Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 2004
ÍBV og Breiðablik
leika opnunarleik Lands-
bankadeildar kvenna í
knattspyrnu í Eyjum í
kvöld. Liðin mættust tvisvar á að-
eins þremur dögum í deildabikarn-
um um síðustu mánaðamót og í
þessum tveimur leikjum voru skor-
uð 22 mörk, ÍBV skoraði 13 og
Breiðabliksliðið 9. ÍBV vann fyrri
leikinn 7-4 og seinni leikinn 6-5 en
hann var framlengdur undanúr-
slitaleikur keppninnar. Hin 18 ára
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði
fernu í báðum leikjunum en þær
Olga Færseth og Sara Sigurlásdótt-
ir voru báðar með tvö mörk fyrir
ÍBV. Markahæst hjá Breiðabliki
var Greta Mjöll Smúelsdóttir með
3 mörk en þær Silja Þórðardóttir
og Erna Björk Sigurðardóttir skor-
uðu báðar tvö mörk. ■
FÓTBOLTI Landsbankadeild kvenna
í knattspyrnu hefst í kvöld klukk-
an 20 á Hásteinsvelli í Vestmanna-
eyjum með leik ÍBV og Breiða-
bliks. Fréttablaðið sló af því til-
efni á þráðinn til Jörundur Áka
Sveinssonar, sem er fyrrverandi
þjálfari íslenska kvennalandsliðs-
ins. Hann er á því að fram undan
sé skemmtilegt Íslandsmót þar
sem miklar líkur séu á því að nýir
meistarar verði krýndir þar sem
einokun KR og Breiðabliks muni
að öllum líkindum ljúka – í bili að
minnsta kosti:
Mikill liðsstyrkur til ÍBV
„Ég á sterklega von á því að
ÍBV og Valur muni kljást um Ís-
landsmeistaratitilinn. Eyjaliðið
hefur fengið til sín mikinn liðs-
styrk og hefur verið að færa sig
upp á skaftið undanfarin ár – hef-
ur bætt sig um eitt og eitt sæti
nokkur ár í röð og stóra spurning-
in er hvort liðið nái að lyfta sér
upp um eitt sæti og hampa titlin-
um. Það eru allar forsendur til
þess og ég tel ÍBV vera með
sterkasta liðið í deildinni. Vals-
stelpur munu þó án efa veita þeim
harða samkeppni. Þær fengu
smjörþefinn af þessu með sigri í
bikarkeppninni í sumar og vilja
eflaust enn meira.
Ég tel þó að KR geti mögulega
blandað sér í slaginn en til þess
þarf allt að ganga upp hjá liðinu.
Breiðablik er töluvert spurning-
armerki og ég held að liðið muni
ekki blanda sér í neina titlabar-
áttu á þessu sumri því þessi þrjú
lið sem ég er búinn að nefna eru
einfaldlega töluvert sterkari og
þá sérstaklega tvö fyrstnefndu.
Fyrir neðan verða svo Stjarn-
an, FH og Þór/KA/KS sem munu
væntanlega reyta stig af hver
öðru og ná jafnvel einhverjum
óvæntum úrslitum gegn liðunum í
toppbaráttunni. Það er nokkuð
erfitt svona fyrir fram að meta
styrk þessara liða og spá fyrir um
röð þeirra í haust. Hins vegar er
Fjölnir með slakasta liðið í deild-
inni og mun falla niður í 1. deild.“
Þær bestu fara í toppliðin
Aðspurður telur Jörundur að
þessi skörpu skil milli liðanna í
efri hluta deildarinnar og þeim
neðri sem einkennt hafa
kvennaknattspyrnuna hér á landi
í gegnum tíðina, séu enn til stað-
ar: „Því miður er það svo og við
munum sjá eitthvað af stórum
tölum í leikjum sumarsins en
vonandi mun það ekki gerast oft.
Fyrir nokkrum árum hélt maður
að innan fárra ára myndu stóru
tölurnar smám saman hverfa en
ég get ekki séð að það hafi ræst
nægilega vel þótt slíkum leikjum
hafi þó óneitanlega fækkað að-
eins. Þróunin er oftast þannig að
þær stelpur sem standa sig vel
og vekja athygli í litlu liðunum
ganga í kjölfarið til liðs við þau
stóru og þannig er oft um að
ræða óbreytt ástand frá ári til
árs. Bestu leikmennirnir í litlu
liðunum sækja í toppliðin og er
það alveg skiljanlegt en ég sé
ekki að þetta bil sé eitthvað að
minnka að ráði.“
Að mati Jörundar eru leikmenn
úr yngri flokkum að skila sér
ágætlega: „Þessi kynslóð sem er
að koma upp núna er að skila af
sér miklu af góðum leikmönnum,
nýir leikmenn eru komnir inn í
landsliðið sem er að standa sig
virkilega vel. Ég vona bara að
góðir leikmenn haldi áfram að
skila sér í meistaraflokk og sé í
raun enga ástæðu til annars,“
sagði Jörundur Áki Sveinsson að
lokum. ■
■ TALA DAGSINS
22
Nýir meistarar
í sumar
ÍBV og Valur með sterkustu kvennaliðin að
mati Jörundar Áka Sveinssonar.
JÖRUNDUR ÁKI SVEINSSON
Fyrrverandi landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Telur að nýir meistarar verði
krýndir í sumar. Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu hefst í kvöld með leik ÍBV og
Breiðabliks í Vestmannaeyjum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
IG
U
RÐ
U
R
JÖ
KU
LL