Fréttablaðið - 27.09.2003, Page 30

Fréttablaðið - 27.09.2003, Page 30
30 27. september 2003 LAUGARDAGUR OLGA KARMANSKY Bandaríska stúlkan Olga Karmansky í keppni á heimsmeistaramótinu í nútíma- fimleikum í Búdapest. Fimleikar Rivaldo: Leystur undan samningi FÓTBOLTI Brasilíski landsliðsmað- urinn Rivaldo hefur verið leystur undan samningi við Evrópumeist- ara AC Milan. Stjórn ítalska liðs- ins varð við beiðni knattspyrnu- mannsins um að leysa hann undan samningi enda hefur hann lítið fengið að spreyta sig frá því að hann gekk til liðsins fyrir síðasta tímabil. Rivaldo hefur verið orðaður við hin ýmsu lið á síðustu dögum, þar á meðal Middlesbrough í ensku úr- valsdeildinni og Real Madrid. Fréttir hafa borist af því að brasil- íski framherjinn Ronaldo hafi far- ið þess á leit við forseta spænska liðsins að það keypti Rivaldo. Rivaldo lék með Barcelona áður en hann gekk til liðs við Mil- an. Hann var einn af lykilleik- mönnum brasilíska landsliðsins sem vann heimsmeistaratitilinn í fyrra. ■ Þurfum á sigri að halda FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjóns- son, Ívar Ingimarsson og félagar í Úlfunum sækja Bolton heim í ensku úrvalsdeildinni í dag. Úlf- unum hefur ekki gengið vel það sem af er tímabilinu, hafa aðeins náð einu stigi úr sex leikjum, en Bolton er um miðja deild með sex stig úr sex leikjum. „Þetta hefur ekki gengið nógu vel en ég hef trú á því að við snúum þessu við,“ segir Jóhannes Karl. „Það eru þrír framherjar að stíga upp úr meiðslum og vonandi dugir það til. Við höfum átt í erfiðleikum með að skora.“ Jóhannes Karl skoraði sitt fyrsta mark fyrir Úlfana á þriðjudag í 2-0 sigri á Darlington í deildarbikarnum. Hann veit ekki hvort hann verði í byrjunar- liðinu í dag. „Mér gekk ágætlega í leiknum á þriðjudaginn en bíð bara rólegur eftir því að byrjun- arliðið verði kynnt. Þetta verður hörkuleikur sem við eigum ágæta möguleika á að vinna og þurfum að vinna,“ segir Jóhann- es Karl. Claudio Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, segir of snemmt að tala um hvort liðið vinni til titla í ár. Chelsea, sem fær Aston Villa í heimsókn og er í öðru sæti deild- arinnar, hefur verið á mikilli sigl- ingu undanfarið og vann meðal annars Úlfana 5-0 um síðustu helgi. „Það er of snemmt að tala um titla. Ég vona að við verðum í þessari stöðu í maí en nú er bara september,“ sagði Ranieri. Juan Pablo Angel hefur einnig farið mikinn í liði Villa. Hann skoraði þrennu í deildarbikarleik gegn Wycombe í vikunni og hefur skorað sex mörk í fjórum leikjum. Meistarar Manchester United mæta Leiceister á útivelli. Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, á úr vöndu að ráða vegna meiðsla í herbúðum sínum. Ole Gunnar Solskjær verður frá næstu mánuði en hittir fyrir á sjúkralistanum Wes Brown og Kleberson. „Þetta er áfall fyrir okkur og nú þegar leikmannamarkaðurinn er lokaður er ekkert sem ég get gert,“ sagði Ferguson. „Ég tel samt að við höfum nógu góðan og sterkan hóp.“ ■ GETRAUNIR „Það er bara fyrsti vinningur sem er 80 milljónir en heildarvinningsupphæðin er 145 milljónir,“ segir Haraldur Har- aldsson, markaðs- og sölustjóri Ís- lenskra getrauna, um enska get- raunaseðilinn í dag. „Þetta er stærsti vinningurinn á þessu ári og einn af þremur stærstu frá upphafi.