Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.05.2004, Qupperneq 47

Fréttablaðið - 21.05.2004, Qupperneq 47
35FÖSTUDAGUR 21. maí 2004 Laugavegi 26 • Kringlunni • Smáralind THE LONGEST DAY 2.699,- THERE’S SOMETHING MORE ABOUT MARY 2.999,- 2CD INDEPENDENCE DAY - SPECIAL EDITION 2.699,- PLANET OF THE APES S.E. 2.999,- 2CD TROY Gagnrýnandi Fréttablaðsins var ekkert svo hrifinn af stórmyndinni Troy og sagði Brad Pitt vera Akkilesarhæl myndarinnar. Troy „Allt þetta nöldur mitt breytir því þó ekki að Troy er fínasta skemmtun, þó hún sé í lengri kantinum, og það er vissulega ánægjulegt að Hollywood skuli gefa fornsögum svo mikinn gaum þessi misserin. Það fer þó alltaf um mann smá hrollur þegar sígild verk eru löguð að kröfum draumaverksmiðjunnar. Þetta slapp fyrir horn í The Passion of the Christ þar sem Kristur endaði á krossinum en í Troy taka menn sér full mikið skáldaleyfi þannig að þeir sem munu einungis kynnast Akkiles og félögum í bíó fá svikna útgáfu af Ilíonskviðu.“ ÞÞ Van Helsing „Útlit myndarinnar er frábært, búningarnir eru flott- ir og drungalegt umhverfi Transylvaníu er heillandi. Tæknibrellurnar eru fyrsta flokks en þó nokkuð of- notaðar, sérstaklega í lokin, og þá keyrir væmnin einnig um þverbak. Annars er ekki yfir neinu að kvarta og Van Helsing er alvöru sumarpoppkorns- smellur sem stendur fyllilega undir öllum vænting- um sem slíkur.“ ÞÞ Ned Kelly „Heath Ledger og Orlando Bloom eru þrátt fyrir allt býsna góðir, ef horft er framhjá skelfilegum gervi- skeggjunum. Hins vegar er illa farið með tvo af- bragðsleikara í illa skrifuðum hlutverkum; Naomi Watts, sem efristéttar ástkonu útlagans, og Geof- frey Rush sem er höfuðandstæðingur hans. Ég vil benda áhugamönnum um góða kvikmyndatöku á að hér er mikill snillingur á bak við myndavélina og er mjög vel að verki staðið í flestöllu öðru tæknilegu og listrænu í kvikmyndinni. En heildarút- koman bíður hnekki af völdum ómarkviss handrits. Álitlegt hús en byggt á sandi.“ KD Secret Window „Þá eru vitaskuld stærstu vonbrigðin við The Secret Window að Johnny Depp er ekki að gera neitt af viti. Hann lullast í gegnum rulluna og gerir bara það sem þarf, er auðvitað andskotanum myndar- legri og þarf lítið að reyna á sig, og er meira að segja svo værukær að stundum glittir í Jack Spar- row þegar rithöfundurinn missir tökin á sjálfum sér. Turrturo klikkar hins vegar ekki og lyftir mynd- inni upp en The Secret Window verður því miður engu að síður að teljast nokkur vonbrigði bæði fyr- ir aðdáendur Kings og Depp.“ ÞÞ Drekafjöll „Teikningarnar eru ágætar en standast vitaskuld ekki því besta sem kemur frá Hollywood í þessum geira snúning enda vart hægt að ætlast til þess. Það er vissulega ánægjulegt að menn skuli taka sig til og talsetja evrópskar teiknimyndir en Dreka- fjöll er þó varla myndin til að tryggja það að þetta verði regla frekar en undantekning. Hún er einfald- lega ekki nógu skemmtileg.“ ÞÞ Touching the Void „Þegar hremmingarnar hefjast er sem maður stan- di, falli og brotni með fjallgöngumönnunum. Kvik- myndatakan er vægast sagt ótrúleg og eflaust efni í aðra heimildarmynd hvernig aðstandendur fóru að því að ná sumum af þessum ógleymanlegu skotum. Án efa ein besta myndin í bíó í dag.“ KD [ SMS ] UM MYNDIRNAR Í BÍÓ Athafnakonurnar DóraTakefusa og Margrét Rós Gunnarsdóttir hafa haft í nógu að snúast síðan þær stofnuðu fyrir- tækið sitt Forever Entertainment. Fyrirtækið sérhæfir sig í skipu- lagningu á alls kyns uppákomum og nú hafa þær stöllur tekið við rekstri á Bar Pravda sem er við hliðina á Club Pravda. „Pravda skiptist semsagt núna í tvo ólíka staði. Við munum opna Bar Pravda um helgina en barinn verður opinn alla daga vikunnar frá kl. 16. Sá opnunartími fer formlega af stað á miðvikudag- inn,“ segir Margrét Rós Gunnars- dóttir. „Við verðum á huggulegu nótunum fyrri part vikunnar og svo magnast stemningin um miðja vikuna og að sjálfsögðu fram yfir helgi. Við ætlum að sjá til þess að góð tónlist verði á fón- inum og fáum til liðs við okkur úrvalsplötusnúða til að þeyta skífum.“ Margrét Rós segir að verkefnin sem fyrirtækið fái inn á borð séu af ýmsum toga. „Við erum búnar að takast á við margt fjölbreytt og skemmtilegt. Nú síðast skipulögð- um við Íslandsmót kaffibarþjóna í Smáralindinni, eins gerðum við þátt um Vetrarhátíð sem sýndur var á Skjá 1 og erum í viðræðum um að gera jafnvel samskonar þátt um Menningarnótt í Reykjavík.“ Þessa dagana skipuleggur For- ever Entertainment atburð fyrir PR fyrirtæki í Bretlandi, í sam- starfi við MTV og Gillette. „Nú er í gangi keppni á MTV í Bretlandi þar sem ungt fólk getur unnið ferð til Íslands í boði Gillette. Hópnum fylgir fjöldi blaðamanna, frægir plötusnúðar og að sjálf- sögðu MTV sem mun gera þátt um ferðina. Við sjáum um að skipuleggja uppákomuna sem mun að öllum líkindum verða að hluta til úti í náttúrunni og að hluta til í Reykjavík. Þetta verður heljarinnar partí sem enginn má missa af.“ ■ Stjórna Bar Pravda og taka á móti MTV MARGRÉT RÓS OG DÓRA TAKEFUSA Verkefnin streyma inn á borð til athafnakvennanna í Forever Entertainment SKEMMTANIR FOREVER ENTERTAINMENT ■ Reka bar Pravda og skipuleggja heljarinnar partí hér á landi sem MTV ætlar sér ekki að missa af.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.