Fréttablaðið - 18.05.2004, Page 20

Fréttablaðið - 18.05.2004, Page 20
Þann 14. mars 2003 sendi hópur átta einstaklinga erindi til alþing- ismanna um meinta óbeina aðild tveggja ráðherra að manndráp- um. Það er athyglisvert að þrátt fyrir almenna trú að Ísland sé réttarríki og að alþingismenn starfi í almannaþágu, hefur eng- inn alþingismaður séð sér fært að bregðast efnislega við þessu er- indi. Sama er að segja um fjöl- miðla. Enginn þeirra greindi frá þessu erindi. Nú er rúmt ár liðið frá því erindið var sent og enn er þögnin um það ríkjandi. Erindið var skrifað í tengslum við sprengjuárás NATÓ á sjón- varpsstöðina í Belgrad þann 23. apríl 1999. Í þessari árás dóu 16 starfsmenn stöðvarinnar, menn og konur. Allt voru þetta borgara- legir starfsmenn. Saklaust fólk. Yfirlýst ástæða fyrir árásinni var að stöðin sendi út áróður gegn árásum NATÓ og neitaði að senda út vestrænar dagskrár um stríðið. Sama daginn og árásin var gerð, var haldinn leiðtogafundur NATÓ í Washington, DC í Banda- ríkjunum. Á þessum fundi var samþykkt einróma að heimila árásir á fjölmiðla í fyrrverandi Júgoslavíu. Þennan fund sátu Davíð Oddsson, forsætisráðherra, og Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra. Á leiðtogafundum NATÓ er sú venja að ákvarðanir séu teknar einróma. Það er því á valdi hvers aðildarríkis að beita neitunarvaldi. Ráðherrarnir beittu ekki rétti sínum heldur samþykktu að leyfa loftárásir á fjölmiðla. Samkvæmt alþjóða- samningum um stríðsátök, sem Ísland er aðili að, mega stríðsaðil- ar ekki beina árásum að borgara- legum skotmörkum. Fjölmiðlar eru borgaralegar stofnanir og starfsmenn fjölmiðla njóta frið- helgi gegn árásum. Leiði vísvit- andi árás á borgaraleg skotmörk til mannláts, telst hún stríðsglæp- ur. Ekki er kunnugt um að Davíð eða Halldór hafi greint Alþingi frá þessari ákvörðun. Íslendingar hafa ekki veitt ráðherrum umboð til að heimila dráp á óbreyttum borgurum. Það er ekki skilningur Íslendinga að fjölmiðlar séu lög- mætt skotmark í stríði. Í erindinu er farið þess á leit við Alþingi að það skipi rannsóknar- nefnd til að kanna staðreyndir máls (Voru ráðherrarnir á fundin- um í Washington þennan dag? Var þar ákveðið að heimila árásir á fjölmiðla? Hafa þeir hreyft við mótmælum við þessari ákvörðun? Hafa þeir greint Alþingi frá þess- ari ákvörðun? Voru þeir beðnir um álit áður en árásin á sjónvarpsstöð- ina í Belgrad var gerð?). Í öðru lagi yrði að ganga úr skugga um hvort það sé lögmætt að þjóðarétti að ráðast á fjölmiðil. Ef slík árás er ekki lögmæt, hvaða refsi- og skaðabótaábyrgð bakar slíkur verknaður þeim sem fremja hana, heimila hana og hylma yfir henni? Í þessu sambandi er rétt að geta þess að Ísland gerði fyrirvara við 20. grein alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg mannréttindi, en þar er kveðið á um að aðildarríki skuli banna stríðsáróður innan lögsögu sinnar. Íslensk stjórnvöld héldu því fram að bann við stríðsáróðri yrði and- stætt tjáningarfrelsi og hafa því neitað að framfylgja þessu ákvæði. Enn hafa alþingismenn ekki tjáð sig um meinta aðild ráðherra að heimild til stríðsglæpa eða sett fram spurningar um málið. Telja Íslendingar (og alþingismenn) eðlilegt að lúta stjórn manna sem