Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 12
12 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR LÚXUSHREINSUN Byrjað er að hreinsa upp flak norska flutn- ingaskipsins Tricolor sem fórst í Ermarsundi árið 2002 með þúsundir lúxusbifreiða inn- anborðs. Tveggja ára vera í seltu hefur breytt bifreiðunum í brakandi ryðhrúgur. Hjálparstarf kirkjunnar aðstoðar Kabúl: Stór sending af hjúkrunargögnum HJÁLPARSTARF Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala - háskóla- sjúkrahúss, afhenti Hjálparstarfi kirkjunnar 80 rúm í gær, sem send verða á sjúkrahús í Kabúl. Hjálparstarf kirkjunnar stend- ur nú fyrir því að safna hjúkrunar- gögnum fyrir sjúkrahúsin í Kabúl en flogið verður með gögnin á veg- um utanríkisráðuneytisins í lok mánaðarins. Þegar hafa safnast rúmlega hundrað dýnur, kerrur fyrir fötluð börn, göngugrindur, hjólastólar og hækjur. Von er á fæðingarrúmi, skurðarborði, svæfingavél og fjölda annarra nýtilegra hjúkrunargagna frá heilsustofnunum og fyrirtækjum um allt land. Pharmaco gefur berkla- og sýklalyf að verðmæti 10 milljónir króna. Framkvæmdastjóri Hjálpar- starfsins, Jónas Þ. Þórisson, fer til Kabúl og afhendir þar systurstofn- un Hjálparstarfsins, Hjálparstarfi norsku kirkjunnar, hjálpargögnin og sér það um að dreifa þeim á sjúkrahús í borginni. Kirkjan starf- ar náið með 13 innlendum samtök- um og hefur átt stóran þátt í að byggja upp starfsemi þeirra og þjálfa starfsfólk til þess að veita neyðar- og þróunarhjálp. Hjálparstarf kirkjunnar varði 5,4 milljónum til neyðaraðstoðar í Afganistan í október 2001. Fram- laginu var þá varið í gegnum ACT- Alþjóðaneyðarhjálp kirkna. ■ Tvö þúsund án sumarvinnu Tvö þúsund námsmenn verða án atvinnu í sumar ef fer sem horfir. Starfsmenn atvinnumiðlana segja framboð á störfum fara minnkandi. Atvinnurekendur eru farnir að ráða til skemmri tíma í einu. SUMARVINNA NÁMSMANNA „Ástandið mætti vera mun betra þó að það sé ekki eins slæmt og það var á árun- um 2000-2001 þegar mjög lítið var í gangi. Þetta er alltaf sama sagan ár eftir ár. Það er erfitt að fá sumar- vinnu og námsfólk hefur á hverju ári verulegar áhyggjur af því,“ seg- ir Hanna María Jónsdóttir hjá At- vinnumiðstöð stúdenta. Hún segir svipaðan fjölda stúdenta leita til miðstöðvar- innar í ár og áður en að störfum í boði hafi fækkað. „Störfunum hefur fækkað og auk þess finnum við fyrir ákveðinni breytingu sem er sú að atvinnurekendur eru farnir að ráða í skemmri tíma, jafnvel bara í sex til átta vikur. Svo virðist sem ekki sé farið að ráða í sumarstörfin fyrr en sá fyrsti fer í frí og það gerist ekki fyrr en grunnskólarnir eru búnir í byrjun júní. Stúdentar byrja því seinna að vinna en áður og margir þeirra fá bara vinnu í skamman tíma,“ segir Hanna María. Í apríl voru um eða yfir 2.000 manns á skrá hjá atvinnu- miðstöðinni en í dag eru um 1.200 manns án atvinnu. Selma Árnadóttir, forstöðu- maður Vinnumiðlunar ungs fólks, segir að af þeim 2.600 manns sem hafi skráð sig þar sé nú hægt að lofa um 1.400 manns störfum. Hún