Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 54
FÓTBOLTI „Við vorum náttúrlega
hrædd að mæta Íslandsmeistur-
unum á þeirra heimavelli. Við
lögðum það þannig upp að vera
þoinmóð, bíða eftir þeim og láta
þær koma,“ sagði Andrés Ellert
Ólafsson, þjálfari Fjölnis.
Nýliðar Fjölnis stóðu sig vel
gegn Íslandsmeisturum KR á KR-
velli 1. umferð Landsbanka-
deildar kvenna. Staðan var jöfn í
leikhléi, 1-1, en KR-ingar skoruðu
tvisvar seint í leiknum og tryggðu
sér stigin þrjú.
„Við höfum ekki spilað á móti
neinu úrvalsdeildarliði í vetur og
við vildum sjá hvar styrkleiki
okkar lægi,“ sagði Andrés. „Allir
spá okkur hrikalegri útreið í þess-
ari deild og við þurfum bara að fá
sjálfstraust.“
Fjölni var spáð áttunda sætinu
í Landsbankadeildinni í sumar en
miðað við frammistöðu liðsins
gegn KR er neðsta sætið ekki á
dagskrá. „Nei. Við erum að
byggja upp í Grafarvogi og við
þurfum að halda meistaraflokkn-
um í deildinni,“ sagði Andrés.
16 ára markaskorari
Hólmfríður Magnúsdóttir
skoraði fyrsta mark leiksins með
skoti úr miðjum vítateig eftir
sendingu frá Önnu Berglindi
Jónsdóttur. Elísa Pálsdóttir jafn-
aði fimm mínútur fyrir leikhlé.
Edda María Birgisdóttir sendi
boltann inn fyrir KR-vörnina,
Elísa vann kapphlaupið við varn-
armennina og lyfti boltanum yfir
markvörð KR. Elísa, sem er ný-
lega orðin 16 ára, má vera stolt af
frumraun sinni í efstu deild. Hún
sagði við Fréttablaðið eftir leikinn
að það hafi verið mjög erfitt að
spila gegn landsliðsmönnum KR
en hún væri sátt við sína frammi-
stöðu.
„Við tókum sénsinn í síðari
hálfleik að vera ekki að bíða leng-
ur eftir því hvort við lentum und-
ir eða ekki,“ sagði Andrés. „Við
ákváðum að bæta manni í sóknina.
Því miður gekk það ekki og við
fengum á okkur mörk.“
Sólveig Þórarinsdóttir kom KR
yfir að nýju korteri fyrir leikslok
með skoti af um 30 metra færi.
Fjórum mínútum síðar braut
varnarmaður Fjölnis á Hólmfríði
Magnúsdóttur innan teigs. Edda
Garðarsdóttir skoraði vítas-
spyrnunni og torsóttur sigur
meistaranna var í höfn. „Já þetta
var mjög erfiður leikur,“ sagði
Halldóra Sigurðardóttir, þjálfari
KR. „Það er mikil barátta í þeim
en við gerðum okkur þetta líka
erfitt. Við vorum ekki að spila
boltanum í fætur eða gera þetta
einfalt. Þetta var svolítið mikið
um kýlingar og einstaklings-
framtak, sérstaklega í fyrri hálf-
leik. Við vorum ekki að nýta okk-
ur auðveld hlaup samherja.“
KR-ingar leika næst við Val og
þurfa að leika betur en gegn
Fjölni. „Já, við þurfum að laga
ýmislegt fyrir Valsleikinn,“ sagði
Halldóra.
Ekkert annað í stöðunni en
að berjast
„Þetta var ekki nógu gott og ég
er ósátt með frammistöðu leik-
manna en það var greinilegt að
liðið mætti alls ekki tilbúið til
leiks,“ sagði Auður Skúladóttir,
þjálfari og leikmaður Stjörnu-
stúlkna, eftir að liðið hafði gert
jafntefli við Þór/KA/KS, 1-1 í
Garðabæ í gærdag í fyrstu um-
ferð Landsbankadeildar kvenna. Í
byrjun leiks stefndi allt í algjöra
einstefnu heimastelpna sem sóttu
af krafti og elju. Á elleftu mínútu
dró svo til tíðinda en þá fengu
Stjörnustúlkur vítaspyrnu eftir að
Margrét Vigfúsdóttir handlék
knöttinn á marklínu. Dómarinn
gaf Margréti rauða spjaldið og
Guðrún Halla Finnsdóttir skoraði
síðan úr vítinu af öryggi. Stjörnu-
stelpur voru því með pálmann í
höndunum en þeim tókst ekki að
færa sér það í nyt. Í raun gerðist
fátt markvert þangað til gestirnir
jöfnuðu með fallegu skoti Þóru
Pétursdóttur átján mínútum fyrir
leikslok. Eftir jöfnunarmarkið
vaknaði Stjarnan síðan aðeins til
lífsins og sótti nokkuð undir lokin
en náði ekki að gera sér mat úr
því. „Við vorum að spila vel fyrstu
tíu mínúturnar eða á meðan það
voru jafnmargir leikmenn í liðun-
um en síðan sáum við ekki til sól-
ar fyrr en þær jafna leikinn. Það
er alveg á tæru að við verðum ein-
faldlega að spila eins og samstillt
lið í næsta leik og laga hugar-
farið,“ bætti Auður við.
