Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 26
26 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
■ AFMÆLI
■ ANDLÁT
■ JARÐARFARIR
Þennan dag árið 1991 varð RajivGandhi, leiðtogi Indlands, fyr-
ir sprengingu í Madras, höfuð-
borg Tamil Nadu. Gandhi sem var
46 ára og fyrrum forsætisráð-
herra Indlands var staddur á
kosningaferðarlagi þegar
sprengjan, sem var falin í blóma-
körfu, sprakk með þeim afleiðing-
um að 15 manns létu lífið.
Árið 1987, í forsætisráðherra-
tíð Gandhis, gerði hann misheppn-
aða tilraun til að koma á friði á Srí
Lanka. Hann sendi friðarsveit inn
í landið en sá leikur naut ekki vin-
sælda, hvorki í heimalandinu né
annars staðar, og var ekki annað
stætt en að senda liðið heim árið
1990. Óánægjan fæddi af sér hóp
uppreisnarmanna sem bundust
samtökum og skírðu sig Tamil
Tiger. Meirihluti íbúa á Tamil
Nadu tilheyrðu samtökunum sem
voru strax grunuð um verknaðinn.
Síðar kom í ljós að þetta var
sjálfsmorðsárás og að einn kven-
kyns meðlimur samtakanna hefði
fórnað sér í árásinni. Var meðlim-
um Tamil Tiger bannað að dvelja í
Indlandi í ár eftir morðið.
Dauði Gandhis var áfall fyrir
heimsbyggðina og markaði enda-
lok Nehru-veldisins sem hafði
stjórnað Indlandi að mestu óslitið
síðan Indland öðlaðist sjálfstæði
frá Bretlandi. Gandhi hafði tekið
við forsætisembættinu af móður
sinni Indiru Gandhi en hún hafði
verið drepin af eigin lífvörðum
árið 1984. ■
Arngerður Björgvinsdóttir, Ásgarði 21,
lést þriðjudaginn 20. maí. Útför
hefur farið fram í kyrrþey.
Guðjón Jónsson, Þrúðvangi 13, lést
sunnudaginn 9. maí. Útför hefur
farið fram í kyrrþey.
Gunnar Björnsson, Hornbrekku, Ólafs-
firði, lést þriðjudaginn 18. maí.
Ingvar Daníelsson, Hólabergi 76,
Reykjavík, lést sunnudaginn 16.
maí.
Hallmar Sigurðsson
leikstjóri er 52 ára.
Jóhann Ingi Gunnarsson
sálfræðingur er 50 ára.
Edda gaf út bókina mína Þú get-ur hætt að reykja, milli jóla og
nýárs og í tilefni reyklausa dagsins
31. maí langar okkur að heyra
hvernig hefur gengið,“ segir Guð-
jón Bergmann. „Því erum við að
biðja fólk um að senda reynslusög-
ur sínar á netfangið reyk-
laus@edda.is eða með pósti á Eddu,
Suðurlandsbraut 12. Við viljum sjá
hvernig hefur gengið, því það er
tvennt ólíkt að hætta að reykja
eftir bók en að fara á námskeið.“
Bókin er byggð á námskeiðum
Guðjóns, sem hann hefur verið
með frá 1997. „Þegar ég byrjaði
voru sex mánuðir frá því ég hætti
og var uppnuminn af þessu. Síðan
þá hefur mig aldrei langað til
kveikja í og námskeiðahaldið hefur
líka hjálpað mér. Aðalatriðið er að
undirbúa sig vel. Ef maður hættir
að reykja og heldur áfram að langa
til að kveikja sér í löngu síðar, þá
er það ekki líkamlegt, heldur bara
vani. Eina leiðin til að verða frjáls
frá þessu til frambúðar er því að
breyta hugsunarhættinum og það
er hægt.“
Besta reynslusagan verður birt
í auglýsingu í blöðum á reyklausa
daginn og allar sögurnar verða
birtar á netinu. Guðjón segist
vonast til að þessar sögur eigi eftir
að verða öðrum innblástur til að
hætta. „Það verða svo vegleg
bókaverðlaun að eigin vali í boði.
Mín reynsla eftir að ég hætti að
reykja er að ég hef aldrei lesið eins
mikið. Ég tók þá ákvörðun áður en
ég hætti að vera alltaf með bók
með mér. Ef mig grípur eirðar-
leysi, þá gríp ég í hana þó það sé
ekki nema í stuttan tíma.“ ■
SAMKEPPNI
REYKLAUSI DAGURINN 31. MAÍ
■ Leitin að bestu reynslusögunni.
