Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 15
15ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 2004 HELLUR STEYPA RÖR MÚRVÖRUR EININGAR Hjá Steypustöðinni færðu faglega ráðgjöf hjá landslagsarkitekt- unum Birni Jóhannssyni, Einari Birgissyni eða Stanislas Bohic um allt sem lýtur að því að skipuleggja nýjan garð eða betrumbæta þann gamla. Pantaðu tíma í síma 540 6800 og fáðu faglega ráðgjöf um skipulag garðsins. Hellur steinar Ráðgjöf landslagsarkitekta Nú er rétti árstíminn til að huga að lóðarframkvæmdum og garðvinnu sem fram- undan eru. Fáðu sendan nýjan bækling okkar um hellur og steina eða kynntu þér úrvalið á steypustodin.is Söludeildin er opin alla virka daga frá kl. 8-18 l r steinar N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 1 1 9 3 7 / si a. is Reykjavík: Malarhöf›a 10 - S. 540 6800 • Hafnarfir›i: Hringhellu 2 - S. 540 6855 • Selfossi: Hrísm‡ri 8 - S. 540 6881 www.steypustodin.is Hellur og steinar fást einnig í verslunum BYKO Írland: Sprengjur finnast BELFAST, AP Breskir vopnasér- fræðingar gerðu tvær sprengj- ur óvirkar í gær. Sprengjurnar höfðu verið skildar eftir utan við heimili félaga í stjórnmála- armi Írska lýðveldishersins, Sinn Fein. Talsmenn Sinn Fein kenndu andstæðingum kaþólikka um að skilja sprengjurnar eftir undir bíl mannsins og við hliðina á húsi hans. Breska lögreglan tæmdi tugi nálægra húsa og heilsugæslu- stöð í nágrenninu meðan her- menn gerðu sprengjurnar tvær óvirkar. ■ MORÐINGI VILL KVÆNAST Yigal Amir, sem situr í lífstíðarfangelsi í Ísrael vegna morðsins á Yitzhak Rabin, fyrr- um forsætisráherra landsins, hefur óskað eftir sérstöku leyfi til að kvænast sinni heittelskuðu. Dómari mun ákvarða í mál- inu í næstu viku. Samþykkt borgarstjórnar um afslátt á stöðumælasektum: Seinagangur gagnrýndur BORGARMÁL Ekki hefur enn verið staðið við samþykkt borgarstjórnar frá því í nóvember á síðasta ári um að taka upp 36,6% afslátt á auka- stöðugjöldum og 22% afslátt á stöðubrotagjöldum, að sögn Kjart- ans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. „Það var búið að lofa okkur og kaupmönnum í miðbænum því að þessu yrði ýtt í gegn eins fljótt og hægt væri,“ segir Kjartan. Breyt- ingin hafi verið samþykkt af sam- gönguráðherra og hún birt í Stjórn- artíðindum í janúar. „Ég er hrædd- ur um að þarna séu menn bara að draga lappirnar.“ „Það er náttúrlega alveg ljóst að verslunin í miðbænum hefur verið að dragast saman,“ segir Kjartan. „Versl- anirnar eru að flýja og viðskiptavin- irnir líka.“ Kjartan telur að stöðu- mælasektir hafi þar ekki minnst að segja. „Þó að þessi afsláttur skipti kannski ekki sköpum eru það jákvæð skilaboð um að verið sé að gera aðstöð- una vinsamlegri að einhverju leyti.“ Árni Þór Sigurðsson, formaður samgöngunefndar Reykjavíkur- borgar, segist ekki vita af hverju breytingarnar hafi ekki enn gengið í gegn. Verið sé að athuga málið og verður niðurstaðan kynnt á borgar- ráðsfundi á þriðjudag. ■ GÍSLAR Tveimur rússneskum gíslum var sleppt í gær eftir að hafa verið haldið föngnum í viku. Rússneskir gíslar: Veitt frelsi ÍRAK, AP Tveimur rússneskum verkamönnum sem haldið var í gísl- ingu í Írak um vikuskeið voru frels- aðir í gær. Mönnunum tveimur var rænt þegar ráðist var á bifreið þeirra nærri Bagdad síðastliðinn þriðju- dag. Þriðji verkamaðurinn lét lífið í árásinni. Á sunnudag sjónvarpaði Al-Jazeera sjónvarpsstöðin mynd- bandi þar sem gíslarnir tveir virtust við góða heilsu. Ekki er vitað hvort lausnargjald var greitt eða öðrum kröfum mann- ræningjanna svarað. ■ Breska lögreglan: Kom í veg fyrir stórt rán LONDON, AP Bresku lögreglunni tókst í gær að koma í veg fyrir að gull- og fjármunum að verðmæti 40 milljónir punda væri stolið úr vöruskemmu á Heathrow-flugvelli. Gengi þjófa braust í gegnum gluggahlera á vöruskemmunni og hótaði starfsfólki með ýmsum vopnum. Meira en 100 lögreglu- þjónum sem lágu í leyni tókst þó að yfirbuga sex ræningjanna. Tveim- ur tókst að flýja í sendiferðabíl en hafði annar þeirra einnig verið handtekinn síðdegis í gær. ■ STÖÐUMÆLIR Fulltrúi sjálfstæðismanna í borgarstjórn gagnrýnir að ekki hafi verið staðið við samþykkt borgarstjórnar um að taka upp afslátt á stöðumælasektum. MIKLUBRAUT LOKAÐ Ökumaður fólksbílsins var fluttur á slysa- deild vegna eymsla á hálsi og baki. Enginn slasaðist alvarlega: Miklubraut lokað vegna áreksturs LÖGREGLA Kona var flutt á slysa- deild vegna eymsla í baki og á hálsi eftir árekstur á Miklubraut í gær. Steypubíl var ekið aftan á fólksbíl sem konan ók þannig að bíll hennar kastaðist á strætisvagn sem var kyrrstæður á stoppistöð. Hvorki bílstjóri steypubílsins né farþegar vagnsins meiddust. Loka þurfti Miklubrautinni um tíma vegna árekstursins og myndaðist nokkur umferðarteppa vegna þess. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.