Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 16
16 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
STAÐIÐ VÖRÐ
Bandarískur hermaður stendur vörð um
hús fyrrum bandamanns Bandaríkja-
manna, Ahmed Chalabi, í Bagdad. Banda-
rískir hermenn og íraska lögreglan réðust
inn í húsið í gær.
Húsaleiga hefur heldur lækkað:
Vaxandi eftirspurn
eftir leiguhúsnæði
HÚSNÆÐISMÁL Eftirspurn eftir
leiguhúsnæði hefur farið vaxandi
að undanförnu og húsaleiga hefur
heldur lækkað frá síðustu áramót-
um.
Guðlaugur Örn Þorsteinsson,
eigandi og framkvæmdastjóri
Leigulistans, sagði að húsaleiga
hefði lítið breyst frá áramótum.
Þó mætti merkja örlitla lækkun ef
eitthvað væri. Meðalleiga á 2ja
herbergja íbúð var upp úr síðustu
áramótum á bilinu 50-70 þúsund
krónur á mánuði. Guðlaugur Örn
sagði að nú væri hún á bilinu 45-
65 þúsund krónur.
Hann sagði enn fremur að eft-
irspurn eftir leiguhúsnæði hefði
aukist að undanförnu.
„Hún eykst oft með vorinu, svo
það getur verið um árstíðatengda
sveiflu að ræða,“ sagði hann. „Það
er töluvert framboð af leiguíbúð-
um núna, af öllum stærðum og
gerðum. Það hefur alltaf verið
minna framboð af stærri eignum,
svo sem einbýlishúsum og raðhús-
um, og minni eftirspurn líka. Það
er eðli markaðarins.“
Spurður hvað fólk væri að
borga í mánaðarleigu fyrir meðal-
raðhús sagði Guðlaugur Örn að
það gæti verið á bilinu 90-150 þús-
und krónur. ■
Norskir blaðamenn:
Um 3.300
í verkfalli
NOREGUR Engin lausn virðist í
sjónmáli í kjaradeilu norskra
blaðamanna, en þeir hafa verið
í verkfalli frá því 12. maí síð-
astliðinn.
Tæplega 2.900 blaðamenn
lögðu þá niður störf þar sem
hvorki hefur gengið né rekið í
samningaviðræðum um bætt
lífeyrisréttindi þeirra. Um 400
blaðamenn bættust í hópinn í
gær og eru alls 3.300 blaða-
menn frá 120 fjölmiðlafyrir-
tækjum í verkfalli.
Aðgerðirnar hafa komið sér
illa fyrir sum blöð og tímarit,
sem ekki hafa fjársterka bak-
hjarla. Ekki er útlit fyrir að
kjaradeilin leysist næstu daga,
en dragist hún á langinn kann
hún að hafa slæm áhrif á rekst-
ur minni fjölmiðla. ■
LEIGUMARKAÐURINN
Eftirspurn eftir leiguhúsnæði hefur farið vaxandi að undanförnu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Val á milli verðtryggðra og
óverðtryggðra langtímalána
Íbúðakaupendum stendur nú til boða að taka óverðtryggð langtímalán. Skuldarar þurfa því
ekki að taka andköf yfir vísitölu neysluverðs. Hugsanlegt að þróun á lánamarkaði verði
þannig að fólk endurfjármagni fasteignalán í auknum mæli.
VIÐSKIPTI Lánaframboð til fast-
eignakaupa einstaklinga hefur
aldrei verið fjölbreyttara. Lántak-
endur geta nú valið á milli inn-
lendra verðtryggðra langtímalána
og lána í erlendri myntkörfu.
Einnig bjóða bankarnir upp á
svokölluð kúlulán eða vaxta-
greiðslulán, þar sem lántakandi
greiðir vexti af láninu, en höfuð-
stóllinn stendur óhreyfður yfir
lánstímann og greiðist í lokin. Jón
Þórisson, aðstoðarforstjóri Ís-
landsbanka, segir þessi lán henta
vel ungu fólki sem er að kaupa
fyrstu eign sína.