“ Fimm leikir úr ensku úrvals- deildinni eru á getraunaseðlinum en átta úr ensku 1. deildinni. „Potturinn er svona hár vegna þess að fyrir tveimur vikum vor- um við með svokallaðan risapott,“ útskýrir Haraldur. „Hann mynd- ast þegar greiðslan fyrir tíu rétta er undir lágmarkinu, 100 krónum, og svo var enginn með 13 rétta síðast. Við fáum risapott annað slagið en það er mjög sjaldgæft að enginn fái þrettán rétta.“ ■ Sven-Göran Eriksson: Óviðeigandi ummæli FÓTBOLTI Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands í knatt- spyrnu, hefur verið gagnrýndur af Evrópska knattspyrnusam- bandinu, UEFA, fyrir að gefa í skyn að enskir áhorfendur gætu látið lífið ef þeir fara á leik Tyrk- lands og Englands í Istanbúl í und- ankeppni Evrópumótsins í næsta mánuði. „Við erum með nógu miklar áhyggjur af leiknum svo þjálfar- arnir þurfa ekki að vera með óviðeigandi ummæli,“ sagði Lennart Johansson, forseti UEFA. „Þjálfarar eiga að halda sig við að gefa skipanir til leik- manna og gefa jákvæðar yfirlýs- ingar í lok leikja sama hvernig útkoman er.“ ■ Fimm leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Úlfarnir sækja Bolton heim. Þurfum á sigri að halda, segir Jóhannes Karl, leikmaður Úlfanna. Knattspyrnustjóri Chelsea segir of snemmt að tala um titla. ÚR LEIK CHELSEA OG WOLVES Chelsea burstaði Úlfana um síðustu helgi. Chelsea mætir Aston Villa í dag en Úlfarnir sækja Bolton heim. LEIKIR DAGSINS: Birmingham - Portsmouth Bolton - Wolves Chelsea - Aston Villa Leicester - Manchester United Southampton - Middlesbrough JÓHANNES KARL Hefur trú á því að Úlfarnir kom- ist brátt í gang. Getraunir: 80 milljónir fyrir 13 rétta 1/40 AF BECKHAM 80 milljónir fyrir 13 rétta á getraunaseðli helgarinnar samsvara 1/40 af því sem Real Madrid greiddi fyrir David Beckham. RIVALDO Lék aðeins 22 leiki fyrir AC Milan og skoraði fimm mörk. Manchester United: Scholes kannski með FÓTBOLTI Líkur eru taldar á því að Paul Scholes snúi aftur í lið Manchester United í dag þegar meistararnir mæta Leicester í ensku úrvalsdeildinni. Scholes hefur ekki leikið síðan í ágúst og um tíma var óttast að hann þyrfti að fara í að- gerð. Ákveðið var að fresta aðgerðinni og virðist sem það hafi borgað sig. Ferguson, knatt- spyrnustjóri United, hefur átt erfitt með liðsuppstillinguna vegna meiðsla leikmanna. Hann segist þó ekki ætla að taka áhættu í leiknum á laugardag. „Við höfum ekki efni á því að taka áhættu, þá gætum við misst Scholes í lengri tíma,“ sagði Ferguson. ■ England - Tyrkland: Beckham mætir Nielsen á ný FÓTBOLTI „Ég hef dæmt þrjá leiki Manchester United í Meistara- deildinni frá 1998 og það hafa ekki verið nein vandamál,“ sagði danski dómarinn Kim Milton- Nielsen við enska dagblaðið The Sun. Daninn mun dæma leik Tyrklands og Englands í und- ankeppni Evrópumótsins 11. október. Englendingar muna þeg- ar Milton-Nielsen rak David Beckham af velli gegn Argentínu í lokakeppni Heimsmeistara- keppninnar árið 1998. „Ég er ánægður með verkefnið og ánægður með að sjá Beckham að nýju,“ sagði Milton-Nielsen. „Ég hef fylgst með framgangi hans hjá Real Madrid vegna þess að hann er mjög góður leikmaður.“ ■ PAUL SCHOLES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.