heimila dráp á starfsmönnum fjölmiðla? Eru ráðherrar hafnir yfir lög sem banna að hvetja til manndrápa? ■ Ég get ekki orða bundist eftir lest- ur Morgunblaðsins í vikunni sem leið og má til að spyrja ofan- greindrar spurningar. Ég verð að játa að ég hef sjald- an eða aldrei lesið jafn aumkunar- vert viðtal við framkvæmdastjóra fyrirtækis eins og viðtal Morgun- blaðsins við framkvæmdastjóra Skjás eins og þó tekur steininn úr eftir lestur svars framkvæmda- stjóra Norðurljósa í sama blaði í dag þar sem segir orðrétt m.a. „Hann segist ekki hafa verið að ásælast starfsmenn Skjás eins með því að bjóða þeim betri kjör“. Ég spyr eru þessi fyrirtæki í samkeppni eða ekki? Er ekki eðli- legasti hlutur í heimi að fyrirtæki bjóði í starfsmenn hvors annars? Er ekki vinnuafl einn af fram- leiðsluþáttunum sem fyrirtæki eiga að keppa um eins og annað hér á landi? Hvernig í ósköpunum stendur á því að Sigurður G. Guð- jónsson telur sér skylt að svara með þessum hætti? Að afsaka það á einhvern hátt þó Norðurljós hafi ásælst starfsmenn Skjás eins? Ég minnist þess að hafa heyrt hugmyndir í sömu veru frá Guð- rúnu Hálfdánardóttur fyrrum rit- stjóra Viðskiptablaðs Morgun- blaðsins þegar Björgólfur og félagar buðu í starfsmenn Búnað- arbankans yfir til Landsbankans. Þá lét hún hafa eftir sér í útvarps- þætti sem ég man ekki lengur hvar var að „hún vonaði að slíkir hlutir ættu ekki eftir að endur- taka sig hér á landi“! Hvers konar samkeppnisum- hverfi er það þar sem það er bannað að „bjóða í starfsmenn“? Er það samkeppnisumhverfi eins og það hefur verið hér á landi þar sem stórir aðilar þóknanlegir Sjálfstæðisflokknum eru ráðandi? Í ljósi viðtals Morgunblaðsins við framkvæmdastjóra Skjás eins þar sem hann vorkenndi sér þessi ósköp að þurfa að eiga í sam- keppni við Norðurljós væri kannski ástæða til að taka umræð- una um Eimskip og hvernig það hefur verið fyrir litla aðila að reyna að keppa á þeim markaði sem heitir flutningamarkaður. Vill Morgunblaðið taka þá umræðu? Það veit sá sem allt veit að ég kæri mig ekki um að vera í liðinu „með“ Baugi „á móti“ ja ég veit satt að segja ekki hverjum, Sjálfstæðis- mönnum? En slík umræða sem hér er vitnað í kallar á viðbrögð. Ég hef verið þátttakandi í ís- lensku viðskiptalífi í tuttugu ár og hef persónulega upplifað hversu gríðarleg áhrif innkoma Jóns Ás- geirs í íslenskt viðskiptalíf hefur haft til hagsbóta fyrir neytendur fyrst og síðast. Og það áður en fyrirtæki hans varð að þvílíku veldi sem það er nú. Ég veit ekkert um manninn persónulega og það getur vel verið að hann sé óalandi og óferjandi, og má sjálfsagt segja það um marga þá einstaklinga sem ná árangri. Þeirra aðferðir hugn- ast áreiðanlega ekki öllum. Það getur vel verið að það sé kominn tími til að setja skorður við völdum Baugs á markaði. En í Guðs bænum bjóðið okkur ekki upp á að það þurfi að setja lög til að stoppa samkeppni um vinnu- afl! Þá er hagsmunagæsla Sjálf- stæðisflokksins gengin út yfir all- an þjófabálk! ■ 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR20 Dráp á óbreyttum borgurum ELÍAS DAVÍÐSSON UMRÆÐAN STRÍÐ Samkvæmt alþjóða- samningum um stríðsátök, sem Ísland er aðili að, mega stríðsaðilar ekki beina árásum að borg- aralegum