Fréttablaðið - 07.02.2004, Blaðsíða 40
40 7. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
EINS OG ENGILL
Elena Sokolova frá Rússlandi skautar eins
og engill á Evrópukeppninni í skautadansi
sem haldin er í Búdapest um þessar
mundir.
Skautar
hvað?hvar?hvenær?
4 5 6 7 8 9 10
FEBRÚAR
Laugardagur
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar:
Löngun í sigur ræður úrslitum
KÖRFUBOLTI „Ég á von á að liðið sigri
sem hefur meiri löngun,“ sagði
Alda Leif Jónsdóttir, fyrirliði ÍS,
um úrslitaleik Keflavíkur og KR í
bikarkeppni kvenna í dag. „Það bú-
ast allir við sigri Keflvíkinga en
KR-ingar hafa engu að tapa.“
Keflvíkingar hafa forskot á
KR-inga í viðureignum félaganna
í vetur. Keflvíkingar hafa sigrað í
tveimur deildarleikjum en KR-
ingar í einum auk þess sem Kefl-
víkingar sigruðu KR-inga 73-52 í
úrslitum Hópbílabikarsins
skömmu fyrir jól.
„Keflvíkingar hafa breiddina,“
sagði Alda Leif. „Það er nánast
sama hvaða leikmönnum þeir
skipta inná, það veikir lið þeirra
ekkert. Þeir hafa reynsluna en þeir
hafa líka yngri leikmenn sem hafa
staðið sig mjög vel í vetur eins og
Bryndísi Guðmundsdóttur og Mar-
íu Erlingsdóttur. Þær hafa nýtt sín
tækifæri mjög vel í vetur.“
„KR-ingar hafa baráttuna og
þær gefast aldrei upp. KR-ingar
spila mjög stíft og það kemur
þeim langt. Það má aldrei líta af
þeim,“ sagði Alda Leif. Hún segir
það skipta mestu máli fyrir Kefl-
víkinga að stöðva lykilmenn KR,
Hildi Sigurðardóttur og Katie
Wolfe, en Hildur skoraði 30 stig
þegar KR vann Keflavík 79-69
snemma í haust. Keflvíkingum
gekk betur að verjast henni í
deildarleik félaganna í síðasta
mánuði og úrslitaleik Hópbíla-
bikarsins í desember þegar hún
skoraði aðeins átta stig, öll úr
vítaskotum.
Leikur Keflavíkur og KR í Hóp-
bílabikarnum var lengstum jafn en
Keflvíkingar tryggðu sér sigur í
síðasta leikhluta. Alda Leif Jóns-
dóttir á von á að leikurinn í dag
verði í svipuðum farvegi. „Ég á von
á að Keflvíkingar vinni. Leikurinn
verður jafn í byrjun en Keflvíking-
ar síga svo fram úr KR-ingum.“ ■
KÖRFUBOLTI „Þeir spila aldrei betur
en þegar þeir sjá Keflavíkur-
merkið og það er svipað hjá okk-
ur,“ sagði Falur Harðarson, annar
þjálfara Keflavíkinga. „Við fáum
aukakraft þegar við spilum á móti
þeim. Það er rígur á milli þessara
liða og það er af hinu góða.“
Meiðsli og leikbann hjá Njarð-
víkingum hafa fengið mikla at-
hygli í aðdraganda úrlsitaleiksins
en Falur segir það ekki trufla und-
irbúning þeirra. „Við búumst við
þeirra sterkasta liði. Að vísu verð-
ur Páll Kristinsson ekki með en ég
held að þeir mæti allir í nokkuð
góðu ásigkomulagi. Þetta er bara
sálfræðistríð hjá þeim,“ sagði Fal-
ur. „Vissulega meiddu þeir sig
báðir en í tilfelli Brandons er
þetta bara snúningur á ökkla og
menn gera sig tilbúna fyrir svona
leik. Það er vel hægt.“
„Þeir eru komnir með nýjan út-
lending og við vitum ekkert um
hann. Við verðum bara að leggja
upp með það að þeir verði með sitt
sterkasta lið og ef við förum eitt-
hvað að slappa af þá erum við sjálf-
um okkur verstir. Þetta verður
hörkuleikur, alvega sama hverja
þeir mæta með,“ sagði Falur.
