Fréttablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 46
Við erum að sjálfsögðu montn-ar. Það er sjaldgæft að
kvennakór selji svona vel,“ segir
Margrét Pálmadóttir, söngkona,
kórstjóri og söngskólastjóri í
Domus Vox við Skúlagötu, um
söluafrek Gospel-systra í Reykja-
vík. Gospel-systur hafa selt tíu
þúsund eintök af hljómdisknum
Undir norðurljósum en ágóði af
sölunni rennur að stórum hluta til
MS-samtakanna.
„Það er gaman að syngja til
góðs. Við höfum oft sungið fyrir
MS-samtökin og félagar þar sung-
ið með okkur þótt þeir hafi stund-
um þurft að vera í hjólastól,“ seg-
ir Margrét, sem áætlar að þessi
metsala á diski kórsins hafi fært
MS-samtökunum um 10 milljónir
króna. En hugur Margrétar er
ekki við krónur og aura í dag frek-
ar en aðra daga. Það er búið að til-
nefna hana í dómnefnd alþjóð-
legra kórakeppna sem fram fara á
vegum Vatíkansins en söngstjórar
páfans urðu hrifnir þegar Mar-
grét mætti með kór sinn til Rómar
og söng í Péturskirkjunni: „Ég gat
ekki annað en þegið þessa útnefn-
ingu. Þetta er heiður,“ segir hún
en þegar gospel-kór hennar söng í
Páfagarði skrifaði Ólafur Ragnar
Grímsson nokkur orð í söngskrá
kórsins og sagði þar meðal ann-
ars:
“Stjórnandi kórsins, Margrét J.
Pálmadóttir, er verðugur arftaki
kvenskörungsins sem fyrst allra
leit bæði Róm og Ameríku, því
hún hefur svo sannarlega verið
landnámskona í tónlistarlífi okkar
og kórstarfi. Margrét hefur rutt
nýjar brautir, klætt gömul verk í
ferskan búning og unnið krafta-
verk á mörgum sviðum. Hún hefur
stofnað fjölda kóra, þjálfað þá og
agað og gert kvennasöng að
áhrifaríkri listgrein – söng sem
gefur tónlistinni nýjar víddir. Í
rauninni er Margrét J. Pálmadótt-
ir orðin sérstök menningarstofnun
og við erum svo lánsöm að hún
hefur helgað íslenskri listsköpun
krafta sína.“
Gospel-systur Reykjavíkur eru
nú á sjöunda starfsári sínu en kór-
inn er síðasti sprotinn sem stofnað-
ur var út úr Kvennakór Reykjavík-
ur, sem Margrét kom á laggirnar.
Þær systur fögnuðu sölumetinu á
Norðurljósadisknum í gærkvöldi í
húsnæði söngskólans Domus Vox en
skólinn hefur nú fengið réttindi til
að útskrifa söngvara á fimmta stigi
í söngnámi. Margrét er því syngj-
andi sæl og glöð – og má vera það. ■
Hrósið 30 15. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
Það var mjög gaman að takaþátt í þessari keppni og æðis-
legt að fá þessi verðlaun,“ segir
Sara Kristín Rúnarsdóttir, sem er
nýkomin frá Englandi þar sem
hún keppti í samkvæmisdönsum
fyrir Dansíþróttafélag Kópavogs.
Sara Kristín og Alex Freyr
Gunnarsson dansherra hennar
tóku þátt í tveimur keppnum í
ferðinni og unnu til verðlauna í
þeim báðum. Fyrst var keppt í
standard-dönsum þar sem Sara
og Alex náðu fimmta sæti. „Ég
var hissa á því hvað okkur gekk
vel og Magnús Arnar Kjartans-
son og Ragna Bernburg sem
kepptu fyrir sama félag náðu
fjórða sætinu.“
Eftir þessa keppni tók alvaran
við með tveggja daga alþjóðlegri
meistarakeppni í samkvæmis-
dönsum þar sem þrjú pör frá Ís-
landi spreyttu sig og af nærri
þrjátíu pörum sem kepptu náðu
Sara Kristín og Alex Freyr þriðja
sæti og voru því á verðlaunapalli
fyrir Íslands hönd.
Sara og Alex eru bæði 10 ára
og eiga því framtíðina fyrir sér í
danslistinni en mikill fjöldi
danspara frá fjölmörgum löndum
tók þátt í þessum keppnum. Sara
segist vera búin að stunda dans-
inn í fimm ár, eða hálfa ævina.
„Alex er búinn að vera dans-
herrann minn undanfarið og hann
er bestur. Við ætlum að halda
áfram að æfa saman og vonandi
verðum við ennþá betri,“ segir
Sara og er að vonum hamingju-
söm með árangurinn.
Mikil vinna er að baki þessum
árangri enda stunda þau æfingar
hjá Dansskóla Sigurðar Hákonar-
sonsr fimm sinnum í viku og
standa æfingarnar allt árið þó
heldur sé slakað á yfir sumarið. ■
Dans
SARA KRISTÍN RÚNARSDÓTTIR
■ fór í sigurför til Englands þar sem hún
tók þátt í danskeppni ásamt dansherra
sínum, Alex Frey Gunnarssyni. Magnús
Arnar Kjartansson og Ragna Bernburg
dönsuðu þarna líka.
