Fréttablaðið - 18.05.2004, Page 47
ÞRIÐJUDAGUR 18. maí 2004
Einn vinsælasti uppistandsgrín-ari heims, Chris Rock, hefur
staðfest komu sína til landsins.
Hann mun koma hingað á vegum
Improv Iceland og kitla hlátur-
taugar Íslendinga með beittu
gríni sínu.
Rock hóf feril sinn sem uppi-
standari fyrir 15 árum síðan.
Hann fór snemma að koma fram í
sjónvarpsþáttum á borð við
Comedy Central og Saturday
Night Live. Hann sló þó fyrst al-
mennilega í gegn í myndunum
CB4 og I’m Gonna Git You Sucka.
Kvikmyndahlutverkin hafa orðið
stærri gegnum tíðina og þekkt-
ustu myndir hans eru líklega
Dogma, Lethal Weapon 4, Nurse
Betty og Down to Earth.
Einnig mun David Spade, sem
sló í gegn með Chris Farley í
Tommy Boy og Black Sheep, vera
væntanlegur til landsins. Aðdá-
endur þáttanna The Man Show,
sem sýndur er á PoppTívi, geta
svo glaðst yfir þeim fréttum að
umsjónarmaður þeirra Doug Stan-
hope er einnig á leiðinni hingað. ■
SPAUG
CHRIS ROCK
■ Einn frægasti uppistandari heims og
vinsæll kvikmyndaleikari hefur boðað
komu sína til Íslands.
CHRIS ROCK
Er þekktur fyrir að gera stólpagrín að
mismunandi hefðum kynþátta.
Chris Rock til Íslands
Útgáfufélag-ið Bjartur
hefur greint
frá því að það
hafi gert samn-
ing við nýjan
sakamálahöf-
und. Ekki vill
forlagið láta
uppi að svo
stöddu hver
höfundurinn er
en segir að
Arnaldur Ind-
riðason hafi
fengið verðugan keppinaut fyrir
haustið og það eigi eftir að koma
mörgum á óvart þegar höfundur-
inn stígur fram, því maðurinn sé
fullskapaður sakamálahöfundur
frá fyrstu bók.
Jafnframt segir í tilkynningu:
„Höfundurinn er þekktur fyrir
allt annað en sakamálasöguskrif
en halda mætti af þroskuðum
handtökunum að maðurinn hafi
ekki gert margt annað um ævina
en að hrella lesendur með óvænt-
um snúningum og háspennu af
besta tagi.“
Tilkynningin hefur vakið miklaathygli, svo ekki sé minna
sagt, og ýmsar getgátur eru uppi
um hver þetta gæti verið. Það
eina sem vitað er með vissu er að
þetta er mjög fjölhæf manneskja,
búsett í raunheimum, sem þekkt
er fyrir margt annað en að skrifa
glæpasögur. Þetta ku þó ekki
vera Árni Johnsen, sem hef-
ur greint frá því að hann
hafi nokkrar óútgefnar bæk-
ur í handraðanum, þó svo að
sumir hafi orðið til að geta
sér þess til að hann sé hinn
nýi keppinautur Arnalds.
Árni er samt ágætis kandí-
dat þar sem hann er mjög
fjölhæfur á sviði listanna og
er þekktari fyrir tilþrif sín á
gítarnum og í högglistinni,
auk stjórnmálaferils síns, en
fyrir skáldsögur sínar. Þeir
sem efast um Árna sem saka-
málahöfund hafa þó getið þess að
hann hafi ákveðna reynslu af ís-
lenskum sakamálum sem gæti
nýst á ritvellinum.
Frekari tíðinda er því að fréttaúr búðum Bjartsmanna þegar
líður á sumarið enda eru þeir ekk-
ert frekar að einbeita sér að jóla-
markaðnum víðfræga, heldur sýna
að það er hægt að gefa út bækur
hvenær sem er ársins.
■ FRÉTTIR AF FÓLKI