Fréttablaðið - 26.10.2003, Síða 16
16 26. október 2003 SUNNUDAGUR
■ Viðskipti
Sala stoðtækjafyrirtækisins Öss-urar fyrstu níu mánuði ársins
nam tæplega 5,2 milljörðum ís-
lenskra króna. Söluaukning í
Bandaríkjadölum milli ára jafn-
gildir 9% innri vexti, en í stað-
bundinni mynt 2%.
Rekstrarhagnaður var 577
milljónir króna og dróst saman um
tæpar 140 milljónir milli ára.
Hagnaður fyrstu níu mánuði árs-
ins var 431 milljón og dróst saman
um 23% frá fyrra ári.
Árshlutareikningur þriðja
fjórðungs 2003 fyrir félagssam-
stæðu Össurar hf. var samþykktur
á stjórnarfundi á miðvikudaginn.
Sala þriðja ársfjórðungs nam
22,4 milljónum Bandaríkjadala,
sem er nánast sama upphæð og
sala annars fjórðungs. Það sem
einkennir sölu þriðja fjórðungs er
að í heild hefur hægt á vexti. Sam-
dráttur hélt áfram í Norður-Am-
eríku og dróst sala þar saman um
tæp 7% miðað við sama fjórðung í
fyrra. Sala á þessum markaði
dróst saman um 3% á öðrum árs-
fjórðungi en jókst um 1% á þeim
fyrsta.
Samstæða Össurar hf. sam-
anstendur í meginatriðum af Öss-
uri hf. á Íslandi, samstæðu Össur
Holdings Inc. í Bandaríkjunum,
samstæðu Össur Holding AB í
Svíþjóð og Össur Europe B.V. í
Hollandi. Rekstur Generation II
fyrirtækjanna, sem Össur keypti í
byrjun október, kemur ekki inn í
rekstrarliði uppgjörsins. ■
Össur seldi fyrir 5,2 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins:
Hagnaður dróst saman um 23%
Google áformar almennt
hlutafjárútboð:
Talið 25
milljarða
dollara virði
VIÐSKIPTI Bandaríska netfyrirtækið
Google hyggst brátt fara í fyrsta
almenna hlutafjárútboðið í sögu
fyrirtækisins. Google rekur eina
öflugustu leitarvél á Netinu í dag.
Fregnir herma að stjórnendur
Google hafi leitað til fjölmargra
fjármálastofnana til að hjálpa til
við undirbúning útboðsins, sem
mun að stærstum hluta fara fram
á Netinu í upphafi næsta árs.
Samkvæmt spám sérfræðinga
gæti markaðsvirði Google orðið
allt að 25 milljarðar dollara, rúm-
ir 1.900 milljarðar íslenskra
króna.
Þetta er ívið meira en netversl-
unin amazon.com er metin á.
Google hefur ekki veitt upplýs-
ingar um fjárhag sinn en talið er
að fyrirtækið vaxi hratt og að
tekjur þess nemi nú hálfum til
einum milljarði dollara á ári, 38 til
76 milljörðum króna. Varlega
áætlað nemur hagnaður Google
um 100 milljónum dollara á ári,
um 7,6 milljörðum króna. ■
DEILT UM SKRÁNINGU JENSINS
Bandarísk stjórnvöld hafa krafist þess að
kínversk stjórnvöld létti hindrunum sem
ætlaðar eru til þess að halda gengi gjald-
miðils þeirra, jeni, lágu. Bush Bandaríkja-
forseti staðhæfir að þessi „gervigengis-
skráning“ valdi því að staða Kínverja gagn-
vart viðskiptalöndum verði ójöfn, þeir nái
forskoti á kostnað keppinautanna og hafi
jafnvel störf í stórum stíl af Bandaríkja-
mönnum. Þingmenn á Bandaríkjaþingi
hafa hótað viðskiptaþvingunum skrái Kín-
verjar ekki gengi jensins rétt.
ÖSSUR
Það sem einkennir sölu þriðja fjórðungs er að í heild hefur hægt á vexti.
Þjónustugjöld banka:
Megnið vegna
verðbréfaviðskipta
Sigurjón Þ. Árnason, banka-stjóri Landsbanka Íslands,
benti í tilefni af umræðum um
þjónustugjöld banka á að þau
komi að megninu til vegna verð-
bréfaviðskipta. Þannig sé rúm-
lega helmingur af þjónustu-
gjöldum Landsbankans til kom-
inn af verðbréfastarfsemi. Sig-
urjón sagði þetta við kynningu á
níu mánaða uppgjöri Landsbank-
ans á fimmtudag.
Tekjur bankans af þjónustu-
gjöldum nema 4,5 milljörðum
króna, en þar af koma tæpar 500
milljónir vegna útlána og tæpar
600 milljónir vegna greiðslu-
korta. Þóknunartekjur bankans
af verðbréfaviðskiptum og eigna-
stýringu námu 1,6 milljörðum
króna á fyrstu níu mánuðum
þessa árs, sem er næstum tvöfalt
hærra en á sama tíma í fyrra.
Í uppgjörinu kom fram að
hagnaður bankans nam 2,5 millj-
örðum króna á fyrstu níu mánuð-
unum eftir skatta. Rekstrartekj-
ur bankans jukust um þriðjung
og rekja Landsbankamenn þá
aukingu meðal annars til batn-
andi stöðu á verðbréfamarkaði
og meiri umsvifa, einkum í verð-
bréfastarfsemi, fyrirtækjaráð-
gjöf og heildareignum.
Greiningardeild Íslandsbanka
segir að þótt níu mánaða uppgjör
Landsbankans sé gott og stefni í
góða afkomu Landsbankans á ár-
inu, hafi það ekki staðist vænt-
ingar sem Greining Íslandsbanka
gerði til þess. Tveir liðir sem
ekki var hæt að sjá fyrir skýrðu
allt að 400 milljóna króna gengis-
tap hlutabréfa á síðustu þremur
mánuðum sem kom á móti mikl-
um gengishagnaði skráðra hluta-
bréfa.
Greiningardeild Kaupþings
Búnaðarbanka telur uppgjör
Landsbankans í samræmi við
væntingar. Eins og við var að
búast var gengishagnaður mikill
á tímabilinu enda aðstæður á
innlendum og erlendum verð-
bréfamörkuðum mjög góðar.
Greiningardeildin segir að
bankinn sé nú orðinn áhættu-
sæknari en áður, sem megi
meðal annars sjá af því að
áhættugrunnur sem hlutfall af
heildareignum hafi í lok septem-
ber verið 84% en hafi verið á bil-
inu 76%-80% síðustu ár.
Kaupþing Búnaðarbanki telur
að horfur hjá Landsbankanum
séu ágætar það sem eftir lifir
árinu og stefnir í að arðsemi
bankans verði vel umfram
markmið um 13%-15% arðsemi
að öllu óbreyttu.
Bendir greiningardeild
Kaupþings Búnaðarbanka á að
Landsbankinn hafi ekki leyst inn
allan gengishagnað ársins og
segir að því geti skjótt skipast
veður í lofti ef lækkanir verða á
verðbréfamörkuðum. ■
LANDSBANKINN
Níu mánaða uppgjör stóð ekki undir vænt-
ingum Íslandsbanka.
SIGURJÓN Þ. ÁRNASON
Þóknunartekjur Landsbankans af verðbréfastarfsemi og eignastýringu
tvöfölduðust milli ára.
ÖFLUG LEITARVÉL
Google er orðið verðmætara en Amazon.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T