Fréttablaðið - 26.10.2003, Page 6
6 26. október 2003 SUNNUDAGUR
■ Leiðrétting
Veistusvarið?
1Hvað heitir „Ísmaðurinn“ semheimspressan er á höttunum eftir að
hann drap hákarl með berum höndum?
2Hver leikstýrir næsta áramótaskaupi?
3Hver hefur verið ráðinn sem þjálfariungmennalandsliðs karla í flokki 21
árs og yngri?
Svörin eru á bls. 46
Útúrdrukkinn og uppdópaður þingmaður í Finnlandi:
Gekk berserksgang á heimili sínu
HELSINKI, AP Finnski þingmaðurinn
og fyrrum atvinnumaður í hnefa-
leikum, Tony Halme, hefur verið
ákærður fyrir ólöglegan vopna-
burð, notkun fíkniefna, smygl og
ölvun við akstur.
Þingmaðurinn á yfir höfði sér
allt að tveggja ára fangelsi og missi
þingsætis, verði hann sakfelldur.
Ari-Pekka Koivisto, ríkissak-
sóknari í Finnlandi, segist hafa
ákveðið að ákæra þingmanninn
vegna alvarleika brotanna. Þau
voru framin í júlí í sumar á heim-
ili þingmannsins. Hann var útúr-
drukkinn og undir áhrifum eitur-
lyfja og skaut af skammbyssu
sinni á allt sem fyrir var og
stefndi lífi konu sinnar í hættu.
Þingmaðurinn var fluttur rænu-
laus á sjúkrahús eftir uppákom-
una og þurfti að dvelja þar í
nokkrar vikur. Auk skotárásarinn-
ar er þingmaðurinn ákærður fyrir
smygl á fíkniefnum til Finnlands,
notkun amfetamíns og ölvun-
arakstur. Hann neitar öllum
ákæruatriðum nema að hafa
hleypt af skotum heima hjá sér.
Tony Halme, sem einnig gengur
undir nafninu „víkingurinn“, er
einkum þekktur fyrir andstöðu
gegn öðrum kynþáttum og þá hef-
ur hann einnig verið ötull talsmað-
ur aukinnar löggæslu og hertari
baráttu gegn fíkniefnum. ■
WASHINGTON Öldungadeild banda-
ríska þingsins hefur samþykkt
að aflétta banni við ferðalögum
Bandaríkjamanna til Kúbu.
Tæplega tveir þriðju hlutar
þingmanna greiddu atkvæði með
lagafrumvarpi sem kemur í veg
fyrir að hægt verði að nota fé úr
ríkissjóði til að fylgja ferða-
banninu eftir.
Fulltrúadeild Bandaríkja-
þings samþykkti sams konar
lagabreytingu í síðasta mánuði
en nú þurfa þingdeildirnar að
samræma tillögur sínar og
leggja frumvarpið fyrir forset-
ann. Embættismenn í Hvíta hús-
inu hafa þegar lýst því yfir að
George W. Bush forseti ætli að
beita neitunarvaldi gegn frum-
varpinu ef ekki verði horfið frá
því að aflétta ferðabanninu.
Bush hefur ekki neitað að sam-
þykkja lagafrumvörp þingsins
síðan hann tók við embætti for-
seta fyrir þremur árum.
Ákvörðun öldungadeildarinn-
ar er mikið áfall fyrir forsetann
þar sem flokksbræður hans eru í
meirihluta í báðum deildum
Bandaríkjaþings. Ríkisstjórnin
hefur lagst hart gegn því að
slakað verði á viðskiptaþvingun-
um gegn Kúbu og lagt áherslu á
að sjá til þess að ferðabanninu sé
framfylgt.
Þeir sem stutt hafa frumvarp-
ið hafa bent á það að engin rök
séu fyrir því að banna Banda-
ríkjamönnum að ferðast til Kúbu
á meðan þeim sé heimilt að fara
til kommúnistalanda á borð við
Norður-Kóreu. „Þó viðskipta-
þvinganir og ferðatakmarkanir
hafi verið í gildi í 40 ár er Fidel
Castro enn jafn grimmur og
ólýðræðislega þenkjandi. Fyrr
eða síðar verðum við að horfast í
augu við það að stefna okkar
hefur ekki borið árangur. Reyn-
um eitthvað nýtt,“ segir
repúblikaninn Jeff Flake.
Kúbversk stjórnvöld hafa
fagnað lagafrumvarpinu enda
eru bundnar vonir það að
straumur bandarískra ferða-
manna til Kúbu muni verða
lyftistöng fyrir efnahag eyjar-
innar.