Mikilvægt að undirbúa sig vel
Það er nú búið að vera svo líf-legt í kringum mig að undan-
förnu að ég var búinn að gleyma
afmælinu. Það er í raun eins gott
að ég var minntur á viðburðinn,
því í framhaldinu getur maður
kannski farið að skipuleggja eitt-
hvað skemmtilegt,“ viðurkennir
Þorsteinn Stephensen tónleika-
haldari, aðspurður hvernig hann
hyggst eyða afmælisdeginum
sem er í dag. „Vinnan hefur haft
forgang að undanförnu og ég
geri ráð fyrir því að engin breyt-
ing verði á, þó afmælisdagurinn
sé runninn upp. Ég tek á móti
stórsveitinni Pixies í dag og
kannski má þess vegna segja að
þeir strákar verði afmælisgjöfin
mín í ár.“ Helgin verður annasöm
hjá Þorsteini, en leiðsögumanna-
túrar í félagi við bandarísku
Smáálfanna taka við í framhaldi
af komu sveitarinnar á klakann.
„Dagskráin er í sjálfu sér ekki
þaulskipulögð. Þetta ræðst allt af
óskum sveitarinnar og svo líka
hversu miklu fjöri þeir eru að
leita eftir.“ Fyrri tónleikar sveit-
arinnar verða haldnir á þriðju-
dag og er enn hægt að nálgast
miða, en uppselt er á seinni tón-
leikana sem haldnir verða á mið-
vikudag. Að lokinni Íslandsheim-
sókn Smáálfanna, tekur við und-
irbúningsvinna vegna AirWaves-
hátíðarinnar, sem haldin verður
hér í haust. „Þetta er ákveðin
vinna en mjög skemmtileg. Við
erum þegar komnir í samband
við fjöldann allan af skemmti-
legu fólki sem hefur hug á að
koma og spila á hátíðinni. Við
erum að raða þessu saman
núna.“ Þorsteini er þó alsendis
ókunnugt um allar leynilegar af-
mælisveislur, haldnar sér til
heiðurs. „Ef slíkt partí er í bí-
gerð, hefur það farið ansi leynt.
Reyndar er kærastan mín er-
lendis, svo ég reikna ekki með
miklum hátíðarhöldum, en
kannski maður reyni þó að laum-
ast í blóðugan afmælismálsverð
með kvöldinu. Mér vitanlega
hafa þó engir aðrir viðburðir
verið skrásettir.“ ■
AFMÆLI
ÞORSTEINN STEPHENSEN
■ er 37 ára í dag.
Fær bandarísku Smáálfana að gjöf
ROBERT MONTGOMERY
Kvikmyndastjarnan Robert Montgomery
var fæddur á þessum degi árið 1904.
21. MAÍ
■ ÞETTA GERÐIST
1840 Nýja Sjáland verður að breskri
nýlendu.
1881 Clara Barton stofnar Rauða kross-
inn í Bandaríkjunum.
1927 Charles Lindbergh lendir í París
eftir að hafa flogið vél sinni, The
Spirit of St. Louis, án millilend-
ingar frá New York til Parísar.
1945 Leikarinn Humprey Bogart giftist
leikkonunni Lauren Bacall.
1979 Elton John gerist fyrsta vestræna
rokkstjarnan til að koma fram á
tónleikum í þáverandi Sovétríkj-
unum.
1980 Stjörnustríðsmyndin „The Empire
Strikes Back“ er frumsýnd.
2000 Leikarinn Sir John Gielgud deyr
96 ára að aldri.
RAJIV GANDHI
Dauði Gandhis var áfall fyrir gjörvalla
heimsbyggðina.
Rajiv Gandhi lætur lífið
LEIÐTOGI INDLANDS
■ Rajiv Gandhi, varð fyrir sjálfsmorðs-
sprengingu samtakanna Tamil Tiger á
þessum degi árið 1991 og lét
samstundis lífið.
21. MAÍ 1991
GUÐJÓN BERGMANN
Vill heyra reynslusögur þeirra sem hafa hætt að reykja.
Með Pixies í farteskinu og
blóðuga steik undir kvöldið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
JUDGE REINHOLD
Leikarinn sem náði mestum hæðum í
Beverly Hills Cop-myndunum er 47 ára í
dag.
10.30 Ingibjörg Ólafsdóttir, áður til
heimilis að Dalbraut 20, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju.
13.30 Gyða Jónína Ólafsdóttir verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
14.00 Ósk Guðrún Gestsdóttir, Sól-
vallagötu 46, Keflavík, verður jarð-
sungin frá Njarðvíkurkirkju, Innri-
Njarðvík.
16.00 Friðrik Friðriksson, Birkiteigi 4c,
Keflavík, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju.
ÞORSTEINN STEPHENSEN
TÓNLEIKAHALDARI
„Gleymdi eigin afmæli en
fær erlenda stórsveit að gjöf“
„Ég myndi vilja heita Blær,“ segir
Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona.
„Mér finnst þetta nafn bara mjög
fallegt og ég veit ekki um neina ís-
lenska Blæ, nema í Brekkukots-
annál. Í þessu nafni er svo mikil
dulúð en samt er það svo mjúkt og
draumkennt. Þetta er bara mjög
fallegt nafn.“
HVAÐ VILDIRÐU HEITA...?
[ DIDDÚ ]