Fréttablaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 39
39LAUGARDAGUR 18. október 2003
hvað?hvar?hvenær?
15 16 17 18 19 20 21
OKTÓBER
Laugardagur
FÓTBOLTI Arsenal og Chelsea mæt-
ast í dag í toppslag ensku úrvals-
deildarinnar. Lundúnaliðin eru þau
einu sem ekki hafa tapað viðureign
það sem af er tímabilinu.
Chelsea hefur ekki náð að sigra
Arsenal síðastliðin fimm ár og
hefur aldrei unnið á Highbury síð-
an úrvalsdeildin var stofnuð árið
1991.
Knattspyrnustjórinn Claudio
Ranieri á væntanlega eftir að
hræra til í byrjunarliðinu líkt og í
síðustu leikjum liðsins.
Varnarmaðurinn Rio Ferdin-
and á erfiðan dag fram undan þeg-
ar Manchester United sækir
Leeds heim á Elland Road. Margir
stuðningsmanna Leeds líta á
Ferdinand sem svikara eftir að
hann var seldur til Manchester
United fyrir 30 milljónir punda í
júlí í fyrra. Það eru þó ekki einu
vandræði Ferdinands því leikur-
inn í dag er sá fyrsti sem varnar-
maðurinn leikur síðan hann datt
út úr landsliðshópi Englendinga
fyrir að mæta ekki í lyfjapróf.
Hann á yfir höfði sér allt að
tveggja ára keppnisbann en
Enska knattspyrnusambandið
mun ákveða í byrjun næstu viku
hvort hann verður kærður.
Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri United hefur ekki miklar
áhyggjur af Ferdinand. „Stuðn-
ingsmenn Leeds geta ekki verið
með meiri læti en síðast þegar við
mættum þeim og þá stóð Ferdin-
and sig vel,“ sagði Ferguson.
Manchester United er einu stigi á
eftir toppliðunum.
Michael Owen leikur ekki með
Liverpool gegn Portsmouth þar
sem hann er meiddur. ■
Ásthildur Helgadóttir:
Byrjar vel
með Malmö
FÓTBOLTI Ásthildur Helgadóttir fær
góð ummæli frá Anders Johansson,
þjálfara Malmö FF, fyrir frumraun
sína með félaginu á fimmtudag.
„Hún stóðst frumraunina mjög vel.
Hún kom nokkuð aftarlega á
völlinn en það er kannski vegna
þess að hún er vön að spila á
miðjunni. Ásthildur er góður
liðsstyrkur og góð viðbót við sókn-
armenn liðsins. Hún er umfram allt
ótrúlega sterk í loftinu.“
Malmö vann Öster 1-0 á útivelli
með marki Heidi Kackur. Fimm
leikmenn silfurliðs Svía frá
heimsmeistarakeppninnin léku
með Malmö gegn Öster. ■
■ ■ LEIKIR
14.00 Selfoss keppir við ÍBV á Sel-
fossi í suðurriðli RE/MAX-deildar karla.
14.00 ÍBV leikur við Hauka í Eyjum
í RE/MAX-deild kvenna.
16.00 KR og Keflavík leika í DHL-
Höllinni í 1. deild kvenna í körfubolta.
16.30 HK og Stepan leika seinni
leik sinn í 1. umferð í Evrópukeppni bik-
arhafa.
■ ■ SJÓNVARP
10.50 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá leik Leeds og Manchester
United.
13.00 Meistaradeildin í hand-
bolta á Sýn. Bein útsending frá leik
Magdeburg og Hauka.
13.20 Football Week UK (Vikan í
enska boltanum) á Stöð 2.
13.25 Þýski fótboltinn á RÚV. Bein
útsending frá leik Werder Bremen og
VfB Stuttgard.
13.45 Enski boltinn á Stöð 2. Bein
útsending frá leik Arsenal og Chelsea.
14.45 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
15.30 Handboltakvöld á RÚV.
15.40 Fastrax 2002 (Vélasport) á
Sýn. Hraðskreiður þáttur þar sem öku-
tæki af öllum stærðum og gerðum
koma við sögu.
16.05 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
16.20 Evrópukeppnin í handbolta
á RÚV. Bein útsending frá síðari leik HK
og Stepan í Evrópukeppni bikarhafa.
17.20 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Celta de Vigo og Real
Madrid.
19.40 Enski boltinn á Sýn. Útsend-
ing frá leik Arsenal og Chelsea.
20.00 Vaxtarræktarkeppni í beinni
útsendingu á Skjá 1.
21.35 Hnefaleikar á Sýn. Útsend-
ing frá hnefaleikakeppni þar sem mæt-
ast meðal annarra Juan Manuel
Marques og Marcos Licona.
Enska úrvalsdeildin:
Toppslagur á Highbury
EIÐUR SMÁRI
Verður trúlega í leikmannahópi Chelsea í
dag þegar liðið mætir Arsenal í toppslag
ensku úrvalsdeildarinnar.
LEIKIR DAGSINS:
Leeds United - Man. Utd.
Arsenal - Chelsea
Fulham - Wolves
Man City - Bolton
Middlesbrough - Newcastle
Portsmouth - Liverpool