Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 1
● afmælisgjöf uefa
KSÍ og sveitarfélögin:
▲
SÍÐA 36
60 sparkvellir
um allt land
● 36 ára í dag
Snæfríður Baldvinsdóttir:
▲
SÍÐA 22
Gleðst yfir hverju
ári sem bætist við
● þjóðin er grínsvelt
Pablo Francisco:
▲
SÍÐA 35
Gaman að skemmta
Íslendingum
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
ÞRIÐJUDAGUR
HVERNIG Á AÐ GERA VIÐ-
SKIPTASAMNINGA? Einn þekktasti
hagfræðingur heims, Oliver E. William-
son, flytur erindi um það hvernig gera
eigi viðskiptasamninga. Williamson flytur
erindi sitt í Öskju, stofu 1, klukkan 12.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
EINNA BEST Í BORGARFIRÐI Þar
eru horfur á sæmilega björtu veðri
framan af degi. Rigning sunnan til
og einhver væta í borginni. Skúrir
og svalt fyrir norðan. Sjá síðu 6
18. maí 2004 – 135. tölublað – 4. árgangur
VOPNAÐ RÁN Vopnaður ræningi rudd-
ist inn í bankaútibú SPRON í Mjóddinni um
klukkan tvö í gær og komst á brott með
fjármuni. Klukkutíma eftir ránið var maður
fæddur árið 1987 handtekinn. Sjá síðu 2
EFAST ENN Sigurður Líndal lagaprófess-
or segir nýjustu breytingar á fjölmiðlafrum-
varpinu vera til bóta. Hann hefur þó enn
miklar efasemdir um að ákvæði laganna
standist ákvæði stjórnarskrár. Sjá síðu 6
ÍRAK Yfirmaður framkvæmdaráðs Íraks lét
lífið í sjálfsmorðsárás í gær. Áður óþekkt
samtök lýstu ábyrgð á verknaðinum á
hendur sér. Bandaríkjamenn ætla ekki að
láta árásirnar hafa áhrif á valdaskipti í land-
inu 30. júní. Sjá síðu 10
EFTIRSPURN Í HÁMARKI Olíufram-
leiðsla er í hámarki hjá flestum olíuútflutn-
ingsríkjum heimsins en þrátt fyrir það held-
ur olíuverð áfram að hækka. Flest bendir til
að núverandi verð haldist eða hækki næstu
misserin. Sjá síðu 14
53%76%
Kvikmyndir 34
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 26
Sjónvarp 36
Alda Jónsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Margir á of
stórum hjólum
● heilsa
Davíð og Ólafur Ragnar:
Funduðu á
Bessastöðum
STJÓRNMÁL Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra átti fund með Ólafi
Ragnari Grímssyni, forseta Ís-
lands, að Bessastöðum í gærmorg-
un. Í viðtölum í gær sagði Davíð að
fundurinn hefði verið samkvæmt
hefð og venju en vildi ekkert gefa
upp um efni fundarins. Hann sagði
hins vegar að samskipti sín við
forsetann væru góð.
Hjá skrifstofu forsetaembætts-
ins fengust heldur ekki upplýsing-
ar um hvað rætt var á fundi Ólafs
Ragnars og Davíðs. ■
ÍRAK Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að ill meðferð á íröskum föngum
hefði haft „hræðileg áhrif“ á
ímynd Bandaríkjanna á alþjóða-
vettvangi. Hann sagði George
Bush forseta staðráðinn í að leið-
rétta það sem aflaga hefði farið.
Í ávarpi sem Powell hélt í
bandarískum háskóla beindi hann
orðum sínum til leiðtoga erlendra
ríkja: „Sjáið Bandaríkin taka á
þessu, sjáið hvernig við munum
gera hið rétta,“ sagði Powell.
Hann sagði að varnarskrifstofa
utanríkisráðuneytisins myndi
hefja umfangsmikla rannsókn til
að komast til botns í málinu.
Powell sagði jafnframt að Bush
forseti væri staðráðinn í að finna
út hverjir bæru ábyrgð á illri
meðferð á föngunum.
Fram kom í máli Powells að
stjórnvöld í Bandaríkjunum hefðu
síðastliðið haust rætt upplýsingar
frá Rauða krossinum um slæma
meðferð á föngum í Abu Ghraib-
fangelsinu í Írak. ■
Colin Powell:
Lofar bót og betrun
Tillögur formanna
voru ekki ræddar
Meirihluti allsherjarnefndar ræddi ekki um breytingartillögur á fjöl-
miðlafrumvarpinu í gær. Þriðja umræða verður í fyrsta lagi á morgun.
