Fréttablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 1
FORNLEIFAR Rústir af fordyri sem
fundust nú á haustdögum í Aðal-
stræti og taldar eru tilheyra rúst-
um fornaldarbæjar sem þar hafa
fundist hafa verið fjarlægðar.
Koma á nýju fordyrisrústunum
fyrir aftur á sínum stað þegar lok-
ið hefur verið við að koma fyrir
undirstöðum hótelsins sem rísa á
yfir rústunum öllum. Þetta kemur
fram í svari Þórólfs Árnasonar
borgarstjóra við fyrirspurn sjálf-
stæðismanna um framgang forn-
leifauppgraftarins í Aðalstræti.
„Fordyrið þykir afar merki-
legur hluti skálans og ákveðið
var að það skyldi varðveitt með
skálarústinni. Nokkra aðlögun
eða breytingar þurfti að gera á
hönnun nýbyggingarinnar til
þess að svo mætti verða. Nauð-
synlegt reyndist að fjarlægja
rúst anddyrisins tímabundið á
meðan undirstöður nýbygging-
arinnar verða gerðar en áður
hafði hún verið mæld, teiknuð,
skráð mjög nákvæmlega og
mynduð. Að því búnu verður
rústin lögð aftur sinn stað, hver
steinn og hver arða,“ segir borg-
arstjóri.
Samkvæmt aldursgreiningu
er skálinn talinn hafa verið í
notkun á árunum 925 til 975. ■
● eftir ógleymanlegt ár á spáni
Iris Gústafsdóttir:
▲
SÍÐA 16
Aftur í íslensk-
an veruleika
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 24
Sjónvarp 28
MIÐVIKUDAGUR
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
Meðallestur fólks 25-49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
á miðvikudögum
82%
52%
20%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
ÁTÖK FRAM UNDAN Á LANDS-
FUNDI Talið er líklegt að Stefán Jón Haf-
stein, formaður framkvæmdastjórnar Sam-
fylkingar, fái mótframboð á landsfundi
Samfylkingarinnar sem hefst þann 31.
þessa mánaðar. Sjá síðu 2.
BANNI HNEKKT Átján þingmenn hafa
lagt fram þingsályktunartillögu um að
banni umhverfisráðherra við rjúpnaveiði
verði hnekkt. Alls standa því sautján stjórn-
arþingmenn að tillögunni og segist Gunnar
I. Birgisson nokkuð viss um að ályktunin
verði samþykkt. Sjá síðu 2.
EES-SAMNINGUR Í UPPNÁMI
Smáríkið Liechtenstein vill ekki staðfesta
samninginn um stækkun Evrópska efna-
hagssvæðisins vegna deilna við Tékkland
og Slóvakíu. Utanríkisráðherra Íslands segir
gríðarlega hagsmuni í húfi. Hart sé lagt að
Liechtenstein að finna lausn. Sjá síðu 4.
ÓPERAN Í TÓNLISTARHÚSIÐ Það
kostar um 1.700 milljónir króna aukalega
að gera 6,4 milljarða króna tónlistarhús að
heimavelli Íslensku Óperunnar, sem vill
komast inn í húsið. Bandarískt ráðgjafarfyr-
irtæki mælir með því Óperan fari í Borgar-
leikhúsið. Sjá síðu 6.
vopnanámskeið ● konur í oxford
▲
SÍÐA 18-19
nám o.fl.
Námskeið um
Don Kíkóta
Guðbergur Bergsson:
AUGNHEILSA BARNA Í tilefni af
sjónverndardegi stendur Lionshreyfingin
fyrir fundi í Norræna húsinu klukkan
16.30. Á fundinum verða m.a. fyrirlestrar
um augnheilsu barna og sjónskert börn á
Íslandi. Fundurinn er opinn almenningi
og aðgangur er ókeypis.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA VÆTA Það liggur mjög rakt loft
yfir landinu. Úrkoma eykst í borginni síð-
degis. Sjá síðu 6.
15. október 2003 – 252. tölublað – 3. árgangur
Ný uppgötvun við fornaldarbæ frá tíundu öld:
Afar merkilegt fordyri fjarlægt
góð ráð ● eldhúsið tekið í gegn
Karl Ágúst Úlfsson:
Sjónvarpið
hornreka
Breti vill Norðurljós
fyrir milljarð króna
Marcus Evans hefur átt í viðræðum um kaup á Norðurljósum. Tilbúinn með milljarð en vill
niðurfellingu á tveimur. Ætlaði að funda með Davíð Oddssyni forsætisráðherra. Jón Ólafsson
segir Bretann koma vel fyrir og er tilbúinn að selja fyrir rétt verð.
