Fréttablaðið - 18.05.2004, Síða 41
■ ■ KVIKMYNDIR
20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
sænsku kvikmyndina Ole dole doff eftir
Jan Troell. Sýningin verður að vanda í
Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.30 Vortónleikar Kórs Hjalla-
kirkju verða í Hjallakirkju, Kópavogi. Ein-
söngvarar eru Erla Björg Káradóttir
sópran, Kristín R. Sigurðardóttir sópran
og Gunnar Jónsson bassi. Undirleikari
er Katalin Lörincz og söngstjóri Jón
Ólafur Sigurðsson.
■ ■ FUNDIR
20.00 Ung vinstri-græn á Akureyri
efna til opins fundar um menntamál
undir yfirskriftinni “Mennt er máttur”.
Katrín Jakobsdóttir ræðir um sam-
ræmd stúdentspróf, styttingu náms til
stúdentsprófs, háskólastigið og önnur
menntamál á Café Amour við Ráðhús-
torg. Á eftir verða umræður og fyrir-
spurnir.
■ ■ SAMKOMUR
12.10 Rakel Pétursdóttir verður
með leiðsögn í hádeginu í Listasafni Ís-
lands um sýninguna Í nærmynd/Close-
up, bandarísk samtímalist.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 2004
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Þriðjudagur
MAÍ
Vatnslitirnir eru yndislegt ogtært efni,“ segir Björg Þor-
steinsdóttir myndlistarmaður,
sem um síðustu helgi opnaði sýn-
ingu á vatnslitamyndum sínum í
sal Íslenskrar grafíkur. „Og svo
spilar pappírinn alltaf inn í, til
dæmis hvernig liturinn rennur á
pappírnum, hvernig pappírinn er
á litinn og hvað hann er þykkur.“
Björg kallar sýningu sína
Streymi og sýnir þar 27 vatnslita-
myndir, allar unnar á síðasta ári.
„Ég er mikið að vinna með
bárur og sjó og vatn. Sýningin
heitir kannski Streymi þess
vegna, og svo líka kannski vegna
þess að ég hafði góða aðstöðu í
Straumi og notaði nokkra mánuði
til þess að sökkva mér ofan í
vatnlitinn. Svo streymir líka
vatnsliturinn úr penslinum með
vatninu. Þetta eru líka áhrif frá
sjónum. Þegar ég var að keyra í
Straum á morgnana var sjórinn
svo mismunandi á litinn.“
Björg lauk námi frá Handíða-
og myndlistaskóla Íslands árið
1964 og stundaði framhaldsnám
við listaháskóla í Stuttgart og
París. Á ferli sínum hefur hún
málað, teiknað, unnið í grafík og
gert collage-verk, haldið yfir 30
einkasýningar og tekið þátt í
fjölda alþjóðlegra samsýninga
víða um heim.
„Þessar myndir eru stærri en
ég hef verið með áður. Vatnslit-
urinn er gegnsær þannig að eitt
lagið skín í gegnum annað og þá
myndast margir litatónar eftir
því sem maður bætir fleiri litum
ofan á.“
Björg segist komast í hálfgert
hugleiðsluástand þegar hún er að
vinna að myndum sínum.
„Þær koma bara til manns
sjálfar einhvern veginn. Fólk seg-
ir mér líka að það þurfi að staldra
svolítið lengi við til þess að upp-
lifa þær.“ ■
BJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR
Sýnir vatnslitamyndir í sal Íslenskrar grafíkur, norðanmegin í Hafnarhúsinu.
■ LISTSÝNING
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Kemst í hálfgert hugleiðsluástand
Í tilefni þrjátíu ára starfs-afmælis Guðnýjar Guðmunds-
dóttur fiðluleikara sem 1.
konsertmeistara Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands verður þetta
kvöld Listahátíðar í Reykjavík
helgað henni. Guðný mun, ásamt
Gunnari Kvaran eiginmanni sín-
um og Nínu Margréti Grímsdótt-
ur píanóleikara, frumflytja tvö
ný íslensk verk; Sameindir, dúó
fyrir fiðlu og selló eftir Karólínu
Eiríksdóttur og Sónötu nr. 2 eftir
Áskel Másson. Guðný mun einnig
flytja Árstíðirnar eftir Vivaldi
ásamt nemendum sínum í Lista-
háskólanum og í Tónlistarskólan-
um í Reykjavík. Sjálf valdi Guð-
ný verkin sem verða á dagskrá
og segist hún hafa talið það við
hæfi að spila með nemendum sín-
um, þar sem þessi tímamót
marka ekki einvörðungu 30 ára
starfsafmæli sem fiðluleikari og
konsertmeistari, heldur einnig
sem kennari.
„Nemendurnir sem spila með
mér eru allt núverandi nemend-
ur, frá 14 ára upp í rúmlega tví-
tugt. Svo kemur einn fyrrver-
andi nemandi, Ari Þór Vilhjálms-
son, sem útskrifaðist frá mér
fyrir þremur árum, sérstaklega
heim frá Bandaríkjunum til að
vera konsertmeistari. Æfingar
hafa gengið rosalega vel og
krakkarnir leggja sig ofsalega
fram. Það er ekki síðra að spila
með þeim en með harð-
prófessional fólki,“ segir Guðný.
Hún spilaði í fyrsta skipti
sem konsertmeistari á Lista-
hátíð fyrir þrjátíu árum og seg-
ist því hafa orðið mjög glöð þeg-
ar henni var boðið að spila á
listahátíð í ár.
Tónleikarnir verða í Íslensku
óperunni og hefjast klukkan 20. ■
Þrjátíu ár á fiðlunni
GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR
Heldur upp á 30 ára starfsafmæli sem fiðluleikari, konsertmeistari og kennari með tónleikum í Íslensku óperunni í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
■ LISTAHÁTÍÐ