Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 14
14 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
PÁFINN ELDIST
Þessi æðsti yfirmaður kaþólsku kirkjunnar
er 84 ára í dag en heilsan hefur versnað til
muna undanfarin ár. Yfirmenn kirkjunnar
hafa þegar hafið leit að eftirmanni hans.
Fjallgöngutíminn hafinn:
Gengu á Everest
KATMANDU, AP Um sextíu fjall-
göngumenn gengu á tind Everest-
fjalls um helgina og urðu þar með
þeir fyrstu á árinu til að ná á topp-
inn.
Fjallgöngumenn frá Banda-
ríkjunum, Grikklandi, Kanada og
Malasíu nýttu sér tækifærið þeg-
ar veður lægði og héldu á fjallið.
Áður höfðu hvassir vindar komið í
veg fyrir að óhætt væri að fara á
fjallið og meðal annars feykt bún-
aði í burt og valdið skemmdum á
tjöldum.
Fyrstir á tind 8.850 metra hás
fjallsins þetta árið urðu fjórir
Bandaríkjamenn og Kanadamað-
ur sem komust þangað á laugar-
dag í fylgd tveggja Sherpa. Þá
setti Sherpinn Appa nýtt met í
fjölda gönguferða á þetta hæsta
fjall veraldar þegar hann komst í
fjórtánda skipti á toppinn.
Um 150 fjallgöngumenn eru nú
staddir á Everest til þess að freista
gæfunnar að komast á tindinn áður
en fjallgöngutímabilinu lýkur síð-
ar í þessum mánuði. ■
Olíueftirspurn í hámarki
Olíuframleiðsla er í hámarki hjá flestum olíuútflutningsríkjum heimsins en þrátt fyrir það held-
ur olíuverð áfram að hækka. Flest bendir til að núverandi verð haldist eða hækki næstu misserin.
OLÍUVERÐ Heimsmarkaðsverð á
olíu hefur aldrei verið hærra en
um þessar mundir og afleiðing-
arnar eru fljótar að koma í ljós
hjá Vesturlandabúum, sem háðir
eru olíu sem aldrei fyrr. Þrátt
fyrir afar hátt verð hafa samtök
olíuframleiðsluríkja, OPEC, lýst
yfir að framleiðsla verði ekki
aukin verulega frá því sem nú
er. Þegar bætist við eldfimt
ástand í Persaflóanum og skert
framleiðslugetu
Íraka vegna
stríðsátakanna er
fátt sem olíusér-
fræðingar sjá
fyrir sér annað en
frekari hækkanir
á næstu mánuð-
um.
Það er margt sem veldur því
að hráolíuverð er með hæsta
móti. Ein stærsta ástæðan er
óvenjulega litlar birgðir Banda-
ríkjamanna en þar sem kosning-
ar eru í nánd hefur George Bush
forseti engan áhuga á að fá þar-
lendan almenning á móti sér
vegna hækkandi bensínverðs.
Þannig mun verð haldast lágt þar
áfram þrátt fyrir hækkandi
heimsmarkaðsverð. Önnur
ástæða er rangir útreikningar
stóru olíurisanna en meðal ann-
ars hefur hið hollenska Shell við-
urkennt tvisvar á þessu ári að
olíubirgðir fyrirtækisins séu
minni en áætlanir gerðu ráð
fyrir. Aðrir sérfræðingar segja
að þrátt fyrir allt saman sé stað-
an sú að flest olíuríki séu að dæla
upp eins mikilli olíu og hægt er
og því sé framleiðsla í hámarki.
Vísindamenn segja að enn
séu miklar olíulindir í heiminum
og enginn skortur þurfi að vera
næstu áratugina. Tveir fyrir-
varar eru þó gerðir við þær
spár. Annars vegar er dagleg
olíunotkun á heimsvísu orðin
svo mikil að hún jafnast á við
daglega framleiðslu, sem þýðir
að fáir safna birgðum á meðan.
Hins vegar er ekki víst að hægt
verði að ná allri þeirri olíu sem í
jörðinni er upp með þeirri tækni
sem við búum yfir í dag.
En afleiðingar hækkandi
verðs á olíu eru fljótar að koma
við pyngju Vesturlandabúa,
jafnvel þó að einkabíllinn sé
ekki tekinn með. Flugfargjöld
munu hækka þar sem eldsneyti
er annar stærsti útgjaldaliður
flugfélaga. Kyndingarkostnaður
víða mun hækka til muna þó að
Íslendingar sleppi vel frá því.
Allar stórframkvæmdir verða
dýrari en ella var talið og verði
olíuverð viðvarandi í kringum
það sem nú gerist mun það hafa
afleiðingar hér á landi fyrir þau
fyrirtæki sem byggja nýtt álver
sem og Kárahnjúkavirkjun. Það
er Landsvirkjun sem mun bera
skarðan hlut frá borði ef olíu-
verð helst hátt þar sem verktaki
er tryggður gagnvart verk-
kaupanda fyrir hækkunum af
þessu tagi.
albert@frettabladid.is
Stjórn Kúvæt:
Konur fái
kosningarétt
KÚVÆT, AP Allt bendir til að konur í
Kúvæt fái innan skamms kosninga-
rétt og geti boðið sig fram til þings.
