Fréttablaðið - 18.05.2004, Síða 16
16 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
SKÝRSLA KYNNT
Ný skýrsla Matvæla- og landbúnaðarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna bendir til að
fátt neikvætt sé við erfðabreytt matvæli og
mælt er með frekari ræktun.
Gríðarleg fjölgun flugvéla í lofthelgi Evrópu:
Öryggi flugfarþega minnkar
FERÐALÖG Umferð flugvéla lágfar-
gjaldaflugfélaga í lofthelgi Evrópu
er orðin svo mikil að innan tíu ára
verður álagið orðið of mikið fyrir
flugumferðarkerfi í flestum lönd-
um. Breska blaðið Guardian skýrir
frá þessu en ástæðan er að fljótlega
verður birt skýrsla um flugslysið
sem varð rúmlega 70 manns að bana
í Þýskalandi fyrir tveimur árum.
Talið er fullvíst að skýrslan stað-
festi sök flugumferðarstjórnar á
því svæði sem slysið varð.
Það er Eurocontrol í Brussel
sem hefur yfirumsjón með flug-
taki, flugi og lendingum yfir 29
þúsund flugvéla í evrópskri loft-
helgi hvern einasta dag og talan
fer hækkandi. Forstöðumaður þess
hefur látið hafa eftir sér að um-
ferðin sé slík að núverandi flug-
umferðarkerfi muni innan áratugs
ekki valda álaginu og nútíma
tækni bjóði ekki upp á fullkomnari
lausn en nú er notuð. Lágfargjalda-
flugfélög hafa litlar áhyggjur af
stöðu mála en flest hafa þau borið
víurnar í hin nýju ríkjum Evrópu-
sambandsins enda gefst nú ótak-
markaður aðgangur að fleiri hund-
ruðum borga og bæja sem áður
stóðu ekki til boða. Hefur Euro-
control vitneskju um að öryggi
flugfarþega er ekki tryggt í loft-
helgi þriggja af þeim nýju löndum
sem skipa sambandið. ■
Samanburður við
Breta villandi
Samanburður Ríkisendurskoðunar á Landspítala og breskum sjúkra-
húsum er í veigamiklum atriðum villandi og óraunhæfur. Þetta er mat
starfshóps Landspítala sem rýnt hefur í skýrslu Ríkisendurskoðunar.
HEILBRIGÐISMÁL Starfshópur á
vegum Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss, sem
hefur skilað
skýrslu um
skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um
s a m e i n i n g u
sjúkrahúsa frá
nóvember 2003,
telur að saman-
burður LSH við
bresk sjúkrahús sé í sumum at-
riðum villandi eða óraunhæfur.
Starfshópurinn telur skýrslu
Ríkisendurskoðunar mjög gagn-
lega og mörg jákvæð atriði að
finna í henni.
Hins vegar gerir hópurinn at-
hugasemdir við nokkur atriði
sem gefi „villandi niðurstöður“.
Hann bendir á að ekki sé
hægt að bera saman hráar tölur
úr rekstri og starfsemi fyrir
árið 1999 og 2002 vegna breyt-
inga á þessum tíma og nefnir
dæmi máli sínu til stuðnings. Þá
hafi greiðsla fyrir S-merkt lyf
verið flutt frá Tryggingastofnun
til LSH á árinu 2001. Hún sé
ekki með í rekstrartölum spítal-
anna 1999 en sé innifalin 2002.
Ríkisendurskoðun noti al-
menna launavísitölu og neyslu-
verðsvísitölu til að bera saman
kostnað milli áranna 1999 og
2002, sem sé ósanngjarnt að
mati starfshópsins.
Enn fremur gerir starfshóp-
urinn sérstakar athugasemdir
við samanburð milli LSH og
breskra sjúkrahúsa. Ástandinu í
Bretlandi sé lýst þannig að það
standist ekki samanburð við
önnur vestræn lönd hvað snerti
dánartíðni og árangur, til dæmis
hvað varði krabbamein og
hjartasjúkdóma.
Starfshópurinn bendir á vill-
andi samanburð í afköstum
starfsfólks LSH og starfsfólks
bresku sjúkrahúsanna. Í þeim
samanburði séu ýmist notuð há-
skólasjúkrahús í og utan
London, svo og bráðasjúkrahús
utan London. Starfshópurinn
telur að helst sé hægt að nota
háskólasjúkrahús utan London
við þennan samanburð, þar sem
starfsemi sé hvað næst því að
vera sambærileg. Sé kafað
dýpra í tölur slíkra sjúkrahúsi
komi LSH ekki illa út í saman-
burði hvað varði hlutfallslega
fjölda starfsmanna eftir starfs-
stéttum.
Loks bendir starfshópurinn á
villandi samanburð hvað varði
fjölda meðferða á LSH og
bresku sjúkrahúsunum. „Sé hin-
um mismunandi meðferðum
gefið vægi við þennan saman-
burð verði niðurstaða hans sú,
að afköst starfsmanna LSH séu í
góðu lagi, rúmanýting alveg við-
unandi og gæði þjónustu meiri í
90% tilvika.“
jss@frettabladid.is
Bandaríkjastjórn:
Ódýr lyf
gegn alnæmi
WASHINGTON, AP Bandarísk
stjórnvöld hafa heitið því að
koma á markað ódýrum lyfjum
við alnæmi til milljóna manna í
þróunarlöndunum. Þetta er
kúvending í afstöðu yfirvalda,
sem hafa verið gagnrýnd fyrir
að hafa engan áhuga á þessu al-
varlega vandamáli.
