Fréttablaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 20
20 18. október 2003 LAUGARDAGUR
Áhorfendur í meira en 160 lönd-um fylgjast með leikjum í
„Premier League“ – úrvalsdeild
ensku knattspyrnunnar. Sjón-
varpsstöðvar greiddu meira en
einn og hálfan milljarð sterl-
ingspunda fyrir sjónvarpsréttinn
frá 2001 til 2004. Launagreiðslur
til leikmanna í úrvalsdeildinni eru
að meðaltali með þeim hæstu sem
þekkjast til atvinnumanna í þess-
ari vinsælustu íþrótt veraldar.
11 milljónir á viku
Roy Keane, fyrirliði Manchest-
er United, fær 80 þúsund pund á
viku í laun, en það eru um ellefu
milljónir íslenskra króna – ein og
hálf milljón króna á sólarhring.
Þar fyrir utan hefur hann að sjálf-
sögðu tekjur af því að koma fram
í auglýsingum og er greitt fyrir að
leyfa að nafn sitt tengist við
margvíslegan varning.
Þokkaleg laun hjá einhverjum
meðaljóni í úrvalsdeildinni eru
hugsanlega einhvers staðar á milli
10 þúsund og 25 þúsund sterl-
ingspund, en það eru 1,3 milljónir
til 3,5 milljónir króna á viku.
„Margur verður af aurum api,“
segir gamalt máltæki, og vísar til
þess að það þarf sterk bein til að
þola góða daga, og þótt hinir ungu
íþróttamenn hafi sterk bein er
ekki þar með sagt að þeir hafi
andlegan þroska til að takast á við
þær breyttu aðstæður sem hinu
nýfengna ríkidæmi fylgja.
Strákar úr bæjarblokkum
Margir bestu og launahæstu
knattspyrnumenn Englands skjót-
ast upp á stjörnuhimininn úr sárri
fátækt og erfiðum aðstæðum. Kier-
on Dyer óx upp við kröpp kjör í
Ipswich, svo að dæmi sé tekið, og
Rio Ferdinand er uppalinn í
félagslegu húsnæði í Peckham í
Lundúnum. Kastljós fjölmiðla
beindist að þessum tveimur nú fyr-
ir skemmstu.
Fyrir um það bil hálfum mán-
uði kom 17 ára stúlka á lögreglu-
stöð í London og lagði fram kæru.
Hún sagði að hópur knattspyrnu-
manna hefði nauðgað sér á lúxus-
hóteli í borginni. Hún hefði fallist
á að vera með tilteknum knatt-
spyrnumanni, en síðan hefðu
fleiri bæst í hópinn og notfært sér
hana gegn vilja hennar.
12 flöskur af kampavíni
Kieron Dyer sá sig tilneyddan
að gefa út fréttatilkynningu
skömmu seinna og neitaði að eiga
nokkurn þátt í þessu athæfi. Hins
vegar halda bresku blöðin því
fram að hann hafi greitt fyrir hót-
elherbergi knattspyrnumanna
sem gistu á þessu tiltekna hóteli
umrædda nótt, en herbergin kosta
400 pund, 55 þúsund krónur hvert.
Þar fyrir utan brá Kieron sér á
barinn á Wellington Club, að sögn
breska blaðsins Guardian, og
greiddi þar um 2.500 pund fyrir
tólf flöskur af Cristal-kampavíni
og gaf nokkur hundruð pund í
þjórfé, samtals um 400 þúsund
krónur fyrir hressinguna.
Rio Ferdinand, leikmaðurinn
sem Manchester United keypti
fyrir 30 milljónir punda, lét sig
hafa það um daginn að skrópa í
lyfjaprófi og var fyrir þá sök tek-
inn úr enska landsliðinu sem lék
við Tyrki um síðustu helgi. Hann
sagðist hafa steingleymt lyfja-
prófinu vegna þess að hann hefði
verið að flytja búferlum. Þessi
gleymska gæti kostað hann
tveggja ára leikbann.
