Fréttablaðið - 18.05.2004, Qupperneq 21
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 70 stk.
Keypt & selt 16 stk.
Þjónusta 40 stk.
Heilsa 7 stk.
Heimilið 10 stk.
Tómstundir & ferðir 8 stk.
Húsnæði 19 stk.
Atvinna 25 stk.
Tilkynningar 2 stk.
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagurinn 18. maí,
139. dagur ársins 2004.
Reykjavík 4.02 13.24 22.49
Reykjavík 3.26 13.09 22.55
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
Þótt árferðið á Íslandi bjóði nú upp á hjólreiðar
allan ársins hring er sumarið tíminn þegar flestir
landsmanna draga fram hjólin sín. Alda Jónsdótt-
ir, fyrrverandi formaður Íslenska fjallahjóla-
klúbbsins til fimm ára, er viskubrunnur þegar
kemur að hjólreiðum. Hún segir fjallahjól vera
yfir níutíu prósent hjóla sem nú eru seld á mark-
aðnum og að fjallahjól séu bæði til nota innan
borgarlandslagsins sem og úti í náttúrunni. Hún
segir mikilvægt að láta yfirfara hjól á verkstæði
hafi það staðið óhreyft lengi og eins beri að yfir-
fara bremsur og gíra, og smyrja reglulega. Og hún
segir alla geta hjólað.
„Það er best að byrja í rólegheitunum og bæta
smám saman við sig. Þannig er hægt að hjóla í
vinnuna og taka strætó heim, en leyfilegt er að
taka hjól inn í vagnana. Þá eykst þolið ótrúlega
fljótt og fólk kemst fljótt að raun um að brekkur
og vindur eru miklu minna mál en það hafði
haldið.“
Alda segir algeng mistök að kaupa of stór hjól
og mikilvægt að fá góðar leiðbeiningar þegar nýtt
hjól sé keypt. „Ég ráðlegg öllum að skoða vel úr-
valið áður en þeir festa kaup á hjóli og gera sér
sömuleiðis grein fyrir því hvernig ætlunin er að
nota hjólið.“
Að sögn Öldu eru hjólreiðar góð líkamsrækt og
fyrirtaks staðgengill líkamsræktar yfir sumartím-
ann. „Þá getur fólk hjólað í rólegheitum til vinnu
að morgni en tekið vel á því á heimleiðinni. Varast
ber að vera í bómul sem næst líkamanum því hún
heldur inni svita og getur slegið að fólki. Best er
að vera í útivistarbolum sem þorna fljótt, klæða
sig í margar þunnar flíkur frekar en að klæðast
þykku og vera í vind- og vatnsheldum jakka.“
Alda bendir á að með tilkomu útivistarstíga sé
orðið mjög skemmtilegt að hjóla í borginni en þó
mætti bæta aðstæður hjólreiðamanna mikið. „Þá
þarf að fara mjög gætilega í umferðinni og fara
eftir umferðarreglum, auk þess að taka tillit til
gangandi vegfarenda, því hjólreiðarfólk eru gest-
ir á gangstéttum. Ég vildi gjarnan sjá hjólabrautir
liggja meðfram stofnæðum borgarinnar í allar
höfuðáttirnar og tengjast útivistarstígunum.
Vinnustaðir mættu líka útbúa betri aðstæður fyrir
hjólreiðafólk að geyma hjólin á öruggum stað.
Grindur köllum við gjarðabana vegna þess að þau
skemma gjarðirnar og komi slinkur á hjólið er allt
ónýtt.“
Auk reiðhjóla fyrir fullfríska einstaklinga má
fá sethjól sem henta vel bakveikum og þeim sem
stríða við meiðsl í hálsi, og þá er hægt að fá tví-
menningshjól sem henta vel blindum og sjónskert-
um til að upplifa með öðrum.