John F. Kennedy Bandaríkja-
forseti lagði á bann við ferðalög-
um til Kúbu árið 1963. Bannið
var afnumið árið 1977, í forseta-
tíð Jimmy Carter, en Ronald
Reagan setti það á að nýju fimm
árum síðar. Bandaríkjamenn
sem virða ferðabannið að
vettugi geta átt yfir höfði sér
allt að tíu ára fangelsi. ■
Kolmunnafloti
Íslendinga:
Veiðir í
færeysku
lögsögunni
SJÁVARÚTVEGUR Allur íslenski
kolmunnaflotinn hefur verið að
veiðum í færeysku fiskilögsög-
unni að undanförnu. Þokkaleg
veiði hefur verið og hafa skip
Eskju frá Eskifirði, Jón Kjartans-
son og Hólmaborg, fengið 300-400
tonn eftir 12-15 tíma tog.
Skip Eskju hafa aflað 80 þús-
und tonna á árinu en 25 þúsund
tonn eru enn eftir af kolmunna-
kvóta fyrirtækisins. ■
SLÁTURHÚS INNSIGLAÐ
Lögeglumenn frá Blönduósi innsigluðu
húsnæði Ferskra afurða á Hvammstanga.
Ferskar afurðir:
Sláturhús
innsiglað
LÖGREGLUMÁL „Að mínu mati er
þetta ólögmæt aðgerð,“ segir Erik
Jensen, framkvæmdastjóri
Ferskra afurða, en sláturhús fé-
lagsins á Hvammstanga var inn-
siglað af lögregluyfirvöldum að
beiðni Búnaðarbanka Íslands.
Stutt er síðan Héraðsdómur
Norðurlands hafnaði beiðni
Ferskra afurða um áframhaldandi
greiðslustöðvun en skuldir félags-
ins umfram eignir nema tæplega
150 milljónum króna.
Erik sagði lögmann sinn vinna
áfram í málinu og vildi ekki tjá
sig frekar að svo stöddu. ■
GETNAÐARVARNARPILLAN
Neyðargetnaðarvörn í formi hormónataflna
er talin hafa haft áhrif á fækkun fóstureyð-
inga frá árinu 2001.
Notkun neyðargetnaðar-
varnar eykst:
Fóstur-
eyðingum
fækkar
HEILBRIGÐISMÁL Fóstureyðingum
hefur fækkað um tæplega 6%
milli áranna 2001 og 2002. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Land-
læknisembættisins voru fram-
kvæmdar 984 fóstureyðingar á ár-
inu 2001 en 926 á árinu 2002. Talið
er að notkun neyðargetnaðar-
varna í formi hormónataflna hafi
haft einhver áhrif á fækkunina en
notkunin hefur aukist talsvert
undanfarin ár samkvæmt sölutöl-
um frá lyfjaheildsölum. Þá hefur
heilsugæslan lagt sig fram um að
koma til móts við þarfir unglinga
og hafa nokkrar heilsugæslu-
stöðvar sett upp sérstakar ung-
lingamóttökur.
Þá er einnig ljóst að ófrjósemis-
aðgerðum hefur fækkað frá árinu
2000 en athygli vekur að fjölgun
hefur orðið á ófrjósemisaðgerðum
meðal karla meðan fækkun hefur
átt sér stað meðal kvenna. ■
VÍKINGURINN
Tony Halme, þingmaður í Finnlandi, fyrrum
hnefaleikakappi og fjölbragðaglímumeistari,
á nú yfir höfði sér fangavist og missi þing-
sætis fyrir margvísleg brot sem hann framdi
ofurölvi og undir áhrifum lyfja.
HAVANA
Hátt í 160.000 Bandaríkjamenn heimsóttu Kúbu á síðasta ári. Hægt er að sækja um sérstakt ferðaleyfi
eða fara ólöglega í gegnum önnur lönd.
Vill aflétta ferðabanni
Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur gengið þvert á vilja forsetans og samþykkt lagafrumvarp
sem kveður á um að banni við ferðalögum Bandaríkjamanna til Kúbu verði aflétt.
Sigurður H. Einarsson var full-trúi Verkalýðsfélags Akraness
á þingi Starfsgreinasambands Ís-
lands. Hann er ekki formælandi
félagsins eins og misritað var í
blaðinu á föstudag.
Ísraelsher:
Innrás í
sjúkrahús
VESTURBAKKINN, AP Grímuklæddir
ísraelskir hermenn réðust inn í tvö
palestínsk sjúkrahús í fyrrinótt og
voru tveir grunaðir hryðjuverka-
menn, annar illa haldinn, handteknir.
Hermennirnir, sem voru með
svartar grímur, tóku annan mann-
inn úr sjúkrarúmi sínu, en hinn
fannst í kjallara sjúkrahússins. Að-
gerðin hefur verið fordæmd af
mannréttindasamtökum og Palest-
ínumönnum, sem hafa áhyggjur af
því að sjúkrahús séu ekki lengur
hlutlaus svæði í átökum Ísraela og
Palestínumanna. ■