skotmörkum. Fjöl- miðlar eru borgaralegar stofnanir og starfsmenn fjölmiðla njóta friðhelgi gegn árásum. ,, Þarfnast Skjár 1 verndar? SIGNÝ SIGURÐARDÓTTIR ÁHUGAMAÐUR UM ÞJÓÐMÁLAUMRÆÐUNA UMRÆÐAN SAMKEPPNI UM VINNUAFL Undanfarna daga hefur mátt sjá undirróður í þá átt að skilgreina rétt þjóð- arinnar einskisverðan. Að það sem stendur í stjórnarskráinni þýði ekki það sem segir. Þetta er pólitísk atlaga. Yfirlýsing forsætisráðherra föstu- dagskvöld vekur furðu og hneyksl- an þjóðar. Forsetavald er sam- kvæmt stjórnarskrá ekki synjun- arvald, ekki neitunarvald. Forseti getur ekki fellt mál. Forseti hefur málskotsrétt. Forseti vísar máli til þjóðaratkvæðagreiðslu. Afstaða hans sjálfs skiptir engu. Því er engin vanhæfisspurning á ferli. Þjóðin á þennan rétt, þjóðin á neit- unarvaldið. Þess vegna er Davíð Oddsson að fara á límingunum. Hann telur þjóðina vanhæfa. Frá upphafi lýðveldisins hefur verið ljóst: Forseti er þjóðkjörinn, sem gefur honum stöðu með um- boð fólksins. Í fyrstu stóð til að forseti yrði kjörinn af Alþingi en þjóðin krafðist þess að kjósa hann sjálf. Þess vegna skiptir staða for- seta máli og er samofin málskots- réttinum, sem í hugum stofnenda lýðveldisins var hafinn yfir vafa. Að segja þennan rétt „umdeildan“ vegna þess að örfáir menn hafa gefið sig fram með andstæða skoðun er fáránlegt. Að málskots- rétturinn hafi ekki verið nýttur sannar ekkert, því hvað eftir ann- að hafa hópar og samtök óskað þess að hann yrði virkjaður og hann því lifandi raunveruleiki í samfélagsumræðu. Lifandi raun- veruleiki hjá fólkinu. Forsætisráðherra er gjörsam- lega úti á þekju með samanburð á Danadrottningu og forseta Íslands. Í fyrsta lagi hefur hann rangt fyrir sér með að drottning hafi neitunar- vald, í öðru lagi er grundvallar- munur á stöðu hennar og forseta sem öllum er ljós. Hún erfir stöðu sína. Íslenska þjóðin kýs forseta sem hefur stjórnarskrárvarinn rétt til að bera mál undir okkur sem þetta land byggjum. Bláa höndin ætlar ekki aðeins að knýja fram hið umdeilda fjöl- miðlafrumvarp með valdi, heldur á sama tíma hrifsa frá fólkinu réttinn til að hafna svo vanreifuðu máli. Málið hefur frá upphafi ver- ið rammpólitísk gjörð, en fær nú hápólitískt vægi langt umfram það sem áður mátti líta. Í leiðara Morgunblaðsins í gær er forseta ógnað með því að nú kunni hann að verða að segja af sér vegna hótana forsætisráðherra. Landsmenn verða að átta sig á þessari graf- alvarlegu stöðu. Nú á ekki aðeins að knýja hið illa þokkaða mál í gegn, heldur svipta okkur, fólkið í landinu, réttinum til að setja vald- inu stólinn fyrir dyrnar. Af for- sætisráðherra sem riðar til falls. ■ STEFÁN JÓN HAFSTEIN UMRÆÐAN VALD FORSETA ÍSLANDS ,, FORSETI UNDIRRITAR EIÐSTAFINN„Forseti hefur málskotsrétt. Forseti vísar máli til þjóðaratkvæðagreiðslu. Afstaða hans sjálfs skiptir engu“. Er íslenska þjóðin vanhæf? Mun stjórnin lifa? Eftir síðasta kjörtímabil hefur ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks set- ið að völdum í þrjú kjörtímabil, eða í tólf ár, sem er langur líftími flokks samfellt í ríkisstjórn. Í fyrstu störfuðu Sjálfstæðismenn með Alþýðuflokknum, sem nú er útdauður. Á síðustu tveim kjör- tímabilum hefur samstarfið verið við