Fréttablaðið - 07.02.2004, Síða 20
■ Skrifstofan
20 7. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
Skrifstofan, eða The Office einsog þættirnir heita á frummál-
inu, voru fyrst sýndir á BBC 2
árið 2001. Höfundar og leikstjórar
eru þeir Stephen Merchant og
Ricky Gervais, sem einnig leikur
aðalhlutverkið.
Þættirnir gerast á skrifstofu
pappírsfyrirtækisins Wernham
Hogg í bænum Slough í Bretlandi.
Skrifstofustjórinn David Brent er
algjörlega óþolandi og talar í ein-
tómum klisjum. Sjálfur telur hann
sig vera ná því besta úr sam-
starfsfólki sínu, ekki síst með ein-
stökum húmor. David er vægast
sagt misskilinn. Samstarfsfólk
hans á erfitt með að skilja undar-
lega brandara hans og þolir hann í
raun og veru ekki. Það hlær þó
stundum að yfirmanninum af ótta
við að vera sagt upp störfum.
Starfsmennirnir eru saman-
safn af misgáfulegu fólki sem
virðist þó sátt við að vinna leiðin-
lega og tilbreytingarlausa vinnu á
skrifstofunni. Andrúmsloftið þar
myndi gera út af við venjulegt
fólk á örskotsstund.
Umboðsmaður Suede
Höfundurinn og aðalleikarinn,
Ricky Gervais, kom inn í grín-
heiminn árið 1998 þegar hann var
36 ára sem þykir frekar seint í
Bretlandi. Fyrir þann tíma hafði
hann meðal annars starfað í sjö
ára skeið sem umboðsmaður fyrir
unga skemmtikrafta. Metnaður
hans lá þó á tónlistarsviðinu.
Hann starfrækti sína eigin hljóm-
sveit, Seona Dancing, á níunda
áratugnum sem gaf út tvær lítt
þekktar smáskífur og tókst ekki
að slá í gegn. Þótt ýmislegt hefði
verið reynt lagði sveitin upp lau-
pana. Gervais hefur meðal annars
sýnt tónlistarsnilli sína í The
Office þegar hann spilar og syng-
ur fyrir samstarfsfólk sitt.
Gervais starfaði sem umboðs-
maður fyrir Íslandsvinina í hljóm-
sveitinni Suede áður en hann var
ráðinn sem dagskrárgerðarmaður
á XFM útvarpstöðina. Þar fékk
hann áhuga á gamanleik og bjó
meðal annars til persónuna Seedy
Boss, sem skrifstofustjórinn
David Brent er byggður á.
Hjálparkokkur Gervais á út-
varpsstöðinni var Steve
Merchant. Merchant var í starfs-
þjálfun hjá BBC og hluti af nám-
inu var að búa til stuttmynd.
Merchant ákvað að gera hálftíma
langan gamanþátt með Gervais í
hlutverki Seedy Boss. Stjórnend-
um BBC leist svo vel á þáttinn að
þeir ákváðu að gefa félögunum
tækifæri á að skrifa og leikstýra
sínum eigin þætti. Gervais kom að
gerð gamanþáttanna Bruiser árið
2000 og skrifaði og lék aðalhlut-
verkið í þáttunum Meet Ricky
Gervais. Næst skrifaði hann
handritið að gamanþáttunum The
Sketch Show og síðan var komið
að The Office.
Margverðlaunaður þáttur
The Office hefur sannarlega
slegið í gegn og unnið til fjölda
verðlauna. Þátturinn fékk meðal
annars verðlaun fyrir besta nýja
gamanþáttinn í sjónvarpi árið
2000 og á Golden Globe verðlaun-
unum í janúar var þátturinn
valinn besti sjónvarpsþátturinn
og Gervais valinn besti leikari í
gamanþætti.