FJÖLMIÐLAR Breti sem skráður er
með fyrirtækjarekstur í Mónakó
hefur komið nokkrum sinnum til
Íslands á undanförnum vikum í
því skyni að semja um kaup á fjöl-
miðlafyrirtæk-
inu Norðurljós-
um. Heimildir
Fréttablaðsins
herma að Bret-
inn, Marcus
Evans, hafi
fundað með for-
svarsmönnum Norðurljósa og
helstu lánardrottnum af þessu til-
efni. Heimildir Fréttablaðsins
herma að Evans hafi átt fund með
Davíð Oddssyni forsætisráðherra
á mánudaginn í síðustu viku, en
það fékkst ekki staðfest.
Heimildir herma að Evans sé
tilbúinn að leggja milljarð króna
inn í félagið gegn því að fá niður-
fellingu um helmings skulda
Norðurljósa, sem eru alls 6,9
milljarðar króna að meðtöldu
sambankaláni sem reynst hefur
Norðurljósum þungur baggi. Bret-
inn mun vilja fá fyrirtækið með
skuldsetningu upp á 2,7 milljarða
króna.
Evans, sem talinn er vera auð-
kýfingur, hefur átt fundi með Jóni
Ólafssyni, aðaleiganda Norður-
ljósa, vegna fyrirhugaðra kaupa.
Jón staðfesti það í samtali við
Fréttablaðið en sagðist lítið vita
um Evans annað en það að maður-
inn kæmi vel fyrir og væri með
rekstur í yfir 30 löndum. Jón
Ólafsson segist tilbúinn að selja ef
rétt verð fáist.
„Ég ber fyrst og fremst hags-
muni starfsmanna Norðurljósa og
fjölskyldna þeirra fyrir brjósti,“
segir Jón. Hann segist ekki vita
hvort Evans hafi hitt forsætisráð-
herra að máli. „Ég vissi að hann
ætlaði að hitta Davíð,“ segir Jón.
Marcus Evans hefur þegar ráð-
ið sér lögmanninn Þórarin Viðar
Þórarinsson, fyrrverandi forstjóra
Símans og núverandi lögmann
Impregilo á Íslandi.
„Þetta er breskur aðili sem hef-
ur með höndum töluvert umfangs-
mikla starfsemi í býsna mörgum
löndum. Hann hefur ekki gefið út
neinar opinberar yfirlýsingar um
áform sín hér á landi. Það er ekki
meira um það að segja,“ sagði Þór-
arinn Viðar og neitaði að tjá sig um
það hvort Evans hefði fundað með
Davíð.
Ekki náðist í Davíð Oddsson for-
sætisráðherra vegna þessa máls.
rt@frettabladid.is
Aðstoðarlandlæknir:
Fæðingar-
deildum
fækkað
FÆÐINGAR „Það gæti farið að vera
spurning um hvað eigi að verða
um fæðingarþjónustu víðs
vegar um landið,“ segir Matthí-
as Halldórsson aðstoðarland-
læknir.
Hann segir stöðum á lands-
byggðinni með fæðingarþjón-
ustu hafa fækkað síðustu ár, oft
í andstöðu við vilja heima-
manna. Tækninni hafi fleygt
fram og samgöngur séu orðnar
betri um land allt. Ekki sé hægt
að hafa fullkomna tækni, þjón-
ustu og mannskap á öllum stöð-
um.
Sjá nánar bls. 9
LISTIR Í MOSKVU Fjodor Petrisjtsjev, 25 ára gamall hjólreiðamaður, sýnir listir sínar á Manesjnaja-torginu í Moskvu. Í bakgrunni má sjá
fræg mannvirki eins og Kreml, sögusafn borgarinnar og Hótel Moskvu.
UPPGRÖFTURINN Í AÐALSTRÆTI
Í síðustu viku fundist nýjar rústir undir Að-
alstræti við fornaldarbæinn þar.
Vændi og kennsla:
Fara illa
saman
LOS ANGELES Bandarískur prófess-
or í kennslufræði telur mjög
óheppilegt að grunnskólakennar-
ar stundi vændi sem aukavinnu.
Hann telur að reka eigi kennara
sem hafi vændi sem aukavinnu.
Dennis William Gosnell, 32 ára
kennari í Los Angeles, var hand-
tekinn í síðustu viku þegar hann
bauðst til að stunda kynlíf með
dulbúnum lögregluþjóni gegn
greiðslu. Grunur féll á kennarann
þegar upp komst að hann hefði
auglýst kynlífsþjónustu á Netinu.
Frá þessu var greint í Los Angeles
Times. ■
NORÐURLJÓS
Heimildir herma að Evans sé tilbúinn að
leggja milljarð króna inn í félagið.
„Ég vissi að
hann ætlaði
að hitta
Davíð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
M
YN
D
/A
P
Heimilisblaðið
▲
fylgir Fréttablaðinu dag