Fréttablaðið - 21.05.2004, Síða 22
Enn eitt afmælið
Í næstu viku fagnar Sjálfstæðisflokkurinn
75 ára afmæli sínu og er búist við veg-
legum hátíðarhöldum af því tilefni. Það er
skammt stórra högga á milli því ekki er
langt um liðið
síðan flokkur-
inn tók að sér
að halda upp
á aldarafmæli heimastjórnar, eins og frægt
er orðið. Einn maður mun bera hitann og
þungan af afmælishátíð flokksins en það
er auðvitað Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Flokks-
menn treysta auðvitað engum betur til
verksins enda hefur Davíð Oddsson for-
maður látið svo ummælt á skemmtunum
flokksins að það hafi verið Jón Þorláksson
sem réði Kjartan í starf framkvæmdastjóra.
Jón var sem kunnugt er fyrsti formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Hættuleg drottningarviðtöl
Eftir óvænt brotthvarf Erlendar Hjaltasonar
úr forstjórastóli Eimskips, þar sem hann
vék fyrir Baldri Guðnasyni, hafa gárungarn-
ir velt því fyrir sér hvort varasamt sé fyrir
menn í viðskiptalífinu að fara í drottning-
arviðtöl í Morgunblaðinu. Skömmu áður
en forstjóraskiptin áttu sér stað birtist mik-
ið viðtal við Erlend í Mogganum þar sem
meðal annars var rætt um framtíðaráform
Eimskips. Ekki er ýkja langt síðan sam-
bærilegt viðtal birtist við annan forstjóra
sem missti starfið stuttu síðar. Þar átti í
hlut Halldór Guðmundsson, forstjóri Eddu
Útgáfu, sem vék fyrir Páli Braga Kristjóns-
syni. Bæði þessi
fyrirtæki eru í
eigu Björg-
ólfs Guð-
mundssonar
og menn
hafa spurt
sig hvort
Björgólfi sé eitt-
hvað í nöp við
drottningarviðtöl í
Morgunblaðinu...
Ljóst er að átökin um fjölmiðla-
frumvarpið hafa tekið sinn toll hjá
stjórnarflokkunum. Vissulega má
segja að Davíð Oddsson hafi haft
sigur í þessu máli og sama er að
segja um Halldór Ásgrímsson,
sem kaus að standa með stjórnar-
samstarfinu og treysta enn frekar
það foringjasamstarf sem farið er
að verða eitt höfuðeinkenni þess-
arar ríkisstjórnar. Það er seigt
límið, sem heldur þessum tveimur
mönnum saman, og vissulega mun
Halldór Ásgrímsson njóta þess
þegar þeir víxla hlutverkum –
Halldór kominn í forsætisráð-
herrastólinn en Davíð stýrimaður
á þjóðarskútunni.
En sigurinn hefur ekki verið
ókeypis og þó ofmælt sé kannski
að tala um Pyrrosarsigur þá er
ljóst að foringjaveldið í stjórnar-
flokkunum mun ekki standa jafn
óskorað eftir og það var fyrir
þessa rimmu. Báðir hafa leiðtogar
stjórnarflokkanna gengið eins
langt og þeir frekast gátu gagn-
vart baklandi sínu, og mega því
ekki við miklum áföllum til viðbót-
ar. Það er farið að molna úr undir-
stöðum þeirra sem óskoraðra
máttarstólpa í flokkum sínum.
Þannig hefur fjölmiðlafrum-
varpið og sú aðferðafræði sem
Davíð Oddsson beitti við að keyra
það í gegn gengið nærri mörgum
flokksmanni Sjálfstæðisflokksins.
Þetta má m.a. sjá af viðbrögðum
nafntogaðra sjálfstæðismanna úti
í þjóðfélaginu sem bæði hafa mikl-
ar efasemdir um hvort hugmynda-
fræði frumvarpsins sé yfirhöfuð
ásættanleg og einnig hvort máls-
meðferðin sé nægjanlega vönduð
miðað við það á hve gráu svæði
frumvarpið er gagnvart stjórnar-
skrá og EES-samningnum. Þegar
við þetta bætist að frumvarpið
verður ekki skilið öðruvísi – að
stórum hluta í það minnsta – en
sem liður í sérstökum og illvígum
persónulegum þrætum Davíðs
sjálfs við fyrirtækið Baug, þá
efast menn enn frekar um dóm-
greind foringjans og ákvarðanir.