Framsóknarflokkinn. Í síð- ustu kosningum galt Sjálfstæðis- flokkurinn afhroð en samt ekki þannig að hann væri útilokaður frá að halda áfram að vera í farar- broddi landsmálanna með sínum gamla samstarfsaðila. Og þannig fór að stjórnin sat áfram, sem kunnugt er. Þau tíðindi verða í haust, fari málin eins og menn ætla, að núverandi forsætisráð- herra víkur sæti fyrir formanni Framsóknarmanna samkvæmt samkomulagi sem flokkarnir gerðu sín á milli við síðustu stjórnarmyndunarviðræður. Slík stólaskipti ráðherra á miðju kjör- tímabili eru, hygg ég, einstök í ís- lenskum stjórnmálum. Menn hafa getið sér til hvað forsætisráð- herra, Davíð Oddsson, muni taka sér fyrir hendur eftir að hann gefur frá sér forsætisráðherra- embættið og ýmislegt verið nefnt í því sambandi. En sjálfur hefur hann ekkert látið hafa eftir sér um málið. En mun stjórnin lifa út kjör- tímabilið? - er spurning sem menn velta einnig fyrir sér. Margt sem hefur verið að gerast upp á síðkastið bendir einmitt til að brestir séu að myndast í þessu að mörgu leyti farsæla samstarfi flokkanna sem muni leiða til klofnings, stjórnarslita og kosn- inga áður en kjörtímabilið er á enda. Það má nefnilega merkja ákveðna þreytu í samstarfinu. Sem í sjálfu sér er ekki með öllu óskiljanlegt eftir svo langt sam- starf. Dansinn í kringum fjöl- miðlafrumvarpið er kannski nýjasta ábendingin um að eitt- hvað sé að bresta þarna þó enn sé það ekki alveg komið fram hvað að baki býr né heldur hvaða af- leiðingar það muni hafa. Herra Ólafur Ragnar Grímsson fær málið til sín en óvíst er hvort hann undirritar lögin. Sem setur málið allt vitaskuld í mikið upp- nám. Ef forseti landsins skrifar ekki undir lög frá háttvirtu Al- þingi geta þau ekki öðlast gildi og málið fer sjálfkrafa áfram til þjóðarinnar sem á þá síðasta orð- ið í málinu. Hvað sem því líður hafa Ís- lendingar horft upp á gríðarlegar breytingar verða á samfélaginu sem engan gat órað fyrir er Sjálf- stæðismenn, undir forystu Dav- íðs Oddssonar, tóku við völdum á sínum tíma. Á þessum tíma hafa menn horft upp á gríðarlega til- færslu fjármuna á milli handa og í landinu hefur orðið til stétt ríkra manna. Miklu fremur vellauð- ugra manna sem ekki vita aura sinna tal sem hafa ekki bara fjár- fest innanlands heldur einnig er- lendis. Á þessu tímabili hefur verðlag sömuleiðis haldist nokk- uð stöðugt og landinn hefur ekki þurft að horfa upp á hinar gríðar- legu verðsveiflur sem einkenndu mörg tímabil á undan og mörgum er enn í fersku minni. En allt hefur sinn tíma. Að gráta hefur sinn tíma. Að hlæja hefur sinn tíma. Ríkisstjórnir koma og fara. Þannig er bara gangurinn í þessum málum. Lifir ríkisstjórnin til enda kjörtíma- bilsins? Ég er alltént ekki full- komlega sannfærður um það mál. ■ En allt hefur sinn tíma. Að gráta hefur sinn tíma. Að hlæja hefur sinn tíma. Ríkisstjórnir koma og fara. Þannig er bara gangurinn í þessum málum. Lifir ríkisstjórnin til enda kjörtímabilsins? Ég er alltént ekki fullkomlega sannfærður um það mál. KONRÁÐ RÚNAR FRIÐFINNSSON SKRIFAR UM RÍKISSTJÓRNINA,, NATO-FUNDUR Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins á fundi í Washington í mars síðastliðnum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.