Vonandi í efri hluta
Jónas Sigursteinsson, þjálfari
Þór/KA/KS, var sáttur við sínar
stelpur eftir leik. „Við náðum í
þetta stig fyrst og fremst á mik-
illi baráttu og eftir rauða spjaldið
og markið sem við fengum á okk-
ur í byrjun var ekkert annað í
stöðunni en að berjast eins og
ljón og ég er mjög ánægður með
frammistöðuna. Liðið er ungt að
árum en það getur með svona
góðri baráttu náð í slatta af stig-
um. Hvað deildina varðar þá
kemur hún líklegast til með að
skiptast í tvennt og vonandi
náum við að vera í efri hlutunum
en það kemur bara í ljós,“ sagði
Jónas. ■
42 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
LOTTÓ VEGNA LIVERPOOL
Taílenska stjórnin hefur samþykkt útgáfu
lottómiða til þess að fjármagna kaup á
30% hlut í enska knattspyrnufélaginu
Liverpool.
FÓTBOLTI
Nýliðarnir stóðu
í meisturunum
KR vann Fjölni 3–1 í Landsbankadeild kvenna en staðan var jöfn
í leikhléi. Þór/KA/KS náði að jafna leikinn í Garðabæ þrátt fyrir að
vera leikmanni færri í 79 mínútur.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
18 19 20 21 22 23 24
Föstudagur
MAÍ
Undanúrslit vesturdeildarinnar í úrslitakeppni NBA í körfubolta:
Timberwolves heppnir gegn Kings
KÖRFUBOLTI Það er orðið ljóst að það
verður Minnesota Timberwolves
sem fær það erfiða verkefni að
mæta Los Angeles Lakers í úrslit-
um vesturdeildarinnar. Tim-
berwolves mætti Sacramento
Kings í fjörugum oddaleik.
Timberwolves byrjaði mun
betur, náði mest 13 stiga forystu í
fyrri hálfleik og áttu Sam Cassell
og Kevin Garnett stórleik. Cassell
gekk þó ekki heill til skógar, átti við
bakmeiðsli að stríða. Athygli vakti
að Peja Stojavokic hjá Sacramento
Kings, sem á að vera ein besta
skytta deildarinnar, hitti aðeins úr
þremur af 12 skotum sínum. Eftir
að staðan hafði verið 41-31 í hálf-
leik, Timberwolves í vil, tók Kings
til sinna ráða í þriðja leikhluta og
náði með miklu harðfylgi að kom-
ast yfir undir lok fjórðungsins. Í
síðasta leikhlutanum náði Tim-
berwolves góðu forskoti en var þó
stutt frá því að glopra því frá sér á
síðustu mínútunum. Eftir góða
þriggja stiga körfu frá Doug
Christie var staðan orðin 81-80 og
tæpar 17 sekúndur eftir. Kings
braut strax á Cassell sem hitti úr
báðum skotum sínum. Chris
Webber voru síðan mislagðar hend-
ur í þriggja stiga skoti þegar flaut-
an gall og Minnesota komið í úrslit
vesturdeildarinnar í fyrsta sinn á
ferlinum. Latrell Sprewell og Sam
Cassell áttu mjög góðan leik en það
var stórleikur Kevin Garnett sem
gerði gæfumuninn. Garnett skor-
aði 32 stig, tók 21 frákast, stal fjór-
um boltum og varði heil fimm skot.
„Mér fannst ég þurfa að láta til mín
taka,“ sagði Garnett, hæstánægður
að leik loknum.
„Ég vildi ekki sjá eftir neinu í
dag, að ég hefði ekki gefið allt mitt
í verkefnið,“ bætti Garnett við. Flip
Saunders, þjálfari Timberwolves,
var í skýjunum með sinn mann.
„Hann hefur aldrei verið betri,“
fullyrti þjálfarinn. Timberwolves
mætir Lakers í nótt og er leikurinn
í beinni útsendingu á Sýn. ■
GARNETT FRÁBÆR
Kevin Garnett skoraði 32 stig, tók
21 frákast, stal fjórum boltum
og varði fimm skot.
