Fréttablaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 7. febrúar 2004 ■ Nafnið mitt 19 LOKADAGUR ÚTSÖLUNNAR Opið laugardag til kl. 17.00 eiginlega tilurð Heimsferða. Skömmu síðar komum við á fót ferðum frá Barcelona hingað til lands og ætluðum að selja nokkur sæti á Ólympíuleikana í Barce- lona ‘92. Þegar boltinn byrjar að rúlla er erfitt að stoppa og hann hefur eiginlega ekki stoppað síð- an.“ Á níu systkini Andri Már á ekki langt að sækja áhugann á ferðamennsku en faðir hans er Ingólfur Guð- brandsson ferðafrömuður. „Það er eðlislæg forvitni í mér að skoða heiminn, upplifa nýja hluti og ég á erfitt með að vera kyrr á einum stað. Ég kynntist ferðamálunum í gegnum föður minn þegar hann var með Útsýn á sínum tíma. Ég var samt aldrei í rekstri með honum en ég vann hins vegar fyrir hann sem farar- stjóri á sínum tíma og gegnum farastjórnina lærði ég mjög margt,“ segir Andri Már sem eins og gefur að skilja er á miklu flakki um heiminn og ferðast 85 til 120 daga á hverju ári. Til gamans má geta þess að Ólafur Ragnar Grímsson forseti ferðað- ist í 101 dag á síðasta ári. „Ég átta mig á því í lok hvers árs, þegar ég geri dagbókarskýrslurnar, hvað ég ferðast mikið og það kemur alltaf á óvart. En þetta eru margar stuttar ferðir, fyrst og fremst við- skiptaferðir. Nú tími ég minna að ferðast þar sem ég eignaðist son í haust,“ segir hinn stolti faðir. Andri Már á stóran systkina- hóp, eina alsystur en átta hálf- systkini. Flest systkinanna starfa við tónlist og Ingólfur, faðir Andra Más, er annálaður tónlist- arunnandi. „Það hentaði mér ekki að feta þá leið,“ segir Andri. „Ég var ekki nógu þolinmóður að stunda æfingarnar á píanóið, þó ég hafi dundað við það í nokkur ár. Ég sæki hins vegar mjög mikið í tónlist og hlusta þá mikið á klass- íska tónlist. Það er gott fyrir sálartetrið.“ kristjan@frettabladid.is ANDRI MÁR INGÓLFSSON Hann stendur í stórræðum um þessar mundir. Hefur fest kaup á Eimaskipafélags- húsinu og hyggst opna þar fjögurra stjörnu hótel eftir tæpa níu mánuði. Ég var skírður í höfuðið álangafa mínum, Þorfinni Guð- brandssyni, múrarameistara í Reykjavík. Hann var alinn upp austur í öræfasveitum en bjó lengst af í Reykjavík,“ segir Þor- finnur Ómarsson. „Það hafa marg- ir sagt mér að langafi hafi verið öðlingsdrengur og yfirleitt fylgir sögunni hvað ég sé líkur honum,“ segir Þorfinnur hlæjandi en hann var tveggja ára þegar langafi hans dó. „Hann mun hafa fellt tár þegar ég var skírður því þetta kom svo flatt upp á hann.“ Nafnið er samsett af forliðnum „Þór“ í merkingunni þrumuguðinn Þór úr norrænni goðafræði, og við- liðnum „finnur“ sem merkir maður. Samkvæmt þjóðskrá eru 48 sem bera nafnið Þorfinnur sem fyrsta eiginnafn en aðeins þrír sem bera það sem annað eiginnafn. Þorfinnur er líka hálft í hvoru skírður í höfuðið á föður sínum, Ómari Þorfinni Ragnarssyni fréttamanni. „Ég gæti því valið að vera Þorfinnur Þorfinnsson ef ég vildi,“ segir Þorfinnur. „Nafn föður míns er nú flestum kunnugt, en enn kemur það mörgum á óvart að hann heiti einnig Þorfinnur.“ Að sögn Þorfinns hafa engin gælunöfn fest við hann þó æsku- félagar hans hafi stundum kallað hann Þoffa. „Það væri skrýtið ef einhver sem er ekki æskufélagi minn ætlaði að kalla mig því nafni. Það virkar ekki og verður eiginlega tilgerðarlegt.“ Þorfinnur segist einnig hafa sloppið við öll uppnefni og er að mestu leyti sáttur við nafn sitt. „Það má segja að þó ég hafi alist upp við að vera ánægður með nafn- ið en það hefur valdið vandræðum á alþjóðavettvangi.“ ■ Veldur vand- ræðum erlendis ÞORFINNUR ÓMARSSON Er skírður í höfuðið á langafa sínum sem var múrarameistari í Reykjavík. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.