100 þúsund króna ársmiði
Það eru miklir peningar í um-
ferð í knattspyrnunni. Ársmiði á
alla leiki sem Chelsea leikur á
Stamford Bridge kostar rúmar
100 þúsund krónur. Að sjá einn
leik úr bestu sætum á Highbury
hjá Arsenal kostar 68 pund, tæpar
10 þúsund krónur. Auk miðasölu
hafa knattspyrnufélögin tekjur af
sjónvarpsrétti og auglýsingasölu,
auk þess sem hægt er að kaupa
allt frá búningum liðanna yfir í
rúmteppi með skjaldarmerki
þeirra í sérverslunum þeirra, eða
umboðssölum um allan heim.
Auðkýfingar
Hinir ungu knattspyrnumenn
eru auðkýfingar. Nýverið hafa
ensku landsliðsmennirnir, David
Beckham, Michael Owen, Kieron
Dyer og fleiri, keypt sér „sumar-
bústaði“ sem kosta meira en eina
milljón punda stykkið, 136 millj-
ónir króna. Þessi bústaðir standa
á Pálmanum, en það er manngerð
eyja í lögun eins og pálmatré úti
fyrir strönd arabíska furstadæm-
isins Dúbæ.
Þegar Ferdinand gleymdi
lyfjaprófinu var hann að flytja inn
í stórhýsi í einhverju fínasta út-
hverfi Manchester-borgar sem
kostar rúmar 300 milljónir króna.
Aðsetur Beckham-fjölskyldunnar
á Englandi er kallað Beckingham-
höll og er metið á um hálfan millj-
arð króna.
Í miðborg Liverpool er nú ver-
ið að reisa mikinn turn þar sem
eru lúxusíbúðir sem kosta 200
milljónir króna. Michael Owen og
fleiri knattspyrnustjörnur hafa
þegar tryggt sér íbúð þar.
Frægðinni fylgja ekki ein-
göngu miklir peningar heldur
einnig mikið áreiti. Ljósmyndarar
og fréttamenn fylgja stjörnunum
hvert fótmál og sumir aðdáend-
urnir eru mjög aðgangsharðir.
Freistingar
Hinu ljúfa lífi í allsnægtum
fylgja margar freistingar. Kven-
fólk safnast kringum stjörnurnar
eins og mý á mykjuskán, og þessi
skyndilega kvenhylli getur leitt til
kvenfyrirlitningar – sem aftur
getur leitt af sér ennþá verri hluti.
Fréttir af hópnauðgun í London
voru vart komnar í hámæli, þegar
þau tíðindi bárust frá Leeds að
tveir knattspyrnumenn hefðu ver-
ið handteknir grunaðir um að
nauðga og niðurlægja stúlku.
Ekki er samt ástæða til að ætla
að allar hinar nýríku stjörnur í
knattspyrnunni hegði sér eins og
siðleysingjar. Sum hótel bera
þeim vel söguna og segja að knatt-
spyrnumenn sem þar gisti á knatt-
spyrnuferðum sínum sötri gos-
drykki eingöngu og hegði sér með
prýði. Önnur hótel segja aðrar
sögur af ógurlegu fylleríi og kyns-
valli, kvenfyrirlitningu, og hroka
og sjálfsánægju hinna nýríku
knattspyrnumanna.
Hefð fyrir áfengisneyslu
Meðal enskra knattspyrnu-
manna er löng hefð fyrir mikilli
áfengisneyslu. Segja má að Tony
Adams, þáverandi fyrirliði
Arsenal og enska landsliðsins,
hafi brotið blað í sögunni þegar
hann fór í meðferð og viðurkenndi
opinberlega að hann væri alkó-
hólisti. Síðar gaf hann út ævisögu
sína og lýsti þar þeim drykkju-
skap og „karlmennskudýrkun“
sem þótti sjálfsögð á árum áður.
Blaðamenn segja að drykkju-
skapur sé ekki jafn útbreiddur
meðal erlendra knattspyrnu-
manna í Englandi og hjá enskum
kollegum þeirra. Líklegra er að
sjá þeim Thierry Henry og Pat-
rick Viera, stórstjörnum Arsenal,
bregða fyrir á ósköp venjulegum
veitingahúsum í Norður-Lundún-
um en í gleðihverfinu West End.