■ ■ LEIKIR
20.00 Víkingur leikur við KA á
Víkingsvelli í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
20.00 Þór Ak. og Þróttur R. leika á
Akureyrarvelli í 1. deild karla í fót-
bolta.
20.00 Valur mætir HK á Valsvelli í 1.
deild karla í fótbolta.
20.00 Fjölnir og Haukar keppa á
Fjölnisvelli í 1. deild karla í fót-
bolta.
20.00 Stjarnan keppir við Njarðvík
á Hofsstaðavelli í 1. deild karla í
fótbolta.
20.00 Breiðablik og Völsungur
keppa á Kópavogsvelli í 1. deild
karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
14.20 NBA á Sýn. Útsending frá
leik Detroit og New Jersey.
16.30 Trans World Sport á Sýn.
Íþróttir um allan heim.
16.45 Fótboltakvöld á RÚV. Þáttur
um Landsbankadeildina í fótbolta.
18.15 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
18.30 Saga EM í fótbolta á RÚV.
18.45 Meistaradeild UEFA á Sýn.
Fréttaþáttur meistaradeild Evrópu.
19.15 Íslensku mörkin á Sýn. Þátt-
ur um Landsbankadeildina í fót-
bolta.
19.45 Landsbankadeildin á Sýn.
Bein útsending frá leik Víkings og
KAP í 2. umferð Landsbankadeild-
ar karla.
22.00 Motorworld á Sýn. Kraftmikill
þáttur um allt það nýjasta í heimi
akstursíþrótta.
KR–FJÖLNIR 3–1 (1–1)
1–0 Hólmfríður Magnúsdóttir 11.
1–1 Elísa Pálsdóttir 40.
2–1 Sólveig Þórarinsdóttir 76.
3–1 Edda Garðarsdóttir 79. (víti)
BEST Á VELLINUM
Vanja Stefanovic Fjölnir
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 24–7 (19–5)
Horn 16–2
Aukaspyrnur fengnar 11–15
Rangstæður 2–3
Spjöld (rauð) 1–3 (0–0)
MJÖG GÓÐAR
Vanja Stefanovic Fjölnir
Edda Garðarsdóttir KR
GÓÐAR
Embla Grétarsdóttir KR
GUðrún Sóley Gunnarsdóttir KR
Sólveig Þórarinsdóttir KR
Elísa Pálsdóttir Fjölnir
Helga Franklínsdóttir Fjölnir
Ratka Zivkovic Fjölnir
■ Það sem skipti máli
STJARNAN–ÞÓR/KA/KS 1–1
1–0 Guðrún Halla Finnsdóttir 11. (víti)
1–1 Þóra Pétursdóttir 72.
BEST Á VELLINUM
Sandra Sigurðardóttir Þór/KA/KS
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 18–5 (12–3)
Horn 5–2
Aukaspyrnur fengnar 4–8
Rangstæður 3–0
Spjöld (rauð) 1–0 (0–1)
GÓÐAR
Sandra Sigurðardóttir Þór/KA/KS
Þóra Pétursdóttir Þór/KA/KS
Inga Birna Friðjónsdóttir Þór/KA/KS
Auður Skúladóttir Stjörnunni
Sarah Lentz Stjörnunni
Harpa Þorsteinsdóttir Stjörnunni
■ Það sem skipti máli
Danska bikarkeppnin í
knattspyrnu:
FC Kaup-
manna-
höfn vann
FÓTBOLTI FC Kaupmannahöfn
tryggði sér danska bikarmeistara-
titilinn með því að leggja AaB Ála-
borg að velli 1-0 í úrslitaleik. Alls
er þetta í þriðja sinn sem liðið
landar bikarmeistaratitlinum en
markið sem skildi liðin að gerði
Morten Bisgaard með laglegu
skoti rétt innan við vítateig á tutt-
ugustu og áttundu mínútu. Seinni
hluta síðari hálfleiks lék FC Kaup-
mannahöfn einum manni færri
því Peter Moller fékk að líta rauða
spjaldið en það gerði ekkert til því
AaB náði ekki að nýta sér það til
fullnustu. Á sunnudaginn getur
FC Kaupmannahöfn síðan full-
komnað keppnistímabilið en með
sigri þá verður danski meistara-
titilinn þeirra. Þá verður væntan-
lega glatt á hjalla í kóngsins
Köbenhavn. ■
HART BARIST Á KR-VELLINUM Í GÆR
KR vann nýliða Fjölnis, 3–1, í baráttuleik á KR-vellinum í Frostaskjóli í gær.