Fréttablaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 43
31FÖSTUDAGUR 21. maí 2004
Glerfínar Gjafir
Tilvalin útskriftargjöf
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
47
61
05
/2
00
4
Puntaðu upp á tilveruna og komdu í
Blómaportið. Þar færðu afskorin blóm
á lægra verði.
Opið alla fimmtudaga og föstudaga.
nú líka í Sig
túniRitze
nhoff
Í kvöld klukkan 20 verður Norð-urlandafrumsýning á víðfrægri
sýningu Söshu Waltz, Körper, í
Borgarleikhúsinu. Þetta er fyrri
sýningin af tveim en sú síðari
verður á morgun klukkan 14.
Körper útleggst sem líkamar
og má með sanni segja að sýning-
in hafi vakið gríðarmikið umtal
auk þess að fá glæsta dóma á Ed-
inborgarhátíðinni fyrir tveimur
árum. Skipuleggjendur Lista-
hátíðar telja þennan viðburð þann
framsæknasta sem hátíðin hefur
upp á að bjóða í ár.
Sýningin er sambland af leik-
húsi, dansi, myndlist og jafnvel
arkitektúr og því er erfitt að skipa
henni í bás en fjórtán sólódansar-
ar taka þátt í sýningunni. Körper
er sögð uppfull af húmor og uppá-
tækjum en aldrei er langt í alvar-
legan undirtóninn sem byggist á
þeim áhrifum sem Sasha varð
fyrir þegar hún skoðaði Gyðinga-
safnið í Berlín. Sasha býður upp á
ótrúlegar brellur og sjónhverfing-
ar á sviðinu sem Íslendingum er
ekki boðið upp á dagsdaglega.
Sýningunni fylgir líka stærsta
leikmynd sem nokkru sinni hefur
verið flutt til landsins en alls
þurfti fjóra gáma til að koma
henni sjóleiðis til Íslands. ■
ÚR KÖRPER
Sjónhverfingar, leikhús, dans og myndlist blandast saman í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Líkamar
■ LISTAHÁTÍÐ
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
G
ÍS
LA
SO
N
FINNSKUR VERULEIKI
Sjö finnskir ljósmyndarar sýna verk sín í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur og taka meðal
annars á tilvist einstaklingsins, landslagi,
umhverfi og sögu.
LISTIN FÆRÐ TIL FÓLKSINS.
Diddú og Anna Guðný Guðmundsdóttir
voru meðal þeirra sem færðu tónlistina til
almennings með því að leika listir sínar í
Kringlunni.
OG BOLTINN FER AF STAÐ
Íslenski dansflokkurinn frumsýndi nýtt
verk eftir Katrínu Hall sem flæddi
meðal áhorfenda.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
BASSAR OG TENÓRAR
Það voru bæði djúpir flauelsbassar og
silkimjúkir tenórar kórs St Basil
dómkirkjunnar í Moskvu sem hitaði upp
á setningu listahátíðar fyrir tónleika sína
í Hallgrímskirkju.
FÆRÐUR Í GULL
Þó svo margir hafi lagt leið sína í Lista-
safn Íslands til að sjá hina víðfrægu gull-
styttu Koons af Michael Jackson og apan-
um hans Bubbles, er ýmislegt fleira þar
að sjá. Jafnvel sumt sem kemur
skemmtilega á óvart.