segir ástandið vera mjög svipað því sem var í fyrravor. „Þegar búið er að úthluta öllum störfunum er samt fjöldi manns sem enn vantar atvinnu í sumar. Ástandið er því ekki nógu gott,“ segir Selma. Hjá Vinnumiðlun höfuðborg- arsvæðisins fengust þær upp- lýsingar að mun betur gengi að finna sumarstörf fyrir unga fólkið í ár en í fyrra þar sem fleiri störf væru í boði nú. halldora@frettabladid.is Bretland: Of þungar flugvélar BRETLAND, AP Breska hermála- ráðuneytið hefur viðurkennt al- varleg mistök þegar pantaðar voru 150 nýjar orrustuþotur sem taka áttu við af eldri vélum Breta á flugmóðurskipum þeirra. Mistökin felast í því að nýju vélarnar, sem framleiddar eru af Lockheed Martin í Bandaríkjunum, eru of þungar til að geta tekið á loft frá bresku skipunum. Um milljarða króna er að ræða en ráðuneytið segir að vandamálið verði leyst þar sem enn séu átta ár til stefnu. ■ ÁTÖK Í ÍRAK Ítalskir hermenn berjast við íraska and- spyrnumenn sem tóku yfir herstöð Ítala í suðurhluta Íraks. Írak: Átök um herstöð NASIRIYAH, AP Átök í suðurhluta Íraks héldu áfram í gær. Banda- rískar herflugvélar skutu sprengjum á borgina Nasiriyah og er talið að sjö andspyrnumenn hafi látið lífið. Andspyrnumennirnir voru hliðhollir sjítaklerknum Muqtata al-Sadr og hröktu ítalskar her- sveitir út úr herstöð í borginni. Umsátrið um herstöðina hefur staðið síðan á laugardag og hefur þegar kostað einn ítalskan her- mann lífið. Ítalskir hermenn munu á næstu vikum taka við stjórn nokk- urra svæði í suður-Írak af Banda- ríkjamönnum. ■ Hondúras: Mannskæð- ur eldsvoði SUÐUR-AMERÍKA, AP Tæplega hund- rað fangar létust í gríðarmiklum eldsvoða sem braust út í fangelsi í Hondúras aðfaranótt mánudags meðan allir fangar voru í fasta svefni. Er þetta annar slíkur mannskæður eldsvoði í landinu á einu ári og hafa yfirvöld fengið ádrep vegna lélegra eldvarna víð- ast hvar í fangelsum. ■ SONIA GANDHI Sigur flokks hennar, Kongressflokksins, í þingkosningunum á Indlandi fyrir helgi hefur valdið ólgu á markaðnum. Indverski verðbréfamarkaðurinn: Mesta fall á einum degi INDLAND, AP Indverski fjármála- markaðurinn mátti þola stærsta hrun sögunnar á einum og sama deginum í gær. Þá féll verðbréfa- markaðurinn í Bombay um meira en 700 stig, eða 15%, áður en hann rétti sig örlítið við. Fjárfestar hafa miklar áhyggj- ur af ástandinu á markaðnum og getu nýrrar ríkisstjórnar til að koma á stöðugleika í fjármálum. Kongressflokkur Soniu Gandhi vann óvæntan sigur í þingkosn- ingum sem fram fóru á fimmtu- dag og hefur það valdið mikilli ólgu á markaðnum. ■ Spánn: Fjöldi hryðju- verkamanna í landinu SPÁNN, AP Eftir ítarlega rannsókn spænskra löggæsluyfirvalda eft- ir hryðjuverkaárásirnar í Madríd í mars hefur lögregla fundið 300 manns sem flokkaðir eru sem hættulegir bókstafstrúarmenn í landinu. Eru þeir af alls 20 þjóð- ernum og er gaumgæfilega fylgst með ferðum hvers og eins. Telur lögregla að þeir tilheyri um tólf mismunandi hópum hryðju- verkamanna sem bíða átekta eft- ir fyrirskipunum frá yfirboður- um sínum. ■ Sonia Gandhi setur saman nýja ríkisstjórn: Tryggði sér stuðning vinstrimanna SJÚKRAGÖGNIN AFHENT Magnús Pétursson, forstjóri LSH, afhenti Hjálparstarfi kirkjunnar 80 sjúkrarúm í gær, sem send verða á sjúkrahús í Kabúl. Jónas Þ. Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálpar- starfs kirkjunnar, tók á móti rúmunum. Á myndinni er einnig Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri tækni og eigna LHS. INDLAND, AP Allt bendir til að Sonia Gandhi verði næsti forsætisráð- herra Indlands, en hún tryggði sér í gær stuðning samstarfsflokka Kongressflokks síns og tveggja vinstriflokka sem skoða nú hvern- ig aðild þeirra að næstu stjórn verður. Búist er við að Gandhi fari á fund A.P.J. Abdul Kalam forseta í dag og að nýja stjórnin taki við völdum á miðvikudag. Sonia fæddist á Ítalíu og flutti til Indlands árið 1968 þeg- ar hún giftist Rajiv Gandhi, sem varð síðar forsætisráðherra Indlands. Hann var myrtur árið 1991. Ef Sonia verður forsætis- ráðherra verður hún fjórði með- limur Nehru-Gandhi fjölskyld- unnar til að verða pólitískur leiðtogi Indverja. Tengdamóðir hennar Indira Gandhi var for- sætisráðherra á sínum tíma og faðir Indiru, Jawaharlal Nehru, var fyrsti leiðtogi Indverja eftir að landið fékk sjálfstæði frá Bretum árið 1947. Þjóðernissinnaðir hindúar eru margir sagðir andsnúnir því að Gandhi verði forsætisráðherra og setja fyrir sig að hún er fædd á Ítalíu. Einn fyrrverandi ráðherra hefur hótað að hætta á þingi verði Gandhi forsætisráðherra og segir að slíkt yrði þjóðarskömm. ■ MEÐ LEIÐTOGUM KONGRESSFLOKKSINS Sonia Gandhi samdi um helgina við hefðbundna bandamenn Kongressflokksins og flokka kommúnista um myndun stjórnar. MARGIR ÁN SUMARVINNU Útlit er fyrir að allt að tvö þúsund námsmenn verði án atvinnu í sumar. Framboð á störfum fer minnkandi með hverju árinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Írak: Taugagas- sprengja sprakk ÍRAK, AP Taugagassprengja sprakk í Írak í gær með þeim afleiðingum að flytja þurfti tvo á sjúkrahús en þetta er í fyrsta sinn sem slík sprengja finnst í landinu frá upp- hafi stríðsins. Sprakk hún áður en sprengjusveit bandarískra her- manna gat aftengt hana en áhrifin voru lítið þar sem sprengjan var greinilega heimasmíðuð. Yfir- menn bandaríska hersins telja ekki að þetta þýði að fleiri slíkar sprengjur séu í landinu. Líklegra sé að um einstakt tilvik sé að ræða. ■ Danmörk: Barna- níðingur á von á barni DANMÖRK Tæplega fertugur maður sem á yfir höfði sér þungan dóm fyrir grimmilegar aðfarir að ung- barni sínu á von á öðru barni sínu á sama tíma og réttarhöldin yfir hon- um standa sem hæst. Faðirinn ligg- ur undir grun um að hafa gengið svo nærri sex vikna gömlum syni sínum í ágúst í fyrra að hann hlaut vægan heilaskaða af og segja læknar lík- legt að barnið berjist við flogaveiki og geðveiki þegar frá líður. Nú er annað barn á leiðinni en kona mannsins er enn í sambúð með föð- urnum þrátt fyrir voðaverkið. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.