Fréttablaðið - 18.05.2004, Page 2

Fréttablaðið - 18.05.2004, Page 2
■ LÖGREGLUFRÉTTIR 2 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR „Nei. LÍN er svín.“ Jarþrúður Ásmundsdóttir er formaður Stúdenta- ráðs Háskóla Íslands. Hún segir að námslán komi til með að hækka allt of lítið næsta haust. SPURNING DAGSINS Jarþrúður, er LÍN ekkert grín? Hótaði fólki með hnífinn á lofti Vopnaður ræningi ruddist inn í bankaútibú SPRON í Mjóddinni um klukkan tvö í gær og komst á brott með fjármuni. Klukkutíma eftir ránið var maður fæddur árið 1987 handtekinn. RÁN Maður réðst vopnaður hnífi í bankaútibú SPRON í Mjódd- inni rétt fyrir klukkan tvö í gær. „Ungur karlmaður var handtek- inn í Seljahverfi tæpum klukku- tíma eftir ránið,“ segir Karl Steinar Valsson hjá lögreglunni í Reykjavík. Lögregluvakt var við allar helstu umferðaræðar frá Mjóddinni eftir ránið. Karl Steinar segir að ekki hafi verið útilokað að fleiri en einn hafi staðið að ráninu. „Það kom einn maður inn í bankann. Hann ógnaði fólki og hafði uppi hótanir með hníf á lofti.“ Hnífur fannst rétt hjá vettvangi um klukkan þrjú og telur lögreglan nokkuð víst að sami hnífur hafi verið notaður við ránið. Maður- inn sem var handtekinn er fæddur árið 1987. Hann hafði ekki játað ránið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi. „Þetta er verulega óhugnan- legt og við höfum áhyggjur af vinkonum okkar hérna hinum megin við vegginn,“ sagði Rebekka Björgvinsdóttir, starfsmaður ÁTVR í Mjóddinni, skömmu eftir ránið í gær. Hún segist fyllast óhug þegar hún hugsar til þess að ræninginn gæti hafa verið inni í áfengis- versluninni til að kanna aðstæð- ur. Aldrei sé að vita hvaða banki eða verslun verði næst fyrir barðinu á ræningjum. Kristján Bjarnar Þórarinsson segist hafa séð ungan strákling á hlaupum þegar hann var að leggja bílnum sínum fyrir utan verslunarmiðstöðina. Hann hafi verið með gráa hettu fyrir and- litinu með götum fyrir augun, þá hafi hann líka verið með rauða húfu á höfðinu. „Ég hélt að þetta væri eitthvert grín þeg- ar ég sá hann hlaupa svona klæddan. Það var fullt af fólki sem sá hann,“ segir Kristján Bjarnar. hrs@frettabladid.is Hafbjörg ST 77 sökk í Bjarnarfirði: Mágur minn kom okkur til bjargar MANNBJÖRG „Ég var sofandi í koju og vaknaði þegar báturinn fór upp á sker. Það síðasta sem ég sá af bátnum var þegar allt nema stefnið var komið á kaf,“ segir Magnús Gúst- afsson, skipstjóri og eig- andi Hafbjargar ST 77 sem sökk í Bjarnarfirði á Ströndum í fyrrinótt. Magnúsi og svila hans var bjargað um borð í Guð- mund Jónsson ST 17 af mági Magnúsar og áhöfn bátsins. Magnús segir fyrstu viðbrögð sín hafa verið að athuga botn báts- ins og sá hann þar hvar vélarrúm- ið var að fyllast af sjó. Skipverjar sendu út neyð- arkall og gerðu björgun- arbátinn kláran. Skömmu síðar var báturinn farinn að halla og ekkert annað að gera en að koma sér frá borði. Á björgunarbátnum rak þá félaga meðfram skeri innar í firðinum. Þeir fóru upp á skerið og biðu hjálpar. „Þegar við sáum bátinn koma fórum við aftur um borð í björg- unarbátinn og rerum á honum í bátinn sem kom okkur til hjálpar. Það var enginn tími til að vera hræddur. Við komumst við góðan leik í hinn bátinn og blotnuð- um ekki einu sinni.“ Magnús hefur átt bátinn síðan árið 2001 og voru þeir félagar á grá- sleppuveiðum. ■ Meiðyrðamál gegn for- sætisráðherra: Verða ekki viðstaddir DÓMSMÁL Meiðyrðamál Jóns Ólafs- sonar kaupsýslumanns gegn Dav- íð Oddssyni forsætisráðherra var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Jón höfðaði málið vegna ummæla sem Davíð lét falla í fjölmiðlum um sölu Jóns á eigum sínum á Íslandi. Sigríður Rut Júlíusdóttir, lög- maður Jóns, lagði fram sókn í málinu í gær en lögmaður Dav- íðs hafði áður skilað greinar- gerð vegna málsins. Lögmaður Davíðs tilkynnti að hvorki hann né Davíð yrðu viðstaddir máls- meðferðina. ■ DAVÍÐ ODDSSON Vonast til að tillögur um skattalækkanir verði lagðar fram á vorþingi. Skattalækkanir: Tillögur fyr- ir þingflokka SKATTAR Að loknum fundi þeirra Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra og Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra í Stjórnar- ráðinu í gær sagðist Davíð vona að hægt yrði að leggja tillögur um skattalagabreytingar fyrir þing- flokka stjórnarflokkanna nú í vor og í framhaldinu fyrir þingið. Hann átti hins vegar ekki von á því að skattabreytingar yrðu fest- ar í lög á vorþinginu. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar segir að skattalækkanir verði ákveðnar í tengslum við kjarasamninga. ■ Framtíðin kostar 1,5 milljarða KEFLAVÍK Líklega þarf að fram- kvæma fyrir 1,5 milljarða króna til að mæta brýnustu þörf Íþrótta- félags Keflavíkur. Þetta segir í skýrslu um framtíðarsýn félags- ins. Þar vegi bygging 50 metra innisundlaugar þyngst. Þá þykir nauðsynlegt að fimleikadeild fé- lagsins fái eigin sal til afnota. Þarfir flestra deildanna leysist við innra starf félagsins. ■ FRÁ SETNINGU ALÞINGIS Áhugamenn um lýðræði boða til mót- mæla á Austurvelli á miðvikudaginn. Hóp- urinn hvetur alla til að mæta á völlinn og sýna ráðamönnum rauða spjaldið. Vonast er eftir stuttum en kröftugum mótmælum. Fjöldafundur Áhugahóps um lýðræði: Ráðamenn fá rauða spjaldið MÓTMÆLI „Lýðræðið byggist á um- ræðu, gagnsæi, ábyrgð, virðingu og trausti. Íslensk stjórnvöld snið- ganga lýðræðislega umræðu í hverju málinu á fætur öðru og beita handafli til að koma fram málum. Írak, útlendingalög, um- hverfismál, öryrkjar, réttindi launafólks, Hæstiréttur, Umboðs- maður Alþingis, kærunefnd jarn- réttismála, og nú síðast fjölmiðlar. Nú er mælirinn meira en fullur. Leikreglur lýðræðisins eru ekki virtar,“ segir í bréfi áhugahóps um lýðræði til fjölmiðla. Hópur- inn boðar til mótmæla á Austur- velli á hádegi í dag. ■ Mænusótt: Stöðva má útbreiðslu GENF, AP Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin (WHO) telur að hægt sé að stöðva útbreiðslu mænusóttar fyrir lok ársins. Skilyrði þess sé þó að farið verði í bólusetningar- herferðir í Nígeríu og Níger. Í fjórum af þeim sex löndum þar sem mænusótt er landlæg, Egyptalandi, Pakistan, Afganistan og Indlandi, er áætlað að ráða nið- urlögum sjúkdómsins fyrir lok ársins. Í Nígeríu og Níger þarf að ráðast í frekari aðgerðir. „Það getur alveg brugðið til beggja vona. Það er hugsanlegt að eftir að árið er liðið muni aldrei aftur barn smitast af mænusótt. Við gætum þó líka séð hræðilegan faraldur, sem myndi skilja þús- undir barna eftir lamaðar,“ segir Bruce Aylward, yfirmaður mænu- sóttardeildar WHO. ■ ÁREKSTUR Á AKUREYRI Fólksbíl var ekið í veg fyrir annan við Glerártorg á Akureyri klukkan rúmlega fimm í gær. Ökumaður annars bílsins og farþegi hins kvörtuðu undan eymslum. Lög- reglan á Akureyri taldi árekstur- inn ekki hafa verið harðan og eru bílarnir ekki taldir ónýtir. ■ MANNRÁN Starfsmanni ræstinga- fyrirtækisins ISS var rænt af tveimur innbrotsþjófum sem komu að honum við störf á Reykjavíkurflugvelli milli fimm og sex í gærmorgun. Starfsmaðurinn var læstur inni á skrifstofu meðan þjófarn- ir stálu tveimur flötum tölvu- skjám og einum flötum sjón- varpsskjá. Næst fluttu þeir manninn nauðugan með sér upp í Seljahvefi, þar sem hann var skilinn eftir. Maðurinn hlaut engin meiðsl af meðferðinni. Guðmundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri ISS, segir starfsmanninn hafa farið að öryggistilmælum ISS og sleppt öllum hetjuleik. „Næsti yfir- maður og starfsmannastjóri fyrirtækisins hittu hann. Honum var mjög brugðið og var boðin áfallahjálp,“ segir Guðmundur. Öryggismyndavél náði atvik- inu á mynd og fer lögreglan í Reykjavík með rannsókn máls- ins. Hún þekkir ekki til mann- anna. ■ BJARNARNES Hafbjörg ST 77 sökk eftir að hafa lent á skeri í innsiglingunni að Hólmavík. MAGNÚS GÚSTAFSSON Magnús segir engan tíma hafa verið fyrir hræðslu. M YN D IR /J B A LÖGREGLUMENN SKOÐA RÁNSVETTVANG Hnífur fannst skammt frá vettvangi og telur lögregla að sami hnífur hafi verið notaður í ráninu. REBEKKA BJÖRGVINSDÓTTIR OG BIRGIR AXELSSON Birgi og Rebekku var brugðið og höfðu áhyggjur af vinkonum sínum hjá SPRON. Öryggismyndavél náði innbrotsþjófunum á mynd: Mannrán á Reykjavíkurflugvelli FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E IN AR Ó LA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.