Gervais hefur fengið mörg
atvinnutilboð í kjölfarið og mun
meðal annars leika einn óþokanna
sem Sydney Bristow berst við í
þáttunum Alias, sem sýndir hafa
verið í Sjónvarpinu.
Lok skrifstofunnar
Aðeins tvær sex þátta raðir af
The Office hafa verið gerðar.
BBC hefur auk þess gert tvo auka
þætti þar sem lausir endar eru
hnýttir.
Í nýju þáttaröðinni verða
miklar breytingar á skrifstofunni
í Slough en í fyrstu þáttaröðinni lá
fyrir niðurskurður eða sameining
við útibúið í Swindon. David reyn-
ir að sannfæra nýja starfsmenn
um hversu góður yfirmaður hann
er en með misjöfnum árangri.
Rúmlega 4,4 milljónir áhorf-
enda hafa fylgst með annarri
þáttaröðinni en þættirnir hafa
verið seldir til meira en 60 landa.
Fyrsta þáttaröðin er nú endur-
sýnd í Sjónvarpinu en önnur
þáttaröð hefst 17. mars.
kristjan@frettabladid.is
Kristín B.K. Michelsen erskrifstofustjóri hjá Hvítlist,
fyrirtæki sem sérhæfir sig í að-
föngum prentiðnaðarins. Kristín
hefur ekki séð The Office þætt-
ina en segir þá mynd sem þeir
draga upp af leiðinlegu skrif-
stofustarfi hjá pappírsfyrirtæki í
öllu falli ekki eiga við um sinn
vinnustað.
„Starf mitt er þannig að ég
veit aldrei hverju ég á von á þeg-
ar ég kem í vinnuna,“ segir Krist-
ín sem vinnur venjulega frá átta
til fjögur. Starf hennar byggist að
miklu leyti upp á samskiptum í
gegnum síma og oft þarf að bjar-
ga stofnunum og fyrirtækjum um
hinar og þessar vörur.
„Pappír er ekki bara pappír.
Það er ýmislegt sem þarf að huga
að. Trefjarnar verða til dæmis að
liggja rétt í pappírnum svo bók
sem prentuð er verpist ekki og
pappírskortin verða að vera bein
svo þau svitni ekki þegar þau
standa í rekkanum,“ segir Kristín.
„Við þurfum að þekkja vöruna.“
Það er nóg að gera hjá Hvítlist
en annasamasti tíminn er á
haustin þegar bækur eru prentað-
ar fyrir jólabókaflóðið. „Síðan
koma líka sprengjur þegar sam-
einingar verða á fyrirtækjum og
prenta þarf allt þeirra efni upp á
nýtt,“ segir Kristín. „Þetta er ansi
fjörugt starf. Ég var áður í bók-
haldi í ein sextán ár en gafst upp.
Það var leiðinlegt starf.“
Kristín segist ekki ganga um
fyrirtækið og slá um sig með
fimmaurabröndurum eins og
skrifstofustjórinn í The Office.
„Þetta er lítið fyrirtæki, ekki nema
átta manns sem vinna hér, og það
er voða léttur og góður andi hér í
fyrirtækinu. Það líður öllum vel
hér og enginn rígur milli starfs-
manna. Við kjöftum af okkur
hverja tusku í hádeginu og stund-
um lyftum við okkur upp og förum
í leikhús.“ ■
YFIRMAÐUR FRÁ HELVÍTI David
Brent, leikinn af Ricky Gervais,
er yfirmaður
svæðisskrif-
stofu í pappírs-
fyrirtæki í
bænum Slough.
Hann er álíka
góður heim-
spekingur og
Descartes, jafn
fimur dansari
og MC Hammer og tónlistarhæfi-
leikar hans ættu að opna fyrir
honum dyr í heimsfrægar hljóm-
sveitir á borð við Texas. Hann
hefur einstaklega næman skiln-
ing á pólitískri rétthugsun. David
talar í klisjum og hefur einstakan
húmor sem fáir skilja. Kvik-
myndagerðarmenn frá BBC, sem
taka upp þættina, hafa lýst hon-
um sem „yfirmanni frá helvíti“.