Keflvíkingum gekk mjög vel í
Evrópukeppni í vetur en gengi
þeirra hefur ekki verið jafn
stöðugt í Intersport-deildinni. „Í
Evrópukeppninni hafa menn náð
að koma með það albesta sem í
þeim býr,“ sagði Falur. „En svo
bara er eins og spennustigið sé
minna í þessum venjulegu leikj-
um þar sem menn eru að spila fyr-
ir 100 til 200 áhorfendur. Leik-
menn ná kannski ekki að vera eins
einbeittir og spila ekki af sama
krafti og getu og í Evrópukeppni.“
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Njarðvíkinga, sagði að þeim gengi
vel að að einbeita sér að leiknum
þrátt fyrir meiðslin og leikbannið
sem Páll Kristinsson tekur út í úr-
slitaleiknum. „Páll verður ekki
með, það er útséð um það. Við ætl-
um ekki að gera athugasemd við
það að hann fái bann, heldur
hvernig að því var staðið,“ sagði
Friðrik. „Við trúðum varla hvað
var að gerast eins og þegar
Brandon meiddist og Egill Jónas-
son, sem hefur verið að hjálpa
okkur heilmikið í vetur. Hann
verður klárlega ekki með heldur.
Ég er að vonast eftir því að Brent-
on og Brandon skríði eitthvað
saman og hjálpi okkur þó ekki
væri nema af 50% getu.“
„Við förum í þennan leik til að
sigra og ég hef fulla trú á að við
getum unnið þrátt fyrir einhverja
sjúkrasögu,“ sagði Friðrik. „Við
höfum lent í leikjum í vetur eins
og úrslitunum í Hópbílabikarnum
þar sem minni spámenn hjálpuðu
okkur eins og Guðmundur Jóns-
son, Egill Jónasson og Halldór
Karlsson unnu leikinn fyrir okkur.
Þetta er ekki spurning hvað þú
heitir heldur hvað þú gerir á vell-
inum.“
Njarðvíkingar höfðu mögu-
leika á að fá nýjan erlendan leik-
mann en Friðrik telur það ekki
endilega bestu lausnina. „Það er
hægt í einhverjum tilfellum en
það er mjög erfitt að fá leikmann
inn bara út af tímamismuni. Ef
hann kæmi á föstudagsmorgni á
ég eftir að koma honum inn í öll
leikkerfi. Svoleiðis leikmaður
yðri nánast bara fyrir.“
Falur segir að Njarðvíkingar
leiki aldrei betur en þegar þeir sjá
Keflavíkurmerkið. „Það er alveg
hárrétt hjá honum. Það er enginn
í mínu liði sem vill tapa fyrir
Keflavík. Það verður bara blóð,
sviti og tár hjá okkur. Þetta er
bara spurning hver getur gengið
uppréttur í bæjarfélaginu næstu
mánuðina.“ ■
15-60% afsláttur Mörkinni 3, sími 588 0640 • www.casa.is
Útsalan í fullum gangi
Brasilíumaðurinn Lucio:
Með tilboð
frá Chelsea
FÓTBOLTI Lucio, Brasilíumaðurinn í
liði Bayer Leverkusen, hefur
fengið tilboð frá Chelsea um að
ganga til liðs við félagið í sumar.
Hann segir það alveg inni í mynd-
inni að skipta um félag og flytja
til London.
