Fréttablaðið - 18.05.2004, Qupperneq 17
17ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 2004
HVALVEIÐAR Rúmum 106 milljónum
króna var veitt til kynningar á mál-
stað Íslands í hvalveiðimálum á ár-
unum 1998-2003. Þetta kom fram í
svari Árna Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar
Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri
grænna.
Rúmar 69 milljónir fóru í al-
mannatengsl og ráðgjöf, tæpar 20
milljónir í ferðakostnað, rúmlega
ein milljón í risnu, 16 milljónir í
laun og önnur útgjöld námu samtals
205 þúsundum króna.
Enn fremur kom fram í svari
sjávarútvegsráðherra að mál-
staður Íslands í hvalveiðimálum
hafi verið kynntur bæði gagnvart
stjórnvöldum og fjölmiðlum víða
um heim. Þá hafi málið verið tekið
upp í viðræðum við stjórnvöld er-
lendra ríkja við ýmis tækifæri, auk
þess að málstaður Íslendinga hafi
verið kynntur forráðamönnum ým-
issa fyrirtækja sem stunda verslun
við Ísland. ■
GEGN SAMKYNHNEIGÐUM
Sífellt skýrari línur eru í Bandaríkjunum
milli þeirra sem eru fylgjandi hjónabönd-
um samkynhneigðra og hinna sem telja
ekkert nema neikvætt við þau. Mótmæla-
göngur eru afar algengar í stærstu borgum
landsins þessa dagana.
Taívan:
Forsetanum
hótað
PEKING, AP Nýendurkjörinn for-
seti Taívans, Chen Shui-bian,
fékk kaldar kveðjur frá kín-
verskum stjórnvöldum í gær.
Þar var sagt að forsetinn boðaði
„vond örlög“ auk þess sem því
var hótað að allar tilraunir Taí-
vana til þess að auka sjálfstæði
sitt yrðu bældar niður.
„Taívönsk yfirvöld geta valið
um tvær leiðir sem eru fram und-
an. Önnur er að snúa strax við á
hættulegri brautinni í átt til sjálf-
stæðis,“ sagði í tilkynningu frá
stjórnvöldum. „Hin er að leika
sér að eldinum með því að halda
áfram aðskilnaðarstefnu gagn-
vart afganginum af Kína og
mæta í framhaldinu af því eyði-
leggingu þjóðarinnar.“ ■
HEILBRIGÐISMÁL Fjórir þingmenn
Sjálfstæðisflokks hafa lagt
fram tillögu til þingsályktunar
um könnun á aðdraganda og
ávinningi af sameiningu
sjúkrahúsanna í Reykjavík.
Samkvæmt henni verður fjár-
málaráðherra falið að skipa
nefnd er kanni hvernig hagnað-
ur af sameiningu sjúkrahús-
anna í Reykjavík í lok níunda
og á tíunda áratugnum var
áætlaður. Sérstaklega verði
kannað hvernig áætlaður var
hagnaður af sameiningu Landa-
kotsspítala og Borgarspítala og
síðan af sameiningu Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Landspítala í
núverandi Landspítala - há-
skólasjúkrahús.
Einnig kanni nefndin hvers
vegna ekki var gengist í upp-
setningu kostnaðargreiningar-
kerfa, eins og DRG-kerfisins,
fyrir sameininguna og hvers
vegna ekki var þegið boð um
faglega og fjárhagslega aðstoð
við að þróa og byggja upp DRG-
kerfið, sem nú er að verða full-
þróað innan Landspítala - há-
skólasjúkrahúss, einkum þegar
kerfið hafði á þeim tíma, það er
fyrir tuttugu árum, verið notað
víða. ■
Tyrkland:
Sprengingar í
tveim borgum
TYRKLAND, AP Fjórar sprengjur
sprungu við tvær breskar banka-
stofnanir í Ankara og Istanbúl í
Tyrklandi snemma í gærmorgun.
Sprengjurnar sprungu skömmu
áður en von var á Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, til
landsins. Enginn slasaðist í
sprengingunum en skemmst er
að minnast sprengjutilræðis í
Istanbul sem varð sextíu manns
að bana. Tony Blair hyggst ásamt
öðrum leiðtogum sækja fund í
Tyrklandi þar sem meðal annars
verður fjallað um varnir gegn
hryðjuverkum. ■
Fulltrúaþing SÍ:
Samþykkt
um eftirlaun
mótmælt
STJÓRNMÁL Fulltrúaþing Sjúkra-
liðafélags Íslands mótmælir
harðlega siðleysi Alþingis sem
birtist í samþykkt meirihluta
þess um eftirlaun forsætiráð-
herra, ráðherra og þingmanna.
Með samþykkt sinni staðfesti
þingið með ótrúlegum hætti við-
horf sitt til þjóðarinnar og stað-
festir aðskilnað almennings,
þings og þjóðar.
Fulltrúaþing félagsins harmar
þá augljósu staðreynd að sann-
færing formanna stjórnarand-
stöðuflokkanna skuli föl fyrir au-
virðilega Júdasarpeninga, að því
er segir í ályktun fulltrúaþingsins
frá 14. og 15. maí síðastliðnum. ■
HVALVEIÐIBÁTUR
106 milljónum króna var veitt til kynningar á málstað Íslands í hvalveiðimálum á árunum
1998-2002.
Málstaður Íslands í hvalveiðimálum kynntur:
Kostnaður 106 milljónir
SAMEINING KÖNNUÐ
Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins; Lára
Margrét Ragnarsdóttir, Einar Oddur Krist-
jánsson, Drífa Hjartardóttir og Guðlaugur
Þór Þórðarson, vilja að fram fari könnun á
aðdraganda og ávinningi af sameiningu
sjúkrahúsanna í Reykjavík.
Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokks:
Sameining sjúkra-
húsa verði könnuð
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA