Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 10
10 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
TREYST Á KÓRANINN
Íraskur fangi heldur á Kóraninum meðan
bandaríska herlögreglan fer í gegnum eig-
ur hans í Abu Grahib-fangelsinu í útjaðri
Bagdad.
Fræðslubæklingur gefinn út:
Samstaða gegn einelti
FRÆÐSLA Starfsmannafélag ríkis-
starfsmanna, SFR - Stéttarfélag í
almannaþjónustu, hefur gefið út
bækling um einelti á vinnustöð-
um. Bæklingurinn er þrjátíu blað-
síður að lengd og í honum er að
finna upplýsingar sem snerta ein-
elti á vinnustöðum. Bæklingurinn
ber heitið „Samstaða gegn einelti
á vinnustöðum“.
Í bæklingnum er fjallað um
fræðilega skilgreiningu á einelti
og útbreiðslu þess. Þar kemur
meðal annars fram að í könnun
árið 2001 hafi 12% starfsmanna í
umönnunargeiranum sagst hafa
orðið fyrir hótunum, ofbeldi eða
áreitni á vinnustað.
Í öðrum hluta bæklingsins er
fjallað um leiðir til að koma í veg
fyrir einelti; í þriðja kafla eru
reifuð úrræði til þess að takast á
við einelti sé það til staðar.
Bæklingnum verður dreift á
vinnustaði um land allt og segir í
fréttatilkynningu frá SFR að þess
sé vænst að bæklingurinn nýtist
sem upplýsingarit á vinnustöðum
og stuðli jafnframt að frekari
fræðslu, umræðu og úrlausnum
varðandi eineltismál.
Sara Hlín Hálfdanardóttir rit-
stýrði bæklingnum og hafði um-
sjón með útgáfunni. ■
Háttsettur Íraki drep-
inn í sjálfsmorðsárás
Yfirmaður framkvæmdaráðs Íraks lét lífið í sjálfsmorðsárás í gær. Áður
óþekkt samtök lýstu ábyrgð á verknaðinum á hendur sér. Bandaríkja-
menn ætla ekki að láta árásirnar hafa áhrif á valdaskipti í landinu 30. júní.
BAGDAD, AP Yfirmaður fram-
kvæmdaráðs Íraks, Izzadine
Saleem, lét lífið í sjálfs-
morðsárás í miðborg Bagdad í
gær. Árásin var gerð nærri
höfuðstöðvum bandaríska
hernámsliðsins og létu átta
aðrir lífið í sprengingunni, auk
árásarmannsins. Saleem var
farþegi í bílalest sem beið
inngöngu í herstöð. Bifreið
hans og nokkur önnur ökutæki
gjöreyðilögðust í sprenging-
unni.
Skipt er um yfirmann íraska
framkvæmdaráðsins mánaðar-
lega og gegndi Saleem embætt-
inu þennan mánuðinn. Saleem
er annar meðlimur íraska fram-
kvæmdaráðsins, sem skipað er
af Bandaríkjamönnum, sem
drepinn er síðan í júlí á síðasta
ári þegar framkvæmdaráðið
var stofnað.
Áður óþekkt samtök, Arab-
ísku mótspyrnusamtökin, sögð-
ust í gær bera ábyrgð á verkn-
aðinum. Í yfirlýsingu sem birt
var á vefnum sögðust samtökin
hafa sent tvo af stríðsmönnum
sínum til þess að framkvæma
aðgerð gegn „svikaranum og
málaliðanum Izzadine Saleem“.
Á vefsíðunni var einnig að
finna kort af Írak klippt út úr
gamla íraska fánanum.
Bandaríkjamenn hyggjast
ekki láta lát Saleems hafa áhrif
á áætlanir um að völd landsins
verði flutt í hendur Íraka um
mánaðamótin júní-júlí næst-
komandi, að því er fram kom í
yfirlýsingu frá Hvíta húsinu.
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, tók í sama streng og
sagði að lát Saleems ætti ekki
að hindra valdaskiptin.
Þjóðhöfðingjar víða um heim
fordæmdu árásina í gær. Paul
Bremer, landstjóri Bandaríkja-
manna í Írak, sagði lát Saleems
hræðilegan missi og lofaði að
sigra þá sem ábyrgðina bæru.
Jacques Chirac, forseti
Frakklands, sem Bandaríkja-
menn hafa gagnrýnt fyrir að
neita að senda herlið til Íraks,
sagðist þó alltaf vera jafn viss
um að það væri ekki til nein
hernaðarleg lausn á málefnum
Íraks. Chirac sagðist vonast til
að lausn myndi finnast með
flutningi valdsins til íraskra
stjórnvalda. ■
Stuðningur:
FÍB styður
olíugjald
ELDSNEYTI Félag íslenskra bifreiða-
eigenda styður meginhugmyndir
frumvarps fjármálaráðherra um
olíugjald í stað þungaskatts og mót-
mælir tilraunum ýmissa hagsmuna-
aðila, sem notið hafa góðs af þunga-
skattskerfinu, til þess að drepa
þessu réttlætismáli á dreif, segir í
yfirlýsingu frá FÍB.