Forsætisráðherra hefur vissulega
þingflokkinn með sér og þessa
þekktu hugmyndafræðinga flokks-
ins, menn eins og Hannes Hólm-
stein Gissurarson prófessor, en
jafnvel þeir þurfa að hafa sig alla
við að svara fyrir hugmynda-
fræðina. Þannig segir það tals-
verða sögu þegar Hannes Hólm-
steinn telur sig þurfa að svara
ungum frjálshyggjumönnum sér-
staklega í viðhafnargreinum í
Morgunblaðinu um hvernig það
megi vera að frjálshyggjumenn
geti stutt frumvarp af þessu tagi.
Þegar síðan fleiri umdeild mál
bætast við þar sem stjórnsýsla og
leiðsögn Davíðs er gagnrýnd sér-
staklega, getur komið að því að
Davíð Oddsson þurfi að huga sér-
staklega að stöðu sinni í flokknum
– ekki síst í ljósi þess að hann er
sjálfviljugur að stíga úr leiðtoga-
sæti ríkisstjórnarinnar til að
hleypa Halldóri að, en sú ákvörðun
hans hefur sem kunnugt er mælst
afar misjafnlega fyrir meðal
flokksmanna.
Þó er sigur Halldórs trúlega
enn brothættari en sigur Davíðs. Í
hugum margra framsóknarmanna
gekk Halldór Ásgrímsson alltof
langt til að verja stjórnarsam-
starfið og sætir hann beinlínis
„flokkslegri óhlýðni“ sem er nokk-
uð sem ekki hefur þekkst lengi í
Framsóknarflokknum. Ekki nóg
með að Kristinn H. Gunnarsson
hafi lagst gegn frumvarpinu og
þar með ákvörðun Halldórs, held-
ur er borgarstjórnarhluti Fram-
sóknarflokksins beinlínis búinn að
lýsa yfir vanþóknun á leiðsögn for-
mannsins. Halldór er nú þingmað-
ur Reykvíkinga og það eru því fólk
í hans kjördæmi sem stendur að
samykkt borgarstjórnar fyrr í vik-
unni gegn fjölmiðlafrumvarpinu.
Ekki má heldur gleyma efasemd-
um Jónínu Bjartmarz, varafor-
manns allsherjarnefndar, sem átti
mjög erfitt í þessu máli og fór ekki
leynt með það. Þá eru nafntogaðir
fræðimenn sem lengi hafa verið
tengdir Framsókn yfirlýstir and-
stæðingar frumvarpsins og ýmsar
flokksdeildir hafa lýst efasemdum
líka. Þannig má ætla að einingin
um formanninn, sem jafnan er svo
einkennandi fyrir framsóknar-
menn, sé nú með allra minnsta
móti. Í slíkum tilfellum myndi for-
maður alla jafna þurfa dálítinn
tíma til að byggja upp stuðning á
ný og safna liðinu saman til að
yfirvinna ágreiningsmál. Hugsan-
lega mun Halldór fá sumarið til
þess, en horfur eru þó á að sumar-
ið kunni að verða Halldóri óvenju
erfitt, pólitískt. Ekki einvörðungu
mun fjölmiðlafrumvarpið og átök-
in í kringum það lifa fram að for-
setakosningum í það minnsta –
hvort sem Ólafur Ragnar stað-
festir frumvarpið eða synjar því –
heldur mun nú taka við óhjá-
kvæmilegur niðurskurður í ráð-
herraliðinu. Þann kaleik getur
enginn tekið frá Halldóri, enda
kaus hann sjálfur að taka hann og
nú er komið að því að teyga hann
til botns. Það er nánast óhugsandi
að Halldór komist frá því verki án
átaka, illsku og óánægju. Allir ráð-
herrar flokksins hafa lýst áhuga á
að sitja áfram og hver og einn
þeirra hefur talsvert til síns máls
og á sér öflugt stuðningslið. Að
ganga beint inn í slíkan óvina-
fagnað eftir fjölmiðlamálið gæti
þýtt að flokksleg óhlýðni breyttist
í flokkslega uppreisn með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum fyrir
flokkinn.