„Við þekkjum það vel að
greiðslubyrði er oft mikil við
fyrstu kaup. Samhliða því að fólk
er að kaupa draumaíbúðina er það
að koma sér upp innbúi,“ segir
Jón. Hann segir því kærkomið
fyrir þennan hóp að geta frestað
greiðslubyrðinni.
Íslandsbanki hefur einnig
kynnt til sögunnar óverðtryggð
lán til allt að 40 ára. Hingað til
hefur verðtrygging verið á löng-
um lánum. Lægstu vextir lánanna
miðað við 0-30 prósenta veðhlut-
fall er 6,6 prósenta óverðtryggðir
vextir. Verðtryggð lán Íbúðalána-
sjóðs eru nú með 5,1 prósenta
vöxtum og væntingar eru um ríf-
lega þriggja prósenta verðbólgu
næstu tvö árin að minnsta kosti.
Jón segir óverðtryggðar krónur
aðgengilegar og ódýrar á mark-
aðnum og að bankinn hafi viljað
láta viðskiptavini njóta þess.
Hann segir marga vilja komast út
úr því kerfi verðtryggingar sem
leiði til að óskyldir þættir eins og
bensínverð hafi áhrif á lánin.
„Þróunin hefur verið sú að
verðtrygging hefur verið skilyrt
við lengri og lengri lánstíma, en
menn hafa beðið eftir því að hrint
yrði í framkvæmd þeim ásetningi
að taka verðtrygginguna úr sam-
bandi.“
Lánin eru með breytilegum
vöxtum og fara þeir hækkandi
með hækkandi raunvaxtastigi.
Stýrivextir Seðlabankans eru á
uppleið. Jón segir lántakendur
geta varið sig gegn slíkum breyt-
ingum með því að taka upp ný lán
og endurgreiða gamla lánið. „Slík
uppgreiðsla er án nokkurs upp-
greiðslugjalds. Í nýju húsnæðis-
lánakerfi verður það ekki mögu-
legt. Húsnæðislán eru hluti af
lánakerfi banka nær alls staðar í
heiminum. Þegar vextir fóru hratt
lækkandi í Bandaríkjunum og
fasteignaverð hafði hækkað,
nýttu margir tækifærið og endur-
fjármögnuðu lán sín.“
Jón segist vel geta séð fyrir sér
að slík þróun muni eiga sér stað
hér á landi einnig.
„Það eru mikil viðskipti með
slíka endurfjármögnun til dæmis
í Bandaríkjunum og á Norður-
löndunum.“
haflidi@frettabladid.is
AÐSTOÐARFORSTJÓRI ÍSLANDSBANKA
Jón Þórisson segir óverðtryggðar krónur aðgengilegar og ódýrar á markaðnum og að
bankinn hafi viljað láta viðskiptavini njóta þess. Hann segir marga vilja komast út úr verð-
tryggingakerfinu.
REYÐARFJÖRÐUR Slysavarnarfélagið
Landsbjörg hefur fengið nýtt
björgunarskip. Skipið er annað
tveggja sem félagið festi nýverið
kaup á og kom það til Reyðar-
fjarðar með Skaftafellinu á dög-
unum.
Skipinu er ætlað að leysa Haf-
björgina í Neskaupstað af hólmi
en auk þess er væntanlegt annað
skip með haustinu. Björgunar-
skipin eru bæði flutt notuð frá
Bretlandseyjum en þau eru hönn-
uð af konunglega breska sjóbjörg-
unarfélaginu. Samskip styrkja
bæði kaup og flutning skipanna til
landsins. ■
Slysavarnarfélagið Landsbjörg:
Nýtt björgunarskip
BJÖRGUNARSKIP
Slysavarnarfélagið Landsbjörg hef-
ur fengið nýtt björgunarskip.