Fréttablaðið - 18.05.2004, Side 30
Snæfríður Baldvinsdóttir, sem er36 ára í dag, segist ekki vera
mikið afmælisbarn en nýtur þess að
eldast. „Mér finnst gott að eldast og
þegar ég bæti á mig ári verð ég svo
glöð. Kannski í þeirri von að því
fylgi einhver viska og þroski.“
Hún var þó einu sinni heilmikið
afmælisbarn og þá sérstaklega
fyrstu tíu ár ævinnar. „Þá fannst
mér þetta vera stórmerkilegur dag-
ur. Ég skipulagði danssýningar og
leiki og heilmikið húllumhæ. Ég
skipulagði líka veislur yngri systur
minnar og var með gestalista sem
taldi aðallega mínar vinkonur og
hún fékk svo að vera með. Þegar ég
varð 11 eða 12 ára varð einhver hug-
arfarsbreyting og mér fannst
óþægilegt að skipuleggja veislu fyr-
ir mig.“
Snæfríður segist hafa tekið for-
skot á afmælisdaginn með góðu fólki
nú um helgina. „Hún Marta dóttir
mín, sem er átta ára, er mjög veis-
luglöð og ætlar að færa mér morgun-
mat í rúmið. Svo ætlum við að fara í
pikknikk við Hreðavatn og skoða
svanina. Ég vona því að dagurinn
verði sólbjartur og hangi þurr. Það
er aðallega hún sem langar til að
halda veislur og er búin að skipu-
leggja eina slíka seinnipartinn með
vinkonum sínum fyrir mig.“
Þessa dagana starfar afmælis-
barnið við lögfræðideild Viðskipta-
háskólans á Bifröst en kennir bæði í
viðskipta- og lögfræðideild. „Vertíð-
inni hér er að ljúka hjá mér í bili. Þá
getur maður loksins litið upp úr
bókunum og áttað sig betur á því
hvað þetta er yndislegt umhverfi.
Hér er gott fólk og mikil hvatning
að vinna vel að því sem maður er að
gera, því allir eru að vinna, hugsa
og pæla. Að kenna hér er þræl-
skemmtilegt, ögrandi en skemmti-
legt.“
Þegar kennslu lýkur ætlar Snæ-
fríður í mánaðarfrí og hafa það gott
með fjölskyldunni. „Ég verð í fara-
rstjórn með útlendinga í sumar líkt
og ég hef gert. Aðallega fer ég með
Ítali og enskumælandi fólk.“ Hún á
erfitt með að gera upp á milli fal-
legra staða á Íslandi en segir Vest-
urlandið alltaf heillandi. „Ég hef
einnig taugar til Vestfjarða en hef
lítið lagt leið mína þangað á seinni
árum. Ég hef á stefnuskránni að
fara um Vestfirði sem ég fór oft um
sem lítill krakki þegar ég bjó við
Djúp.“ ■
Kínverjar, sérstaklega náms-menn, byrjuðu að mótmæla
friðsamlega í upphafi ársins 1989 og
kröfðust lýðræðislegra umbóta og
aukinna mannréttinda. Mest fór
fyrir mótmælunum á Torgi hins
himneska friðar í miðri Peking en
þar komu námsmenn sér fyrir og
fóru í hungurverkfall.
Á þessum degi árið 1989 lagðist
almenningur fyrir alvöru á sveif
með námsmönnunum og milljónir
manna fjölmenntu á götum úti með
fána og skilti og hrópuðu slagorð
gegn æðstu ráðamönnum landsins.
Þetta voru alvarlegustu og um-
fangsmestu mótmæli í sögu Kína frá
því að kommúnistar tóku við völdum
40 árum áður en allt fór þetta samt
friðsamlega fram og börn og for-
eldrar sameinuðust í mótmælunum.
Aðgerðirnar vöktu heimsathygli
og þannig var til að mynda Gorbat-
sjov Sovétleiðtogi, í opinberri heim-
sókn í Kína í maí en hún féll að
miklu leyti í skugga mótmælanna.
Langlundargeð landsfeðranna
var þó ekki meira en svo að í byrjun
júní leystu þeir mótmælin á Torgi
hins himneska friðar upp með
vopnavaldi og ofbeldi. Þúsundir
voru drepnar í aðgerðunum og
10.000 manns voru handteknir í
blóðbaðinu á Torgi hins himneska
friðar. ■
TORG HINS HIMNESKA FRIÐAR
Fjöldamótmælin sem náðu hámarki á
þessum degi fengu blóðugan endi
nokkrum vikum síðar þegar yfirvöld réðust
á mótmælendur á Torginu með vopnavaldi.
