Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 48
36 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR Verjum tjáningarfrelsið a s k o r u n . i s Málið er að hann komst ekki.Hann átti að lenda klukkan 11 en birtist ekki með vélinni og við fengum ekki að frétta þetta fyrr en um eittleytið,“ segir Helgi Már Bjarnason, umsjónarmaður Party Zone, sem ætlaði að standa fyrir tónleikum með hinum heimsþekkta plötusnúð Sasha á Nasa á miðvikudagskvöldið. Gestir sem töldu sig heppna að hafa fengið miða mættu á staðinn og biðu lengi eftir að Sasha færi að sýna listir sínar en allt kom fyrir ekki. Þónokkur ókyrrð komst á mannskapinn þegar ljóst varð að hann myndi ekki mæta og alls kyns sögur fóru á kreik sem áttu að skýra fjarveru hans. Sú rétta mun vera að hann lenti í um- ferðarteppu á leiðinni á Heathrow og mætti korteri áður en vélin átti að fara í loftið. „Tónleikaskipu- leggjandinn hans var hérna og bú- inn að rigga upp öllu dótinu, þannig að við áttum ekki von á öðru en að hann myndi koma.“ Aðspurður að því hvort gestir miðvikudagskvöldsins fái miða sína endurgreidda segir Helgi að þeir eigi erfitt um vik með slíkt. „Það er erfitt að endurgreiða mið- ana, því það er enginn með miða í höndunum. Þegar við fréttum þetta fórum við að hleypa frítt inn, þannig að það var ekki hægt að láta fólk fá miðana til baka en við munum heyra í fólki og athuga hvað er hægt að gera. Við höfum verið að halda Party Zone kvöld í tíu ár, þetta hefur aldrei gerst áður og það er ofsalega erfitt að bregðast við þessu.“ Það er þó ekki öll von úti fyrir aðdáendur Sasha, því von er á kappanum eftir einungis tvær vikur. „Við náðum að bóka hann aftur laugardaginn 5. júní og það er eiginlega ótrúlegt að það sé hægt að bóka Sasha eftir ein- ungis tvær vikur og það á laug- ardegi. Í staðinn ætlar hann að fresta för til Rómar. Þá munum við líka hafa miðaverðið lágt, eins og þetta sé bara íslenskur plötusnúður.“ ■ Sleppir Róm til að bæta skaðann PLÖTUSNÚÐURINN SASHA Olli mörgum vonbrigðum með því að missa af vélinni. TÓNLIST TÓNLEIKAR SASHA ■ frestað um tvær vikur. Fönkhljómsveitin Jagúarásamt útvöldum tónlistar- mönnum mun í kvöld leika valin lög úr safni Tómasar R. Einars- son, bassaleikara og tónskálds, í nýjum útsetningum. „Ég viðraði þessa hugmynd við Tómas fyrir um tveimur árum og honum leist vel á. Hringdi í mig daginn eftir og var orðinn mjög spenntur,“ seg- ir Samúel J. Samúelsson, sem hefur tekið að sér að útsetja tón- listina og stjórna stórsveitinni í kvöld. „Við ákváðum að nota Jagúar sem grunn og bæta við hljóðfæraleikurum. Þetta verð- ur fjórtán manna hljómsveit; þrír saxófónar, þrír trompetar, tvær básúnur, slagverksleikari og plötusnúður fyrir utan þetta hefðbundna.“ Meðal hljóðfæraleikaranna sem stíga á stokk í kvöld eru Sigtryggur Baldursson, Sigurð- ur Flosason, Óskar Guðjónsson, plötusnúðurinn Gísli Galdur og hinn heimsfrægi sænski trompetleikari Lasse Lindgren. „Hann er mega trompetleik- ari. Ég heyrði hann spila á ein- hverri plötu og hugsaði með mér að það væri gaman að fá hann til að spila með okkur,“ segir Samúel, sem er afar sáttur við að hafa fengið Svíann til liðs við sig. Tónlistin sem sveitin leikur í kvöld spannar allt að fimmtán ár af ferli Tómasar. „Tómas gaf mér frjálsar hendur og ég valdi mín uppáhaldslög af plötum hans og útsetti þau,“ segir Sam- úel, sem ber mikla virðingu fyrir bassaleikaranum. „Hann hefur kýlt á hlutina og er senni- lega afkastamesti íslenski djass- tónlistarmaðurinn.“ Samúel mun snúa upp á tón- list Tómasar í von um að gera hana dansvænni, nokkurs konar Tómas R. með mjaðmahnykk í anda Jagúar. Tónleikarnir verða á NASA í kvöld og annað kvöld og hefjast klukkan 21. kristjan@frettabladid.is TÓNLEIKAR JAGÚAR HELDUR DANSIBALL. ■ Fjórtán manna sveit með plötusnúði og heimsfrægum trompetleikara. STÓRSVEIT JAGÚAR Fjórtán manna sveit mun spila lög Tómasar R. Einarssonar í nýjum útsetningum á NASA í kvöld. Tómas R. með mjaðmahnykk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.