Sölumet
MARGRÉT PÁLMADÓTTIR
■ og Gospel-systur Reykjavíkur hafa selt
tíu þúsund eintök af diski og ágóðinn
rennur til MS-samtakanna
– 10 milljónir króna.
...fær Björgólfur Guðmundsson
fyrir að láta sér detta í hug að
breyta Eimskipafélagshúsinu í
Kvennaskóla.
10 ára dansstjörnur
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Fréttablað-
ið fer ekki á alþjóðamarkað. Regnskógarnir
myndu ekki þola það.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Í dag.
Samfylkingin.
Allan Borgvardt.
STÓRDANSARAR
Hin sigursæla danssveit frá Dansíþróttafé-
lags Kópavogs. Magnús Arnar Kjartansson,
Ragna Bernburg, Alex Freyr Gunnarsson og
Sara Kristín Rúnarsdóttir.
Tíu þúsund Norðurljós
MARGRÉT PÁLMADÓTTIR
Slakar á í jóga í Kramhúsinu enda bíða krefjandi verkefni í Páfagarði í Róm.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
Hera syngur Megas
Söngkonan og lagahöfundurinnHera Hjartardóttir hefur und-
anfarið unnið hörðum höndum að
útgáfu nýrrar plötu: „Það hafa
margir frábærir einstaklingar að-
stoðað mig en platan var send út
til prentunar í dag og af því tilefni
er ég að baka muffins handa sam-
starfsfólkinu,“ segir Hera.
Á nýju plötunni er að finna lög
eftir Bubba, Megas, KK og Heru:
„Ég tek Vegbúann eftir KK og tvö
lög eftir Bubba; Stúlkan sem star-
ir á hafið og Talað við gluggann en
það var valið lag vikunnar á tón-
list.is og kemur einnig út á disk-
inum Íslensk ástarljóð. Svo fékk
ég að velja úr óútkomnum laga-
bunka frá Megasi og valdi lag sem
heitir Sönglausi næturgalinn.“
Plata Heru ber titilinn Hafið
þennan dag og á henni eru sjö ný
lög eftir Heru: „Þau eru öll á ís-
lensku en það var ekki ætlunin í
upphafi því ég á svo mörg lög til á
ensku. Lögin á plötunni fjalla flest
um hafið og eru öll mjög persónu-
leg. Á plötunni tileinka ég ömmu
og afa eitt lag en einnig er að
finna lag sem ég samdi til Megas-
ar. Við höfum verið góðir vinir
lengi og þegar ég var tólf ára
samdi hann lagið Hera til mín.“
Hera hefur í nógu að snúast
þessa dagana: „Ég ætla að halda
kósí tónleika, með kertaljósum og
viðeigandi stemningu, á Gauki á
Stöng 26. október. Platan kemur
út 3. nóvember og svo verða út-
gáfutónleikar á NASA 14. nóvem-
ber. Svo er áætlað að ég fari í tón-
leikaferð um landið ásamt hljóm-
sveitinni Santiago og Geir Harð-
arsyni. Þegar þessu öllu er lokið
hefst svo undirbúningur fyrir
næstu plötu.“ ■
HERA HJARTARDÓTTIR
Sendir frá sér plötuna Hafið þennan dag
en þar tileinkar hún Megasi lagið Myndin
af þér.
EGILL HELGASON
Segir aðra ekki hafa umboð til að selja sig
eitt eða neitt.
Egill ekki
til sölu
SJÓNVARP „Ég veit ekki hvað er að
þessum mönnum eða hvernig þeir
eru innréttaðir, að telja sig geta
selt mig eitthvert út í bæ,“ segir
Egill Helgason sjónvarpsmaður
um fréttir þess efnis að forráða-
menn Skjás eins hafi verið með
áform um að skipta á Silfri Egils
og Sex and the City við Ríkissjón-
varpið rétt áður en þátturinn var
tekinn af dagskrá. „Þetta var ekki
borið undir mig, því ég hef ekki
heyrt neitt af þessum áformum.
Ég tel mig heldur ekki hafa um-
boð til að selja Kristinn Geirsson,
framkvæmdastjóra Skjás eins,
eitt eða neitt, þó ég feginn vildi
losna við hann úr þeim stað sem
hann er á,“ segir Egill.
Kristinn Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Skjás eins, hefur
sagt að Silfur Egils hafi verið tek-
ið af dagskrá sjónvarpsstöðvar-
innar vegna þess að þátturinn stóð
ekki undir sér fjárhagslega og að
auki hafi stjórnendum stöðvarinn-
ar þótt vera pólitísk slagsíða á
þættinum fyrir síðustu kosningar.
Það hafi komið sér illa við sölu á
auglýsingum. ■
Tónlist
HERA HJARTARDÓTTIR
■ Nýjasta plata Heru, Hafið þennan dag,
kemur út 3. nóvember en á henni er að
finna íslensk lög eftir Heru, KK, Bubba og
Megas.
■ Fyrsti kossinn
Það var í skrúðgarðinum íKeflavík skömmu eftir miðja
síðustu öld,“ segir Magnús Kjart-
ansson tónlistarmaður um fyrsta
kossinn sinn. „Það var skólasystir
mín sem ég náði að fella í skafl
þar sem hún varð ansi föst. Ég
yrði líklega kærður fyrir þetta í
dag en fyrsti kossinn var það engu
að síður þó hann væri ekki endur-
goldinn að fullu.“ ■