Fréttablaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 43
43LAUGARDAGUR 7. febrúar 2004 kl. 2 m/isl. taliÁLFUR kl. 8 og 10.40 B. i. 14 áraMASTER & CO... kl. 3 og 5.30MONA LISA SÝND kl. 3, 5.40, 8 og 10.20 SÝND kl. 2, 4 og 6 Með íslensku tali Ath. miðaverð 500 SÝND kl. 3, 5.30, 8 og10.30 B. i. 16 ára SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40 SÝND kl. 8 og 10.20 B. i. 14 ára SÍMI 553 2075 SÝND kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 B. i. 16 ára kl. 10 og 2 M. ÍSL. TALIFINDING NEMO SÝND kl. 12, 4 og 9 SÝND kl. 4, 6.30, 9 og 11 SÝND kl. 10, 11, 12, 1, 2, 3, 5 og 7 M. ÍSL. TALI SÝND kl. 6 og 9 B. i. 14 ára SÝND kl. 5 og 9 Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta teiknimyndin Frábær mynd frá Disney fyrir alla fjölskylduna með tónlist eftir Phil Collins! Jack Nicholson, Diane Keaton, Keanu Reeves og Amanda Peet í rómantískri gamanmynd frá Nancy Myers, leikstjóra „What Women Want“. Gamanmynd eins og þær gerast bestar! TILNEFND TIL 4 ÓSKARSVERÐLAUNA ✩✩✩✩ Kvikmyndir.com ✩✩✩ Kvikmyndir.com ✩✩✩1/2 SV MBL ✩✩✩✩✩ BÖS FBL ✩✩✩ Kvikmyndir.com ✩✩✩ ÓTH Rás 2 ✩✩✩✩ ÓTH Rás 2 ✩✩✩1/2 HJ MBL 11 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA Charlize Theron vann Golden Globe-verðlaun fyrir besta leik í aðal- hlutverki og myndin er einnig tilnefnd til Óskars- verðlauna Hann sannaði það að hann erenginn tepra hann Þórólfur Árnason borgarstjóri þegar hann mætti í heimsókn í þáttinn 70 mín- útur á PoppTívi. Eins og aðdáend- ur vita þurfa gestir þáttarins að ganga í gegnum ýmsar hremming- ar áður en þeim er sleppt aftur út í þjóðfélagið. Þannig bragðaði Þórólfur á „ógeðsdrykknum“ fræga og fetaði þar með í fótspor forvera síns, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem reið á vaðið og drakk ógeðsdrykkinn, fyrst allra stjórnmálamanna. Þá tók Þórólfur áskorun PoppTívi um að gera snjóengla úti á plani Norðurljósa í stutt- buxum einum fata. Reyndar var hann fyrst beðinn um að vera einungis á nærbuxunum en eftir „málamiðlun og pólitísk átök“, eins og segir í fréttatilkynningu PoppTívi, var fallist á stuttbux- urnar. Svo skemmtilega vildi til að Þórólfur var á leið í heilsu- ræktina og var því með buxurn- ar með sér. ■ Lára Rúnarsdóttir er manneskjaná bak við þennan grip sem kom út rétt fyrir jólin. Hún semur texta og nánast öll lögin sjálf og er örygg- ið uppmálað þrátt fyrir að hún sé að stíga sín fyrstu spor í bransanum. Tónlist Láru svipar oft til Heru, þeirrar ágætu söngkonu, og þegar hún er hvað rólegust líkist hún stundum Noruh Jones. Þessi plata er mjög fín og rennur mestmegnis ljúflega niður. Aðallega er Lára sjálf að syngja við rólegt kassagít- arspil eða píanó. Öðru hverju hefur hún þó upp raustina, eins og í fyrsta laginu Drifting sem er það besta á plötunni ásamt hinu fallega I Took a Chance og titillaginu Standing Still. Það er ljóst að Lára hefur alla burði til að halda áfram að gera góða hluti enda er þessi frumburður hennar ákaflega vandaður. Standing Still er verk þroskaðrar söngkonu og hæfileikaríks lagasmiðs með framtíðina fyrir sér. Freyr Bjarnason Umfjölluntónlist LÁRA Still Standing Ótvíræðir hæfileikar Hér er á ferðinni óslípaðurdemantur. Lítil mynd með risastórt og miskunnarlaust hjarta. Byggð á sönnum atburð- um um konu sem reynir að breyta vonlausum örlögum sínum með hrikalegum afleiðingum. Fyrsti hálftíminn fer í að venjast útlits- breytingu aðalleikkonunnar Charlize Theron. Þessi leggja- langa, ljóshærða og bláeygða gyðja tók einn „De Niro“ fyrir hlutverkið og er gjörsamlega óþekkjanleg sem vændiskonan og raðmorðinginn Aileen Wurnos. Aukakílóin, gervitennurnar og vöntun á augabrúm hjálpa til við að skapa sannfærandi karakter en snilldin er að stelpan getur leikið! Þegar litið er til baka áttar maður sig á að Charlize hefur í raun staðið sig vel í öllum sínum misgóðu myndum, hún er bara of sæt til þess að maður hafi tekið hana alvarlega sem leikkonu. Mín mistök. Monster er greinilega gerð fyrir lítinn pening og hentar það sögusviðinu vel. Hvíthyskis andi svífur yfir vötnum og ætti þessi hlið Florida-ríkis og íbúum þess að koma mörgum spánskt fyrir sjónir, en svona er Ameríka í dag. Einföld og beinskeytt leik- stjórn Patty Jenkins skilar eftir- minnilegri mynd þar sem Charlize Theron fer með leiksig- ur. Óskarinn er hennar. Kristófer Dignus Umfjöllunkvikmyndir MONSTER Leikstjóri: Patty Jenkins Aðalhlutverk: Charlize Theron, Christina Ricci, Bruce Dern Flagð undir... flagði ■ Sjónvarp Sjónvarp 70 MÍNÚTUR ■ Þórólfur Árnason borgarstjóri stóðst áskorun 70 mínútna auð- veldlega þegar hann var gestur í þættinum á fimmtudag. Svalur borg- arstjóri ÞÓRÓLFUR GERIR SNJÓENGIL Kannski er Þórólfur vanur finnskum gufuböðum og snjóveltingum?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.