Fjölmiðlafrumvarpið reynir mjög á þanþol stjórnarsamstarfsins.
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ Breytingar-
tillögur formanna stjórnarflokk-
anna voru ekki ræddar á fundi
allsherjarnefndar í gærkvöld.
Varaformaður nefndarinnar, Jón-
ína Bjartmarz, mætti seint á fund-
inn. Þegar hún kom var ljóst að
ekki var eining meðal stjórnarliða
um að ræða tillögurnar. Eftir fund
meirihlutans var fundi frestað.
„Þar var meirihlutinn ekki til-
búinn að kynna breytingartillög-
urnar sem forystumennirnir hafa
kynnt í dag. Það kemur á óvart
miðað við fréttir dagsins af þeirri
eindrægni sem þeir segja ríkja á
stjórnarheimilinu og niðurstaða sé
komin í málið,“ segir Bryndís
Hlöðversdóttir, Samfylkingu.
Sigurður Kári Kristjánsson,
Sjálfstæðisflokki, sagði að ekki
hefði verið búið að ákveða fyrir
fundinn að leggja fram tillögurnar
og hefði niðurstaðan orðið sú að
gera það ekki. Fundur er boðaður í
nefndinni fyrir hádegi í dag. Lík-
lega hefst þriðja umræða á þinginu
ekki fyrr en í fyrsta lagi á morgun.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins þverneituðu nokkrir þing-
menn Framsóknarflokksins að
styðja fjölmiðlafrumvarpið nema
því yrði breytt og það mildað.
Nokkrir þingmenn fullyrtu að þeir
væru tilbúnir að láta reyna á
stjórnarsamstarfið ef ekki yrði
orðið við þeim kröfum. Þingmönn-
um Framsóknarflokksins var ekki
kynnt niðurstaða flokksformann-
anna í gær og ekki er vitað hvort
tillögur formannanna uppfylla
kröfur framsóknarþingmannanna.
Breytingarnar, sem formenn
stjórnarflokkana komust að niður-
stöðu um, eru þær að ekki verður
unnt að afturkalla gildandi út-
varpsleyfi á grundvelli laganna og
að hámarkseignaraðild félags í
ljósvakafyrirtæki er hækkuð úr 25
í 35 prósent.
Halldór Ásgrímsson sagði eftir
þingflokksfund að reynt hefði á
stjórnarsamstarfið vegna fjöl-
miðlafrumvarpsins. „Það hefur
reynt á samstarfið, en við Davíð
erum vanir að tala saman um hlut-
ina og leysa málin,“ sagði Halldór.
Davíð Oddsson sagði hins vegar að
stjórnarsamstarfið hefði aldrei
verið sterkara en nú.
bryndis@frettabladid.is
thkjart@frettabladid.is
Sjá síður 4 og 6.
ERILSAMT Á ALÞINGI Fulltrúar fjölmiðla biðu í ofvæni eftir niðurstöðu þingflokka stjórnarflokkanna um fjölmiðlafrumvarpið í Alþing-
ishúsinu í gær. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, setti sig í stellingar sem fyrrum nemendur hans í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja kannast eflaust við en þar var Hjálmar skólameistari áður en hann fór á þing. Stuttu síðar kynntu formenn stjórnar-
flokkanna breytingar á fjölmiðlafrumvarpinu.
FYRSTU SPORIN
Álftin Svandís Sigurgeirsdóttir og maki
hennar annast nú hóp unga í hólmanum á
Seltjarnarnesi.
Seltjarnarnes:
Fjölgar hjá
Svandísi
SELTJARNARNES Álftin Svandís Sig-
urgeirsdóttir sem kom á dögunum
aftur í hólmann sinn á Seltjarnar-
nesi er nú komin með unga.
Svandís settist að í hólmanum í
Bakkatjörn vorið 1994. Álftin
varð landsfræg í kosningunum
1994 þegar Sigurgeir Sigurðsson,
þáverandi bæjarstjóri á Seltjarn-
arnesi, lét búa til hólma einn í
Bakkatjörn. Ýmsir voru þess full-
vissir að hólminn myndi ganga af
fuglalífi í tjörninni dauðu en svo
varð ekki og þegar álft flutti sig í
hólmann varð hún umsvifalaust
þekkt sem Svandís Sigurgeirs-
dóttir. ■
MUNUM GERA HIÐ RÉTTA
Colin Powell lofaði bót og betrun fyrir
hönd Bandaríkjastjórnar í ávarpi við út-
skriftarathöfn í bandarískum háskóla í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA