Fréttablaðið - 18.10.2003, Side 1
www. bt.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 40
Leikhús 40
Myndlist 40
Íþróttir 38
Sjónvarp 44
LAUGARDAGUR
Meðallestur fólks
á landinu öllu
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
68%
50%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
23%
EYJALIÐIN Í ELDLÍNUNNI
Tveir leikir fara fram í Remax-deild karla
og kvenna klukkan 14 í dag. Karlalið
Selfoss tekur á móti ÍBV og kvennalið ÍBV
tekur á móti Haukum úti í Eyjum.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐAST ÞURRT Það er lítið eitt kóln-
andi veður en hægur vindur dregur úr
þeim áhrifum. Viðrar vel til laufahreins-
unar. Sjá síðu 6.
18. október 2003 – 255. tölublað – 3. árgangur
STJÓRNMÁL „Ég get sagt með
fyrirvörum að þetta eru á bilinu
einn til einn og hálfur milljarður
til hóps sem í eru um 1.500
manns,“ segir Davíð Oddsson
forsætisráðherra þegar hann er
spurður um hversu mikið öryrk-
jadómur Hæstaréttar komi til
með að kosta ríkissjóð.
Helmingurinn af upphæðinni eru
bætur en hinn helmingurinn vax-
tagreiðslur.
Hann tekur undir að þetta séu
gríðarleg útgjöld. „Já, já, það sem
athyglisverðast er að þetta kemur
í hlut þeirra öryrkja sem best eru
settir.“ En hversu vel eru þeir þá
settir? „Það er mjög misjafnt, það
fer eftir ýmsu, heimilistekjurnar
eru mjög misjafnar.“
Hann segir að það sem skipti
stjórnvöld mestu máli sé að megi-
natriðin sem um var deilt stan-
dist öll. „Því var haldið fram að
við værum, jafnvel vísvitandi, að
brjóta stjórnarskrá vegna þess að
fyrri dómur Hæstaréttar hefði
sagt að það mætti ekki takmarka
bætur vegna tekna maka.
Hæstiréttur núna gefur öllu
þessu fólki sem hélt þessu fram
með miklum þunga og látum,
langt nef.“ Við vorum að setja lög
sem sneru að framtíðinni og lögin
halda og lögin standa.
Davíð segir atriðið þar sem
Hæstiréttur dæmdi öryrkjum í
vil, snúast um vandmeðfarin
túlkunaratriði sem sjáist á þvi að
þegar málið var undirbúið hafi
fjórir virtir lögfræðingar farið
yfir það, tveir fræðimenn,
prófessor og lektor til viðbótar
og þrír dómarar við Héraðsdóm
Reykjavíkur. „Enginn af þessum
níu sér neitt athugavert við
þetta.“ En svo koma sjö dómarar
og segja þvert á móti. “Já, ég segi
það, það sýnir hvað þetta er
umdeilt atriði, þeir fara alveg
nýja leið sem aldrei hefur verið
farin áður.“
Davíð segir að sáralítil
umræða hafi verið um
afturvirkni laganna þótt einhver
hefði nefnt það til sögunnar. „Það
þarf að ganga mjög skrýtna stigu
til þess að komast að þessari
niðurstöðu en það er sjálfsagt
hægt.“
Að mati forsætisráðherra er
Hæstiréttur í raun að segja að
með fyrri dómi sínum hefðu lög
frá 1998 verið numin úr gildi. „Það
er alveg nýtt. Hæstiréttur nemur
lög ekki úr gildi. Hann getur
túlkað lög og sagt þau brjóta í
bága við stjórnarskrá og kannski í
einhverjum tilvikum sagt að lög
hefðu ekki gildi vegna skorts á
formsatriðum.“
„Sú framkvæmd sem um var
deilt náði til framtíðar og var til
hagsbóta fyrir öryrkja frá því
sem áður hafði verið,“ segir Davíð
Oddsson forsætisráðherra.
sjá nánar bls. 4.
kgb@frettabladid.is
DAVÍÐ ODDSSON FORSÆTISRÁÐHERRA
Að mati Davíðs Oddsonar er Hæstiréttur í raun að segja að með fyrri dómi sínum hefðu lög frá árinu 1998 verið numin úr gildi.
