Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.05.2004, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 18.05.2004, Qupperneq 6
6 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 73,28 -1,40% Sterlingspund 129,7 -0,22% Dönsk króna 11,85 0,55% Evra 88,12 0,52% Gengisvísitala krónu 123,22 -0,20% Kauphöll Íslands Fjöldi viðskipta 282 Velta 15.263 milljónir ICEX-15 2.689 0,01% Mestu viðskiptin Flugleiðir hf. 5.594.936 Landsbanki Íslands hf. 86.001 Bakkavör Group hf. 83.705 Mesta hækkun Flugleiðir hf. 2,70% Opin Kerfi Group hf. 1,38% Marel hf. 1,37% Mesta lækkun Og fjarskipti hf. -2,44% Samherji hf. -1,82% Burðarás hf. -1,50% Erlendar vísitölur DJ* 9.908,2 -1,1% Nasdaq* 1.880,2 -1,3% FTSE 4.403,0 -0,9% DAX 3.754,4 -1,3% NK50 1.315,7 -0,1% S&P* 1.086,8 -0,8% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 VEISTU SVARIÐ? 1Hvað heitir sú sem nýlega var ráðinsérstakur kynningarfulltrúi Fegurðar- samkeppni Íslands? 2Umboðsmaður Alþingis hefur verið íumræðunni að undanförnu vegna samskipta við framkvæmdavaldið. Hver er umboðsmaður Alþingis? 3Formaður Hróksins ætlar að sitja aðtafli í 30 klukkustundir og safna áheitum til styrktar barnastarfi félagsins. Hvað heitir formaðurinn? Svörin eru á bls. 38 Forstjóraskipti hjá Eimskipafélaginu: Baldur í stólinn VIÐSKIPTI Baldur Guðnason, framkvæmdastjóri Sjafnar, settist í gær í stól forstjóra Eim- skipafélags Íslands. Erlendur Hjaltason lætur af störfum, en hann hefur verið í forystusveit Eimskipafélagsins í tvo áratugi. Samhliða þessu lætur Baldur af starfi framkvæmdastjóra Sjafn- ar og stjórnarsetu í félögum sem Sjöfn á í. Baldur hefur setið í stjórn skipafélagsins frá síð- asta aðalfundi, en sat áður í stjórn móðurfélagsins eftir að Landsbankinn og Samson tóku völdin í félaginu í október Hann hefur því unnið að stefnumótun þess að undanförnu. „Krafan er aukin arðsemi og aukinn vöxtur,“ segir Baldur. Afkoma af flutningastarfsemi hefur ekki verið góð undanfarin ár og telja eigendur að hana megi bæta, auk þess sem ýmis tækifæri séu fyrir félagið er- lendis, þar sem reynsla félagsis og netskrifstofa muni nýtast. Stefnt er að því að skrá félag- ið á markað innan átján mánaða. Móðurfélagið Burðarás hefur markað sér þá stefnu að vera fjárfestingarfélag með áherslu á erlendar fjárfestingar. Samkvæmt heimildum bar ákvörðunin brátt að og var hún tekin um helgina. Eigendur vilja breyta áherslum fyrirtækisins og var talið heppilegra að nýr maður leiddi slíkar breytingar. ■ Enn efasemdir um stjórnarskrárgildi Sigurður Líndal lagaprófessor segir nýjustu breytingar á fjölmiðlafrum- varpinu vera til bóta. Hann hefur þó enn miklar efasemdir um að ákvæði laganna standist ákvæði stjórnarskrár. FJÖLMIÐLAFRUMVARP Sigurður Lín- dal lagaprófessor sagði í samtali við Fréttablaðið að nýjustu breyt- ingar á fjölmiðlafrumvarpinu væru mjög til bóta hvað stjórnar- skárgildi væntanlegra lagabreyt- inga varðaði en hann gerði þó enn ákveðna fyrirvara. „Ég hef endurtekið það oftar en tölu verður á komið að það myndi aldrei standast stjórnarskrá að afturkalla núgildandi leyfi. Ég til- greindi það til dæmis mjög skil- merkilega í umsögn minni til alls- herjarnefndar sem skilað var á há- degi þann 7. maí síðastliðinn,“ sagði Sigurður en samkvæmt nýj- ustu breytingartillögu á fjölmiðla- frumvarpinu munu núgildandi út- varpsleyfi standa óáreitt þar til þau renna út, hvert á sínum tíma. Eftir breytingar allsherjarnefnd Alþingis á frumvarpinu eftir 1. umræðu var gert ráð fyrir að hægt yrði að afturkalla leyfi þeirra sem ekki hefðu aðlagað sig að ákvæðum laganna um takmark- að eignarhald við gildistöku lag- anna eftir tvö ár. Sigurður er einn þeirra sem dregið hafa