Fréttablaðið - 21.05.2004, Qupperneq 13
■ Evrópa
13FÖSTUDAGUR 21. maí 2004
ÁRNI MAGNÚSSON
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
44 styrkir hafa verið veittir til atvinnumála
kvenna víðs vegar um landið.
Atvinnumál kvenna:
Ráðherra
veitir styrki
STYRKIR Félagsmálaráðherra hefur
í ár veitt 44 styrki til atvinnumála
kvenna víðs vegar um landið.
Styrkirnir nema á bilinu 150–750
þúsund króna. Mikill áhugi virðist
vera á verkefninu því ráðu-
neytinu bárust alls 178 umsóknir.
Tilgangur styrkveitinganna í
ár var fjórþættur. Í fyrsta lagi
sem vinnumarkaðsaðgerð til að
draga úr atvinnuleysi meðal
kvenna, í öðru lagi til að viðhalda
byggð um landið, í þriðja lagi til
að auðvelda aðgang kvenna að
fjármagni og í fjórða lagi til að
auka fjölbreytni í atvinnulífinu.
Hluta fjárins var varið í verkefni
á svæðum þar sem atvinnulíf er
einhæft og hlutfall atvinnuleysis
er hátt. Styrkir til atvinnumála
kvenna hafa verið veittir frá ár-
inu 1991 og eru aðallega veittir til
þeirra sem eru með nýsköpunar-
verkefni í huga. Árlega er veittar
til verkefnisins 20–25 milljónir
sem skiptast á 40–50 styrki. ■
BIÐST AFSÖKUNAR Joseph Deiss,
forseti Sviss, hefur beðið Rússa
afsökunar á árekstri tveggja
flugvéla í svissnesku flugumferð-
arstjórnarsvæði árið 2002. 71
maður lét lífið, mestmegnis
rússnesk skólabörn.
Matvælaverð:
Hækkar eftir
aðild að ESB
LITHÁEN, AP Algirdas Brazauskas,
forsætisráðherra Litháens, hef-
ur skammað matvöruverslanir
hressilega fyrir að hækka vöru-
verð eftir að landið varð aðili að
Evrópusambandinu um síðustu
mánaðamót. Síðan þá hafa
brauð, mjólk, nautakjöt og
sykur hækkað um fimm til tíu
prósent.
Brazauskas sagði ytri að-
stæður ekki skýra verðhækkan-
irnar heldur væru þær ákvarð-
anir kaupmanna og skipaði
hann samkeppnisstofnun Lithá-
ens að rannsaka verðhækkan-
irnar. ■
Ferðamennska:
Japanir á
faraldsfæti
FERÐALÖG Bandarísk ferðamála-
yfirvöld greina frá því að ferða-
mönnum frá Japan hefur fjölgað
á ný í fyrsta sinn síðan hryðju-
verkaárásirnar á Tvíbura-
turnana varð árið 2001. Þá snar-
fækkaði ferðalöngum frá Japan
bæði til Bandaríkjanna og Evr-
ópu og er þeirra sárt saknað
enda þeir ferðamenn sem skila
hvað mestum gjaldeyristekjum
í heiminum.
Nú hefur þeim fjölgað á ný á
vesturströnd Bandaríkjanna og á
Havaíeyjum en einhver tími mun
líða áður en komur þeirra til
Evrópu ná fyrra marki. ■
LÍF OG FJÖR Í SKÓLAFERÐALAGI
Tólf ára krakkarnir í Breiðagerðisskóla skemmtu sér vel í skólaferðalagi á Laugarvatni. Fyrir utan að róa út á vatnið höfðu þau farið í sund
og á safn, að sögn Guðlaugar Ólafsdóttur kennara þeirra. Krakkarnir munu á næsta ári stunda nám í unglingadeild og var því um eins
konar kveðjuferðalag að ræða.
Bretland:
Járnbrautar-
starfsmenn í
verkfall
BRETLAND, AP Félag járnbrautar-
starfsmanna í Bretlandi hefur
ákveðið að hefja verkfallsaðgerð-
ir innan tíðar enda hefur þeim
orðið lítið ágengt í kjaradeilu
sinni við ríkið. Stendur deilan um
kaup og kjör sem starfsmönnum
þykja lítil og lök og árangur af
viðræðum enginn. Dagsetning
verkfallsins hefur ekki verið
ákveðin en ljóst er að slíkt verk-
fall myndi valda öngþveiti um
landið allt enda margir sem reiða
sig á þennan samgöngumáta sér-
staklega þar sem umferð á flest-
um vegum í landinu er oft á tíðum
tafsöm vegna umferðarþunga. ■