● stórleikur í dag
Sigfús Sigurðsson:
▲
SÍÐA 38
Hauka vantar
breidd
● ný bók fyrir jólin
Arnaldur Indriðason:
▲
SÍÐA 28
Bettý
á leiðinni
● viðburðarík vika
Elín Sveinsdóttir:
▲
SÍÐA 46
Veik af flensu-
sprautu
● fæstir lenda í vandræðum
Knattspyrnustjörnur:
▲
SÍÐA 20
Ljúft líf
eða...
Milljarður til best
settu öryrkjanna
Forsætisráðherra segir Hæstarétt fara alveg nýja og flókna leið að niðurstöðu í öryrkjamálinu.
Segir að túlkun Hæstaréttar sé að hann geti numið lög úr gildi sem sé alveg nýtt. Dómurinn
staðfesti málflutning ríkisstjórnarinnar í veigamestu atriðunum.
Quentin Tarantino:
Blóðbað í bíó
Ný mynd frá meistaranum þykir ein
sú allra blóðugasta í sögunni.
Huldar Breiðfjörð fylgdist með
tökum í Kína. ▲
SÍÐA 22
Hver er fyndnastur?
BAGDAD, AP Talið er að allt að ein
milljón tonna af hergögnum Íraka
hafi komist í hendur þeirra sem
berjast enn grimmilega gegn
innrásarher Bandaríkjanna í Írak.
Robert L. Davis, hershöfðingi í
Bandaríkjaher, segir að frá því
Bagdad féll í apríl, hafi bandarískar
hersveitir eytt um hálfri milljón
tonna af hergögnum um gervallt
land. Þá hafa verktakar á vegum
Bandaríkjahers eytt rúmlega
milljón tonnum af hergögnum síðus-
tu þrjár vikur. „Það er hreinlega allt
fljótandi hér í vopnum. Við finnum
um 100 tonn á dag,“ sagði Davis.
Talsmenn Bandaríkjahers telja
að allt að milljón tonn af
hergögnum, jarðsprengjum hand-
sprengjum, rifflum og skotfærum,
séu enn í höndum uppreisnarmanna
í Írak.
„Við höfum ekki hugmynd um
hve stór hluti þessa er notaður til
árása á liðsmenn okkar,“ sagði
Davis.
Frá því Bush Bandaríkjafor-
seti lýsti yfir formlegum stríðs-
lokum þann 1. maí á þessu ári,
hafa 195 hermenn fallið í átökum
í Írak, þar af fjölmargir í
sprengjuárásum á bílalestir
Bandaríkjamanna. ■
Innrásarherinn í Írak eyðir gífurlegu magni af hergögnum:
Finnum 100 tonn á dag
Á LEIÐ AF KVÍABRYGGJU
Bindindismanninum
Árna Johnsen verður
gert að sækja vikulega
AA-fundi eins og
öllum öðrum vistmön-
num áfangaheimilisins
Verndar eftir að hann
verður fluttur þangað í
næsta mánuði. Sjá síðu 6.
ÁTELUR STJÓRNVÖLD
Umboðsmaður Alþingis segir stjórnvöld
stundum ekki sýna nægan skilning á því að
starfshættir þeirra eigi að vera í samræmi
við stjórnsýslulög. Sjá síðu 2.
ROTAÐUR Í ÁRSHÁTÍÐARFERÐ
Íslenskur jarðýtustjóri á sjötugsaldri var
rændur og fleygt rotuðum í runna í Prag í
Tékklandi. Vörubílstjóri í ferðahópnum var
rændur í húsasundi með hnífa brugðið á
hálsinn. Hótelinu var lokað vegna
sprengjuhótunar. Sjá síðu 2.
DÓMUR SKÝRIR ÓVISSUATRIÐI
Dósent í lögum við Háskóla Íslands segir
öryrkjadóminn skýra óvissuatriði í kjölfar
eldri dóms. Segir ósmekklegt að tala um
mannréttindabrot í tengslum við fyrningu á
kröfum. Sjá síðu 8.
Íslandsmeistarakeppni í fyndni er á
næsta leiti. Meðal þátttakenda eru
landskunnir skemmtikraftar.
SÍÐA 16
▲
Íslandsmeistarakeppni:
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M