Það mun því mikið reyna á
Halldór í framhaldinu og ljóst að
bæði hann og Davíð hafa mikið
verk að vinna innanhúss hjá sér –
ef þeir ætla sér að vera áfram –
þær pólitísku stoðir flokka sinna
sem þeir hafa verið hingað til. ■
F yrst þegar fjölmiðlafrumvarp Davíðs Oddssonar var birt naut þaðstuðnings 23 prósenta þjóðarinnar. 77 prósent þeirra sem tóku af-stöðu í skoðanakönnun Fréttablaðsins voru andvíg frumvarpinu.
Þegar umræðan um frumvarpið hafði staðið í viku og fyrstu breytingarn-
ar á frumvarpinu lágu fyrir var stuðningur við frumvarpið fallinn niður í
17 prósent. 83 prósent þeirra sem gáfu upp afstöðu voru andvíg frumvarp-
inu. Á mánudaginn voru síðan kynntar enn nýjar breytingar, meðal annars
til að sníða af frumvarpinu það ákvæði sem flestir höfðu talið að stangað-
ist á við stjórnarskrá. Eftir það nýtur frumvarpið stuðnings 19,5 prósenta
þjóðarinnar. 80,5 prósent þeirra sem tóku afstöðu eru andvígir frumvarp-
inu.
Það er því ljóst að andstaðan við þetta frumvarp er mikil – meiri en við
flest umdeild mál sem komið hafa upp á undanförnum árum. Hin mikla
umræða sem farið hefur fram um frumvarpið hefur ekki dregið úr and-
stöðunni heldur fremur aukið hana. Þær breytingar sem hafa verið gerð-
ar á frumvarpinu hafa heldur ekki náð að auka trú almennings á málinu.
Jafnvel sú ákvörðun að svifta fjölmiðlafyrirtæki ekki þeim leyfum sem
þau hafa þegar fengið úthlutað hefur sáralítil áhrif á afstöðu fólks. Stærsti
hluti almennings – fjórir af hverjum fimm – er enn og hefur alltaf verið á
móti þessu frumvarpi.
Og hvernig stendur á því? Líklegasta skýringin er sú að það er augljóst
að þetta frumvarp er sprottið af andúð forsætisráðherra á Norðurljósum
og aðstandendum þess. Það má varla finna þann þingmann – eða nokkurn
annan mann yfirhöfuð – sem hefur talað af sannfæringu fyrir þessu máli.
Þrátt fyrir það verður þetta frumvarp að líkindum samþykkt sem lög í dag
af naumum meirihluta alþingismanna. Þetta mál er því ekki aðeins efnis-
lega vitlaust heldur er undirbúningur þess og afgreiðsla í ríkisstjórn og á
Alþingi andstæð hugmyndum venjulegs fólks um lýðræði og eðlilega
stjórnarhætti. Með samþykkt þessa frumvarps eru þingmenn að af-
skræma lýðræðið.
Í Fréttablaðinu í dag er einnig birt niðurstaða könnunar um afstöðu al-
mennings til þess hvort forseti Íslands hafi vald til að staðfesta ekki lög og
skjóta þeim þannig til þjóðaratkvæðagreiðslu. 87 prósent þeirra sem taka
afstöðu segja forsetann hafa þetta vald. Fréttablaðið spurði sömu spurn-
ingar fyrir tveimur mánuðum og þá var 81 prósent landsmanna fylgjandi
þessu valdi forsetans. Umræðan um fjölmiðlafrumvarpið hefur því aukið
stuðning almennings við málskotsrétt forsetans.
