Fréttablaðið - 21.05.2004, Síða 4
4 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
Fórstu í bíó í vetur?
Spurning dagsins í dag:
Hefurðu áhyggjur af aukinni
verðbólgu?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
38%
62%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Ögmundur Jónasson:
Rödd þjóðarinnar afgerandi
KÖNNUN „Þetta eru afgerandi nið-
urstöður,“ segir Ögmundur Jón-
asson, þingmaður Vinstri græn-
na, um niðurstöður nýrrar skoð-
unarkönnunar um fjölmiðla-
frumvarpið og synjunarvald
forseta Íslands. „Mín skoðun er
sú að ríkisstjórnin á að hlusta á
rödd þjóðarinnar sem talar á
svona afgerandi hátt til hennar.
Viðbrögð þeirra ættu að vera að
skjóta þessu umdeilda máli á
frest þar sem það er greinilega í
óþökk yfirgnæfandi meirihluta
þjóðarinnar.“
Aðspurður um vald forsetans
til að neita staðfestingu laga
segist Ögmundur eiga samleið
með meirihluta Íslendinga.
„Sjálfur velkist ég ekki í
nokkrum vafa um að forsetinn
hefur vald til að skjóta málum
til þjóðarinnar. Varðandi hitt
hvernig hann eigi að taka á
þessu frumvarpi ætla ég hins
vegar ekki að tjá mig.“
„Rauða spjaldið var sýnt á
Austurvelli í vikunni á fjöl-
mennum útifundi. Nú hefur yf-
irgnæfandi meirihluti þjóðar-
innar hafið þetta kort á loft og
ríkisstjórnin á að taka það til
greina,“ segir Ögmundur að lok-
um. ■
Andstaðan eykst
Í lok apríl voru 77 prósent andvíg fjölmiðlafrumvarpinu. Eftir tvær breytingar ríkisstjórnarinnar
á því hefur andstaðan aukist í 81 prósent. Meirihluti þjóðarinnar telur forsetann hafa vald til að
synja lögum staðfestingar og að hann eigi nota valdið núna.
KÖNNUN Andstaða almennings við
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
eignarhald á fjölmiðlum hefur
ekki minnkað eftir breytingar rík-
isstjórnarinnar á því heldur hefur
hún aukist ef eitthvað er, sam-
kvæmt skoðanakönnunum Frétta-
blaðsins.
Í fyrstu könnun blaðsins um
málið, sem gerð var í lok apríl,
voru ríflega 77 prósent þeirra sem
tóku afstöðu andvíg frumvarpinu.
Síðan hefur ríkisstjórnin tvisvar
gert breytingar á því. Eftir fyrstu
breytinguna sýndi skoðanakönnun
blaðsins að tæplega 83 prósent
væru á móti frumvarpinu og sam-
kvæmt skoðanakönnun blaðsins,
sem gerð var í gær, eru tæplega 81
prósent á móti því. Munurinn á
síðustu tveimur könnunum blaðs-
ins er ekki marktækur.
Skoðanakönnun blaðsins frá í
gær sýnir að andstaðan við frum-
varpið er örlítið meiri á meðal
kvenna en karla. Rúmlega 83 pró-
sent kvenna eru andvíg því en 78
prósent karla. Ekki er marktækur
munur á afstöðu fólks eftir búsetu.
Fólk var einnig spurt út í það
hvort það telji að forseti Íslands
hafi vald til að staðfesta ekki lög
og skjóta þeim með því til þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Mikill meirihluti
þeirra sem tóku afstöðu telur að
forsetinn hafi þetta vald eða tæp-
lega 87 prósent. Enginn munur er
á afstöðu fólks eftir kyni eða bú-
setu. Þeim sem telja að forsetinn
hafi vald til að synja lögum stað-
festingar hefur fjölgað síðustu
mánuði því í skoðanakönnun
Fréttablaðsins í mars taldi 81 pró-
sent forsetann hafa þetta vald.
Fréttablaðið spurði einnig að
því hvort forsetinn eigi að neita að
skrifa undir fjölmiðlalögin og
skjóta þeim þannig til þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Mikill meirihluti
þjóðarinnar telur að hann eigi að
gera það. Af þeim sem tóku af-
stöðu segja um 71 prósent að for-
setinn eigi að nota þetta vald sitt í
fjölmiðlamálinu, en 29 prósent
segja að hann eigi ekki að gera
það. Athyglisvert er að fleiri kon-
ur eru á þessari skoðun en karlar.
Um 77 prósent kvenna telja að for-
setinn eigi að synja lögunum stað-
festingar en tæplega 66 prósent
karla. Ekki er marktækur munur á
afstöðu fólks eftir búsetu.
