Fréttablaðið - 21.05.2004, Side 38
21. maí 2004 FÖSTUDAGUR12
VISSIR ÞÚ ...
...að meðalbrjóstastærð kvenna í dag
er 36C en fyrir tíu árum var hún 34B?
...að Eiffelturninn í París er hærri á
sumrin en veturna því stál þenst út
þegar það er heitt?
...að mannfólkið er eina dýrategund-
in á jörðinni sem stundar kynlíf
augliti til auglitis?
...að dýrið sem ber ábyrgð á flestum
dauðsföllum í heiminum er
moskítóflugan?
...að tungan er eini vöðvinn í líkam-
anum sem er bara festur við einn
enda?
...að fólk sem drekkur ekki kaffi er
líklegra til að fremja sjálfsmorð en
fólk sem drekkur kaffi?
...að Biblían er ekki aðeins mest
selda bók heims heldur líka sú sem
er oftast stolið?
...að ástralskar konur er líklegastar
til að sofa hjá á fyrsta stefnumóti?
...að 50.000 jarðskjálftar verða á
jörðinni á ári hverju?
...að raunverulegt nafn rapparans
Ice Cube er O’Shea Jackson?
...að stysta stríð í heimi háðu Zanzi-
bar og England árið 1896? Zanzibar
gafst upp eftir 38 mínútur.
...að karlmenn fá oftar hiksta en
konur?
...að Móna Lísa er ekki með neinar
augabrúnir? Það var í tísku þá.
...að ský fljúga hærra að degi til en
að nóttu?
...að Tom Arnold, Sandra Bullock,
Chevy Chase, Bill Cosby, Kris
Kristofferson og Bruce Willis hafa
öll unnið sem barþjónar?
...að mest seldu jólagjafirnar árið
1980 í Bandaríkjunum voru dúkkur
úr kvikmyndunum um Stjörnustríð?
...að í Mexíkóborg eru fleiri leigubíl-
ar en nokkurs staðar annars staðar í
heiminum?
...að flestir fílar eru léttari en tunga í
steypireiði?
...að um það bil 55% allra útgefinna
mynda eru bannaðar börnum?
...að djassáhugafólk og byssueig-
endur í Bandaríkjunum eru meðal
þeirra sem stunda kynlíf oftast?
...að brjóstahaldari Marilyn Monroe
sem hún klæddist í kvikmyndinni
Some Like It Hot var seldur á yfir
eina milljón króna?
ÞINGEYRI: SJÁVARPLÁSS VIÐ SUNNANVERÐAN DÝRAFJÖRÐ
ÍBÚAFJÖLDI: 330.
BÆJARFJALL: Sandafell (367 m). Hægt er að aka upp á fjallið.
FRÆGASTA DÓTTIR: Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur er alin upp á Þingeyri.
FRÆGASTI NÖLDRARI: Kristjana Vagnsdóttir sem skrifar í blöðin, hringir í
útvarpið og er alltaf á móti.
NÆSTUM FRANSKIR: Franskir lúðuveiðimenn, sem höfðu bækistöðvar á
þessum slóðum á nítjándu öld, vildu gera Þingeyri að frönsku yfirráðasvæði en
beiðninni var hafnað.
FRÆGASTI SUMARSTRÁKUR: Ólafur Ragnar Grímsson dvaldi langdvölum á
Þingeyri sem barn hjá afa sínum og ömmu.
SVIPMYND
Vorið er komið, að minnsta kosti hjá þessum kappa sem var við veiðar í Elliðavatninu á dögunum.
SJÓNARHORN