EIGINGJARN Á HEFTARANN Gar-
eth Keenan, leikinn af Mackenzie
Crook, er nánasti samstarfsmað-
ur Davids Brent.
Hann er afar
stoltur af því að
vera starfs-
mannastjóri á
skrifstofunni og
það kemur ein-
staklega vel í
starfi að hann
var þrjú ár í
breska heimavarnarliðinu. Hann
hefur einstakt lag á að fæla kon-
ur burt frá sér. Gareth er ákaf-
lega eigingjarn á heftarann sinn
og önnur skrifborðsáhöld. Holl-
usta hans við fyrirtækið á þó eft-
ir að reynast honum vel.
HEILBRIGÐI SÖLURÁÐGJAFINN
Tim Canterbury, leikinn af Mart-
in Freeman, er söluráðgjafi á
skrifstofunni.
Hann er einn
af fáum starfs-
mönnum skrif-
stofunnar sem
veit hvað starf-
ið er innantómt
og á erfitt með
að þola vitleys-
ingana sem
umkringja hann. Hann lítur á það
sem köllun í lífi sínu að angra
Gareth, samstarfsmann sinn. Tim
hefur frá upphafi verið hrifinn af
skrifstofudömunni Dawn, sem er
eini sólargeisli hans á skrifstof-
unni.
BÓKARI MEÐ EXEM Keith Bish-
op, leikinn af Ewen MacIntosh,
vinnur í bók-
haldinu. Til að
halda í við þá
miklu vinnu
sem liggur á
honum er hon-
um gjörsam-
lega ófært að
blanda geði við
aðra. Hann er
með exem og því þakinn útbrot-
um og skammtímaminni hans er
heldur gloppótt.
KVENNABÓSINN Chris Finch,
leikinn af Ralph Ineson, er sölu-
maður á skrifstofunni og einn af
drykkjaufélög-
um Davids
skrifstofu-
stjóra. Finchy,
eins og hann er
gjarnan kallað-
ur, kemur ekki
oft á skrifstof-
una en í þau fáu
skipti sem hann
lætur sjá sig slær hann um sig
með sóðalegu orðbragði. Hann
hefur einstakt lag á konum þótt
hann komi ekki vel fram við þær.
FÓRNARLAMBIÐ Dawn Tinsley,
leikinn af Lucy Davis, er mót-
tökudaman og
ein þeirra sem
þarf að þola
lélega brand-
ara skrifstofu-
stjórans dag
eftir dag. Hún
er trúlofuð
Lee, verka-
manni sem
minnir um
margt á neanderdal-mann. Hana
dreymir um að vinna með börn-
um.
KRISTÍN B.K. MICHELSEN
Er skrifstofustjóri hjá pappírsfyrirtækinu Hvítlist. Skrifstofan í Office er einnig skrifstofa
pappírsfyrirtækis.
Við kjöftum af okk-
ur hverja tusku í hádeginu
og stundum lyftum við okk-
ur upp og förum í leikhús.
Gamanþættirnir The Office hafa aftur verið teknir til sýningar í Sjónvarpinu. Fyrsta þáttaröðin er nú endur-
sýnd en önnur þáttaröð er væntanleg. Ricky Gervais hefur slegið í gegn í þáttunum bæði sem annar höfunda
og aðalleikari.
Skrifstofa dauðans
STARFSFÓLK SKRIFSTOFUNNAR
Samheldinn hópur fólks starfar á skrifstofunni. Miklar breytingar eru í vændum á skrifstofunni þar sem samruni við útibúið í Swindon er
yfirvofandi.
Í GÓÐU GEIMI
David sýnir oft á sér spaugilegar hliðar sem samstarfsmenn hans eiga þó erfitt með að
skilja. Hann vill þeim þó vel.
,,Pappír er ekki bara pappír