Fréttablaðið - 21.05.2004, Page 27
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 94 stk.
Keypt & selt 23 stk.
Þjónusta 46 stk.
Heilsa 7 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 9 stk.
Tómstundir & ferðir 15 stk.
Húsnæði 21 stk.
Atvinna 11 stk.
Tilkynningar 5 stk.
Kvenfatnaður í miklu úrvali
NÝJAR VÖRUR DAGLEGA!
NÝBÝLAVEGUR 12. KOPAVOGUR. SÍMI 554 4433
Opnunartími virka daga 10-18
og laugardaga 10-16
Ítalskir stólar
BLS. 6
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 21. maí,
142. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.53 13.24 22.58
Akureyri 3.14 13.09 23.07
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
„Ég á eiginlega allt of mikið af skóm,“ segir
Yesmin Olsson dansari, en hún þarf að hugsa
sig nokkuð um þegar hún er spurð um uppá-
haldsskóna sína nú í upphafi sumars. „Ég get
nefnt bleiku Puma-skóna mína, þar sem ég
get sagt að þeir séu dæmigerðir skór fyrir
mig. Ég geng mikið í strigaskóm og uppá-
haldsliturinn minn er bleikur.“
Það kemur ekki á óvart að Yesmin vilji
helst þægilega skó, en hún eyðir mestum
hluta dagsins við danskennslu eða sem
einkaþjálfari í líkamsrækt þar sem ekki er
möguleiki að tipla um á bandaskóm eða risa-
hælum. „Þess vegna geng ég mjög mikið í
gulu strigaskónum mínum eða bleiku Puma-
skónum í vinnunni,“ segir Yesmin hlæjandi ,
en þessa dagana er hún einnig á fullu við
undirbúning fyrir Ungfrú Ísland-keppnina
og hefur lítinn tíma til að slappa af.
Yesmin er þessa dagana mjög hrifin af
skóm sem eru „funky“, litríkir og þægilegir.
„Ég á líka mikið af fötum og hef gaman af að
versla. Yfirleitt kaupi ég mér föt í eX í
Kringlunni. Allt annað kaupi ég erlendis.“ ■
Uppáhaldsskórnir:
Litríkir og þægilegir
matur@frettabladid.is
Hollustukex úr haframjöli og
spelti er nýkomið á markað. Það
heitir Fruit Break og fæst með
tvenns konar bragði, eftir fylling-
um. Annars vegar er það fyllt
með eplum og hins vegar hind-
berjum. Pakkarnir innihalda af-
langar kökur
sem hver
og ein
er inn-
pökkuð.
Kökurnar
eru laus-
ar við
sætuefni
en eru þó
gómsætar
vegna ávaxtafyllingar-
innar og einnig er í þeim örlítill
kanill. Kexið fæst í Yggdrasil, Hag-
kaupum og Fjarðarkaupum.
60% saltkjötssýna innihéldu
of mikil nítrít í könnun sem gerð
var í febrúar og mars. Tekin voru
49 sýni af kjöti og þar af voru 28
saltkjötssýni. Saltmagn í þeim
vörum sem sýni voru tekin úr var
frá 2,6 grömmum til 7,4 gramma
í 100 grömmum af vöru. Ekkert
hámarksgildi er fyrir salt í matvæl-
um en samkvæmt ráðleggingum
Lýðheilsustöðvar ætti neysla á salti
ekki að yfir fimm grömm á dag.
Framleiðendur þess saltkjöts sem
greindist með nítrít yfir leyfilegum
hámarksgildum hafa stöðvað
dreifingu á viðkomandi vörum
og eru að endur-
skoða framleiðslu-
ferla. Heilbrigðiseftir-
lit sveitarfélaga mun
fylgjast með þeim úr-
bótum sem framleið-
endur gera.
Leirvörur á ekki að
nota undir matvæli nema fullvíst
sé að þær séu ætlaðar til þess,
segir í ábendingu frá Umhverfis-
stofnun. Ástæðan er sú að fjöl-
skylda í Svíþjóð fékk alvarlega
blýmengun eftir að hafa drukkið
appelsínusafa úr leirkrukku. Leir-
krukkan var keypt í Grikklandi.
Þetta er í annað skiptið á þessu
ári, svo vitað sé til, sem alvarleg
blýeitrun kemur upp í Svíþjóð
sem rekja má til leirvöru frá
Grikklandi. Við rannsókn kom í
ljós að leirkrukkan sem um ræðir
gaf frá sér um 300 mg í lítra. Há-
marksgildi fyrir flæði blýs úr leir-
vörum er 4 mg í lítra samkvæmt
reglugerð. Blý getur haft skaðleg
áhrif á taugakerfi og meltingar-
veg. Auk þess getur það leitt til
blóðleysis. Fóstur og lítil börn eru
sérstaklega viðkvæm fyrir blýi.
Yesmin er sérstaklega hrifin af litríkum skóm þessa dagana.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR MATINN
Landsins mesta úrval af bátum, utan-
borðsmótorum og bátavörum. Vélasal-
an ehf., Ánanaustum 1. S. 580 5300.
www.velasalan.is A.th. sumaropnun til
kl. 18.00.
Til sölu Coleman Taos árg. 2002. Gott
hús, gasmiðstöð, fortjaldsskyggni. Verð
780.000. Uppl. í s. 898 1177.
Fyrirtæki-Húsfélög fl.
Sláttur, umhirða, plöntun & hellulagnir.
Garðaþjónustan Björk s. 899 7679. Jó-
hann Pálmason, skrúðgarðyrkjufræð-
ingur.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Prag er rík borg bæði af sögu og menningu. Ung listræn ís-
lensk kona lagði leið sína til Prag fyrir fimm árum, féll flöt
fyrir borginni og kristalnum og kom ekki tómhent heim.
Þessi fallega kristalskróna kom til Íslands undir armi
eiganda síns ósamsett og tók tímana tvo að koma henni
saman og loks yfir borðstofuborðið.
„Kristalsbúðirnar eru á hverju strái í Prag og það var
erfitt að velja ljósakrónu úr allri flórunni. Þessi varð loks
fyrir valinu þar sem hún er passlega stór og hún er líka
nútímalegri en margar klassísku tékknesku ljósakrón-
urnar.“
Tékkneska krónan sómir sér vel yfir portúgölsku við-
arborði, ekki síst núna þegar barokkáhrif eru vinsæl í
hönnun heimila. ■
Ljósin í bænum:
Tók tímana tvo að koma
ljósakrónunni saman