Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 6
6 21. maí 2004 FÖSTUDAGURVEISTU SVARIÐ? 1Hvað heitir nýi forsætisráðherraIndlands? 2Hvað er gert ráð fyrir að mörgskemmtiferðaskip komi til landsins í sumar? 3Hver var valinn besti leikmaðurinn íRemax-deild karla í handbolta? Svörin eru á bls. 50 RÓM, AP Ítalskir hermenn verða kyrrir í Írak þar til landið getur stjórnað sér sjálft án vandkvæða. Þetta sagði Silvio Berlusconi, for- sætisráðherra Ítalíu, á ítalska þinginu í gær. Berlusconi er undir miklum þrýstingi að kalla hermennina heim sérstaklega eftir að fyrsti ítalski hermaðurinn lét lífið í Írak fyrr í vikunni. Aukin mótspyrna í Írak og myndir af ofbeldi gegn íröskum föngum hefur einnig orð- ið til þess að fleiri telja að kalla eigi hermennina heim. Berlusconi varði þó ákvörðun sína um áframhaldandi hersveitir í Írak og bað stjórnarandstöðuna meðal annars um að „gleyma kosningabaráttunni í eitt augna- blik“, en evrópskar þingkosningar verða haldnar í næsta mánuði. ■ FJÖLMIÐLAFRUMVARP Andstaða við fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnar- innar er mikil og vaxandi og mik- ill meirihluti telur að forsetinn ætti að skjóta frumvarpinu til þjóðaratkvæðis, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, Rúmlega 80% þeirra sem tóku af- stöðu voru andvíg fjölmiðlafrum- varpinu og 71% töldu að forsetinn ætti að beita neitunarvaldi sínu. Niðurstöður könnunarinnar koma Kristni H. Gunnarssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, ekki á óvart. „Ég fagna þessum niðurstöðum og vona að menn taki mið af þeim í störfum sínum á þinginu. Þetta er einfaldlega í samræmi við það sem að ég tel að sé skoðun þjóðarinnar og hafi alltaf verið í þessu máli.“ Kristinn benti á að það væri áhugavert að sjá að kannanir hafi sýnt vaxandi andstöðu við frumvarpið þrátt fyrir breytingarnar á því. „Ef eitt- hvað vit væri í frumvarpinu og breytingunum á því ætti fylgi við málið að vaxa en ekki minnka,“ segir hann. Flokksbróðir Krist- ins og þingflokks- formaður Fram- sóknarflokks- ins, Hjálmar Árnason, er ekki sammála. „Þessi niður- staða kemur mér í sjálfu sér ekki á óvart því að mér finnst hin opinbera um- ræða hafa verið mjög einhliða í málinu og minna snúist um kjarna málsins. Kjarninn er hvort hér eigi að vera fákeppni og sam- þjöppun á neytendamarkaði. Um- ræðan og umfjöllunin hefur ekki verið á þeim nótum nema í mjög litlum mæli og þess vegna kemur þessi niðurstaða mér ekki á óvart,“ sagði Hjálmar og bætti við: „Það er hins vegar flest sem bendir til þess að þessi lög verði samþykkt og lýðræðislega kjörnir fulltrúar leggi það síðan undir dóm kjósenda að þremur árum liðnum.“ Hann vildi ekki segja til um hvaða afleiðingar það hefði ef forsetinn synjaði lögun- um staðfestingu nema að með því væri brotið blað í þeirri hefð sem hefur skapast um forsetaembættið. „Það hefur við ríkjandi að forset- inn væri þjóðhöfðingi, sameining- artákn og hafinn yfir pólitískar deilur. Með þessu væri hann að breyta því hlutverki og ég myndi óttast að í kjölfar þess að forseta- kosningar fari að verða pólitískar sem ég vona að þær verði aldrei,“ sagði Hjálmar, en Kristinn flokks- bróðir hans vildi ekki tjá sig um hvort forsetinn ætti að beita neit- unarvaldi sínu. Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ekki gefið uppi hvaða afstöðu hún mun taka við lokaafgreiðslu fjölmiðla- frumvarpsins. Hún vildi ekki tjá sig um niður- stöður könnunar- innar við Frétta- blaðið. borgar@frettabladid.is ELDSNEYTISVERÐ HÆKKAR Bensínlítrinn er nú kominn upp í 101 krónu hjá Atlantsolíu eftir hækkun. Atlantsolía: Eldsneytis- verð hækkar ELDSNEYTI Bensínlítrinn hjá Atl- antsolíu kostar nú 101 krónu og lítrinn af dísilolíu 43,50 krónur eftir að félagið hækkaði verð á eldsneyti í vikunni. Fyrr í þessum mánuði hækk- uðu önnur olíufélög eldsneytis- verð og er bensínverð á 95 oktana bensíni almennt um 109,20 krónur lítrinn með þjónustu. Í sjálfsaf- greiðslu er lítrinn frá 102,50 til 104,20 krónur. Dísilolíulítrinn er frá 43,90 til 45,60 í sjálfsaf- greiðslu. Lægsta verð á eldsneyti er hjá Orkunni Skemmuvegi. Þar er lítrinn á 95 oktana bensíni 96,8 krónur og dísilolíulítrinn á 38,3. ■ Fjölmiðlafrumvarp: Ungir fram- sóknarmenn enn á móti FJÖLMIÐLAFRUMVARP Frumvarp um eignarhald á fjölmiðlum nýtur ekki stuðnings ungra framsóknar- manna, þrátt fyrir að nýjustu b r e y t i n g a r - tillögur komi að einhverju leyti til móts við sjón- armið þeirra. „Þessar breyt- ingar ganga ekki nógu langt að okkar mati,“ sagði Haukur Logi Karlsson, formaður Sam- bands ungra f r a m s ó k n a r - manna, við Fréttablaðið en SUF mótmælti frumvarpinu með ályktun fyrir rúmri viku. Forystumenn ýmissa aðildar- félaga SUF hafa að undanförnu birt harðorðar greinar gegn frum- varpinu. „Ég held að það sé mikil og almenn óánægja með þetta mál meðal ungra framsóknarmanna. Þessar greinar lýsa óánægju þeirra sem þær skrifa,“ sagði Haukur Logi. ■ RÚTA FULL AF UNGLINGUM Í ÁREKSTRI Rúta full af belgískum unglingum lenti í árekstri við fólksbíl á hraðbraut í suðurhluta Frakklands. Tveir voru í fólks- bílnum og létust en allir farþegar rútunnar sluppu ómeiddir. KGB-SKJÖL GERÐ OPINBER Lett- neska þingið ákvað á miðvikudag að gera opinber þúsundir skjala um sovésku leyniþjónustuna, KGB. Skjölin urðu eftir í landinu þegar Sovétríkin liðuðust í sund- ur árið 1991. Grænland: Ræða fram- tíð Thule GRÆNLAND Umræður eru hafnar milli Dana og Grænlendinga ann- ars vegar og Bandaríkjamanna hins vegar um framtíð herstöðvar þeirra síðarnefndu við Thule á Grænlandi. Vilja heimamenn að stöðin verði skilgreind sem hluti af varnarkerfi Bandaríkjamanna en slíkt mundi tryggja veru hers- ins áfram á staðnum. Eru enn fremur uppi hugmynd- ir um að uppfæra búnað stöðvar- innar til að nútímavæða hana. Bandaríkjamenn eru þó ekki reiðubúnir að greiða Grænlend- ingum fyrir eins og vonir land- stjórnarinnar stóðu til. ■ ■ EVRÓPA SKRUDDA Eyjarslóð 9 • 101 Reykjavík S. 552 8866 • skrudda@skrudda.is Tilboðsverð kr. 1990 BUSH OG BERLUSCONI Berlusconi kom beint af fundi við Bush í ítalska þingið þar sem hann varði ákvörðun sína um að kalla ítalska her- menn ekki heim frá Írak. Berlusconi: Hermennirnir kyrrir í Írak Vonar að þingið taki mið af niðurstöðunum Kristinn H. Gunnarsson segir niðurstöðurnar í samræmi við skoðun þjóðarinnar. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir einhliða umræðu um fjölmiðlafrumvarpið skýra niðurstöðu skoðanakönnunar. HAUKUR LOGI KARLSSON Segir almenna and- stöðu meðal ungliða flokksins við fjöl- miðlafrumvarpið. Flugfélagið Atlanta: Vísar gagn- rýni á bug KJARAMÁL Talsmaður Atlanta harmar að formaður Frjálsa flug- mannafélagsins skuli dreifa óhróðri um flugfélagið í fjölmiðl- um. Haraldur Óskarsson, formað- ur FFF, lét hafa eftir sér að Atl- anta virti ekki gerða samninga en í félaginu eru flestir þeir íslensku flugmenn sem starfa hjá Atlanta. Segir í tilkynningu frá flug- félaginu að engin loforð hafi ver- ið gefin um forgang félagsmanna FFF til starfa fyrir Atlanta og þeim tilboðum sem þó hafi verið gerð verði alfarið hafnað. FFF stendur hins vegar við yfirlýs- ingu sína. ■ KRISTINN H. GUNNARSSON „Ef eitthvað vit væri í frumvarpinu og breyt- ingunum á því ætti fylgi við málið að vaxa en ekki minnka,“ segir Kristinn. HJÁLMAR ÁRNASON Segir að lýðræðislega kjörnir fulltrúar leggi verk sín undir dóm kjósenda að þremur árum liðnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.