Fréttablaðið - 07.02.2004, Qupperneq 32
■ ■ KVIKMYNDIR
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýn-
ir bandarísku kvikmyndina El Dorado
eftir Howard Hawks frá árinu 1967 í
Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði.
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Björn Steinar Sólbergsson
organisti heldur hádegistónleika í Akur-
eyrarkirkju.
15.00 Berglind María Tómasdótt-
ir, flauta/bassaflauta, Ingólfur Vil-
hjálmsson, klarínett, Nicole Vala Carigl-
ia, selló, Kristinn Árnason gítar og Ása
Briem, píanó, flytja verk eftir Þorstein
Hauksson, Huga Guðmundsson og
George Crumb á Myrkum músíkdögum
í Borgarleikhúsinu.
17.00 Þrír kammerkórar syngja á
tónleikum í Hásölum í Hafnarfirði. Kór-
arnir eru Kammerkór Mosfellsbæjar,
Kammerkór Hafnarfjarðar og
Kammerkór Reykjavíkur.
22.30 Tríó saxófónleikarans Ósk-
ars Guðjónssonar kemur fram í
jazztónleikaröðinni á Kaffi List, sem
nú er einnig á laugardögum. Með
Óskari leika þeir Tómas R. Einarsson
á kontrabassa og Pétur Grétarsson á
trommur.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren á stóra sviði Borgarleikhússins.
20.00 Sporvagninn Girnd eftir
Tennessee Williams í Borgarleikhúsinu.
20.00 Eldað með Elvis er sýnt í
Loftkastalanum.
20.00 Meistarinn og Margaríta í
leikgerð Hilmars Jónssonar í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu.
20.00 Græna landið eftir Ólaf
Hauk Símonarson á litla sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Vegurinn brennur eftir
Bjarna Jónssons á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins.
20.00 100% hitt með Helgu
Braga er sýnt í Ými við Skógarhlíð.
20.00 Chicago eftir Kander, Ebb og
Fosse á stóra sviði Borgarleikhússins.
21.00 5stelpur.com sýnt í Austur-
bæ við Snorrabraut.
■ ■ LISTOPNANIR
14.00 Sýning á gjöf hjónanna
Ragnars Jónssonar í Smára og Bjargar
Ellingsen til Listasafns ASÍ frá árinu
1961 verður opnuð í Ásmundarsal í til-
efni aldarafmælis Ragnars.
15.00 Kristín Jónsdóttir frá
Munkaþverá opnar sýningu á textílverk-
um í skartgripagalleríinu Hún og hún,
Skólavörðustíg 17b.
15.00 Sýningin Fljúgandi teppi
verður opnuð í sal félagsins Íslensk graf-
ík í Hafnarhúsinu, hafnarmegin.
16.00 Ljósmyndasýningin Fólk og
borg verður opnuð í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í Grófarhúsi, Tryggvagötu
15, 6. hæð. Á sýningunni verða ljós-
myndir eftir Leif Þorsteinsson.
16.00 Tvær sýningar verða opnaðar
á Kjarvalsstöðum. Annars vegar er um
að ræða samsýningu þriggja listkvenna í
vestursalnum undir heitinu Órar - um
ást og smásmugulegar einkalífsrann-
sóknir og hins vegar einkasýningu
Alistair Macintyre í miðrýminu undir
yfirskriftinni Veran í deginum. Sýningarn-
ar standa báðar til 28. mars.
17.00 Jón Óskar opnar sýningu á
Næsta bar.
17.00 Mynstur ljósanna heitir sýn-
ing Geggu - Helgu Birgisdóttur, sem
verður opnuð þann á Café Rosenberg,
Lækjargötu 2. Sýningin er opin frá kl. 16
alla daga og stendur til febrúarloka.
17.00 Sýning Önnu Jóa „Tímamót”
verður opnuð í Galleríi Skugga, Hverfis-
götu 39.
■ ■ SKEMMTANIR
19.00 Brimkló og Papar leika á einu
stærsta þorrablóti ársins í Kaplakrika.
23.00 Hljómsveitin Handverk spil-
ar fram á rauða nótt á Rauða ljóninu.
23.00 Sveitaball með Miðnesi
verður á Grand Rokk.
23.59 Plötusnúðurinn Billy Nasty
er kominn til landsins og spilar á
Gauknum á Elektrolux-kvöldi, en þau
eru byrjuð aftur eftir hálfs árs hlé.
Milljónamæringarnir ásamt Bogo-
mil Font, Bjarna Ara og Ragga Bjarna
skemmta í Klúbbnum við Gullinbrú.
Rúnar Guðmundsson trúbador spil-
ar á Café Catalínu í Kópavogi.
Matti X verður í góðu gríni í búrinu
á Café 22.
Dj Benni á Hverfisbarnum.
Dj Þór Bæring á Felix.
Elektrolux á Gauknum í samstarfi
við Breakbeat.is.
Dj Bjarki á Glaumbar.
Pálmi Gunnarsson syngur á
Kringlukránni ásamt nýrri hljómsveit.
Diskórokktekið og plötusnúðurinn
Skuggabaldur skemmtir á Ásláki í Mos-
fellsbæ.