Í könnuninni í gær var hringt í
800 manns og var þeim skipt hlut-
fallslega jafnt eftir kyni og búsetu.
trausti@frettabladid.is
Sigríður Anna
Þórðardóttir:
Einhliða
umfjöllun
KÖNNUN Sigríður Anna Þórðardóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
sagði að niðurstöð-
ur könnunarinnar
kæmu sér ekki á
óvart. „Umræðan í
fjölmiðlum og um-
fjöllun þeirra um
þetta mál hefur
verið mjög ein-
hliða. Niðurstöð-
urnar endurspegla
fyrst og fremst
þessa einhliða umfjöllun fjölmiðla
um málið,“ sagði Sigríður Anna. ■
Össur Skarphéðinsson:
Opinber
ritskoðun
KÖNNUN „Þetta er
með ólíkindum
mikil andstaða við
frumvarpið og það
er áberandi að
fólk er að herðast í
andstöðu sinni. Ég
tel að þetta frum-
varp snúist í
reynd um opin-
bera ritskoðun og
það er að renna
upp fyrir fólki að
þarna er með of-
beldi verið að
skerða grundvallarréttindi
manna,“ sagði Össur Skarphéðins-
son, formaður Samfylkingarinnar.
Það kom honum ekki á óvart
hversu margir töldu að forseti
hefði vald til að synja lögum stað-
festingar og skjóta þeim til þjóð-
aratkvæðis. „En við í Samfylking-
unni höfum haft þá stefnu að tjá
okkur ekki um hvort forsetinn
ætti að beita þessu valdi,“ sagði
Össur. ■
Guðjón Arnar Kristjánsson:
Skoðun þjóðarinnar
KÖNNUN Guðjón Arnar Kristjáns-
son, formaður Frjálslynda
flokksins, finnst niðurstaða
könnunarinnar endurspegla
skoðun þjóðarinnar um fjöl-
miðlafrumvarpið. „Fólk er far-
ið að sjá í gegnum þann mál-
flutning meirihlutans að málið
sé loksins í höfn og allir séu
orðnir á eitt sáttir. Því kemur
þessi niðurstaða mér alls ekki á
óvart og held að þær sýni að al-
menningur er löngu hættur að
trúa því að menn séu að vinna
verkið af einhverju viti. Einnig
held ég að þau orð sem forystu-
menn hafa látið falla um forset-
ann og vanhæfni hans ýti að-
eins undir þá skoðun að forset-
inn eigi einmitt að nýta sér það
vald sem hann hefur í þessu
máli. Hann verður svo auðvitað
sjálfur að leggja dóm á þá af-
stöðu þegar þar að kemur,“ seg-
ir Guðjón. ■
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Segir að ríkisstjórninni beri að hlusta á
rödd þjóðarinnar sem er afgerandi í and-
stöðu sinni við fjölmiðlafrumvarpið.
Fylgjandi
Andvígur
Já
Nei
Já
Nei
Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) frumvarpi ríkisstjórnar-
innar um takmarkanir á eignarhaldi fjölmiðla?
Telur þú að forseti Íslands eigi að neita að skrifa undir
fjölmiðlalögin og skjóta þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu?
Telur þú að forseti Íslands hafi vald til að staðfesta ekki
lög og skjóta þeim með því til þjóðaratkvæðagreiðslu?
80,5
19,5
80,1%
tóku afstöðu
84,6%
tóku afstöðu
78,4%
tóku afstöðu
86,6
13,4
29,0
71,0
Danmörk:
Hryðjuverk
hækka leigu
DANMÖRK Vegna nýrra laga í Dan-
mörku sem sett voru til að auðvelda
löggæslumönnum að koma í veg
fyrir hryðjuverk munu leigjendur
líklega þurfa að greiða hærri húsa-
leigu en ella. Er það vegna þess að
lögin krefjast þess að eftirlitskerfi
séu sett upp í fjöleignahúsum sem
leigð eru út og enn fremur þarf að
setja upp búnað sem fylgist með og
skráir síma og netnotkun leigjenda.
Er vonast til að lögregla eigi auð-
veldara með eftirlit af öllu tagi þeg-
ar slíkur búnaður er kominn hvað
víðast og komi þannig í veg fyrir
hryðjuverk síðar meir. Leigjendur
verða að greiða allan kostnað. ■
Flóttamenn snúa heim:
Rak
stjórnlaust í
biluðu skipi
FÍLABEINSSTRÖNDIN, AP Franskar
hersveitir björguðu hundruðum
líberískra flóttamanna úr biluðu
skipi sem rak stjórnlaust úti
fyrir vesturströnd Afríku í gær.
Komu hersveitirnar með mat og
vatn fyrir flóttamennina og
drógu síðan skipið að landi á
Fílabeinsströndinni.
Vél skipsins, sem skráð er í
Nígeríu, bilaði á þriðjudag úti
fyrir ströndum Fílabeinsstrand-
arinnar. Um borð voru 430
flóttamenn og 20 manna áhöfn
án matar og vatns. Flóttamenn-
irnir voru á leið aftur til Líberíu
eftir að hafa verið á flótta frá
landinu síðustu fjórtán árin
vegna borgarastyrjaldar sem
þar hefur geisað. ■
GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON
„Niðurstaðan sýnir einfaldlega að fólk er
farið að sjá í gegnum málflutning meiri-
hlutans“.
ÖSSUR SKARP-
HÉÐINSSON
„Áberandi að fólk
er að herðast í
andstöðu sinni.“
SIGRÍÐUR
ANNA
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
Um 71 prósent þjóðarinnar telur að forseti Íslands hafi vald til að synja lögum staðfest-
ingar og að hann eigi að nota það til að skjóta fjölmiðlalögunum til þjóðaratkvæða-
greiðslu.