Fréttablaðið - 07.02.2004, Síða 41

Fréttablaðið - 07.02.2004, Síða 41
41LAUGARDAGUR 7. febrúar 2004 Walesmenn ósáttir við ákvörðun UEFA: Áfrýja dómnum FÓTBOLTI Wales hefur óskað eftir því að Knattspyrnusamband Evrópu endurskoði ákvörðun sína um að leyfa Rússum að keppa í úrslitum Evrópukeppninnar í sumar. Wales keppti við Rússland um laust sæti í keppninni og tapaði eft- ir tveggja leikja rimmu. Rússinn Jegor Titov féll á lyfjaprófi eftir fyrri leik liðanna, sem fór 0-0. Hann sat á varamannabekknum allan þann leik. Titov spilaði hins vegar í síðari leik liðanna, sem Rússar unnu 1-0. Hann hefur verið dæmdur í árs keppnisbann og sektaður af félagi sínu, Spartak Moskvu. ■ FÓTBOLTI Að sögn Geirs Þorsteins- sonar, framkvæmdastjóra KSÍ, er ólíklegt að liðum í tveimur efstu deildum fjölgi úr 10 í 12 strax á næsta ári. Það verði í fyrsta lagi sumarið 2006. „Tæknilega lít ég á það þannig að ef það ætti að fjölga liðum 2005 hefði þurft að liggja fyrir á þessu þingi ályktunartillaga um hvernig það ætti að gerast. Þess vegna held að eingöngu sakir þess sé ekki raunhæft að tala um það. Þetta er lagalega framkvæmanlegt en ég get ekki séð að það verði friður um slíkt,“ segir Geir. Önnur tillaga á þinginu miðar við að undanúrslit bikarkeppni karla fari fram á heimavelli lið- anna í stað Laugardalsvallar. Geir segir að málið hafi verið rætt á síð- asta þingi og er ekki viss um að það fái meiri hljómgrunn í ár. Eyjamenn hafa verið talsmenn þessarar tillögu sem og fleiri félög á landinu. „Það sem er merkilegt á þessu ári varðandi undanúrslitin er að í samkomulagi við hin liðin í Landsbankadeildinni hafa þegar verið lögð drög að því að undanúr- slitin og úrslitaleikurinn verði tvær síðustu helgarnar á keppnis- tímabilinu,“ segir Geir. „Við klár- um deildina, helgina eftir verða undanúrslitin og svo helgina þar á eftir verður úrslitaleikurinn. Úr- slitin færast því aftur um eina helgi.“ Hann segir að meginástæð- an sé sú að liðin utan af landi sem hafa spilað í undanúrslitum í miðri viku hafa fundið fyrir því að erfitt sé fyrir stuðningsmenn sína að sækja leikinn í Reykjavík. Geir viðurkennir að aukin áhætta verði þarna tekin vegna brigðuls veður- fars á þessum árstíma. Loks má nefna tillögu um breyt- ingu á fyrirkomulagi 1. flokks karla. Verði hún samþykkt verður 1. flokkur lagður niður og deildar- keppni liða með leikmenn undir 23 ára aldri og fjóra eldri leikmenn verður haldin. Þar verður keppt um Íslandsmeistaratitil og lið geta fallið eins og í öðrum deildum. Eggert Magnússon verður áfram formaður KSÍ og aðrir stjórnarmenn sitja áfram. Engin önnur framboð bárust áður en frestur rann út. Aðspurður segir Geir að andinn innan KSÍ sé góður um þessar mundir. „Almennt séð stendur hreyfingin vel saman og það er einhugur í henni. Auðvitað eru þingin til þess að takast á og skipt- ast á skoðunum um mál og það hef- ur alltaf verið þannig.