Milljónir mótmæla í Kína
22 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
■ EINA ÓSK
■ AFMÆLI
■ JARÐARFARIR
10.30 Pétur Stefánsson, Kjarrhólma 30,
Kópavogi, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
13.30 Guðjón Einarsson, Hlíðarhúsum
5, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Kristskirkju, Landakoti.
13.30 Helga Ámundadóttir, Hrafnistu,
Hafnarfirði, áður til heimilis í
Vogatungu 67, Kópavogi, verður
jarðsungin frá Kópavogskirkju.
13.30 Ingibjörg Óladóttir, Stekkjargerði
6, Akureyri, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju.
15.00 Guðbjörg Guðjónsdóttir, Bjart-
eyjarsandi, verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju, Saurbæ, Hval-
fjarðarströnd.
Ingibjörg Ólafsdóttir lést laugardaginn
15. maí.
Ég vildi að ég hefði tíma til aðhjálpa syni mínum að mála.
Hann er að flytja inn í nýtt hús og
ég má ekkert vera að því að hjálpa
honum,“ segir Þórunn Sigurðar-
dóttir, listrænn stjórnandi Lista-
hátíðar í Reykjavík, sem hefur
vitaskuld í mörgu að snúast þessa
dagana. ■
Ingibjörg Hjartardóttir rithöfundur
er 52 ára.
Á laugardag afhenti ÞorgerðurKatrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra viðurkenn-
ingar í ritgerðasamkeppni í tilefni
aldarafmælis heimastjórnar, þar
sem framhaldsskólanemendur
skrifuðu um heimastjórn á Ís-
landi, aðdraganda og afleiðingar.
Sjö nemendur hlutu viðurkenn-
ingar, þar af þrír sem hlutu 100
þúsund króna verðlaun hver.
Þeir sem hlutu verðlaun voru
Sigurður Helgi Oddsson, Mennta-
skólanum á Akureyri, Magnús
Sigurðsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, og Kristín Svava Tóm-
asdóttir, Kvennaskólanum í
Reykjavík.
Aðrir sem hlutu viðurkenning-
ar voru: Anna Björg Leifsdóttir,
Framhaldsskólanum á Húsavík,
Kristín Grímsdóttir, Menntaskól-
anum á Akureyri, Sigríður
Katrín Magnúsdóttir, Mennta-
skólanum á Akureyri, og Anna
Njálsdóttir, Borgarholtsskóla.
Í dómnefnd sátu Tryggvi
Gíslason, magister, Sigurlaug
Anna Gunnarsdóttir, íslensku-
kennari við Menntaskólann á Ak-
ureyri, og Árni Indriðason, sögu-
kennari við Menntaskólann í
Reykjavík. Þær ritgerðir sem
hlutu viðurkenningu verða gefnar
út í kilju. ■
VERÐLAUN
RITGERÐASAMKEPPNI
■ Sjö verðlaunaðir fyrir ritgerðir um
heimastjórn.
18. MAÍ 1989
KÍNVERJAR MÓTMÆLA
■ Milljónir Kínverja komu saman á göt-
um úti til að styðja við bakið á náms-
mönnum sem kröfðust lýðræðislegra
umbóta í landinu.
AFMÆLI
SNÆFRÍÐUR BALDVINSDÓTTIR
ER 36 ÁRA
■ Var mikið afmælisbarn fyrstu 10 árin.
Nemendaritgerðir
verðlaunaðar
JÓHANNES PÁLL PÁFI II
Fæddist á þessum degi árið 1920 og er
því 84 ára í dag.
18. MAÍ
Finnst gott að eldast
■ ANDLÁT
VERÐLAUNAHAFAR ÁSAMT DÓMNEFND OG MENNTAMÁLARÁÐHERRA
Úrslit í ritgerðasamkeppni framhaldsskólanema um heimastjórn á Íslandi voru kynnt á
laugardag.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
EINAR ÓLAFSSON,
Hraunvangi 1, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 19. maí, kl. 13:30. Þeim sem vildu minnast
hans eru beðnir að láta Krabbameinsfélagið njóta þess.
Hansína Þorkelsdóttir
Unnur Einarsdóttir Rafn Baldursson
Guðrún Einarsdóttir Hjörtur Páll Kristjánsson
Þorkell Einarsson Rut Marsibil Héðinsdóttir
Gerður Einarsdóttir Þorsteinn Sveinbjörnsson
Ólafur Hjalti Einarsson
Sveinn Ingvar Einarsson Karin Margareta Johansson
Pálmi Einarsson
Jóhanna Einarsdóttir Gísli Guðmundsson
Ari Einarsson Berglind Jónsdóttir
Snorri Páll Einarsson Elín Lára Jónsdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn
SNÆFRÍÐUR
BALDVINSDÓTTIR
OG MARTA
Marta ætlar að
bjóða vinkonum
sínum í afmælis-
veislu móður
sinnar í dag.