðjan nóvember. Þetta var skemmtilegt en menn gátu ekki reiknað með að vinna þennan leik,“ sagði Logi. Meðal leikmanna ÍBV var Ás- geir Sigurvinsson landsliðsþjálfari. FH-ingar léku í 2. deild árið 1972 en unnu Keflavíkinga, Íslandsmeist- ara ársins 1971, í undanúrslitum. „Það var mjög hart barist þegar Keflavík og FH mættust,“ sagði Logi. „Stóru stjörnunum í Keflavík fannst þeir svolítið pirrandi þessir ungu piltar úr Hafnarfirði sem vor að stríða þeim.“ ■ Sögulegur úrslitaleikur árið 1972: Ungt lið FH lék til úrslita ÁSGEIR OG LOGI Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson mættust í úrslitaleik bikarkeppninnar árið 1972. Ás- geir lék með Eyjamönnum en Logi með FH-ingum. ■ Bikarinn FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FÓTBOLTI „Þetta verður jafn og spennandi leikur. Vandamál okkar Skagamanna er að við þurfum að eiga við spútniklið FH og það er ekki heiglum hent að takast á við lið sem tekur KR 7-0 í bakaríið,“segir Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra- nesi, um bikarúrslitaleikinn. „Við Skagamenn vonum það besta en gerum okkur ekki of miklar vonir. Það er hins vegar spurning hvað sagan kemur okkur langt.“ Gísli, sem lék með KR á árum áður, segir mikla og fína stemn- ingu vera á Akranesi fyrir leik- inn. „Við heimamenn höfum fulla trú á okkar drengjum og að mjög vandlega athuguðu máli endar þetta 2-1 fyrir ÍA, eftir fram- lengdan leik,“ sagði Gísli þegar hann var beðinn að spá fyrir um úrslitin. ■ GÍSLI GÍSLASON „Við heimamenn höfum fulla trú á okkar drengjum.“ Gísli Gíslason um bikarleikinn: Skagasigur eftir fram- lengingu FRÉTT AB LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.