Frjálslyndir lögfróðir menn hafa
lengi viljað gera breytingar á stjórn-
arskrá landsins í þessa veru. Æðsti
maður landsins, Sheik Jaber Al
Ahmed Al Sabah, hefur þegar sam-
þykkt lagafrumvarp þessa efnis en
þing landsins þarf að staðfesta
breytingarnar. Fyrir fimm árum
úrskurðaði Al Sabah að konur ættu
að hafa þennan rétt en ákvörðun
hans kom á tíma þegar þingið var í
fríi og var því dæmd ólögleg. Nú er
búist við að frumvarpið fljúgi í
gegnum þingið. ■
■
Dagleg olíu-
notkun á
heimsvísu orðin
svo mikil að
hún jafnast á
við daglega
framleiðslu.
Rýmingarsala á Laugaveginum 15.-19. maí
30-50% afsláttur af öllum vörum
Bjóðum viðskiptavini velkomna í Drangey - Smáralind
Drangey flytur alfarið í Smáralind
Opið virka daga 11-19
laugardaga 11-18
og sunnudaga 13-18
Líttu á www.drangey.is
ÚT MEÐ CASTRO
Bush Bandaríkjaforseti telur að harðari
stefna gagnvart Kúbu muni skila sér í
auknum vinsældum þegar næstu forseta-
kosningar fara fram í haust.
George Bush:
Vill herða
tökin á Kúbu
KÚBA, AP George Bush, forseti
Bandaríkjanna, hefur eyrnamerkt
3,2 milljarða króna til að flýta
fyrir breytingum til lýðræðis á
Kúbu. Þar með telur hann sig hafa
fundið svar við minnkandi vin-
sældum sínum heima fyrir og
vonast til að auka stuðning við
framboð sitt vegna þessa þegar
líður að kosningum. Kúba, og þá
sérstaklega Fidel Castro, hefur
lengi verið þyrnir í augum forset-
ans enda Castro verið duglegur að
benda á að vitsmunir og George
Bush séu tveir ólíkir hlutir og
ekki farið í grafgötur með lítið álit
sitt á forsetanum bandaríska. ■
BÍLL BRANN TIL KALDRA KOLA
Eldri maður slapp ómeiddur þeg-
ar kviknaði í bíl hans á Norð-
fjarðarvegi á sunnudag. Ekki er
vitað um orsök slyssins en málið
er í rannsókn.
Bílvelta varð á Norðfjarðarvegi á
sunnudagskvöldið. Ökumaðurinn,
ung stúlka, missti stjórn á bílnum
með þeim afleiðingum að hann
valt niður 300 metra hlíð. Hún
var ein í bílnum og slapp með
minniháttar meiðsl.
MAÐUR TEKINN MEÐ FÍKNIEFNI
Ungur maður var tekinn með tæp
tvö grömm af hassi á flugvellin-
um á Sauðárkróki á sunnudaginn.
Maðurinn var að koma með flugi
frá Reykjavík. Efnið var ætlað til
eigin nota og er málið að fullu
upplýst.
BÍLVELTA Á SNÆFELLSNESVEGI
Maður slapp með skurð á enni eft-
ir bílveltu á Snæfellsnesvegi, rétt
austan við Ólafsvík í gær. Öku-
maðurinn, sem var einn í bílnum,
missti stjórn á honum með þeim
afleiðingum að hann valt. Bíllinn
er talinn vera gjörónýtur.
EVEREST-FJALL
Fjallgöngutíminn er hafinn og gengu
sextíu manns á tindinn um helgina.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
VERÐ Á TUNNU AF OLÍU
(verðgildi hvers árs)
1861 Olíuæði í Bandaríkjunum 35 kr.
1876 Rússar hefja olíuútflutning 187 kr.
1945 Viðreisn eftir s. heimsstyrjöld 77 kr.
1974 Útflutningsbann Arabaríkjanna 848 kr.
1979 Bylting í Íran 2.199 kr.
1990 Írakar ráðast inn í Kúvæt 1.746 kr.
1998 Efnahagskreppa í Asíu 960 kr.
2004 Staðan í dag 3.009 kr.
DJÚPSJÁVARBORUN EFTIR OLÍU
Mikill hluti þeirrar olíu sem eftir er í iðrum jarðar er á botni úthafanna og tækni nútímans
býður ekki upp á að ná henni upp að svo stöddu.
Mið-Austurlönd 65,4%
Asía 3,7%
Norður Ameríka 4,8%
Afríka 7,4%
Evrópa 9,3 %
Mið- og Suður-Ameríka 9,4%
OLÍUBIRGÐIR HEIMSINS
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Í NEW YORK
Hækkandi olíuverð hefur skapað titring
víða enda miðast efnahagsspár flestra vest-
rænna ríkja við að olíuverð sé stöðugt en
ekki í hærri kantinum til lengri tíma litið.