Þess má geta að dagana 17. til 28. maí stendur
ÍSÍ fyrir átakinu „Hjólað í vinnuna“, en megin-
markmið þess er að vekja athygli á hjólreiðum
sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hag-
kvæmum samgöngumáta. Keppni verður milli
fyrirtækja þar sem starfsfólk er hvatt til að hvíla
bílinn en hjóla þess í stað til og frá vinnu. Nánari
upplýsingar á isisport.is. Þá er Íslenski fjalla-
hjólaklúbburinn með hjólatúra á þriðjudagskvöld-
um klukkan 20 og er lagt af stað frá húsi Strætó í
Mjódd. Upplýsingar um starf klúbbsins á
this.is/hjol ■
Hjólreiðar:
Margir á of stórum hjólum
heimili@frettabladid.is
Vaxa heildverslun tekið
við Weleda-umboðinu.
Weleda-húðvörurnar eru
lífrænt ræktaðar, án allra
aukaefna. Í Weleda-vöru-
merkinu eru vörulínur
sem henta börnum og
verðandi mæðrum en
þar eru einnig andlitsvör-
ur, baðvörur, tannvörur
og fleira. Weleda-vörur
hafa fengist hér á landi í
40 ár. Þær eru í hugum
margra fyrst og fremst
tengdar meðgöngu og
fæðingu enda voru vör-
urnar fluttar inn af versl-
uninni Þumalínu sem
Hulda Jensdóttir ljós-
móðir rekur. Weleda-vörurn-
ar fást í apótekum, heilsu-
búðum og barnaverslunum
um allt land. Vaxa er einnig
umboðsaðili fyrir Allison A/S,
danskar jurtasnyrtivörur sem
hafa verið í sölu í Danmörku
í 30 ár. Allison-snyrtivörurnar
fást í apótekum og heilsu-
búðum um allt land.
Áfengi veldur heyrnar-
skemmdum er niður-
staða nýrra rannsókna.
Sumar rannsóknir hafa
bent á það að á með-
an hófleg drykkja
minnkar hættu á
hjartasjúkdómum þá
skemmir of mikil
áfengisneysla lifur og
heila og eykur áhættu
á krabbameini. Nýjar
rannsóknir leiða nú í
ljós að hófleg drykkja í
langan tíma getur haft
áhrif á heyrn og valdið
skemmdum á henni.
Ekki er vitað hvernig
heyrnarskemmdirnar
lýsa sér en líklegt er að
fólk sem er þjakað af
þeim gæti átt í erfiðleik-
um með að skilja fólk
sem talar mjög hratt eða
greina á milli radda og
hljóða í umhverfi þar
sem mikið er um að
vera, eins og í veislu eða
á íþróttaviðburði.
Landspítali - háskóla-
sjúkrahús hefur mjög já-
kvæða ímynd. Þetta er
niðurstaða rannsóknar sem
Gallup framkvæmdi fyrir
stofnunina. Úrtakið var
1.350 manns og var svar-
hlutfall 62%. Þátttakendur
voru spurðir að því hvort
þeir væru jákvæðir eða nei-
kvæðir gagnvart Landspítal-
anum - háskólasjúkrahúsi.
Tæp 40% voru mjög já-
kvæð og 45% frekar já-
kvæð, alls 85%. 10%
voru hvorki jákvæð né
neikvæð en um 5%
voru neikvæð eða
frekar neikvæð í garð
spítalans. Einnig var
spurt hvort þátttak-
endum þætti spítalinn
vera traust eða ótraust
stofnun. Tæp 90%
höfðu frekar mikið
eða mikið traust í
garð spítalans.
Alda Jónsdóttir segir mikilvægt að láta reglulega yfirfara gíra og
bremsur á reiðhjólum, sem og að smyrja þau.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR HEILSUNA
TILBOÐ Ford EXPL sport ‘01 4L Ekinn
35 þ. m. Cruise. Áhv. 2,1 millj. Afb. 38
þ. á mán. Verð 2.990 þ. Tilboð 2.550 þ.
Einnig Audi TT ‘99 ekinn 66 þ. 18”. Verð
2290 þ. Tilboð 1.990 þ. Dekurbíll. S.
820 4513.
Benz árg. ‘86 með Westfalia-innrétting-
um. Uppl. í síma 892 4593.
Lotus Elan blæjubíll. Árg. 2000 ek. að-
eins 5 þ. km. 5 gíra, ABS, álfelgur, CD,
leður, líknarbelgir, loftkæling o.fl. Verð
2.290.000. Ath skipti.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Óbeinar reykingar hættulegar
BLS. 3