Ilja Kaenzig, stjóri Lever-
kusen, segir góðar líkur á að Lucio
verði seldur. Þessi sterki varnar-
maður, sem varð heimsmeistari
með Brasilíu árið 2002, hefur leik-
ið með Leverkusen í þrjú ár. Ít-
ölsku liðin Juventus og Roma hafa
einnig sýnt áhuga á honum. ■
FÓTBOLTI Zinedine Zidane, franski
snillingurinn í liði Real Madrid,
vill framlengja samning sinn við
liðið um eitt ár, til ársins 2006.
„Eftir þrjú ár hjá þessum klúbbi
hef ég aðeins góða hluti að segja
um hann,“ sagði hann. „Ef Real
vill framlengja samninginn um
eitt ár getum við alveg rætt um
það.“ Zidane, sem verður 32 ára í
sumar, hefur spilað frábærlega í
undanförnum leikjum eftir að
hafa verið frá vegna meiðsla. ■
FÓTBOLTI Norðmaðurinn Ole Gunn-
ar Solskjær spilaði með varaliði
Manchester United í fyrrakvöld í
3-0 sigri gegn Aston Villa.
Solskjær lék síðast með United
þann 16. september í fyrra, eða
fyrir tæpum fimm mánuðum. Erf-
ið hnémeiðsli hafa verið að hrjá
hann og á tímabili var óttast að
hann yrði frá út þetta tímabil. Sol-
skjær átti ágætan leik gegn Villa
og var skipt út af eftir klukku-
tíma. „Það er frábært að vera far-
inn aftur að spila,“ sagði hann.
„Það kom smá bakslag fyrir
tveimur vikum en ég hef ekkert
fundið til síðan.“ ■
FYRIRLIÐAR KR OG KEFLAVÍKUR
Hildur Sigurðardóttir og Erla Þorsteinsdótt-
ir eru fyrirliðar liðanna sem leika til úrslita í
bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í dag.
ZIDANE
Vill spila með Real til ársins 2006.
SOLSKJÆR
Fagnar með Gary Neville. Solskjær verður
vafalítið brátt kominn aftur í aðallið
United.
Ole Gunnar Solskjær:
Spilaði með varaliðinu
Zinedine Zidane:
Vill eitt ár í viðbót
Stoltið og bikarinn í húfi
Nágrannarnir Keflavík og Njarðvík leika til úrslita í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í dag.
NÁGRANNASLAGUR
Keflavík og Njarðvík léku til úrslita í Hóp-
bílabikarnum fyrr í vetur. Liðin leika til úr-
slita í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í dag.
■ ■ LEIKIR
13.00 Keflavík mætir KR í Laugar-
dalshöll í bikarúrslitum kvenna í
körfubolta.
15.00 Eyjamenn taka á móti Þór
Akureyri í Re/max-deild karla í
handbolta í Eyjum.
15.30 Fram mætir Val í Re/max-deild
kvenna í handbolta í Framhúsinu.
16.30 Keflavík og Njarðvík eigast
við í Laugardalshöll í bikarúrslita-
leik karla í körfubolta.
16.00 Stjarnan tekur á móti FH í
Ásgarði í Re/max-deild kvenna í
handbolta.
16.00 KA/Þór sækir Víkinga heim í
Re/max-deild kvenna í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
12.55 Bikarúrslit kvenna í körfu-
bolta í Sjónvarpinu. Keflavík-KR.
13.30 Þáttur um PGA-mótið í golfi
á Sýn.
14.00 Alltaf í boltanum á Sýn.
14.25 Þýski fótboltinn í beinni í
Sjónvarpinu.
14.30 Trans World Sport á Sýn.
14.45 Enski boltinn í beinni á Stöð 2.
15.30 Supercross á Sýn.
16.20 Bikarúrslit karla í körfubolta
í Sjónvarpinu. Keflavík-Njarðvík.
16.30 Motorworld á Sýn.
17.00 Enski boltinn á Sýn.
19.00 Harlem Globetrotters á Sýn.
19.50 Sterkasti maður heims á Sýn.
20.20 Spænski boltinn í beinni á
Sýn. Real Madrid-Malaga.