í efa hvort fjölmiðla- frumvarpið myndi standast stjórnarskrá ef það yrði að lögum. Hann segist enn hafa efasemdir um veigamikla þætti frumvarps- ins, þótt áðurnefnd breyting væri auðvitað til bóta. „Ég er enn hugsi yfir ákvæðum sem banna markaðsráðandi fyrir- tæki að eiga meira en 5% í ljós- vakafyrirtæki. Ég veit ekki alveg hvernig menn ætla að útfæra þessi ákvæði. Þess vegna myndi ég leggja til að þetta yrði skoðað mjög vandlega,“ sagði Sigurður. Hann sagðist enn fremur ekki viss um að ákvæðið sem bannaði sama aðila að eiga bæði ljósvaka- miðil og dagblað stæðist ákvæði stjórnarskrár. „Í þriðja lagi tel ég víst að dóm- stólar myndu skoða það mjög vandlega hvort lögin beindust um of að einum aðila, hvort þau væru mónísk, ef málið kæmi til þeirra kasta. Mér finnst yfirlýsingar manna upp á síðkastið vera af- skaplega óheppilegar hvað þetta varðar,“ sagði Sigurður og vísaði í ummæli forsætisráðherra um Baug máli sínu til stuðnings. borgar@frettabladid.is Fær 30 daga fangelsisdóm: Skallaði lögregluþjón DÓMUR Ungur maður var dæmd- ur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að skalla lögregluþjón í fanga- geymslu lögreglunnar í Reykja- vík þann 17. nóvember 2003. Við höggið bólgnaði lögreglu- maðurinn aftan við vinstra eyra. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi. Haldi hann skilorð til tveggja ára þarf hann ekki að sitja inni. Hann þarf aftur á móti að greiða allan sakarkostnað og miska- bætur að upphæð 20 þúsund krónur auk dráttarvaxta. ■ TONY BLAIR Forsætisráðherra Bretlands er á leið til Tyrklands. Tyrkland: Komu Blairs mótmælt ANKARA, AP Evrópusambandið mun hefja aðildarviðræður við Tyrk- land ef það kemur til móts við kröfur um mannréttindi og lýð- ræði fyrir árslok, að sögn Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Blair er á leið í opinbera heim- sókn til Tyrklands og voru fjórar litlar sprengjur sprengdar í mót- mælaskyni. Þær sprungu fyrir utan breskan banka í Ankara en ollu aðeins minniháttar tjóni. ■ NÝR VIÐ STÝRIÐ Baldur Guðnason er nýr við stýrið í Eim- skipafélagi Íslands. Verkefni hans er að auka arðsemi fyrirtækisins og sækja fram á erlendum vettvangi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Harðnandi samkeppni: Hagnaður Símans minnkar UPPGJÖR Hagnaður Símans fyrstu þrjá mánuði ársins dróst saman miðað við sama tímabil í fyrra. Niðurstaðan var 404 milljónir króna samanborið við 586 millj- ónir fyrir sama tímabil í fyrra. Rekstrartekjur jukust um 224 milljónir króna og rekstrargjöld hækka um 408 milljónir. Vaxandi samkeppni á fjarskiptamarkaði með lækkandi verðskrá að und- anförnu hefur haft áhrif á af- komu félagsins. Mikil verðsam- keppni í farsíma og gagnaflutn- ingum birtist, að sögn fyrirtækis- ins, meðal annars í lægra verði til viðskiptavina Símans. ■ Trúartákn verða bönnuð í frönskum skólum: Taka ofan túrbaninn PARÍS, AP Sikhar verða að taka ofan túrbaninn þegar ný lög sem banna trúartákn í frönskum skólum taka gildi, að sögn Francois Fillon, menntamálaráðherra Frakklands. Múslimastúlkur mega einungis bera höfuðklúta í skólum sem leyfa óáberandi höfuðföt. Lögin taka gildi í september og banna áberandi trúartákn og trúar- legan klæðaburð á skólatíma, til dæmis kollhúfur gyðinga og stóra krossa. Ákveðið hefur verið að gefa út nokkrar viðmiðunarreglur til þess að hjálpa skólastjórnendum að fara eftir lögunum, sem samþykkt voru í mars. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R HEFUR ENN EFASEMDIR Siguður Líndal lagaprófessor hefur enn efasemdir um stjórnarskrárgildi væntanlegra fjöl- miðlaga, þótt hann telji nýjustu breytingar á frumvarpinu til bóta.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.