Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 51
39FÖSTUDAGUR 21. maí 2004
HIDETOSHI NAKATA
Missir af Manchester-mótinu.
Japanski hópurinn:
Nakata
ekki með
FÓTBOLTI Fyrirliðinn Hidetoshi
Nakata leikur ekki með Japönum
gegn Íslendingum og Englending-
um á Manchester-mótinu um
næstu helgi. „Ég valdi hann ekki
vegna þess að ég vil gefa honum
tækifæri til að jafna sig af meiðsl-
unum og ná fullum styrk sem
fyrst,“ sagði brasilíski þjálfarinn
Zico. Nakata, sem leikur með
Bologna á Ítalíu, missir einnig af
leik Japana og Indverja í und-
ankeppni HM 9. júní.
Sjö af leikmönnunum 25 sem
Zico valdi leika með félögum í
Evrópu, þeirra á meðal Junichi
Inamoto hjá Fulham og Shinji
Ono, sem leikur með hollenska
félaginu Feyenoord. Í hópnum er
einnig Mitsuo Ogasawara, miðju-
maður hjá Kashima Antlers, sem
var settur út úr hópum fyrr á ár-
inu fyrir agabrot.
Íslendingar og Japanir leika
fyrsta leik mótsins annan sunnu-
dag, Japanir og Englendingar
leika 1. júní en Íslendingar og
Englendingar leika 5. júní. ■
FÓTBOLTI¯ „Það er langur vegur frá
því að ég sé þjálfari Real,“ sagði
José Antonio Camacho, þjálfari
Benfica. Hann segist ekkert hafa
heyrt frá Florentino Perez, for-
seta Real Madrid. „Engar viðræð-
ur hafa farið fram og ég hef ekki
undirritað neitt. Það getur vel
verið að ég sé talinn líklegastur.“
Camacho lék 698 leiki með
Real Madrid, 414 í efstu deild, á
árunum 1973–1989 og var átta
sinnum spænskur meistari með
félaginu. Hann var þjálfari
spænska landsliðsins frá 1998 og
fram yfir HM í Japan og Suður-
Kóreu árið 2002. Hann hefur
þjálfað Benfica frá haustinu 2002
og um síðustu helgi varð hann
bikarmeistari með félaginu.
Camacho segir
að skrokkurinn
minni sig daglega
á ár hans með
Real Madrid.
„Hnén mín, axl-
irnar og ýmsir
aðrir líkamshlut-
ar sýna hin raun-
verulegu ör sem
hljótast af því að
leika fyrir Real
Madrid. Þau
verða þarna þar
til ég dey,“ sagði
Camacho. ■
Næsti þjálfari spænska liðsins Real Madrid:
Tekur Camacho við?
FÓTBOLTI „Ég er himinlifandi að fá
tækifæri til að starfa hjá stóru
félagi eins og Tottenham og í
skemmtilegustu deildakeppni
heims,“ sagði Frank Arnesen.
Daninn tekur við stöðu knatt-
spyrnustjóra hjá Tottenham 1. júlí
af Pavid Pleat. „Félag af þessari
stærðargráðu á alltaf að keppa
um titla og það er það sem við ætl-
um að vinna að,“ segir Arnesen en
Spurs hefur ekki unnið stóran titil
í heil 13 ár eða síðan 1991.
Arnesen hefur leikið og þjálfað
hjá PSV Eindhoven í hálfan annan
áratug og hlutverk hans hjá Spurs
verður að byggja upp þjálfunar-
og unglingastarf að fyrirmynd
félaga á meginlandi Evrópu.
„Ég hef rætt við marga for-
ráðamenn stóru félaganna í
Evrópu og landsliðsþjálfara til
þess að átta mig á hverju Totten-
ham þarf að breyta til þess að
treysta undirstöður félagsins svo
árangur náist,“ sagði Daniel Levy,
stjórnarformaður Tottenham.
Levy sagði að árangur félags-
ins hefði ekki verið í samræmi við
fjárfestingar þess og mikilvægt
væri að byggja upp rétta þjálfun
og fá rétta sérþekkingu til þess að
félagið næði markmiðum sínum.
Arnesen lék með félögum í
Hollandi, Belgíu og á Spáni en
aldrei á Englandi. ■
Daninn Frank Arnesen tekur við af David Pleat:
Titlar til Tottenham
JOSÉ ANTONIO
CAMACHO
Bikarmeistari með
Benfica um síð-
ustu helgi.
TOTTENHAM HOTSPUR
Leitar til meginandsins eftir nýju verklagi.
JAPANSKI HÓPURINN SEM
KEPPIR VIÐ ÍSLAND
MARKVERÐIR
Seigo Narazaki Nagoya
Yoichi Doi Tokyo
Yoshikatsu Kawaguchi Norður-Sjáland
VARNARMENN
Atsuhiro Miura Tokyo Verdy
Tsuneyasu Miyamoto Gamba Osaka
Alex Urawa
Keisuke Tsuboi Urawa
Yuji Nakazawa Yokohama
Akira Kaji FC Tokyo
Makoto Tanaka Iwata
Takayuki Chano Ichihara
MIÐJUMENN
Toshiya Fujita Iwata
Takashi Fukunishi Iwata
Norihiro Nishi Iwata
Shunsuke Nakamura Reggina
Mitsuo Ogasawara Kashima
Junichi Inamoto Fulham
Shinji Ono Feyenoord
Yasuhito Endo Gamba Osaka
SÓKNARMENN
Atsushi Yanagisawa Sampdoria
Naohiro Takahara Hamburg
Tatsuhiko Kubo Yokohama
Masashi Motoyama Kashima
Keiji Tamada Kashiwa
Takayuki Suzuki Heusden-Zolder