Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 46
Smekkleysa sm. ehf hefurákveðið að veita Smekkleysu-
verðlaunin á ný. Þau voru síðast
veitt árið 1987 og eru hugsuð sem
viðurkenning fyrir vondan smekk
og bruðl á almannafé. Áður hafa
Hrafn Gunnlaugsson og Hermann
Gunnarsson verið þessara verð-
launa aðnjótandi. Að þessu sinni
þykir hugmyndi Þjóðminjasafns-
ins um að reka brand í Melatorg
uppfylla öll skilyrði þessara ann-
ars ágætu verðlauna.
„Þjóðminjasafn Íslands hefur í
hyggju að reisa risavaxna eftir-
mynd af Kaldárhöfðasverðinu á
Melatorgi samkvæmt fréttum síð-
ustu daga. Kaldársverðið er einn
af verðmætustu gripum safnsins.
Þessi ásetningur getur ekki farið
hjá ótalinn, því sér útgáfufyrir-
tækið Smekkleysa sm. ehf sér
ekki annað fært en að veita enn á
ný Smekkleysuverðlaunin.
Það er til að kæta smekkleys-
ingja nær og fjær að þvílíkt frið-
artákn skuli valið til að vekja at-
hygli á hinni friðelskandi þjóð,
sem þar til nýverið gat einungis
hreykt sér af þorskastríðum sem
sínum einu stríðum. Og gefur
þetta sverð góðan tón fyrir Ísland
í samfélagi þjóðanna sem frið-
elskandi stríðsveldi með svera
svíra,“ segir í tilkynningu frá
Smekkleysu.
Ástæður verðlaunaafhending-
arinnar segir Smekkleysa annars
vegar vera að hún minni á fram-
kvæmdir í Las Vegas í Nevada og
hins vegar að Þjóðminjasafnið
hefur nú verið lokað um all langa
hríð á meðan staðið hefur yfir ein-
hver einkennilegasta byggingar-
framkvæmd Íslandssögunnar.
Að lokum segir að það sé „von
að Smekkleysuverðlaunin haldi
áfram að hvetja til dáða, og gott
að vita til þess að frændur okkar í
Hafursfirði geta alltént huggað
sig við að vera ekki alveg einir í
heiminum.“ ■
38 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
VERÐLAUN
SMEKKLEYSUVERÐLAUNIN
VEITT EFTIR 17 ÁRA HLÉ
■ Þjóðminjasafnið talið verðugur
viðtakandi.
Það var enginn blús í gangi þeg-ar listamaðurinn Tolli bauð
Seltirningum í heimsókn á vinnu-
stofu sína í Ísbirninum á laugar-
daginn, en eins og frægt er orðið
kyrjaði Bubbi bróðir hans Ís-
bjarnarblús fyrir rúmum 20 árum
og setti um leið varanlegt mark
sitt á íslenska tónlistarsögu.
Tolli sýndi myndir í Ísbirninum
og bauð upp á menningardagskrá
þar sem Lúðrasveit Seltjarnar-
ness gaf tóninn í upphafi dags og
Selkórinn tók síðan við. Einar
Kárason og Einar Már Guðmunds-
son lásu úr bókum og Bubbi tróð
upp og flutti meðal annars gamla
Ísbjarnarblúsinn.
Tilefni boðsins var að fagna
fyrirhugaðri uppbyggingu mið-
bæjarsvæðis Seltjarnarness og
kveðja Ísbjarnarhúsið, sem senn
lýkur hlutverki sínu. Tolli hefur
verið með vinnustofu þar um
nokkurn tíma en þeir bræður eru
báðir Seltirningar. Vel á þriðja
hundrað manns mættu í menning-
arveisluna og kynntu sér í leiðinni
fyrirhugaðar framkvæmdir á
miðbæjarsvæðinu. ■
GLEÐI
TOLLI
■ bauð nágrönnum sínum á Seltjarnar-
nesi í heimsókn í Ísbjarnarhúsið á laugar-
daginn. Tilgangurinn var að gefa fólki
kost á að kveðja húsið, sem brátt mun
hverfa.
MARGT UM MANNINN
Um 300 Seltirningar kíktu í Ísbjarnarhúsið til Tolla á laugardaginn.
Brandur ristir Ísland
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI.
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN.
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR.
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU.
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR.
Fást í flestum byggingavöru-
verslunum landsins.
Það fór eins og flesta grunaðiað allir miðar á tónleika
Metallica seldust upp á mettíma
en það tók aðeins tvær klukku-
stundir að moka 15.000 miðum út.
Þetta er vitaskuld met í sögu tón-
leikahalds á Íslandi þar sem þessi
miðafjöldi nægir til þess að fylla
Laugardalshöllina í tvígang. Tón-
leikahaldarar eru að vonum
hæstánægðir með áhugann sem
koma gömlu rokkhundanna hefur
vakið og hafa sent frá sér frétt
þess efnis að meðlimir hljóm-
sveitarinnar séu ekki síður hress-
ir með eftirspurnina. Þeir munu
hafa beðið fyrir bestu kveðjur til
Íslands með þeim skilaboðum að
þeir hlakki enn frekar til að spila
fyrir aðdáendur sína eftir þessar
móttökur. Mikil stemning var á
öllum útsölustöðum, raðir alla
nóttina, bein útsending hjá X-inu
sem spilaði Metallica-lög alla
nóttina og Mínus, sem mun hita
upp fyrir kappana í Egilshöll
þann 4. júlí, tróð upp í Síðumúl-
anum. Allt fór vel fram og þrátt
fyrir kulda var mikið fjör. Allar
frekari upplýsingar um tónleik-
ana verða birtar á ogvodafone.is
þegar nær dregur.
Lárétt: 1 þéttbýlisstaðirnir, 6 gruna, 7
sk.st., 8 tveir eins, 9 dvel, 10 brún, 12 á
litinn, 14 á himni, 15 á fæti, 16 grastotti,
17 herma eftir, 18 hugarburður.
Lóðrétt: 1 flóki, 2 amboð, 3 sólguð, 4
afskipti, 5 askur, 9 hræðsla, 11 fótabún-
aður, 13 fiskar, 14 arinn, 17 rykkorn.
Lausn:
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Ragnheiður Guðnadóttir.
Tryggvi Gunnarsson.
Hrafn Jökulsson.
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
Lárétt: 1 þorpin,6óra,7nó,8ff, 9uni,
10egg, 12 grá, 14ský,15il,16tó,17
apa,18órar.
Lóðrétt: 1 þófi,2orf, 3ra,4inngrip, 5
nói,9ugg,11skór, 13álar, 14stó,17ar.
■ FRÉTTIR AF FÓLKI
Enginn blús í Ísbirninum
NORSKU SVERÐIN
Smekkleysa segir gott til þess að
vita að frændur okkar í Hafursfirði
verði nú ekki einir í heiminum.
MELATORGIÐ SKREYTT
Hugsanleg útfærsla á sverði
í miðju Melatorgs.