Og sumir hinna yngri af erlendu
leikmönnunum fara að fordæmi
Nicolas Anelka, Frakkans sem
hefur skömm á áfengi. Knatt-
spyrnumenn eru ekki þekktir fyr-
ir menningaráhuga sinn, en þó eru
undantekningar frá þeirri reglu,
og sagt er að hin gamla kempa Gi-
anluca Vialli sé í essinu sínu eins
og fyrir opnu marki þegar hann
skoðar myndlistarsýningar í sýn-
ingarsölum í London.
Við hverju er að búast?
Sálfræðingar og félagsfræð-
ingar fylgjast af áhuga með hin-
um nýríku knattspyrnustjörnum.
„Við hverju er að búast?“ segja
þeir. „Maður tekur strák úr bæj-
arblokk og ræður hann í vinnu
sem hámarksálag fylgir. Fyrir
þetta fær hann milljónir punda og
kvenhylli umfram það sem
nokkurn strák getur dreymt um.
Það er heldur ósennilegt að hann
hegði sér skynsamlega.“
Engu að síður tekst mörgum
þessara ungu manna að standast
freistingarnar. Og svo ber líka að
geta þess að ekki eru allir atvinnu-
menn í knattspyrnu auðkýfingar,
né heldur stjórnlausir gjálífis-
menn. Í Englandi eru um það bil
2000 atvinnumenn í knattspyrnu.
Einungis örfáir þeirra eru þekktir
að endemum fyrir hegðun sína.
Dæmisaga eftir George Best
George Best er sennilega fræg-
asti knattspyrnusnillingur sem
England hefur átt. Í fyrra var
grædd í hann ný lifur, því að sú
gamla hafði látið undan eftir ára-
tuga misnotkun. Knattspyrnuferill-
inn varð styttri en efni stóðu til
vegna þess að hið ljúfa líf togaði
Best burt af sparkvellinum.
Nýverið seldi George Best
verðlaun sem hann hlaut fyrir tit-
ilinn „Besti knattspyrnumaður
Bretlands“ og sagðist ætla að nota
peningana til að kaupa sér lítið
hús í Grikklandi og eyða þar efri
árum. Auðæfin eru gengin til
þurrðar. En George Best segist þó
ekki sjá eftir neinu í raun og veru.
Til marks um það segir hann
gjarnan sögu af sjálfum sér.
Að loknum knattspyrnuleik í
París eyddi Best nóttunni í svítu á
lúxushóteli. „Ég var nýbyrjaður
að slappa af,“ segir Best, „þegar
þjónninn barði að dyrum með
kampavín og kavíar. Hann var
soldið undrandi þegar hann kom
inn í herbergið. Gólfið var þakið
peningaseðlum sem ég hafði unn-
ið í spilavíti. Á rúminu hjá mér lá
Ungfrú Heimur allsnakin og var
að sjúga kókaín upp í nefið, og ég
var að drekka viskí. Þjónninn
horfði á mig og sagði: „Afsakið,
hr. Best, en má ég spyrja –
hvenær byrjaði líf þitt að fara úr-
skeiðis?“
thrainn@frettabladid.is
Þegar ungir knattspyrnumenn verða skyndilega millj-
arðamæringar getur þeim reynst erfitt að kunna fótum
sínum forráð. Margir fara illa út úr hinu ljúfa lífi. Í öllu
falli virðast fæstir þeirra eiga í vandræðum með að ráð-
stafa auð sínum.
Kampavín
fyrir 400
þúsund
DAVID BECKHAM
Aðsetur Beckham-fjölskyldunnar á Englandi er kallað Beckingham-höll og er metið á um hálfan milljarð króna.
RIO FERDINAND
Þegar Ferdinand gleymdi lyfjaprófinu á dögunum var hann að flytja inn í stórhýsi í ein-
hverju fínasta úthverfi Manchester-borgar. Húsið kostar rúmar 300 milljónir króna.
GEORGE BEST
„Afsakið, hr. Best,,“ sagði þjónninn, „en má
ég spyrja – hvenær byrjaði líf þitt að fara
úrskeiðis?“
KIERON DYER
Kieron brá sér á barinn á Wellington Club,
að sögn breska blaðsins Guardian, og
greiddi þar um 2.500 pund fyrir tólf flösk-
ur af Cristal-kampavíni og gaf nokkur
hundruð pund í þjórfé, samtals um 400
þúsund krónur.