“ freyr@frettabladid.is Fjölgun liða óraunhæf Ársþing KSÍ verður haldið á Selfossi í dag. Rætt verður meðal annars um fjölgun liða í Landsbankadeild og 1. deild karla og hvort undan- úrslit bikarkeppninnar skuli fara fram á heimavöllum liðanna. GEIR ÞORSTEINSSON Ekki raunhæft að liðum verði fjölgað í Lands- bankadeildinni og 1. deild karla á næsta ári. EINAR HÓLMGEIRSSON ATKVÆÐAMIKILL ÍR-ingurinn Einar Hólmgeirsson sést hér skora eitt af tíu mörkum sínum í leiknum gegn Fram í gærkvöld. ÍR lagði Fram í úrvalsdeildinni í handboltanum í gær: Gott að vera við toppinn HANDBOLTI ÍR-ingar halda áfram sigurgöngu sinni í handboltanum og eru í toppsæti úrvalsdeildarin- nar ásamt Val eftir sigur á Fram, 32–27, í Framheimilinu í gærkvöld. „Það er gott að vera við toppinn. Við finnum ekki fyrir neinni pressu og vorum staðráðnir í því að hefna ófaranna frá því í bik- arnum. Mér fannst við spila ágætlega miðað við að þetta var fyrsti leikur eftir langt hlé en það má eiginlega segja að við höfum gert út um þetta í fyrri hálfleik,“ sagði Bjarni Fritzson, fyrirliði ÍR, í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn. Orð að sönnu hjá Bjarna því ÍR- ingar mættu afar grimmir til leiks og í markinu hjá þeim var Ólafur Helgi Gíslason í fantaformi. Hann varði alls fimmtán skot í fyrri hálfleik, mörg hver úr dauðafæri. Sóknarleikur Framara var ráðleys- islegur í fyrri hálfleik og eini maðurinn sem var með einhverju lífsmarki var gamla kempan Héðinn Gilsson. Hann mátti hins vegar ekki við margnum og ÍR- ingar fóru með fimm marka for- ystu í hálfleik, 16–11. Framarar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og söxuðu grimmt á forskot ÍR-inga. Þeim tókst þó ekki að komast nær en tvö mörk og ÍR-ingar innbyrtu sig- urinn nokkuð örugglega. Ólafur Helgi Gíslason átti góðan leik í marki ÍR í fyrri hálfleik. Fannar Þorbjörnsson og Einar Hólmgeirsson voru firnasterkir og Bjarni Fritzson var góður í síðari hálfleik. Héðinn Gilsson var atkvæðamestur Framara, sem vilja eflaust gleyma þessum leik sem fyrst. Hann skoraði tíu mörk og þeir Valdimar Þórsson, Jón Björgvin Pétursson og Arnar Þór Sæþórsson tvö mörk hver. Einar Hólmgeirsson skoraði tíu mörk fyrir ÍR, Fannar Þor- björnsson og Bjarni Fritzson skor- uðu sjö mörk hvor og þeir Ingimundur Ingimundarson og Hannes Jón Jónsson skoruðu fjögur mörk hvor. ■ Remax-deild karla í gærkvöld: Öruggur sigur KA HANDBOLTI KA gerði góða ferð í Garðabæ í gær og vann Stjörn- unni 34-26 í úrvalsdeild Remax- deildar karla. Leikurinn var jafn framan af en um miðjan fyrri hálfleik skildu leiðir og KA-menn bættu jafn og þétt við forskotið út leikinn. Vörn Stjörnumanna var arfa- slök eins og sjá má á markatöl- unni en varnarleikur KA-manna var ágætur og var það mesti mun- urinn á liðunum. David Kekelia skoraði sex af mörkum Stjörnunnar og Vilhjálm- ur Halldórsson fimm, þar af fjög- ur úr víti. Arnar Jón Agnarsson skoraði fjórum sinnum, Gunnar Ingi