Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 38
18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Leikarinn og vöðvabúntið Sylv-ester Stallone hefur höfðað
mál gegn framleiðslufyrirtækinu
MGM sem og öðrum framleið-
endum raunveruleikaþáttarins
The Real Rocky sem stendur til
að gera. Setja á þáttinn til höfuðs
raunveruleikaþættinum The
Contender þar sem Stallone er
meðframleiðandi og aðalstjarnan.
Ástæða málshöfðunarinnar er
tengsl þáttarins við persónuna
Rocky Balboa sem Stallone lék eft-
irminnilega í fimm kvikmyndum
hér á árum áður. Stallone er einnig
ósáttur við að framleiðendur The
Real Rocky hafi reynt að koma í
veg fyrir að hann framleiði söng-
leik um Rocky og geri sjöttu kvik-
myndina um ítalska folann. ■
SYLVESTER STALLONE
Stallone fór með hlutverk ítalska hnefaleikakappans Rocky Balboa í fimm kvikmyndum
sem nutu mikilla vinsælda hér á árum áður. Stallone er nú aðalstjarna raunveruleikaþátt-
arins The Contender.
■ SJÓNVARP
■ TÓNLIST
flugfelag.is
EGILSSTAÐA
6.200kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
5.100kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.100 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
19. – 25. maí
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
7.000kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
GRÍMSEYJAR
6.000 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
47
19
05
/2
00
4
Fargjald fyrir börn 1 króna!
Gildir aðra leiðina fyrir börn að 12 ára aldri, í fylgd með fullorðnum
og í sömu bókun (við bætist flugvallarskattur og tryggingagjald,
samtals 333 kr.).
Stallone
vill stöðva
Rocky
Julia Volkova, annar helmingurrússneska lesbíudúettsins
Tatu, er ófrísk. Volkova, sem er 19
ára, á von á barninu í september.
Faðirinn heitir Pasha Sidorov.
„Ég veit ekki hvort ég mun
eignast strák eða stelpu og ég vil
ekki vita það strax,“ sagði Volk-
ova, sem eitt sinn sagðist ætla að
giftast hinum meðlimi Tatu, Len-
ina Katina.
Tatu skaust upp á sjónarsviðið
á síðasta ári með lögum á borð við
All the Things She Said. Í mynd-
bandi við það lag sjást þær Volk-
ova og Katina kyssast heitum
kossi. Vakti það mikla athygli víða
um heim sem og sviðsframkoma
þeirra, sem þótti svæsin í meira
lagi. Einnig vakti sveitin athygli
fyrir þátttöku sína í Júróvisjón-
keppninni á síðasta ári.
Að sögn Katina ætla þær stöll-
ur að hvíla sig á poppbransanum
þar til Volkova er tilbúin til að
snúa aftur í sviðsljósið eftir
barnsburðinn. ■
Hjónin Gwyneth Paltrow ogChris Martin eignuðust á
föstudag stúlku. Hún heitir Apple
Blytje Alison Martin og fæddist
heilbrigð eftir margra klukku-
tíma langar hríðir.
Barnið var um 16 merkur og
heilsast móður og dóttur vel.
„Við erum 900 mílum fyrir
ofan tunglið,“ sagði Chris Martin,
söngvari Coldplay. „Við viljum
koma þökkum á
framfæri til allra á
spítalanum sem
hafa verið okkur
frábærir.“
Gwyneth hefur
gefið til kynna að
hún ætli að draga sig
í hlé frá leiklistar-
frama sínum til þess
að einbeita sér að
móðurhlutverk-
inu. Móðir
hennar, leikkon-
an Blythe Dann-
er, gerði slíkt
hið sama þeg-
ar hún eignað-
ist Gwyneth.
Pabbi hennar
var leikstjórinn
Bruce Paltrow,
en hann lést
skyndilega í hitt-
eðfyrra eftir
hjartaáfall. Það
var leikkonunni
mikið áfall og dró hún sig talsvert
í hlé eftir það.
Hjónaband Gwyneth og Chris
hefur haft töluverð áhrif á Cold-
play og talað er um að aðrir liðs-
menn sveitarinnar kalli hana
„Yoko“. Þar vitna þeir í þá kenn-
ingu að ástarsamband John
Lennon og Yoko Ono hafi splundr-
að Bítlunum.
Hann á víst að hafa lof-
að henni að syngja lag á
næstu Coldplay-plötu
auk þess sem hann eyð-
ir öllum frístundum
með henni baksviðs
fyrir tónleika í stað
þess að tengjast hinum
í sveitinni. ■
GWYNETH PALTROW
Hinir liðsmenn Coldplay
kalla hana „Yoko“.
CHRIS MARTIN
Segist vera 900 mílum fyrir ofan tunglið
eftir fæðingu dóttur sinnar.
Stelpa hjá Paltrow og Martin
TATU
Dúettinn vakti mikla athygli fyrir svæsna sviðsframkomu og bersöglar yfirlýsingar. Volkova er hægra megin á myndinni.
Volkova á von á barni