Bandaríkjastjórn mun beita
sér fyrir því að örugg og árang-
ursrík lyf verði sett á markað til
þeirra fjórtán landa í heiminum
þar sem ástandið er verst. Tólf
þessara landa eru í Afríku og
tvö í Karíbahafi. ■
GORDANA DJINDJIC-FILIPOVIC
Ráðist var á systur forsætisráðherrans
myrta Zoran Djindjic.
Ráðist á systur Djindjic:
Sprautuð
með eitri
BELGRAD, AP Ráðist var á systur
fyrrverandi forsætisráðherra
Serbíu, Zoran Djindjic, sem myrt-
ur var á síðasta ári. Tveir óþekkt-
ir menn réðust inn á heimili syst-
urinnar, Gordönu Djindjic-Fil-
ipovic, og sprautuðu hana með
róandi lyfjum.
Djindjic-Filipovic fannst með-
vitundarlaus og var samstundis
flutt á sjúkrahús. Í blóðsýni sem
tekið var fannst lítið magn þekkts
róandi lyfs. Ekki er talið að um
morðtilraun hafi verið að ræða.
Réttarhöld í morðmáli Zorans
Djindjic standa nú yfir. Fjöl-
skylda hans hefur mátt sæta hót-
unum, jafnvel um dauða, ef ákæra
á hendur einum sakborninganna
verði ekki dregin til baka. ■
Hækkun atvinnuleysisbóta:
Leiðrétting
ALÞINGI Í frétt blaðsins í gær um
breytingar á fjárhæðum atvinnu-
leysisbóta var misfarið með
bótafjárhæðir. Hámarksbætur at-
vinnuleysistrygginga eru nú 3.681
króna á dag en verða 4.096 krónur
á dag frá og með 1. mars 2004 að
telja. Hámarksbætur á mánuði
verða því eftir hækkun 88.767
krónur á mánuði. Hækkunin nem-
ur 11,3%. ■
Net aðstoðarmanna
upprætt:
Tugir
handteknir
ALSÍR, AP Tugir manna voru hand-
teknir í aðgerðum gegn hugsan-
legum andspyrnumönnum í aust-
urhluta Alsírs í gær. Bæði lög-
regla og hermenn tóku þátt í að-
gerðunum, sem miðuðu að því að
rífa niður meint stuðningsnet her-
skárra múslíma.
Í hópi þeirra sem voru hand-
teknir voru meðal annars bændur,
fjárhirðar og verslunarmenn.
Heimildir hersins hermdu að
þessir aðilar hefðu gefið föt, mat,
lyf og peninga til herskárra mús-
lima og veitt þeim upplýsingar
um störf hersins. ■
KVIKMYNDAGERÐARMAÐURINN
MICHAEL MOORE
Hvíta húsið reyndi að stöðva dreifingu á
nýjustu mynd kappans.
Michael Moore harðorður:
Reynt að
banna mynd
hans
KVIKMYNDIR Kvikmyndagerðar-
maðurinn Michael Moore segir að
háttsettir menn innan Hvíta húss-
ins hafi beitt þrýstingi til að koma
í veg fyrir að nýjasta mynd hans
færi í almennar sýningar í Banda-
ríkjunum. Þetta lét hann hafa eft-
ir sér á blaðamannafundi í Cannes
en mynd hans Fahrenheit 9/11 var
frumsýnd þar í gærkvöldi. Í
myndinni fer hann háðulegum
orðum um forseta Bandaríkjanna
sem fyrr en sýnir fram á tengsl
milli Bush-fjölskyldunar og
hryðjuverkamannsins Osama Bin
Laden. ■
NÝ BOEING Í FRAMLEIÐSLU
Stærri og hraðskreiðari vélar breyta engu
nema til komi ný tækni í flugumferðar-
stjórn.
SAMANBURÐUR
„Sé hinum mismunandi meðferðum gefið vægi við þennan samanburð verði niðurstaða hans sú, að afköst starfsmanna LSH séu í góðu
lagi, rúmanýting alveg viðunandi og gæði þjónustu meiri í 90% tilvika,“ segir í skýrslu starfshóps LSH.
■
Starfshópurinn
bendir á vill-
andi saman-
burð í afköstum
starfsfólks LSH
og starfsfólks
bresku sjúkra-
húsanna.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
ÁREKSTUR Á AKUREYRI Fólksbíl
var ekið í veg fyrir annan við
Glerártorg á Akureyri klukkan
rúmlega fimm í gær. Ökumaður
annars bílsins og farþegi hins
kvörtuðu undan eymslum. Lög-
reglan á Akureyri taldi árekstur-
inn ekki hafa verið harðan og eru
bílarnir ekki taldir ónýtir.