Fréttablaðið - 26.10.2003, Qupperneq 41
SUNNUDAGUR 26. október 2003
FÓTBOLTI Reading, lið Ívars Ingi-
marssonar, vann Sheffield Utd.
1:2 í ensku 1. deildinni í fótbolta í
gær. Ívar spilaði allan leikinn fyr-
ir Reading og þótti standa sig vel í
sínum fyrsta leik með liðinu.
Reading er í 9. sæti deildarinnar
eftir sigurinn.
Brynjar Björn Gunnarsson og
félagar í Nottingham Forest unnu
Bradford með tveimur mörkum
gegn einu á útivelli. Liðið er í 8.
sæti ensku 1. deildarinnar með
jafn mörg stig og Reading. Brynj-
ar hóf leikinn á bekknum en fékk
að spreyta sig þegar skammt var
til leiksloka.
Barnsley, lið Guðjóns Þórðar-
sonar í ensku 2. deildinni, gerði
markalaust jafntefli við Grimsby
á heimavelli. Barnsley er í 5. sæti
deildarinnar eftir 15 leiki. Liðið
hefur leikið einum leik færra en
liðin sem eru ofar í töflunni.
Plymouth er efst í deildinni með
30 stig, fjórum fleiri en Barnsley.
Peter Ridsdale, fyrrum stjórn-
arformaður Leeds, hefur nú tekið
við stjórnartaumunum hjá
Barnsley eftir langar samninga-
viðræður við fyrrum eiganda
liðsins, Peter Doyle. Lýsti Rids-
dale yfir mikilli ánægju með
samkomulagið í gær. ■
Reading vann Sheffield Utd:
Ívar lék allan leikinn
Óhræddur
við Arsenal
Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton mæta Arsenal í dag.
Mætum afslappaðir og óhræddir til leiks, segir landsliðsmaðurinn.
Ánægðir með árangurinn en megum alltaf gera betur.
FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson
og félagar í Charlton mæta
Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í
dag. Íslenski landsliðsmaðurinn
segir leikinn leggjast vel í sig:
„Við mætum afslappaðir til
leiks. Erum búnir að vinna þrjá
síðustu leiki og erum því
óhræddir,“ segir Hermann.
„Arsenal er búið að vera í topp-
baráttunni í langan tíma og er
með eitt besta lið deildarinnar,
þannig að þetta
verður erfið
viðureign.“
Hermann er
kominn á fullt
skrið eftir að
hafa meiðst á
æfingu hjá lið-
inu í síðasta
mánuði og skor-
aði meðal ann-
ars sigurmarkið gegn Blackburn
á mánudag. „Það er alltaf gaman
að skora en það er mikilvægara
að vinna,“ sagði Hermann spurð-
ur um markið, sem var hans
fyrsta fyrir Charlton.
Charlton hefur komið á óvart
í deildinni það sem af er tímabil-
inu. Liðið er í tíunda sæti með
fjórtán stig og á leikinn í dag til
góða. „Við erum að sjálfsögðu
ánægðir með árangurinn en það
má alltaf gera betur,“ segir
Hermann, en markmið Charlton
á þessu tímabili er að vera með-
al tíu efstu liðanna. „Staðan er
fljót að breytast. Við vorum í
botnbaráttunni með fimm stig
eftir sex leiki en nú erum við
komnir með fjórtán stig. Ef við
höldum áfram á þessu róli eru
líkur á því að við náum mark-
miðinu.“
Þó nokkrir leikmenn Charlton
eiga við meiðsli að stríða. Varn-
armennirnir Luke Young, Gary
Rowett og Richard Rufus eru all-
ir meiddir og sömu sögu er að
segja af sóknarmönnunum
Kevin Lisbie, Shaun Bartlett og
Carlton Cole.
Hjá Arsenal eru Patrick Vieira
fyrirliði og Martin Keown meidd-
ir en Fredrik Ljungberg kemur
aftur inn í hópinn. ■
■ ■ LEIKIR
17.00 Stjarnan tekur á móti Hauk-
um í Ásgarði í suðurriðli RE/MAX-deildar
karla í handbolta.
19.15 FH og Breiðablik eigast við í
Kaplakrika í suðurriðli RE/MAX-deildar
karla í handbolta.
19.15 Haukar mæta ÍR-ingum á
Ásvöllum í Intersport-deild karla í körfu-
bolta.
19.15 KFÍ tekur á móti KR-ingum á
Ísafirði í Intersport-deild karla í körfu-
bolta.
19.15 Tindastóll og topplið
Grindavíkur eigast við á Sauðárkróki í
Intersport-deild karla í körfubolta.
19.15 Breiðablik mætir Hamri í
Intersport-deild karla í körfubolta. Leik-
urinn fer fram í Smáranum.
19.15 Snæfell tekur á móti Þór frá
Þorlákshöfn í Intersport-deild karla í
körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
12.30 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
13.45 Charlton tekur á móti
Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Leikur-
inn er sýndur beint á Sýn.
15.50 Tottenham mætir Middles-
brough í ensku úrvalsdeildinni. Leikur-
inn er í beinni á Sýn.
17.00 Markaregn. Öll mörkin úr
þýska boltanum á Rúv.
18.00 Sýnt frá evrópsku PGA-móta-
röðinni í golfi á Sýn.
19.00 Útsending á Sýn frá hnefa-
leikakeppni í Berlín í Þýskalandi. Á með-
al þeirra sem mættust voru Hector
Velasco, heimsmeistari WBO-sam-
bandsins í millivigt, og Bert Schenk.
21.00 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn. (e).
21.35 Helgarsportið. Íþróttir helgar-
innar á Rúv.
22.30 Fréttaþáttur Meistaradeildar
Evrópu á Sýn.
23.00 Endursýndur leikur úr enska
boltanum á Sýn.
ÍVAR INGIMARSSON
Lék allan leikinn með Reading í ensku
1. deildinni í gær og stóð sig með prýði.
hvað?hvar?hvenær?
23 24 25 26 27 28 29
OKTÓBER
Sunnudagur
HERMANN HREIÐARSSON
Hermann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Charlton gegn Blackburn á mánudag með
glæsilegum skalla eftir hornspyrnu.
„Það er
alltaf gaman
að skora en
það er mikil-
vægara að
vinna.