Þegar fólk er síðan spurt hvort forseti Íslands eigi að neita að staðfesta
fjölmiðlalögin og skjóta þeim í þjóðaratkvæði segist 71 prósent vilja að
forsetinn neiti að staðfesta þessi lög – 29 prósent eru andsnúin því. Það er
því mikill meirihluti þjóðarinnar fyrir því að forsetinn láti þjóðina sjálfa
skera úr um þetta umdeilda mál.
Það er líklega flestum illskiljanlegt hvers vegna stjórnarflokkarnir
ætla að fara gegn vilja þjóðarinnar í þessu máli. Auðvitað þurfa stjórnvöld
stundum að bregðast snöggt við hættuástandi og taka jafnvel óvinsælar
ákvarðanir gegn vilja stærsta hluta þjóðarinnar. Þetta mál – lög um tak-
mörkun á eignarhaldi fjölmiðla – uppfyllir hins vegar ekki þau skilyrði
sem þurfa að vera fyrir slíkum ákvörðunum. Þetta mál og allur málatil-
búningur ríkisstjórnarinnar eru mistök sem auðveldast er að leiðrétta með
því að draga frumvarpið til baka. ■
21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
MÍN SKOÐUN
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Andstaða þjóðarinnar við fjölmiðlafrumvarpið er
mikil og staðföst.
Þjóðin hafnar
frumvarpinu
Molnar undan máttarstólpum
ORÐRÉTT
Spyr sá sem ekki veit
Var ekki konungssambandinu
slitið 1944?
Sigurður Líndal, lagaprófessor, í
grein um synjunarvald forseta.
Morgunblaðið 20. maí.
Allt stjórnarandstöðunni að kenna
En í stað þess að koma með mál-
efnalegar breytingartillögur eða
sambærilegar lausnir á vandan-
um, sem allir virðast vera sam-
mála um að sé til staðar, þá gríp-
ur stjórnarandstaðan til málþófs
og endalausrar umræðu um form
án tillits til innihalds. Með þessu
hefur stjórnarandstaðan gloprað
niður upplögðu tækifæri til þess
að hafa gagnleg og jákvæð áhrif á
lagasetninguna.“
Viðskiptablaðið 19. maí.
Baugur og kommarnir
Þegar Ísland gekk í Atlantshafs-
bandalagið 1949, gerður komm-
únistar og nytsamir sakleysingj-
ar í slagtogi með þeim allt, sem
þeir gátu, til að koma í veg fyrir
löglega afgreiðslu málsins og
ráku rógsherferð gegn Bjarna
Benediktssyni, sem hafði for-
göngu um málið. Baugsveldið
beitir sér nú af sömu hörku gegn
Davíð Oddssyni.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson um
ástand þjóðmála.
Morgunblaðið 20. maí.
Rót vandans
Gallinn er auðvitað sá að hér
tapa menn kosningum en sitja
áfram á valdastóli.
Valgerður Bjarnadóttir Benedikts-
sonar um ástand þjóðmála.
Fréttablaðið 20. maí.
FRÁ DEGI TIL DAGS
Þetta mál er því ekki aðeins efnislega vitlaust
heldur er undirbúningur þess og afgreiðsla í ríkis-
stjórn og á Alþingi andstæð hugmyndum venjulegs fólks
um lýðræði og eðlilega stjórnarhætti. Með samþykkt
þessa frumvarps eru þingmenn að afskræma lýðræðið.
,,
ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson RITSTJÓRNARFULLTRÚAR: Steinunn Stefánsdóttir og Jón Kaldal
AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 515 75 00 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 515 75 06
NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift
ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar, 1.100 krónur á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
Í DAG
EFTIRKÖST
FJÖLMIÐLAFRUMVARPS
BIRGIR
GUÐMUNDSSON
En sigurinn hefur
ekki verið ókeypis
og þó ofmælt sé kannski að
tala um Pyrrosarsigur þá er
ljóst að foringjaveldið í
stjórnarflokkunum mun ekki
standa jafn óskorað eftir og
það var fyrir þessa rimmu.
,,
degitildags@frettabladid.is