Í núverandi þungaskattskerfi er
innbyggð alvarleg mismunun milli
einstaklinga og atvinnugreina og
núverandi kerfi vinnur einnig beint
gegn alþjóðlegum markmiðum um
að draga úr útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda vegna bruna jarðefna-
eldsneytis, segir enn fremur. ■
SKIN OG SKÚRIR
Meðan flestir íbúar London fagna sumri er
annar og stækkandi hópur sem sér varla
dagsljós á degi hverjum.
Bretland:
Grimm örlög
ungmenna
ENGLAND, AP Margt af því unga
fólki sem flyst til Bretlands er
nauðbeygt til að selja sig og lúta í
öllu vilja glæpamanna sem hjálpa
því til landsins, að því er fram
kemur í nýrri skýrslu sem barna-
og unglingaverndaryfirvöld í
Bretlandi hafa látið gera. Segir í
skýrslunni að mörg börn og ung-
lingar í London séu misnotuð kyn-
ferðis- og fjárhagslega á hverjum
degi þar sem löggæsluyfirvöld
hafi hvorki getu né mannafla til
að takast á við vandamálið. Kem-
ur einnig fram að þeim dæmum
fari mjög fjölgandi að ungum
börnum sé haldið í þrælahaldi við
hvers kyns störf sem aðrir fást
ekki til. ■
Skattsvik
og þjófnaður
á strippbúllu
– hefur þú séð DV í dag?
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
KENNSLA UNDIR BERU LOFTI
Ekki var líft í Vogaskóla fyrir hádegi í gær
þar sem einhver prakkari úðaði piparúða
um alla ganga.
Prakkarastrik í Vogaskóla:
Piparúði um
alla ganga
PRAKKARASTRIK Fresta varð
kennslu tímabundið í Vogaskóla
fyrir hádegi í gær þar sem
óprúttnir aðilar gerðu sér leik að
því að úða piparúða um ganga
skólans. Fundu margir til óþæg-
inda í hálsi og augum og var nem-
endum gert að fara út meðan
slökkvilið ræsti. Að sögn lög-
reglu var um að ræða piparúða
sem lögregla notar sjálf hér á
landi en ekki er heimil sala á
slíku efni til einstaklinga hér á
landi. Málið er í rannsókn. ■
Tsjetsjenía:
Ábyrgð á
dauða forseta
TSJETSJENÍA, AP Einn skæðasti upp-
reisnarmaður Tsjetsjeníu, Sjamil
Basajev, hefur lýst ábyrgð á hend-
ur sér vegna sprengjunnar sem
sprakk á íþróttavelli í landinu og
varð forseta landsins að bana.
Birtist yfirlýsingin á vefsíðu sam-
taka Basajevs og er verknaðurinn
kallaður lítill en merkilegur sigur
í enn stærri baráttu fyrir sjálf-
stæði Tsjetsjeníu. Sprengingin
kostaði sex manns lífið auk þess
sem tæplega 60 aðrir slösuðust. ■
Sögulegt brúðkaup:
Fyrsta samkynhneigða parið
giftist í Massachusetts
BÍLL BRANN Ofhitnun í vél leiddi
til þess að kviknaði í bíl í Nes-
kaupstað í gærdag. Enginn slys
urðu á fólki en bíllinn er gjör-
ónýtur.
BÍLAR SKEMMDIR Skemmdar-
verk voru unnin á tveimur bílum
í Keflavík í fyrrinótt. Þrír dreng-
ir náðust og viðurkenndi einn
þeirra að hafa valdið skemmdum
á öðrum bílnum. Ekki er vitað
hverjir stóðu fyrir skemmdar-
verkum á hinum bílnum.
BÆKLINGUR UM EINELTI
Fræðslubæklingi um einelti verður dreift á
vinnustaði um land allt.
MASSACHUSETTS, AP Fyrsta samkyn-
hneigða parið var gefið saman í
Massachusetts ríki í Bandaríkjun-
um í gær. Yfirvöld í Massachusetts
hófu útgáfu giftingarvottorða fyrir
samkynhneigða og komust þar með
í hóp þeirra sem hafa lögleyft gift-
ingar samkynhneigðra. Samkyn-
hneigðir mega nú einnig giftast í
Hollandi, Belgíu og hluta af
Kanada.
Hæstiréttur Massachusetts
synjaði á föstudag síðustu tilraun
íhaldssamra hópa til þess að koma í
veg fyrir að giftingar samkyn-
hneigðra yrðu gerðar að lögum í
ríkinu.
Ráðhúsið í Cambridge opnaði á
miðnætti til þess að leyfa pörum að
fylla út umsóknir um giftingu. Ein-
ungis nokkrum klukkutímum
seinna hófu dómarar að gefa út und-
anþágur frá þriggja daga biðtíma.
Meira en 260 pör fylltu út um-
sóknir um giftingu. Talið er að
meira en 5.000 manns hafi verið
saman komin í ráðhúsinu en þar
voru einnig vinir og ættingjar par-
anna. Þá voru um fimmtán mótmæl-
endur á svæðinu. ■
SAMKYNHNEIGÐIR GIFTAST
Mikill fjöldi fólks var samankominn í ráðhúsi Cambridge til þess að fagna með pörunum
sem gengu í hjónaband.
BÍLSPRENGJUÁRÁS Í BAGDAD
Bandarískir hermenn á vettvangi bílsprengjuárásar sem meðal annarra kostaði yfirmann
framkvæmdaráðs Íraks lífið.