Fréttablaðið - 21.05.2004, Síða 39
27FÖSTUDAGUR 21. maí 2004
Stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst
hefur með krabbamein og aðstandendur
Heilsudagur Lífís verður haldinn á morgun í samstarfi við Hjartavernd og Kraft - stuðningsfélag.
Lífís verður með kynningu í World Class í Laugum og á kynningarbás í Smáralind, laugardaginn 22. maí.
Fulltrúar Hjartaverndar verða á staðnum og bjóða gestum upp á mælingar á blóðþrýstingi og kólesteróli,
ásamt fræðslu. Jafnframt munu fulltrúar frá Krafti kynna starf félagsins og öflugt forvarnarstarf gegn
krabbameini.
World Class, Laugum: kl. 10:00-12:00
Smáralind, kynningaraðstaða VÍS og Lífís: kl. 13:00-16:00
Ekki láta tening örlaganna ráða úrslitum um hvaða stefnu líf þitt tekur. Taktu ábyrgð á þínu lífi.
Velkomin í mælingu í boði Lífís.
Ertu með öll spilin
á hreinu?
Kíktu í mælingu á morgun í boði Lífís og fáðu það á hreint
hvernig líkamsástand þitt er.
Vátryggingafélag Íslands · Ármúla 3 · 108 Reykjavík · Þjónustuver 560 5000 · www.vis.is
Útgefandi Lífís trygginga er Líftryggingafélag Íslands hf. · www.lifis.is
Minjagarðurinn að Hofsstöð-um í Garðabæ verður opn-
aður formlega í dag klukkan
15.30. Í minjagarðinum eru
varðveittar minjar frá land-
námsöld sem sýna að á Hofs-
stöðum var stórbýli en þar eru
minjar af næststærsta skála frá
landnámsöld sem fundist hefur
hér á landi. „Það hafa líka fund-
ist um 300 munir, þar er merk-
ust hringlaga bronsnæla. Merki-
legt þykir að þessa bæjar er
ekki getið í Landnámu,“ segir
Guðfinna Kristjánsdóttir, upp-
lýsingastjóri Garðabæjar. Því er
ekki vitað hverjir hafa búið að
Hofsstöðum.
„Þegar við opnum minjagarð-
inn ætlum við að sýna þetta
margmiðlunar-
efni sem hefur
verið gert. Það er
hægt að nálgast
það á snertiskjá
og varpa upp í
glugga á tónlist-
arskólanum. Þá
munu víkingar
bera fram veit-
ingar í anda land-
námsmanna og
Guitar Islancio
spilar þjóðlega
tónlist. Garður-
inn er ekki aflok-
aður, þannig að
fólk getur komið og skoðað
hvenær sem er.“
Gagarín sá um hönnun og
framleiðslu margmiðlunarefnis-
ins og er það mjög umfangsmik-
ið. Þar má til dæmis sjá á tímaás
hvaða störf fólk var að vinna á
hverjum árstíma og hægt að
skoða umhverfið út frá ímynd-
uðum íbúum stórbýlisins. „Allar
persónurnar eru skáldaðar sam-
kvæmt handriti Ragnheiðar
Traustadóttur fornleifafræð-
ings, þannig að frá þessu er sagt
eins og það hefði getað verið.“ ■
Ungir háskólanemar
HÁSKÓLI UNGA FÓLKSINS Frá 14. til
19. júní stendur Háskóli Íslands
fyrir Háskóla unga fólksins, þar
sem unglingum á aldrinum 12 til
16 ára gefst kostur á að fá að
kynnast ólíkum námskeiðum
eins og eðlisfræði, kynjafræði,
japönsku og lögfræði svo eitt-
hvað sé nefnt.
„Þetta er lítill sumarháskóli
þar sem boðið er upp á 22 nám-
skeið úr ýmsum hornum Há-
skólans. Unglingarnir geta valið
átta af þessum námskeiðum og
þannig valið sína eigin stunda-
töflu,“ segir Björn Þorsteinsson,
verkefnisstjóri Háskóla unga
fólksins.
„Skráning er nýhafin og
gengur mjög vel. Fjöldi nem-
enda mun miðast við að stærð
hópa á námskeiðunum verði
sem ákjósanlegastur fyrir bæði
nemendur og kennara. Hvert
námskeið tekur hluta úr degi,
þar sem verið er að taka fyrir
eitthvað eitt tiltekið málefni eða
vandamál. Það er því verið að
gefa þeim nasasjón af hvað
námsgreinin snýst því þetta er
ekki eitthvað sem krakkarnir
hafa mikið verið að læra í
grunnskólum.“
Háskóli unga fólksins sækir í
þá reynslu sem safnast hefur
innan háskólans með kennslu
ungra nemenda og segir Björn
að það sé mikill áhugi innan há-
skólans á þessu starfi, bæði
meðal kennara og stjórnenda.
Áður hefur Háskólinn tekið þátt
í námskeiðum fyrir bráðger
börn í samvinnu við foreldra-
samtökin Heimili og skóla, haft
opinn háskóla og Vísindadaga en
þetta er í fyrsta sinn sem sum-
arskóli er haldinn með þessu
sniði. „Þetta er stærra í sniðum
en verið hefur þó svo sumarhá-
skólinn standi bara í eina viku.
Ef þetta gengur vel standa vonir
til að þetta geti orðið aftur, jafn-
vel árviss viðburður og þá jafn-
vel ennþá stærra í sniðum.“ ■
GRUNNSKÓLANEMAR
KYNNAST RAFMAGNI
Fjölbreytt námskeið eru í
boði í Háskóla unga fólks-
ins. Allar upplýsingar má
finna á ung.is.
NÁM
HÁSKÓLI UNGA FÓLKSINS
■ Fjölbreytt nám fyrir unglinga.
OPNUN
MINJAGARÐURINN AÐ
HOFSSTÖÐUM Í GARÐABÆ
■ opnaður með viðhöfn í dag.
M
YN
D
/A
R
I Ó
LA
FS
SO
N
GUÐFINNA B.
KRISTJÁNS-
DÓTTIR
Segir merkilegt
að bæjarins sé
ekki getið í Land-
námu.
HOFSSTAÐAGARÐUR Í GARÐABÆ
Verður formlega opnaður í dag og um leið verður tekið í notkun margmiðlunarefni sem
nýlega hlaut Nodem-verðlaunin.
Séð með augum íbúa stórbýlis