Rampage á Vegamótum.
Hinir eiturhörðu kuldabolar Gullfoss
og Geysir verða í Leikhúskjallaranum.
DJ Óli Palli af Rás 2 spilar á Dátan-
um, Akureyri, og hljómsveitin Sent verð-
ur í Sjallanum.
Dúettinn Regn skemmtir á Ara í Ögri.
Hermann Ingi jr skemmtir gestum
Búálfsins í Breiðholti.
Afmælismánuður Nelly’s heldur
áfram með Jóni Gesti í búrinu.
Hljómsveinn Úlfarnir spilar í Vél-
smiðjunni á Akureyri.
Hljómsveitin Hunang skemmtir á
Players í Kópavogi.
Jón Atli og Chuck munu halda uppi
stuðinu á Ellefunni.
Atli skemmtanalögga skemmtir á
Kaffi Akureyri.
■ ■ FUNDIR
11.00 Málþing um íslenska nú-
tímalist verður haldið í Salnum, Tónlist-
arhúsi Kópavogs.
■ ■ SAMKOMUR
16.00 Hátíðardagskrá í Þjóðleik-
húsinu í tilefni af aldarminningu Ragn-
ars í Smára.
■ ■ SÝNINGAR
Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jóns-
sonar (1876 - 1958) á vinnustofu lista-
mannsins, Bergstaðastræti 74.
■ ■ FÉLAGSLÍF
21.00 Fundur í Félagi einhleypra í
Konnakoti, Hverfisgötu 105, 2. hæð.
32 7. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
4 5 6 7 8 9 10
FEBRÚAR
Laugardagur
Á tónleikum Myrkra músík-daga í Borgarleikhúsinu í dag
verða flutt verk eftir Þorstein
Hauksson, Huga Guðmundsson og
svo að lokum verk eftir George
Crumb, sem nefnist Vox Bal-
aenae, þar sem hljóðfæraleikar-
arnir fara mjög samviskusamlega
að fyrirmælum tónskáldsins.
„Í síðasta verkinu verðum við
öll með andlitsgrímur samkvæmt
fyrirmælum tónskáldsins. Pæl-
ingin hjá honum er að þetta eigi
að minnka áhrif nærveru hljóð-
færaleikaranna og standa þannig
táknrænt fyrir hin voldugu
ómannlegu náttúruöfl,“ segir
Berglind María Tómasdóttir
flautuleikari. Með henni spila í
þessu verki þau Nicole Vala
Cariglia á selló og Ása Briem á
píanó.
„Hann er að leika sér með alls
kyns nýstárlegar leiðir til að spila
á hljóðfærin. Við erum til dæmis
að syngja og blístra á meðan við
spilum, og svo notar píanóleikar-
inn meitil til að plokka strengina.
Hún spilar reyndar minnst á
hljómborðið heldur fer meira beint
á strengina. Hún notar líka bréfa-
klemmu og sérslípaðar glerplötur,
sem hún setur ofan á strengina til
að fá sérstakan hljóm.“
Á tónleikunum verða einnig
flutt þrjú verk eftir Huga Guð-
mundsson, sem eiga það sameig-
inlegt að vera samin fyrir gítar,
þótt önnur hljóðfæri sláist í hóp-
inn í tveimur þeirra.
Hugi segir þessi verk vera eins
konar uppgjör sitt við gítarinn,
sem var fyrsta hljóðfærið sem
hann lærði á.
„Gítarinn var mitt hljóðfæri á
leið inn í músíkina,“ segir Hugi.
„Þessi spænska músík höfðaði
hins vegar aldrei til mín, þannig
að eftir að hafa klárað gítarnámið
sneri ég mér algerlega að því að
skrifa. Með þessum verkum hef
ég hins vegar fundið hliðar á
þessu hljóðfæri sem ég hef hrifist
af. Við erum kannski aftur orðnir
sáttir,“ segir Hugi, sem býr í Dan-
mörku þar sem hann stundar nú
nám í tónsmíðum.
Hugi var mikill rokkari hér
áður fyrr og setur það óneitanlega
svip sinn á tónsmíðar hans.
„Ég var í þyngsta rokkinu sem
þú getur ímyndað þér, dauða-
rokki,“ segir Hugi og bætir því
við að það sé kannski ekki jafn fá-
ránlegt og mörgum finnst að fara
úr dauðarokkinu yfir í nýja
klassík.
„Hvoru tveggja er ómstrítt og
erfitt fyrir eyrun.“ ■
Notar meitil á píanóið
fös. 6. febrúar (uppselt),
lau. 7. febrúar (nokkur sæti laus),
fös 13. feb.
lau 14. feb.
20/2, 21/2, 27/2 og 28/2
BERGLIND MARÍA TÓMASDÓTTIR, KRISTINN ÁRNASON OG HUGI GUÐMUNDSSON
Berglind og Kristinn eru meðal flytjenda á tónleikum Myrkra músíkdaga í Borgarleikhúsinu, þar sem meðal annars verða flutt þrjú
verk eftir Huga.
■ TÓNLEIKAR