Jóhannsson og Arnar Freyr Theódórsson þrisvar, Sigurður Bjarnason og Björn Friðriksson skoruðu tvö mörk hvor og Gústaf Bjarnason eitt. Jacek Kowal varði fimmtán skot, þar af eitt vítakast. Arnór Atlason var atkvæða- mestur norðanmanna með tíu mörk, þar af eitt úr vítakasti, Ein- ar Logi Friðjónsson skoraði níu og Andreus Stelmokas sjö, eitt þeirra úr vítakasti. Árni Björn Þórarins- son skoraði þrjú mörk, Bjartur Máni Sigurðsson og Jónatan Þór Magnússon tvö mörk hvor og Þor- valdur Þorvaldsson eitt. Hafþór Einarsson varði tólf skot, þar af eitt vítakast. ■ RE/MAX-ÚRVALSDEILD KARLA Úrslit leikja í gærkvöldi Stjarnan - KA 26-34 Fram - ÍR 27-32 Haukar - HK 30-23 Valur - Grótta/KR 29-20 Staðan Valur 1 1 0 0 29:20 10 (8) ÍR 1 1 0 0 32:27 10 (8) KA 1 1 0 0 34:26 9 (7) Haukar 1 1 0 0 30:23 7 (5) Fram 1 0 0 1 27:32 6 (6) Stjarnan 1 0 0 1 26:34 6 (6) HK 1 0 0 1 23:30 5 (5) Grótta/KR 1 0 0 1 20:29 3 (3) Tölur innan sviga eru stig sem félögin tóku með sér úr riðlakeppninni Leikir á morgun KA - Fram KA-heimilið 17.00 HK - Stjarnan Digranes 19.15 Grótta/KR - ÍR Seltjarnarnes 19.15 Valur - Haukar Valsheimili 19.15 Valsmenn og Haukar byrja vel í úrvalsdeildinni í handknattleik: Þjálfaraskiptin höfðu ekki áhrif HANDBOLTI Það var ekki að sjá að Haukar hefðu skipt um þjálfara með dramatískum hætti fyrir þremur dögum þegar þeir tóku HK-menn í bakaríið, 30–23, í leik liðanna í RE/MAX-úrvalsdeild karla í handknattleik á Ásvöllum. Haukar voru alltaf skrefinu á undan og það var einkum stór- leikur Jóns Karls Björnssonar og Birkis Ívars Guðmundssonar sem skóp sigurinn. Jón Karl skoraði 14 mörk fyrir Hauka, þar af níu úr vítakasti, Andri Stefan fimm, Robertas Pauzuolis fjögur, Ásgeir Örn Hall- grímsson þrjú og Halldór Ingólfs- son og Þorkell Magnússon tvö hvor. Birkir Ívar varði 26 skot, þar af tvö vítaköst. Andrius Rackauskas skoraði átta mörk fyrir HK, tvö þeirra úr vítakasti, Elías Már Halldórsson fimm, Samúel Árnason þrjú og Al- exander Arnarson, Atli Þór Samú- elsson og Augustas Strazdas tvö hver. Björgvin Páll Gústavsson varði átta skot í marki HK. Valsmenn unnu öruggan sigur á Gróttu/KR, 29–20, á Hlíðarenda í gærkvöld og eru í efsta sæti deild- arinnar ásamt ÍR-ingum. Sigur Valsmanna var afskaplega örugg- ur. Þeir leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 12–8, og byrj- uðu síðan síðari hálfleikinn á því að skora sex fyrstu mörkin og komast í 18–8. Eftir það var leikurinn aldrei spennandi og Valsmenn sigldu í höfn með níu marka sigur, 29–20. Pálmar Pétursson átti mjög góðan leik í marki Vals, varði sex- tán skot og var að öðrum ólöst- uðum besti maður vallarins. Markús Máni Michaelsson var markahæstur hjá Val með sex mörk og þeir Hjalti Gylfason og Heimir Örn Árnason skoruðu fjögur mörk hvor. Páll Þórólfsson var markahæst- ur hjá Gróttu/KR með fimm mörk og Kristinn Björgúlfsson skoraði fjögur. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.