Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 52
40 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
AF VELLI
Fabien Barthez, markvörður Marseille,
gengur af velli eftir brottreksturinn í
úrslitaleiknum í UEFA-bikarkeppninni gegn
Valencia í Gautaborg í fyrrakvöld.
FÓTBOLTI
Vængbrotnir við
vítateiginn
Bitlaus sóknarleikur Skagamanna varð þeim að falli í markalausu jafntefli gegn Grindavík
eftir mikla yfirburði í fyrri hálfleik.
FÓTBOLTI Skagamenn naga sig ör-
ugglega í handarbökin eftir að
hafa gert markalaust jafntefli
gegn Grindavík í leik liðanna í
Landsbankadeild karla í knatt-
spyrnu á Akranesi í gær. Úrslitin
þýða að Skagamenn hafa gert tvö
jafntefli í fyrstu tveimur leikjun-
um, báðum á heimavelli, nokkuð
sem er ekki ásættanlegt að mati
Gunnlaugar Jónssonar, fyrirliða
Skagamanna.
Veit ekki hvað gerist
„Ég veit ekki hvað gerist þegar
við komum nálægt teignum. Það
virðist enginn geta sent boltann
fyrir í liðinu, jafnvel ekki menn
sem eru með hundruði stoðsend-
inga á bakinu. Það er alveg ljóst
að við ætluðum okkur að vera með
meira en tvö stig eftir tvo fyrstu
leikina og við verðum að rífa okk-
ur upp af rassgatinu strax í næsta
leik ef við ætlum okkur að vera
með í baráttunni,“ sagði Gunn-
laugur ósáttur í leikslok.
Skagamenn byrjuðu leikinn
mun betur, réðu lögum og lofum í
fyrri hálfleik en gekk illa að skapa
sér færi. Eina almennilega færi
þeirra í fyrri hálfleik fékk Har-
aldur Ingólfsson en hann lét Al-
bert Sævarsson, markvörð Grind-
víkinga, verja frá sér eftir að hafa
komist einn í gegnum vörn Grind-
víkinga á 17. mínútu. Skagamenn
léku undan sterkum vindi í fyrri
hálfleik en þeim gekk afar illa að
koma boltanum inn í vítateig
Grindvíkinga.
Gestirnir komu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og fengu
strax færi á fyrstu mínútu hálf-
leiksins. Grétar Hjartarson skaut
þá í varnarmann af stuttu færi og
hefði að ósekju mátt nýta færið
betur. Guðmundur Bjarnason og
Óðinn Árnason fengu einnig góð
færi til að koma Grindvíkingum
yfir en voru ekki á skotskónum.
Skagamenn vöknuðu til lífsins
undir lok leiksins eftir afar dapr-
an síðari hálfleik og Garðar Gunn-
laugsson, sem kom inn á sem
varamaður, fékk tvö gullin tæki-
færi til að tryggja heimamönnum
sigur þegar komið var fram yfir
venjulegan leiktíma. Honum voru
hins vegar mislagðar fætur í bæði
skiptin og því endaði leikurinn
með markalausu jafntefli.
Stefán með fínan leik
Stefán Þór Þórðarson átti fínan
leik í liði Skagamanna og var gam-
an að sjá hann spila einfaldan fót-
bolta. Hann barðist vel, nöldraði
lítið, var ógnandi í öllum sínum
aðgerðum og spilaði félaga sína
vel uppi. Pálmi Haraldsson var
traustur á miðjunni og Reynir
Leósson var öryggið uppmálið í
vörninni.
Sinisa Kekic og Óðinn Árnason
voru firnasterkir sem miðverðir í
liði Grindvíkinga sem geta litið
bjartari augum á framhaldið þar
sem þessi leikur var mikil fram-
för frá þeim síðasta gegn ÍBV.
Zeljko Sankovic, þjálfari
Grindvíkinga, var býsna brattur
þegar Fréttablaðið ræddi við hann
eftir leikinn. „Þetta var erfiður
leikur en ég held að hann hafi ver-
ið vel spilaður. Ég óska mínum
mönnum til hamingju og líka
Skagamönnum með vel spilaðan
leik. Ég er sáttur með að fá eitt
stig, sérstaklega af því að þetta
var mun betri leikur en sá fyrsti.
Þá voru leikmenn taugaóstyrkir
en núna var baráttan góð og ég er
sannfærður um að leikur liðsins á
aðeins eftir að batna þegar líða
tekur á mótið. oskar@frettabladid.is
FERNANDO MORIENTES
Leikmaður Mónakó. Eini leikmaður Spán-
verja í 23 manna hópnum sem ekki spilar
í heimalandinu. Sést hér fagna marki gegn
Dönum í vináttulandsleik sem fram fór í
Gijon 31. mars.
Landsliðshópur Spán-
verja á EM í Portúgal:
Mista ekki
valinn
FÓTBOLTI Landsliðsþjálfari Spán-
verja, Inaki Saez, hefur tilkynnt
23 manna hóp sinn fyrir Evrópu-
keppnina í Portúgal sem hefst 12.
júní. Mesta athygli vekur að þeir
Miguel Mista frá Valencia, og
Jose Antonio Reyes frá Arsenal,
voru ekki valdir og því greinilegt
að Spánverjar eru ekki á
flæðiskeri staddir með
heimsklassaleikmenn. Mista var
aðalmarkaskorari Valencia sem
vann bæði spænska titilinn og
Evrópukeppni félagsliða í vetur.
Spánverjar halda reyndar afar
fast í þá reglu að velja helst ekki
nema leikmenn sem spila í heima-
landinu. Eina undantekningin er
Fernando Morientes sem spilar
með Mónakó en hann er þar í láni
frá Real Madrid og sleppur því
inn.
HÓPUR SPÁNVERJA Á EM
MARKMENN
Iker Casillas Real Madrid
Santiago Canizares Valencia
Daniel Aranzubia Atletico Bilbao
VARNARMENN
Carlos Marchena Valencia
Carles Puyol Barcelona
Raul Bravo Real Madrid
Cesar Martin Deportivo La Coruna
Ivan Helguera Real Madrid
Michel Salgado Real Madrid
Juanito Gutierrez Real Betis
Gabri Garcia Barcelona
MIÐJUMENN
David Albelda Valencia
Ruben Baraja Valencia
Vicente Rodriguez Valencia
Joaquin Sanchez Real Betis
Juan Carlos Valeron Deportivo La Coruna
Xabi Alonso Real Sociedad
Xavi Hernadez Barcelona
Joseba Etxeberria Atletico Bilbao
FRAMHERJAR
Fernando Morientes Mónakó
Raul Gonzalez Real Madrid
Fernando Torres Atletico Madrid
Albert Luque Deportivo La Coruna
ÍA–GRINDAVÍK 0–0
DÓMARI
Ólafur Ragnarsson Mjög góður
BESTUR Á VELLINUM
Stefán Þór Þórðarson ÍA
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 16–11 (3–3)
Horn 11–2
Aukaspyrnur 9–16
Rangstæður 9–3
Spjöld (rauð) 0–3 (0–0)
FRÁBÆRIR
Enginn
MJÖG GÓÐIR
Enginn
GÓÐIR
Stefán Þór Þórðarson ÍA
Reynir Leósson ÍA
Pálmi Haraldsson ÍA
Óðinn Árnason Grindavík
Sinisa Kekic Grindavík
■ Það sem skipti máli
Keppnin á sunnudagverður 51. Formúlu 1
kappaksturinn í Mónakó.
Fyrst var keppt í Mónakó árið
1929 en furstadæmið var vett-
vangur einnar keppninnar þegar
Formúlan hófst árið 1950. Mónakó
hefur haldið keppnina árlega frá
1955. Argentínumaðurinn Juan
Manuel Fangio á Alfa Romeo sigr-
aði í fyrstu keppninni 21. maí
1950. Aðeins sjö af nítján bílum
luku keppni en tíu bílanna lentu í
árekstri á fyrsta hring.
Juan-Pablo Montoya sigraði í
fyrra en Michael Schumacher
hefur sigrað fimm sinnum á
síðustu tíu árum, tvisvar þegar
hann ók fyrir Benetton-liðið og
þrisvar sem liðsmaður McLaren.
Brasilíumaðurinn Ayrton Senna
sigraði fimm ár í röð, 1989–1993.
■ TALA DAGSINS
51
Léttir fyrir leikmenn enska liðsins Leicester:
Ákærur niðurfelldar
FÓTBOLTI Allar ákærur á hendur
þremur leikmönnum Leicester
sem ákærðir voru fyrir kynferðis-
lega árás í vetur hafa nú verið
felldar niður. Þeir Paul Dockov,
Frank Sinclair og Keith Gillespie
voru ákærðir af þremur þýskum
konum eftir gleðskap á hóteli á La
Manga en þar var Leicester í
æfingaferð. Tríóið þurfti að dúsa í
steininum í eina viku en fengust
lausir gegn greiðslu tryggingar.
Nú er hins vegar komið á hreint
að ásakanirnar voru ekki á rökum
reistar og er það auðvitað mikill
léttir fyrir Leicester sem ekki
hefur átt sjö dagana sæla því liðið
féll nýverið úr ensku úrvals-
deildinni. Tim Davies, yfirmaður
knattspyrnumála hjá Leicester,
hafði þetta að segja.
„Hvað okkur varðar eru þetta
frábærar fréttir en að sama skapi
hefur þetta mál reynst félaginu
mjög erfitt. Hversu mikil áhrif
þetta hafði á félagið er erfitt að
meta en við höfum lært mikið af
þessu. Við vorum ekki stoltir af
hegðun leikmanna okkar þetta
kvöld á La Manga þar sem margir
leikmenn liðsins voru drukknir og
voru með læti. Í framtíðinni verða
settar skýrari og strangari reglur
um hegðun leikmanna þegar þeir
eru í æfingaferðum erlendis,“
sagði Tim Davies.
GRÉTAR OG ÓÐINN
Skagamaðurinn Grétar Rafn Steinsson sendir hér boltann áfram en Óðinn Árnason, varnarmaður Grindvíkinga, er til varnar.
ÁFRAM STRÁKAR
Zeljko Sankovic, þjálfari Grindvíkinga, hvatti sína menn til dáða í leiknum
gegn Skagamönnum í gær.